Þjóðviljinn - 02.03.1975, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. marz 1975
„Lorna og Ted” heitir breskt sjónvarpsieikrit sem sýnt veröur næsta
sunnudagskvöld. Myndin er af Ted og Lornu — ráöskonunni sem
ruglar mjög líferni sérvitrings.
AÐ DREPA
ÁHUGANN
Sjónvarpsdagskrá næstu viku
er, eins og oft áöur, heldur
rytjuleg.
Ef nýi framhaldsþátturinn,
„Helen, nútimakona” er undan-
skilinn, er fátt um feita bita, og
enn einu sinni tækifæri fyrir
sjónvarpseigendur, aö huga aö
annarri menningarstarfsemi i
landinu.
Hanna Biaschke — pólskur
óperusöngvari syngur lög frá
heimalandi sinu á miövikudag
Og þó — kannski lætur einhver
letinginn hafa sig i aö lita á
sjónvarpiö á sunnudagkvöldiö
nóna. Klukkan 21.30 er á dagskrá
breskt sjónvarpsleikrit sem heitir
„Lorna og Ted”. Þar segir frá
karlfauski sem er einhleypur, en
fær sér oft feitar og þriflegar
ráöskonur i húsverkin. Og svo
kemur Lorna, ung og ekki feit.og
sjálfstæö i skoðunum.
Aö ööru leyti geta menn litiö
framhjá sjónvarpinu þar til á
þriöjudaginn aö „Helen” kemur á
skjáinn.
Fyrsti þáttur þessa framhalds-
myndaflokks, sem sýndur var á
þriðjudaginn var, lofar góöu, og á
tittnefndu kvennaári hlýtur þessi
mynd aö vekja sérstakan áhuga.
í uppgjafarstöðu
Þaö er svolitið sérkennilegt, að
þegar hinir pólitisku landsfeöur
boöa efnahagskreppu sina og
vilja spara, er þegar i staö byrjað
að spara eyrinn spilla gæöum
rikisfjölmiöilsins. Eöa varla get-
ur svo ómerk sjónvarpsdagskrá
sem nú er boöiö uppá, stafað af
ööru en fjárskorti.
Allar götur frá þvl sjónvarp
hófst hér á landi hafa menn
kvartað undan dagskránni og
reyndar af ýmsu tilefni og frá
ýmsum sjónarhornum. Hitt held
ég að hafi aldrei áöur blasað viö,
að sjónvarpiö er nú um stund i
uppgjafarstööu. Það er engu
likara en þessi fjölmiöill hafi
gefist upp fyrir sjálfum sðer: !
hann hefur ekki metnaö lengur.
Ef ræöa á um gildi sjónvarpsins
þessa mánuöina, slagkraft þess i
félagslegu tilliti og menningar-
legu, þá er það afar léttvægt. Þvi
• fer fjarri að fréttastofa i
sjónvarpsins lafi i öörum frétta-
stofnunum hér, og stafar sá
slappleiki ekki af þvi aö á
sjónvarpi séu lakari starfsmenn
fréttastofu en annars staðar,
heldur hinu, aö þeim er skorinn
ótrúlega þröngur stakkurj frétta-
menn eru enn örfáir og vinna
undir miklu álagi viö aö koma þó
frá sér þeirri óveru sem
sjónvarpinu þykir við hæfi aö
sýna landsmönnum.
Ef einvöröungu er litiö til þess
efnis, sem islenska sjónvarpiö
tilreiöir sjálft handa notendum,
þá er reyndar fátt þess virði að á
það sé eytt mörgum orðum.
Kastljós og Heimshorn, frétta-
skýringaþættirnir, eru reyndar
mikil huggun umræöu- og félags-
þurfandi verum, en innlendi
fréttaþátturinn varð þó snemma
á ferli slnum uppdráttarsýkinni
aö bráö, og er engu likara en
enginn þeirra sem þeim þætti
stjórnar, hafi tima til aö sinna
þeim starfa.
Áiaugardagskvöldum er þáttur
er Þingvika nefnist, mjög miklu
lakari en hliöstæöur þáttur i út-
varpinu. Tveir skólalegir menn
stýra Þingviku sjónvarpsins af
fáránlegum hátiöleik, leiöinlegri
sanngirni — þáttur þessi sýnir
svart á hvitu, að það dugir
skammt aö velja „góöa menn” til
að stjórna sjónvarpsþætti, heldur
verður að fela sjóuðum frétta
manni stjórn stjórnmálaþáttar.
Aö öörum kosti fer eins og með
Þingvikuna, upplýsingaþátturinn
veröur ekki til aö vekja umræöu,
vekja áhuga á þjóðfélaginu og
brambolti manna I þvi, heldur
verður þátturinn öflugt tæki sem
miðar aö þvi að drepa niður allan
áhuga á pólitik. Og þannig verkun
er slæm —lika fyrir valdhafana.
— GG.
Enn einn flokkurinn
stofnaður í Danm.
Tíu flokkar eiga fulltrúa
á þingi í Danmörku, en til
eru þeir sem ekki finnst
það nóg. Því hefur nýr
flokkur verið stofnaður í
landinu sem heitir Sam-
eiginlegi flokkurinn eða
Samheldni flokkurinn.
