Þjóðviljinn - 04.03.1975, Page 10

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. mars 1975 yfir Víkings-liðinu þegar það sigraði IR 19:18 Það er stundum sagt að heppn- in elti sterkari liðin i íþróttum og er nokkuð til i þvl. Þessi kenning sannaðistenn einu sinni um heig- ina síðustu þegar Vikingur sigr- aðitR 19:18. Sá sigur er tvimæla- laust mesti heppnis-sigur nokkurs liðs I þessu móti sem nú er senn að ljúka. Þegar ein minúta var til leiksloka var staðan jöfn, 18:18 og ÍR-ingar með boltann. Þeir léku mjög skynsamlega, hættu ekki, á neitt, en ógnuðu nóg til þess að ekki var hægt að dæma töf. En allt I einu þegar 11 sek. voru eftir af leiknum var brotið á Asgeiri Eilassyni, en dómararnir sáu það ekki og Vlkingarnir brunuöu i hraðaupphlaup og 2 sek. fyrir leikslok reyndi Viggó Sigurðsson örvæntingarfullt skot úr vondri aðstöðu og viti menn, boltinn hafnaöi I netinu og þar með var sigur Vikings tryggður. Sannköli- uð meistaraheppni þetta. Hitt er svo annað mál að það var óþarfi fyrir Víkinga að missa leikinn niður og eins má taka fram, að þetta var fyrsti heppnis- sigur Vikings i vetur og það vita einnig allir að til þess að vinna mót verða lið að hafa heppnina meö sér, annað er næstum óhugs- andi. Allt útlit er nú fyrir að Vikingur vinni þetta mót. Aðeins Valur get- ur ógnað sigri þess en til þess nægir það ekki Valsmönnum að sigra Viking i siðari ieik liðanna, FH verður einnig að sigra Viking, nema Valur vinni kæruna gegn Ármanni, þá nægir Valsmönnum að sigra Viking og FH til þess að vinna mótið og breytir þá engu Hörður sló markametið skoraði 14 mörk þegar Haukar sigruðu Gróttu 29:17 og hefur þar með skorað 110 mörk í vetur Hafnfirska stórskyttan Hörður Sigmarsson úr Haukum sló markamet Axels Axeissonar I 1. deildarkeppninni frá þvl I fyrra er hann skoraði 14 m örk gegn Gróttu sl. sunnudag og hefur þar með skorað 110 mörk I vetur I 12 leikj- 1. deild kvenna: Þór er fallið Þórs-liðið I 1. deild kvenna er fallið niður I 2. dcild. Það tapaði um siöustu helgifyrir KR 14:24 og á þar með ekki lengur möguleika á að halda sér uppi þótt það eigi leik eftir. Þá sigraði Vlkingur Breiöablik 13:9 um helgina eftir að hafa haft yfir I ieikhléi 8:2. um en Axel skoraði 106 I 14 leikj- um. Það eru þvi allar likur á þvl að Hörður fari velyfir 120 kannski i 130 mörk áður en deildarkeppn- inni lýkur I vetur. Þetta er met sem ótrúlegt er að verði nokkru sinni slegið. Það, að skora að jafnaði 9 mörk I leik I 1. deild nálgast hið ómögulega.' En nóg um það. Hörður lék sannarlega aðalhlutverkið þegar Haukarnir gersigruðu Gróttu 29:17 á sunnudagskvöldið. 14 sinnum sendi hann boltann i netið og var nær óstöðvandi fyrir Gróttumennina. Haukarnir tóku leikinn þegar i sínar hendur og höfðu yfir i leikhléi 13:8. Bilið breikkaði svo jafnt og þétt i siðari hálfleik uns staðan var orðin 29:17 þegar flautan gall til merkis um leikslok. Það er ástæðulaust að vera að lýsa þessum leik nánar, þetta var leikur kattarins að músinni. Gróttuliðið virðist gersamlega brotið, hefur fengið á sig 59 mörk i Framhald á bls. 12 hvemig leikur Vikings og FH fer, það getur sem sagt allt gerst enn- þá og árabil siðan 1. deildar- keppnin i handknattleik hefur verið jafn tvisýn og skemmtileg og nú. Leikur Vikings og IR var lengst af mjög jafn. Liðin skiptust á um að hafa forystuna i fyrri hálfleik, jafnt var I leikhléi 7:7. En þegar 17 minútur voru liðnar af siðari hálfleik hafði Vikingur náð 2ja marka forystu 14:12 og siðan þriggja marka forystu 16:13 og 17:14. Slðan varð jafnt 18:18 og lokamínútunni hefur verið lýst, Vikingur sigraði 19:18. Vlkings-liðið lék þennan leik langt undir getu, áreiðanlega lak- asti leikur liðsins um langt bil i mótinu. Viggó Sigurðsson var besti maður liðsins og hreinlega vann þennan leik fyrir liðið þegar