Þjóðviljinn - 04.03.1975, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. mars 1975 Geti kerfið ekki fullnægt kröf um verkalýðshreyf ingar- innar þarf að breyta kerfinu Góöir félagar. Við lifum nú harkalegustu, og skipulegustu árás sem gerð hefur verið á kjör og réttindi launafólks frá þvi að viðreisnarstjórnin var i dauðateygjunum i lok siðasta áratugs. Gengið hefur verið lækk- að tvivegis með fimm mánaða millibili svo mjög að dollarinn hefur hækkað i verði um 50% og aðrir og traustari gjaldmiðlar ennþá meira. Verðlagsvisitalan hefur hækkað úr 296 stigum i 375 stig á hálfu ári, og fyrirsjáanlegt er að eftir fáeinar vikur verður hún komin yfir 400 stig, og hefur þá hækkað um meira en þriðjung. Þetta segir þó aðeins hluta af sög- unni. Ekkert hefur hækkað jafn mikið og hversdagslegustu og brýnustu nauðþurftir almenn- ings, matvæli, hitunarkostnaður og rafmagn.Þegar teknar eru al- mennustu nauðsynjar, það sem ó- hjákvæmilegast er ef menn eiga að geta dregið fram lifið, nema hækkanirnir 60-80 hundraðshlut- um á hálfu ári. Kjaraskerðingin bitnar þvi þeim mun harðar á fólki sem tekjur þess voru lægri fyrir. Þetta fólk getur ekkert sparað annað en takmarka við sig mat og sitja i köldum vistarver- um. Þær svokölluðu jafnlauna- bætur sem settar voru með lögum i haust og nú er talað um að hækka litillega bæta aðeins örlitið brot af þessari óðaverðbólgu hjá lágtekjufólki. Verið er að taka aftur mikilvæga félagslega réttarbót Og það er dæmigert að það fólk sem versta afkomu hefur i þjóðfé- laginu, aldrað fólk og öryrkjar sem hefur engar eða sáralitlar aðrar tekjur en bætur almanna- trygginga, hefur orðið fyrir harkalegri árás en nokkrir aðrir. Þegar greiddar voru jafnlauna- bætur i fyrrahaust sem áttu að nema 3.500 kr. sem lágmark fékk aldrað fólk og öryrkjar með tekjutryggingu aðeins tæpar 1.900 kr. Þegar rikisstjórnin talar nú um nýjar jafnlaunabætur sem nemi 3.600 kr., á aldrað fólk og ör- yrkjar með tekjutryggingu aðeins að fá rúmlega 2.000 kr. Mér reikn- ast svo til að heildartekjur aldraðs fólks og öryrkja hafi nú verið skertar um 500 miljónir króna miðað við eitt ár, i saman- burði við þær greiðslur sem tiðk- uðust á timum vinstristjórnarinn- ar. Það er verið að taka aftur ein- hverja mikilvægustu félagslegu réttarbót sem tókst að knýja fram i tið vinstristjórnarinnar, gera kjör aidraðs fólks og öryrkja á nýjanleik að smánarbletti á þjóð- félaginu. Sé launafólk tekið sem heild nemur skerðingin á raun- tekjum þess ótöldum miljörðum króna: það lætur nærri að kaup þyrfti að hækka um 50% til þess að halda þeim kaupmætti sem bestur var i fyrra. Við þetta bæt- ist sivaxandi samdráttur sem dregur úr aukavinnu dag frá degi. Þegar þess er gætt að islenskt verkafólk hefur á undanförnum árum aflað allt að 40% tekna sinna með aukavinnu, jafngildir samdráttur i vinnu hruni á llfs- kjörum, jafnvel þótt atvinnuleysi komi ekki til. 3-5% lækkun þjóðartekna átti ekki að bitna á lágtek j ufólki Hvernig stendur á þessum harkal. skerðingum? Frá stjórn- arvöldunum fáum við þau svör að þjóðarbúið hafi orðið fyrir þung- bærum ytri áföllum, versnandi viðskiptakjörum, nokkurri sölu- tregðu. Þvi er haldið fram að at- vinnuvegir þjóðarinnar séu allir reknir með halla, og tölur um miljarða hér og miljarða þar hafa dunið yfir okkur eins og skæða- drlfa undanfarnar vikur og mán- uði. Ég ætla ekki að fara I neinar talnaskylmingar hér, enda hef ég af þvi langa reynslu hversu rétt það er sem danskur hagfræðipró- fessor sagði einu sinni, að