Sá sem frumkvæðið átti að
stofnun flokksins er lögfræðingur
einn, Holgeir Lindholt sem
áður átti sæti á þingi fyrir Gli-
strup. Auk hans standa að flokkn-
um ýmsir náungar sem hafa
verið að bjóða sig fram til þings
upp á eigin spýtur, sérviskuhópar
til hægri, dýrarverndunarhópar,
sundklúbbar og fleira lið. Stefnu-
skrá flokksins er mjög óljós,
nema hvaö hann er með Nató og
vill aö ríkiö hafi sem minnst um-
svif.
Flokkurinn ætlar að „brjóta
niður hið gamla flokkaveldi”.
um helgina
/unnudogur
18.00 Stundin okkar. Meöal
efnis er mynd um Onnu og
Langlegg. Lesið veröur úr
bréfum, sem þættinum hafa
borist, og Valgerður Dan les
sögu eftir Stefán Jónsson.
Þá veröur sýndur þriöji
hluti leikritsins um leyni-
lögreglumeistarann Karl
Blómkvist, og loks verður
Þjóðminjasafnið heimsótt.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.30 A ferö og flugi. Spurn-
ingaþáttur með svipuöu
sniði og „A ferð með
Bessa”. Umsjónarmaöur
Guömundur Jónsson,
söngvari. Þessi þáttur var
kvikmyndaður á Húsavik.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.30 Lorna og Ted. Breskt
sjónvarpsleikrit eftir John
Hale. Aðalhlutverk Zoe
Wanamaker og Brian Bless-
ed. Þýöandi Jón Thor Har-
aldsson. Ted er járnsmiður
á fimmtugsaldri, grófur I
háttum og sköpulagi. Hann
er einhleypur, en hyllist til
að fá „feitar og föngulegar
ráöskonur” til aö annast
heimilisstörfin. Ekki getur
hann þó alltaf klófest sina
uppáhaldsráöskonutegund,
og ein þeirra, sem hann
ræður til starfs, er Lorna,
ung og grönn og sjálfstæö i
skoðunum.
22.40 Söngur Þebu. Egypsk
heimildamynd um borgina
Þebu á bökkum Nilar, forna
frægö hennar og nútima
rannsóknir, sem þar hafa
veriö geröar. Þýðandi og
þulur óskar Ingimarsson.
23.00 Aö kvöldi dags.Sr. Guö-
jón Guöjónsson, æskulýös-
fulltrúi þjóökirkjunnar,
flytur hugvekju.
23.10 Dagskrárlok.
mónudoguf
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Onedin skipafélagiö.
Bresk framhaldsmynd. 22.
þáttur. Manndrápsfleyta.
Þýöandi Óskar Ingimars-
son. Efni 21. þáttar: Þegar
James er á heimleiö með te-
farm frá Kína, koma skip-
verjar auga á bát á reki.
Tveir menn eru i bátnum.,
annar látinn. Hinn er tekinn
um borö i skipiö og honum
hjúkrað. Grunsemdir vakna
meðal háseta um, að skip-
brotsmaöurinn sé óheilla-
sending, og James og Bain-
es tekst með naumindum aö
koma I veg fyrir, að honum
sé hent fyrir borö. Heima I
Liverpool er Albert Frazer
kominn i kunningsskap viö
unga og léttlynda söngkonu,
og áöur en langt um líöur
tilkynnir hún honum, aö hún
sé barnshafandi af hans
völdum.
21.30 tþróttir. M.a. fréttir frá
iþróttaviðburöum helgar-
innar. Umsjónarmaöur
Ómar Ragnarsson.
22.00 Skiiningarvitin. Nýr,
sænskur fræöslumynda-
flokkur i sjö þáttum. 1. þátt-
ur. Skynheimurinn. Þýö-
andi og þulur Jón O. Ed-
wald. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
22.50 Dagskrárlok.
um helgina
/unnudegur
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
9.15 Morguntónleikar: Frá
norska útvarpinu.
11.00 Guösþjónusta á æsku-
lýösdegi I Dómkirkjunni i
Reykjavfk. Séra Óskar J.
Þorláksson dómprófastur
og séra Þórir Stephensen
þjóna fyrir altari. Ung-
menni annast lestur. Pétur
Þórarinsson stúd. theol.
predikar. Sunnudagaskóla-
börn, fermingarbörn, æsku-
lýösfélagar safnaðarins og
Dómkórinn syngja.
Trompetleikarar: Jón
Sigurösson og Lárus Sveins-
son. Söngstjóri og organ-
leikari: Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Hugsun og veruleiki, —
brot úr hugmyndasögu. Dr.
Páll Skúlason lektor flytur
þriðja og siöasta hádegis-
erindi sitt. Túlkun og til-
vera.
14.00 A gamalli leiklistartröð
fyrri hluti. Jónas Jónasson
ræöir við Lárus Sigur-
björnsson fyrrverandi
skjalavörö. (Þátturinn var
hljóöritaöur s.l. sumar,
skömmu fyrir andlát Lárus-
ar).
