Þjóðviljinn - 04.03.1975, Side 2

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. mars 1975 Að halda sœtinu Suöurnesjamaður nokkur sendi eftirfarandi stökur til bæjar- póstsins, en tilefnið kvað hann vera áskorun Starra I Garði að yrkja nið um utanrfkisráðherra. Þykir Suðurnesjamanninum sem landsmenn hafi tekiö dauf- lega undir þá áskorun Starra að hver og einn skuli yrkja eina nfövísu um ráðherrann, og sendir hann því þrjár. Bæjarpóstur vill þó taka fram til hugarléttis Suðurnesjamanni, að allmargir hafa sent okkur níðkveðskap vegna áskorunar- innar, en svo nföangurslega saman settan, að okkur hefur ekki þótt stætt á að birta hann. En hér kemur kveðskapur Suðurnesjamannsins, og gefum við honum yfirskriftina — Að halda sætinu. Klauf hann loftin vesturveg viðmælendur fékk hann. Hans var förin hörmuieg, heim sem rakki gekk hann. Já og nei og nei og já numiö fékk hjá Óla. Þaö er ekki af miklu aö má né merkilegum skóla. Utanrfkisráöherrann ruglaöi vestan alda. Sannfæringu seidi hann, en sætinu fékk aö halda. —G.M. Krossavisa Geir og Dóri kro. u i krossa kátiegt er aö flestra dómi. Rúgbrauöskross á beran bossa báöum væri meiri sómi. Vogamaöur Krossanesverk- smiðjan Þrær fullar af snjó Menn rekur ef til vill minni tii þess, aö ekkert heyrðist frá Akureyri þegar ævintýramenn tóku Norglobal á leigu, en hins vegar mótmæltu all mörg byggöalög nyröra þeirri leigu- töku. Við spurðum Bjarna Einarsson, bæjarstjóra á Akureyri að því hvort Krossanesverksmiðjan væri ekki tilbúin til þess að taka við loönu. Sagði Bjarni að hún , hefði ekki verið það þegar tæki- færi gafst best fyrr á vertfðinni Hefði það verið vegna þess, að allt var á kaf i snjó og allar þrær verksmiðjunnar fullar af snjó, og óhemju verk að bræða hann allan. Þá var allur utbúnaður á bryggjunni frosinn og það hefði veriö mikill barningur að koma verksmiðjunni i gang. Hins vegar gæti Krossanesverksmiðjan tekið á móti loðnu nú. _úþ Saumaði saman varir sínar MÍLANÓ — 22gja ára gamall maður, egypti, sem hefur veriö i fangelsi hér i mánuö vegna dreif- ingar fiknilyfja saumaði saman varirsinarf mótmælaskyni. Maö- urinn staðhæfði að hann heföi ekki dreift fiknilyfjum, heldur hefði hann verið aö reyna að hjálpa lögreglunni, er hann var handtekinn. Nemendur og starfsliö fyrstu annar Félagsmálaskóla alþýöu. Félagsmálaskóla alþýðu slitið i fyrsta sinn Skólinn hefur sann að tilverurétt sinn „Þessum tveim vikum hefur verið vel varið og þær hafa sýnt fram á að Félagsmála- skóli alþýðu á fullan rétt á sér. Ef til vill má eitthvað lagfæra og við væntum ábendinga frá ykkur nemendum um það. Hér hefur farið fram töluverð kynning á þvi hvernig barátta verka- lýðshreyfingarinnar hefur farið fram frá upphafi og i hópstarfi hafa komið fram ýmsar hliðar málanna og þau rædd itarlega. Hér verða ekki tekin nein próf. Ykkar próf felst i þvi, hvernig ykkur nýtist námið i störfum ykkar i verka- lýðshrey f ingunni. ’ ’ Eitthvað á þessa leið mæltist Bolla Thoroddsen, námsstjóra Félagsmálaskóla Alþýðu, þegar hann sleit fyrstu önn skólans sl. laugardag. Fulltrúi nemenda i skólastjórn Áður en skólanum var slitið á laugardagsmorguninn fóru fram umræður, þar sem nem- endur skýrðu viðhorf sin til skólans og námsefnis hans eftir tveggja vikna kynningu. Hófust umræöurnar á þvi, að lögð var fram tillaga frá nemendum, þar sem farið var fram á að nemendur hefðu fulltrúa i skóla- stjóminni. Byggðu þeir þessa kröfu sina á þeim orðum náms- stjóra daginn áður, að þarna væru I rauninni allir I senn, nemendur og kennarar: þvi ættu þeir sem skráðir væru nemendur fullan rétt á að hafa slikan fulltrúa I skólastjórn. Skyldi vera fulltrúans i skóla- stjórninni vera milli anna. Þessi tilaga nemendanna var samþykkt einróma og var