það eru til þrenns konar ósannindi: lygi, bölvuð lygi og tölfræði — og þar af væri tölfræðin verst. Ég ætla að- eins að minnast á eina tölu, sem geymir allar aðrar tölur i sér i hnotskurn. Þegar núverandi rikisstjorn lagði á ráðin um stefnu sina i efnahagsmálum, töldu hagfræðingar hennar, þeir sem meta eiga horfurnar og draga álytkanir um það hvernig verst gæti farið, að þjóðartekj- urnargætu minnkað um 1% á ár- inu 1975. Þeir hafa siðan aukið svartsýni sina og tala nú um 3-5% lækkun á þjóðartekjum, ef skuggalegustu horfur verði að veruleika. 3-5% lækkun á þjóðar- tekjum: það er vandinn, ef illa fer, samkvæmt mati sérfræðinga rikisstjórnarinnar sjálfrar. Þessi tala er i órafjarlægð frá þeim veruleika sem yfir launamenn hefur dunið siöasta hálfa árið. Jafnvel þótt einhverjir kynnu að telja að við hefðum búið i alfull- komnu þjóðfélagi, þar sem engu yrði um bætt að þvi er varðar skiptingu þjóðartekna, ætti ekki að jafna nema 3-5% lækkun á þjóðartekjum á nef hvert, en veruleikinn er svo sem tifalt hærri þegar launafólk á i hlut. Og ég þarf ekki að eyða orðum að þeirri kenningu að við höfum lifað i alfullkomnu þjóðfélagi: hver maður veit að auðvelt er að mæta 3-5% lækkun á þjóðartekjum án þess að skerða i nokkru afkomu láglaunafólks. Skálkaskjól til að fela það sem í raun er að gerast Vissulega væri 3-5% lækkun á þjóðartekjum áþreifanlegur vandi ef þessir svartsýnu spá- dómar eiga eftir að rætast. En þessi vandi er fyrst og fremst not- aður sem skálkaskjól til þess að fela það sem nú er raunverulega að gerast I þjóðfélaginu. Við lifum i stéttaþjóðfélagi þar sem forrétt- indahópur á framleiðslutækin eða ræður yfir þeim, en allur þorri þjóðarinnar seiur vinnu sina, og I sliku þjóöfélagi fara fram sifelld stéttaátök um skiptingu þjóðar- teknanna. Það er enn einu sinni að gerast að auðstéttin, eigendur eöa ráðamenn framleislu- tækjanna, hafa hafið harðvituga sókn til þess að breyta skiptingu þjóöarteknanna sér I hag, til þess aö skerða I senn einkaneyslu og samneysla launafólks og félagsl. réttindi almennings. Verkalýðs- hreyfingunni og Alþýðubandalag- inu tók'st á undanförnum árum að bæta mjög verulega lifskjör launafólks á tslandi og stórauka félagsleg réttindi, jafnframt þvi er allt framleiðslukerfið var gert öflugra. Eignastéttin vinnur nú að þvi með aðstoð rikisvaldsins að svipta verklýðshreyfinguna þessum sigrum, taka aftur þau kjör og þau réttindi sem launa- fólki höföu áskotnast. Þetta er megineinkenni þeirra atburða sem hafa veriö að gerast i þjóðfé- laginu undanfarið hálft ár, og skilji menn ekki þessi grundvall- aratriði átta þeir sig hvorki á vanda verklýðshreyfingarinnar né þeim viðbrögðum sem óhjá- kvæmileg eru. í Danmörku og Svíþjóð er tímakaup verkafólks um 800 krónur Arið 1973, siðasta árið sem vinstristjórnin fór með raunveru- leg völd i landinu, varð afkoma þjóðarbúsins svo góð, ekki sist vegna hagstæðra viðskiptakjara, að viö komumst i þriðja eða Ræða Magnúsar Kjartanssonar á fundi Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík í fyrradag fjórða sæti meðal rikja heims að þvi er varöar þjóðartekjur á mann. Þó að svartsýnisspárnar um 3-5% skeröingu á þjóðartekj- um rætist i ár erum við enn i hópi mestu velmegunarrikja heims, þeirra þjóöa sem geta búið við best lifskjör og fullkomnust fé- lagsleg réttindi. En hvernig er verið að leika kaupgjaid verka- fólks um þessar mundir, m.a. með gengislækkunum á fimm mánaða fresti? A siðasta ári var meðalkaupgjald iðnverkafólks i Danmörku rúmar 29 