15.00 Óperukynning: „Brúð-
kaup Figarós” eftir Mozart.
Guðmundur Jónss. kynnir
Flytjendur: Geraint Evans, i
Reri Grist, Elisabeth Söder-
ström, Gabriel Bacquier og
hljómsveitin Fhilharmonia
hin nýja. Stjórnandi: Otto
Klemperer.
16.15 Veöurfregnir. Fréttir.
16.25 Endurtekiö efni.a. „Her-
mann og Dídf”. Þorleifur
Hauksson og Vilborg Dag-
bjartsdóttir ræöa um bók
Guöbergs Bergssonar (Aður
útv. I bókmenntaþætti i
nóvember). b. Guðmundur
Guömundsson skáld — ald-
arminning. Guðmundur G.
Hagalin rithöfundur flytur
erindi. (Áöur á dagskrá 5.
sept. s.l.).
17.25 Sextett Jurgens Francke
leikur létt lög.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„t föður stað” eftir Kerstin
Thorvall Falk.Olga Guörún
Arnadóttir les þýöingu sina
(10).
18.00 Stundarkorn með söng-
konunni Victoiu de los
Angeles. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?”. Jónas
Jónasson stjórnar
spurningaþætti um lönd og
lýöi. Dómari: ólafur Hans-
son prófessor. Þátt-
takendur: Pétur Gautur
Kristjánsson og Lúövik
Jónsson.
19.45 tslenzk tónlist. Sinfóníu-
hljómsveit tslands leikur.
Stjórnendur: Bohdan
Wodiczko, Karsten Ander-
sen og Páll P. Pálsson. Ein-
leikari: Denis Zigmondy,
Einar Vigfússon og Hans P.
Franzson. a. Kadensa og
dans eftir Þorkel Sigur-
björnsson. b. Canto elgiaco
eftir Jón Nordal. c. Fagott-
konsert eftir Pál P. Pálsson.
20.30 Ferðir séra Egils Þór-
hallasonar á Grænlandi.
Séra Kolbeinn Þorleifsson
flytur þriöja erindi sitt.
21.00 Pianókonsert I a-moll
eftir Mendelssohn. Rena
Kyriakou og Sinfóniuhljóm-
sveitin i Vinarborg leika,
Mathieu Lange stjórnar.
21.35 Spurt og svarað. Svala
Valdimarsdóttir leitar
svara viö spurningum hlust-
enda.
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir. Danslög.
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
mónudogui
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pianóleikari
(a.v.d.v.). Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.55: Séra Jón Dalbú
Hróbjartsson flytur
(a.v.d.v.). Morgunstund
barnannakl. 9.15: Siguröur
Gunnarsson byrjar aö lesa
þýöingu slna á „Sögunni af
Tóta” eftir Berit Brænne.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli atriða.
Búnaðarþáttur kl. 10.25:
Guðmundur Jónsson fyrr-
um skólastjóri talar um
Bændaskólanna á
Hvanneyri og Halldór
Vilhjálmsson skólastjóra
(hljóör. á aldarafmæli
Halldórs 14. febr.). tslenzkt
mál.kl. 10.45: Endurt. þátt-
ur Jóns Aðalsteins Jóns-
sonar. Passíusálmalög kl.
11.05. Morguntónleikar kl.
11.20: Julian Bream leikur
Svitu I d-moll fyrir gitar eft-
ir Robert de Visée / Helmut
Krebs syngur fimm ariur
eftir Guilio Caccini / John
Wilbraham og félagar I St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitinni leika konsert fyrir
trompet, tvö óbó og tvö
fagott eftir Johann Wilhelm
Hertel.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar
14.30 Miðdegissagan: „Him-
inn og jörö” eftir Carlo
Coccioli. Séra Jón Bjarman
les þýöingu sina (16).
15.00 Miödegistónleikar.
Sin fóniuhl j óm s v eit
Lundúna leikur „Fiörildiö”,
ballettmúsik eftir Offen-
bach, Richard Bonynge
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.25 Popphorniö
17.10 Tónlistartfmi barnanna.
Ólafur Þórðarson sér um
timann.
17.30 Að tafli. Guömundur
Amlaugsson rektor flytur
skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Mælt mál. Bjarni
Einarsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Siguröur E. Haraldsson
framkvæmdastjóri talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.35 Tannlækningar
20.50 A vettvangi dómsmál-
anna. Björn Helgason
hæstaréttarritaöi flytur
þáttinn.
21.10 Hörpukonsert í e-moll op.
182 eftir Carl Reinecke.
Nicanor Zabaleta og Filhar-
moniuhljómsveit Berlinar
leika. Ernst Marzendorfer
stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Klaka-
höllin” eftir Tarjei Vesaas.
Hannes Pétursson þýddi.
Kristin Anna Þórarinsdóttir
leikkona les (10).
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir. Lestur
Passiusálma (31).
22.25 Byggöamál.Fréttamenn
útvarpsins sjá um þáttinn.
22.55 Hljómplötusafniö i
umsjá Gunnars Guömunds-
sonar.
23.50 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.