Þjóðviljinn - 04.03.1975, Page 13

Þjóðviljinn - 04.03.1975, Page 13
Þriftjudagur 4. mars 1975 ÞJóÐVlLJINN — SIÐA 13 Matvælakreppan, sovésk reynsla í eftirfarandi grein tiundar sovéskur fréttaskýr- andi árangur og áform i sovéskum landbúnaði. Vandamálin eru reyndar rakin mjög lauslega, en það sem lengi vel stóð sovéskum landbúnaði mest fyrir þrifum voru i fyrsta lagi harkaleg framkvæmd samyrkjuáætlananna um 1930 og siðan óraunsæ verðlagspólitik sem stóð búunum mjög fyrir þrif- um. Hitt er svo ekki nema rétt, sem fram kemur i greininni, að mjög hefur skipt um til batnaðar á sl. 15—20 árum. Almenningur i mörgum löndum fylgist af vaxandi kviöa með þró- un matvælakreppunnar. Birgðir korns og annarra landbúnaðar- vara halda áfram að minnka. Eru þær minni nú, en þær hafa verið siðustu árin. Sumir bandariskir visinda- menn telja, að á næstu áratugum verði matvælaskortur rikjandi á- stand i heiminum, ekki aðeins i fátæku löndunumheldur og i þeim riku. Þetta er þó mjög vafasamt. Og það er ekki heldur hægt að samþykkja álit Carrol Wilson hjá tæknistofnuninni i Massachusett, sem telur, að við séum nú komin á mörk þess, að mögulegt sé að fæða ibúa heimsins og að héðan af verði það nálega ógerlegt. Sérfræðingar, sem eru bjart- sýnir varðandi lausn fæðuvanda- málsins, eru þess fullvissir, að sigrast megi á matvælakrepp- unni. Eru sovéskir sérfræðingar I þeirra hópi. Róttæka lausn fæðuvandamáls- ins má finna með þvi að skoða reynslu hins ósialiska samfélags. Þau 25 ár, sem Ráð gagnkvæmr- ar efnahagsaðstoðar, CMEA, hef- ur starfað hefur heildarfram- leiðsla CMEA-landanna 2.5 fald- ast. En aukningin ein segir ekki allt. Hin sósialisku CMEA-lönd hafa náð fram stöðugri aukningu landbúnaðarframleiðslunnar á mann og bætt mataræði almenn- ings verulega. Landbúnaðarframleiðsla CMEA-landanna byggist á stór- stigri vélvæðingu rikisbúa og samyrkjubúa og ýmsum tegund- um samvinnufyrirtækja i land- búnaðinum, og þróast samkvæmt efnahagsáætlun fyrir landið í heild með virkum stuðningi rikis- ins. Eins og kunnugt er hóf sovésk- ur landbúnaður fyrst á sjötta ára- tugnum að auka verulega mat- vælaframleiðsluna. Stafaði það af mörgum ástæðum, vanþróað efnahagslif, sem var arfur frá keisaratimanum borgarastyrj- öldinni og erlendri ihlutun, siðari heimsstyrjöldinni o.s.frv. Það jók á erfiðleikana, að landbúnaðar- svæðin I Sovétrikjunum eru dreifð vitt um hið viðlenda riki, þar sem loftslag er mjög breytilegt. Að- eins eitt prósent akurlendisins liggur á svæðum, þar sem árleg úrkoma er 700 mm eða meiri, samanborið við 60 prósent i Bandarikjunum. Og 60% af sánu akurlendi liggja á belti, þar sem meðal-árshitinn er innan við 5 gráður á Celsíus, samanborið við 10% i Bandaríkjunum. Eftir þvi sem efnahagsmáttur landsins óx juku kommúnista- flokkurinn og sovéska rikið að- stoðina við landbúnaðinn, gerðu ráðstafanir til að ef'ia rikisbúin og samyrkjubúin efnahagslega og tæknilega og til að auka akur- lendi, og lögðu afarmikla áherslu á aukningu kornframleiðslunnar sem undirstöðu undir frekari þró- un landbúnaðarins i heild, m.a. aukningu kvikfjárræktar. 