krónur danskar á klukkustund, eða um 780 islenskar krónur samkvæmt núverandi gengi. A siðasta ári var meðalkaupgjald iðnverka- fólks i Sviþjóð tæpar 22 sænskar krónur á klukkustund eöa um 810 islenskar krónur samkvæmt nú- verandi gengi. Algengasta tima- kaup iðnverkafólks á Islandi, en það er stærsti hópur launamanna hérlendis, er 236 kr. á klukku- stund. Kaupgjaldið hér er þannig tæpur þriðji hluti af kaupgjaldi þvi sem borgað var i Danmörku og Sviþjóð á siðasta ári, ef gengið er notað til samnburðar. Nú er það að sjálfsögðu ljóst að gengið er grófur mælikvarði og margt fleira þarf aö taka inn i dæmið ef bera á saman raunveruleg kjör, en engu að siður eru þessar stað- reyndir óræk sönnun þess að at- vinnurekendur og rikisstjórn eru enn á ný að reyna aö gera ísland að láglaunaþjóöfélagi, eins og það var á viðreisnarárunum. Erlend- ir atvinnurekendur á Islandi, Ál- bræðslan I Straumsvik og her- námsliðið á Keflavikurflugvelli hagnast árlega um hundruð milj óna króna á gengislækkunum rikisstjórnarinnar, og það er eng- in tilviljun að Geir Hallgrimsson lýsti yfir þvi i viðtali við Timarit- ið Fr jálsa verslun nýlega, að senn færi að verða timabært að senda bygginariðnaðarmenn sem væru að verða atvinnulausir I Reykja- vik, suður á Keflavikurflugvöll til þess að byggja ibúðir handa her- námsliðinu. Nú er ódýrt fyrir bandariska herinn að byggja á Is- landi. Og haldi svo fram sem nú horfir kann senn að renna sá timi eins og á viðreisnarárunum, að birtar verði auglýsingar I erlend- um blöðum þess efnis að á Islandi sé tiltækt ódýrt vinnuafl handa útlendingum sem kynnu að vilja stofna fyrirtæki hérlendis. Verðbólgan er til marks um andstæður stétta þjóðfélagsins Ein af röksemdum rikisstjórn- arinnar fyrir stefnu sinni er sú að hún ætli sér að stöðva verðbólg- una. Á máli valdhafanna heitir það verðbólga ef verðlag og kaup- gjald hækka til skiptis á þann hátt sem við Islendingar þekkjum mætavel. Það heitir hins vegar ekki verðbólga á máli þessara sömu valdhafa, þótt dýrtið magn- ist meira en nokkru sinni fyrr, ef kaupgjaldinu er aðeins haldið föstu. Vissulega hefur verðbólga verið mikið vandamál á islandi i meira en þrjá áratugi, valdið þjóðfélagslegu ranglæti og spill- ingu. En þær skýringar sem oft- ast heyrast á ástæöum hennar eru blekkingar. Verðbólga er til marks um þær andstæður sem eru i stéttaþjóðfélagi milli þeirra sem eiga framleiðslutækin eða ráða yfir þeim og þeirra sem selja vinnu sina, sönnunargagn um þá baráttu sem þessar and- stæður leiða sifellt til. Við sjáum þessa baráttu i hnotskurn I hinu litla íslenska þjóðfélagi. Verk- lýðssamtökin beita hinu mikla afli samtaka sinna til þess að knýja fram kauphækkanir, og þau hafa um áratuga skeið verið svo öflug að gegn þeim verður ekki staðið. Viðbrögð atvinnurek enda og milliliða eru siðan þau að velta kauphækkuninni af sér út I verðlagið, og þegar um er að ræða vörur sem ekki seljast á inn- lendum markaði eru metin jöfnuð með gengislækkunum. Verðbólga sem runnin er af sllkum rótum verður ekki stöðvuð til frambúðar með neinum hagfræðilegum for- múlum, ekki með neinum ,,sam- ræmdum aðgerðum i peninga- málum” eins og það heitir á máli hagfræðinga, heldur með þvi einu að uppræta þær andstæður stétta- þjóðfélagsins sem valda sifelld- um átökum um skiptingu þjóöar- teknanna. Eina leiðin til þess er að koma á efnahagslegu lýðræði, þannig að launamenn eigi sjálfir framleiðslutækin, ráöi sjálfir yfir beim arði sem þeir skapa — semji I rauninni við sjálfa sig um lifskj. Ég