Þjóðviljinn - 04.03.1975, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 4. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Reykjavfkurmótiö í borðtennis: Hjálmar varð tvöfaldur Rvk-meistari Hinn snjalli borötennisleikari Hjálmar Aöalsteinsson úr KR viröist hafa náö sér fullkomlega uppúr þeim öldudal sem hann var i á Arnarmótinu fyrr I vetur, þvi að á Reykjavikurmeistaramótinu var hann sá sterki, sigraöi bæöi I einliöaleik og tvlliöaleik ásamt Finni Snorrasyni. Lék aldrei neinn vafi á því hverjir væru sterkastir I tviliðaleiknum. Þeir unnu alla andstæöinga sina mjög sannfærandi og sama var uppá teningnum i einliöaleiknum, Hjáimar var i sérflokki. 1 tviliðaleik kvenna sigruöu þær Laufey Gunnarsdóttir og Karolina Guðmundsdóttir Erninum og i tvenndarleik sigruðu Karolina og Birkir Gunnarsson Erninum. t tvlliðaleik unglinga sigruðu Gunnar Finnbjörnsson og Jónas Kristjánsson og i einliðaleik ung- linga sigraði Gunnar Finnbjörns- son. í flokki 13 ára og yngri sigraði Bergsveinn Ólafsson Erninum og Iflokki 13-15 ára sigraði Hjálmtýr Hafsteinsson KR. 1 einliðaleik kvenna bar Karolina Guðmundsdóttir sigur úr býtum. Mótið var i alla staði hið skemmtilegasta. Það tók að visu mjög langan tima en þó gekk það eins vel fyrir sig og kostur var á, slik mót sem þessi taka alltaf langan tima. S.dór I. DEILD í KÖRFUr Enn einn heppnissigur- inn hjá ÍR Þaö er hreint ótrúlegt hvað heppnin getur stundum elt eitt liö I íjþróttum. IR-liðið i körfuknatt- leik er vissulega sterkt liö, en það er lika ótrúlega heppiö. 1 vetur hefur það gerst I nokkrum leikjum að 1R hefur veriö einu stigi undir og 2-3 sek. til leiksioka þegar einhver leikmanna IR hefur reynt örvæntingarfulla skottilraun langt utan af velli og alltaf hefur þetta heppnast og IR sigrað. A laugardaginn var þó um enn meiri heppni að ræða hjá liðinu i leiknum gegn Armanni. Þegar tvær sekúndur voru eftir hafði Armann yfir 93:92. Þá fengu 1R- ingar boltann og Kolbeinn Krist- insson skaut frá miðju, boltinn hitti hringinn utanverðan en einn 2. deild Þróttur siglir hraöbyr að I. deild Þróttur átti ekki I neinum erfiö- leikum meö liö IBK I 2. deildar- kcppninni I handknattleik á sunnudaginn og sigraði 26:16. Þar meö hefur Þróttur tekið forystuna I 1. deild og viröist ekkert geta stöövaö liöiö úr þessu aö komast uppi 1. deild. A Akureyri léku heimaliöin siöari leik sinn og nú tókst KA aö sigra en það var ekki stórt 25:23. Fleiri leikir fóru ekki fram I 2. deild um helgina. leikmanna Ármanns snerti körfu- netið, slikt má ekki og ber að dæma ÍR-ingum kröfu i þessu til- felli. Þar með hafði 1R sigrað 94:93 án þess þó að skora sigur- körfuna. Er hægt að hugsa sér öllu meiri heppni??? Einn annar leikur fór fram á laugardaginn i 1. deildarkeppn- inni i körfu, þá sigraði KR Val 109:100 I mjög skemmtilegum leik, þar sem bæði liðin léku af fullum hraða og krafti. Sóknar- leikurinn var i fyrirrúmi eins og stigataflan gefur til kynna. Eftir úrslit helgarinnar er allt komið I sama gamla farið i körfunni, það verða aðeins KR og ÍR sem berjast um toppinn eins og svo oft áður. Landsliðið: Ragnar meiddur Sigurgeir í markið Ein breyting verður á lands- liöinu I handknattleik sem mætir tékkum i kvöld. Ragnar Gunnarsson markvöröur úr Armanni er meiddur og getur ekki leikið meö en I hans staö kemur Sigurgeir Sigurösson úr Vikingi i markiö. Leikurinn I kvöld hefst kl. 20:30 og á morgun veröur svo annar leikur og hefst hann á sama tima. Báöir ieikirnir fara fram I Laugardals- höllinni. ÍRsigraöi í kvenna- flokki en Ármann í karla m: r ‘fc' Hjálmar og Finnur. Reykjavikurmeistarar I tviliöaleik i borötennis. Myndin er tekin i úrslitaleiknum þar sem þeir mættu Birki Gunnarssyni og Ólafi ólafssyni. Bikarkeppnin í fimleikum: Fyrsta bikarkeppni Fimleika- sambands íslands fór fram sl. sunnudag og tókst meö miklum ágætum. Það var vissulega nokkur eftirvænting i mönnum um þaö hvernig til myndi takast, bæöi hvaö snerti getu kennenda og eins framkvæmd mótsins. Þegar á reyndi var hvorutveggja i fullkomnu lagi. Framkvæmdin var til fyrirmyndar, gekk hratt og snurðulaust fyrir sig og þaö blandast engum hugur um þaö aö fimleikar eru á uppleið hjá okkur. Margt ungt og efnilegt fimleika- fólk kom þarna fram. Vissulega er langt i land aö ná toppnum en það miöar ótvirætt i rétta átt. Svo fóru leikar i keppninni að 1. fl. Ármanns bar sigur úr býtum i karlaflokki, hlaut 149,3 stig. 1. fl. KR varð i 2. sæti með 146,6 stig og 2. fl. Ármanns varð i 3. sæti með 105,1 stig, efnilegur flokkur það. 1 kvennaflokki sigraði IR eins ogbúistvar við. Hlaut flokkurinn 62,4 stig. Fimleikafél. Björk úr Hafnarfiröi varð i 2. sæti með 61,6 stig og Gerpla i 3. sæti með 61,0 stig. Þarna var keppnin mjög hörð eins og stigatalan sýnir. Sigurður T. Sigurðsson úr KR hlaut flest stig einstaklinga 44,1 en Berglind Pétursdóttir úr Gerplu flest stig i kvennaflokki 16,9. Næsta stórverkefni FS verður svo Islandsmótið i vor og verður sannarlega gaman að fylgjast með þvi. Bikarkeppnin kom þægi- lega á óvart og hver veit nema enn betur verði gert á Islands- mótinu. —S.dór é '•% , 'A :#* Ein af fimleikastúlkunum úr Ármanni i gólfæfingum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.