27% af kornframleiðslu landsins fást nú af nýræktarlandi. Allt bar þetta góðan árangur: Kornframleiðslan jókst ár frá ári, þótt það væri ekki nægilegt meö tilliti til örrar þróunar efnahags- lifsins og vaxandi þarfa þjóðar- innar. A þessu hefur orðið róttæk breyting eftir 1965, er miðstjórn Kommúnistaflokksins hóf fram- kvæmd brýnna ráðstafana til að flýta fyrir þróun landbúnaðarins. Þrir meginþættir einkenna landbúnaðarstefnu Kommúnista- flokksins. I fyrsta lagi hafa verið gerðar áætlanir um aukningu landbúnaðarframleiðslunnar langt fram i timann, og verð á helstu korntegundum hækkað. Framkvæmd þessara ráðstafana krefst aukinna útgjalda rikisins og byggist á þvi, að rikið fái meira korn og rikis- og samyrkju- búin auknar tekjur, en sú hefur lika orðið raunin. 1 öðru lagi krefjast viðtækar framfarir i landbúnaði róttækra endurbóta á tækjabúnaði 'sam- yrkju- og rikisbúa og mikillar aukningar á framleiðslu nútima landbúnaðartækja. Var tekiö tillit til þessara þarfa landbúnaðarins við gerð fimm ára áætlunarinnar 1971—1975. A sama timabili hefur framleiðsla tilbúins áburðar ver- ið aukin um 162 miljónir tonna. Nýjum fyrirtækjum i efnaiðnaði hefur veriö komið á fót og sam- vinna CMEA-landanna á sviði framleiðslu tilbúins áburðar auk- in. Er aukning hennar nú tvöfalt meiri i sósialistarikjunum heldur en i löndum Efnahagsbandalags- ins. Nýræktun lands er snar þáttur i sovéskri landbúnaðaráætlun. Hafa ber i huga, að 60% korn- ræktarlands i Sovétrikjunum liggja á beltum, þar sem raki er ófullnægjandi og þurrkar herja árlega. Samkvæmt fimm ára á- ætluninni er framkvæmd viðtæk landrækt i Sovétrlkjunum. A sl. ári jókst ræktarland um 21 miljón hektara. 1 þriðja lagi er i landbúnaðará- ætlun Kommúnistaflokks Sovét- rikjanna lögðmikil áhersla á þýð- ingu landbúnaðarvisinda og há- þróaðrar reynslu. Hið viðtæka kerfi rannsóknar-, fræðslu- og til- raunastofnana mun fá á að skipa miklum fjölda visindamanna. Sovéskir visindamenn á sviði jurtakynbóta hafa ræktað nýjar tegundir hveitis sem gefa af sér miklu meiri uppskeru á hvern hektara lands en áður, og sama er að segja um fleiri korntegundir. Eftirfarandi tölfræðilegar upp- lýsingar bera vitni um árangur á- ætlunarinnar, en þær sýna stöð- uga aukningu kornframleiðslunn- ar. Arleg heildarframleiðsla korns i Sovétrikjunum varð að meðal- tali, sem hér segir talið i miljón- um tonna, siðustu fimm ára áætl- unartimabili: Ríkisútgáfa námsbóka: Blómin okkar Ot er komin hjá Rikisútgáfu námsbóka ný bók er nefnist Blómin okkar. Höfundur er Ingólfur Daviösson grasa- fræðingur. Bókinni er einkum ætlað að kynna sæmilega læsum 8-10 ára börnum undur hins græna gróðurs, i von um að þeim verði ljóst að hann er undirstaða lifsins á jöröinni. Bókin er að miklu leyti I sam- talsformi barna, foreldra og kennara. Rætt er um ýmsar jurtir, sem flestir þekkja, og enn fremur um garða og algeng gróðurlendi og lifverur i þeim. Vakin er athygli á samfélagi jurta og dýra, sýnt fram á, hvernig hvert er öðru háð og hvernig ein lifveran lifir á annarri og tekin dæmi um ýmsar fæöukeöjur þessu til skýringar. Bent er á nauðsyn náttúruvernd- ar og góðrar umgengni úti i nátt- úruunni. Blómin okkar er 96 bls. að stærð prýdd fjölda mynda eftir Halldór Pétursson listmálara, auk 8 litprentaðra