aðrir höfðu gefist upp. Stefán Halldórsson átti einnig ágætan leik svo og Magnús Guðmundsson i vörninni og Sigurgeir I markinu. Hjá 1R var það Gunnlaugur Hjálmarsson og Vilhjálmur Sigurgeirsson sem bestan leik áttu og þó sér i lagi Gunnlaugur. Annars er komin svo mikil ör- vænting i leik IR-liðsins að það nær aldrei að sýna hvað raun- verulega býr i þvi, en það er á- reiðanlega meira en útkoman i vetur sýnir. Mörk Vikings: Viggó 5, Stefán 4 (4), Þorbergur 3, Sigfús 2, Skarp- héðinn 2, Páll og Einar 1 mark hvor. Mörk IR: Vilhjálmur (5), Guð- jón 3, Gunnlaugur 3, Agúst 2, As- geir og Brynjólfur 1 mark hvor. Þorbergur sloppinn I gegnum ÍR-vörnina og auðvitað lá boltinn I netinu hjá þessum unga og efnilega leikmanni Vlkings (Ljósm. Einar) FH-liðið úr leik eftir 18:19 tap fyrir „spútnik”-liöi Ármanns Islandsmeistarar FH, misstu cndanlega af möguleikanum á að verja titil sinn sl. sunnudagskvöld er þeir töpuðu óvænt á heimavelli fyrir hinu frábæra „spútnikliði” Armanns 18:19. Þar með hefur FH tapað 10 stigum en Vlkingur aðeins 5 og bæði liðin eiga 2 leiki eftir. Þessi sigur Armanns var fylli- lega verðskuldaður rétt eins og sigur liðsins yfir Val á dögunum. Ármannsliðið er aðeins of seint á ferðinni með þessa getu sína. Hefði liðið náð sér svona vel upp fyrr, væri það nú i toppbarátt- unni, á þvileikur enginn vafi. Lið- ið er að verða eitt hið skemmti- legasta i deildinni, sannarlega lið ársins, ekkert lið hefur tekið öðr- um eins framförum i vetur og Ár- manns-liðið. Framhald á bls. 12 Fram átti ekki svar Gisli Blöndal skorar af línunni gegn Fram. GIsli brá nokkuð útaf vananum með góðum árangri. (Ljósm. Einar) og Iék á linunni kafla og kafla við góðum leik Valsmanna sem sigruðu 22:18 Valsmenn hreiniega kaffærðu Fram-liðið I leik þessara liða um siðustu helgi, náðu - einum af slnum bestu leikjum I vetur og Fram átti ekkert svar, hvorki I vörn né sókn. Þegar Valsmenn leika eins og þeir gerðu gegn Fram á ekkert lið hér á landi möguleika gegn þeim, en það eru alveg furðulegar getusveiflur I leik liðsins eins og þessi leikur og svo leikurinn gegn Ármanni á dögunum sýna. Ef þessir tveir lcikir eru bornir satnan er engu likara en tvö ólik lið hafi verið að verki. 1 leiknum gegn Fram gerðu Valsmenn út um hann þegar á fyrstu 10 minútunum, en þá komust þeir I 5: 0, siðan kom 8:2 og I leikhléi var staðan orðin 14:8. í byrjun siðari hálfleiks hélt bilið áfram að breikka og komst I 10 mörk 20:10 þegar um það bil 15 min, voru til leiksloka. En þá gerðist það sem svo oft hefur komið fyrir liðið þegar það hefur náð yfirburðastöðu, leikmenn hreinlega hættu að taka á og Framarar tóku til við að saxa á forskotið og komu þvi niður i 5 mörk á þessum siðustu 15 min. þannig að lokatölurnar urðu 22:18, sem er mun minni sigur en efni stóðu til. Guöjón Magnússon átti stórleik með Val að þessu sinni, hann hefur ekki leikið betur en þetta það sem af er I vetur og er greini- lega kominn i sitt allra besta form, bæði harðfylginn og óút- reiknanlegur I skotum sinum. Þá áttu þeir ólafarnir góðan leik að vanda svo og Stefán Gunnarsson kjölfesta liðsins bæði i vörn og sókn. Hjá Fram átti Pálmi Pálmason mjög góðan leik, hann var sá eini sem lék allan timann við getu og virtist ekki hafa snefil af minni- máttarkennd gagnvart Valsvörn- inni eins og hinir leikmennirnir virtust hafa. Að visu barðist Sigurbergur vel I sókn sem vörn en hann á að ógna miklu meira i sókninnni. Þessi frábæri horna- maður virðist alveg hættur að reyna að fara þar inn, einhvera hluta vegna. Mörk Vals: Guðjón 5, Ólafur 4, Gisli 4, Gunnsteinn 2, Steindór 2, Jón P. 2, Stefán, Jóhann, Agúst 1 mark hver. Mörk Fram: Pálmi 8, Arnar 3, Stefán 4, Sigurbergur, Sveinn og Arni 1 mark hver. —S.dór Meistaraheppnin var

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.