segi þetta ekki vegna þess að ég telji slik um- skipti vera á dagskrá hér á Is- landi i dag eða á morgun, heldur vegna hins að það skiptir öllu máli að menn átti sig á grundvall- aratriðum, að menn skilji að þau efnahagsvandamál sem viö er að etja eru óhjákvæmilega tengd sjálfri gerð þjóöfélagsins en ekki timabundnum ytri aðstæðum eða hæfileikum einhverra ein- staklinga sem kunna að sitja i ráðherrastólum I það og það skiptið. Þá verður að breyta kerfinu Og hér er ég kominn að megin- atriði málsins. Við sem tökum þátt I sósialiskri verklýðshreyf- ingu þurfum að heyja tviþætta baráttu, annarsvegar dægurbar- áttu, vegna vandamála liðandi stundar, hins vegar baráttu fyrir fullkomnara framtiðarþjóðfélagi. Sumir halda þvi fram að árangur I dægurbaráttunni sé aðeins blekking, með þvi sé verið að lappa upp á stéttaþjóðfélagið, gera þvi kleift að halda velli. Þetta er mikill misskilningur. 1 dægurbaráttunni erum við ekki aðeins að vernda eða bæta kjör og réttindi vinnandi fþlks: við erum einnig að reyna á þanþol kerfis- ins, sýna fram á það i verki hvers það er megnugt. Við berum fram kröfur sem sprottnar eru af sið- ferðilegu mati, kröfur um jafnan rétt manna til félagslegra gæða, menntunar og frelsis um réttláta skiptingu þjóðartekjanna, um öryggi heimilanna. Þessar kröfur eru raunsæjar, byggðar á mati á getu framleiðslukerfisins, tekjum þjóðarbúsins. Neiti kerfið að verða við slikum körfum eða telji það sig ekki geta það, er ekki kröfunum um að kenna heldur kerfinu. Þá verður að breyta kerfinu, koma á samfé- lagsháttum sem eru i betra sam- ræmi við siðgæðishugmyndir okkar. Um leið er hin faglega barátta okkar orðin pólitisk, bar- átta fyrir breyttri þjóðfélags- skipan, réttlátara samfélagi. Slika baráttu hafa islensk verk- lýðssamtök háð i sex áratugi og hún hefur orðið mjög árangurs- rik. íslenskt þjóðfélag er allt ann- að en það var i upphafi þessarar aldar, gerð þess hefur breyst i mjög veigamiklum atriðum vegna baráttu hinnar sósialisku verklýðshreyfingar. En stétta- andstæðurnar eru enn staðreynd, hinar óbrúuðu andstæður milli þeirra sem eiga framleiðslutækin eða ráða yfir þeim og hinna sem selja vinnu sina. Þessar andstæð- ur hafa aldrei verið ljósari en ein- mitt nú, þegar auðstéttin hefur hafið grimmilega gagnsókn til þess að ræna aftur þeim kjörum og réttindum sem alþýða manna hefur tryggt sér á undanfrnum árum, þrátt fyrir þá staðreynd að við erum eitthvert fjáöasta þjóð- félag I viðri veröld, þrátt fyrir þá staðreynd að ytri áföll jafngilda aðeins örlitlu broti af þjóðartekj- unum þótt svartsýnustu spádóm- ar rætist. Það eru ekki hugmyndir okkar um réttlátara samfélag sem eru rangar, heldur kerfið. Barátta verkalýðs hreyfingarinnar ævinlega í senn félagsleg og pólitísk Þess vegna megum við ekki lúta svo lágt að gera þarfir kerfis- ins að einhverri viðmiðun i kröfu- gerðokkarog baráttu.Við meg'um ekki láta flækja okkur inn i ein- hverja útreikninga um svokall- aða „getu atvinnuveganna” eða aðrar hagstærðir sem sérfræð- ingar kerfisins reikna út frá hags- munum auðstéttarinnar. Viö sjá- um hið þjóðfélagslega ranglæti allt umhverfis okkur, misskipt- ingu, gróðasöfnun, spillingu, gegndarlausa sóun. Við getum ekki tekiö mið af sllku kerfi eða sætt okkur við það svigrúm sem það telur sig geta heimilað. Við miðum kröfur okkar við augljósa getu þjóðarbúsins, viö siögæðis- hugmyndir okkar um mannlegar þarfir og jafnrétti. Viö skulum Framhald á bls. 12

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.