Guömundur Hallvarðsson verkamaður kosinn fulltrúi Sagði Stefán Ögmundsson við skólaslitin í Ölfusborgum á laugardaginn þeirra og skal samkvæmt tillög- unni boðaður á fundi stjórn- arinnar og hafa þar fullt mál- frelsi og tillögurétt. t umræðum þeim sem á eftir fóru kom glöggt i ljós, að menn voru ákaflega ánægðir meö þessa fystu önn skólans. Fram komu þau sjónarmið, að ef til vill væri of miklu efni hlaðið á of fáa daga, en allir voru þó sammála um að þessi tima- lengd væri heppilegust, og erfitt að skera niður af námsskránni. Hagræöingin hefði kannski veriö heppilegust þannig, aö hafa fyrirlestrana styttri og leggja meiri áherslu á hópvinnu nemenda. Mjög ánægðir Eftir umræðurnar fór fram skólaslit, og hélt Stefán ögmundsson formaður Menningar- og fræöslusam- bands alþýðu þar fyrst stutta tölu. Hann sagðist i upphafi skólans hafa vonaö að þessi fyrsta önn skólans sannaði til- verurétt hans. Þessar vonir hefðu ræst. Hann þakkaði starfsfólki skólans og lauk máli slnu á að þakka nemendum fyrir það ómengaða andrúms- loft sem þeir hefðu skapað. „Hittumst heil á næstu önn.” Að lokinni ræðu Bolla Thoroddsen sem i var vitnaö I upphafi, ávarpaði Helgi Guð- brandsson kennara og starfs- fólk fyrir hönd nemenda. Hann sagöi I ræðu sinni, aö ekki léki á því minnsti vafi, að nemendur skólans hefðu haft bæði gagn og gaman af þessari skólasetu, þótt stutt hefði verið. „Það hefur ekki svolitla þýðingu fyrir félögin aö geta sent fólk á svona skóla... Ég Itreka þakkir okkar fyrir ágæta stjórn og góða kennslu, óska ykkur öllum gifturlkrar heimkomu og vona, að skólinn megi dafna og starf hans aukast.” Bolli Thoroddsen afhenti nú sklrteini sem Pétur Hraunfjörð verkamaöur kallaði „eiginlega hálfgerö sveinsbréf.” Þeir Stefán, Bolli og Tryggvi Þór Aðalsteinsson, sem borið hafa hita og þunga skóla- starfsins, voru sammála um að þetta skólahald hefði farið fram úr björtustu vonum þeirra. Einkum þegar tekið var tillit til þess, að um algjöra tilrauna- starfsemi var að ræða. Engin snuðra hefði komið á þráðinn i neinu tilliti. Kvöldvökur og heimsóknir Nokkrir listamenn á ýmsum sviðum komu i heimsóknir austur I ölfusborgir meðan á skólanum stóð. Hjörleifur Sigurðsson hélt myndlistar- kvöld, Vésteinn Lúðvlksson ræddi við þátttakendur um verkalýðshreyfinguna I Islenskum bókmenntum, Þor- geir Þorgeirsson um kvik- myndir og Ólafur Haukur Slmonarson og Þorsteinn Jónsson lásu upp, sýndu kvik- myndir og spjölluðu við nem- endurna. Einnig komu menn frá Trésmiðafélagi Reykjavikur i heimsókn. Siðasta kvöldið var svo haldin kvöldvaka, þar sem nemendur lögöu sjálfir til efnið. Var haft á orði á laugar- deginum, að þar hefði Guömundur Hallvarðsson spilað og sungið sig inn I skóla- stjórnina með glæsibrag. Leik- þáttur var sýndur og fjallaði sá um samningaviðræður. Vildu ýmsir meina, að þar hefði forysta ASl verið illa fjarri góðu gamni, þvi hún hefði getað lært býsna mikiðá þvl tveggja þátta stykki, sem samið var af nemendum. Þá fóru nemendur einnig i heimsókn til verkalýðsfélag- anna á Eyrarbakka og Stokks- eyri og þótti sú ferð hin skemmtilegasta. Gott gengi! Eftir að hafa verið viðstaddur umræðurnar og skólaslitin og spjallað við nemendurna um skólann, er fullkomin ástæða til að óska MFA og ASÍ til ham- ingju með þetta fyrsta skref Félagsmálaskóla alþýöu. Þessa skóla biður mikið starf I fræöslumálum verkalýðshreyf- ingarinnar um allt land og byrjunin sýnir, að hann á skilið aö hún styðji hann með ráðum og dáð. Þjóðviljinn óskar skólanum góðs gengis og vonar aö verkalýðshreyfingin beri gæfu til að hlúa að þessu afkvæmi sínu. —hm Helgi Guðbrandsson ávarpar kennara og starfslið fyrir hönd nemenda, við skólaslitin. (Mynd: —hm.)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.