siðna með ljós- myndum og teikningum af ýmsum jurtum. Káputeikning er eftir Þröst Magnússon teiknara. Setningu, prentun og bókband annaðist Isa- foldarprentsmiðja hf., en kápu og litprentun Litbrá hf. Blómin okkar er þriðja bókin i flokki lesbóka um ýmis efni. Aður hafa komið út Sagan okkar, lesbók með efni úr tslandssögu og Landið okkar, lesbók um land- fræðileg efni. Fundur hjá SÍR Samband islenskra rafveitna heldur sinn áriega miðsvetrar- fund að Hótel Sögu dagana 4. og 5. mars n.k. Meðal efnis á fundinum verður ástand og horfur I raf- orkumálum á tslandi. Aðalsteinn Guðjohnsen raf- magnsstjóri mun setja fundinn. Þarmunutaka tilmáls þriöjud. 4. mars Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra, Jóhannes Nor- dal seðlabankastjóri, Jakob Björnsson orkumálastjóri og Björn Friðfinnsson fram- kvæmdastjóri. A miðvikudaginn 5. mars mun Knútur Otterstedt rafveitustjóri ræða um raforkumál Noröur- lands, Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri um raforkumál Austurlands, Aage Steinsson raf- veitustjóri um raforkumál Vest- fjaröa, Óskar Eggertsson fram- kvæmdastjóri um raforkumál Vesturlands og Sigfinnur Sigurðs- son hagfræöingur um raforkumál Suöurlands. —GA 1951—1955 1956—1960 1961—1965 1966—1970 1970—1973 88.5 milj. tonn 121.5milj. tonn 130.3 milj. tonn 167.6 milj. tonn 190.6milj. tonn Þessi tafla sýnir, að kornfram- leiðslan i Sovétrikjunum hefur tvöfaldast á siðustu tveim ára- tugum. Þróun kornframleiðslunnar sem undirstöðugreinar skapar möguleika á aukinni kvikfjár- rækt. Undanfarið hefur sérhæfing og samþjöppun færst mjög i vöxt i þessari mikilsverðu grein land- búnaðarins. Stór samvinnufyrir- tæki rikis- og samyrkjubúa hafa verið reist i grennd við borgirnar til framleiðslu nautakjöts, svina- kjöts, mjólkur o.s.frv., svo og hænsnabú. Sovéskir sérfræðingar telja, að alþjóðleg samvinna á sviði land- búnaðar og matvælaframleiðslu geti stuðlað mjög að lausn fæðu- vandamálsins. Samningurinn sem gerður var milli Sovétrikj- anna og Bandarikjanna á sl. ári um samvinnu á sviði landbún- aðarrannsókna er mikilsvert Iskref i þróun alþjóðlegs sam- Starfs. Þessi tvö lönd, er ráða yfir mikilli visinda- og tæknigetu, geta auðgað landbúnaðarvisindin og aukið tækniþróunina i öllum ^reinum landbúnaðarins. Onnur lönd munu njóta góðs af þessari gamvinnu. G. Spiridonof — APN A 1 X 11 VíL TIL a a ffl œ Nl •» UMIÐ TOSkUNA BEGEM HLIÐA il AÐUR m EG FER YFIR G'O'TUNA Eitt af spjöldunum sem börnunum I umferöarskólanum er sent. Umferðarskólinn: 7. starfsárið er að hefjast skólinn er bréfaskóli fyrir börn á aldrinum 3ja til 6 ára Um þessar mundir er 7. starfs- ár umferöarskólans Ungir Veg- farendur aö hefjast. Umferöar- skóiinn er bréfaskóii fyrir börn undir skólaskyIduaidri eöa á aldrinum 3ja—6 ára. Tilgangur með starfi umferðar- skólans er að kynna foreldrum þau vandamál, sem barnið á við að striða i nútima umferö, og aö- stoða þá viö kennslu barna sinna i undirstöðureglum umferðarinnar og leggja þar með grundvöllinn að betri hegðun þeirra sem veg- farendur. A fjögurra ára timabili, sem börnin eru i umferðarskólanum, fá þau send 25 verkefni. Verkefn- in eiga börnin aö vinna með aö- stoð foreldra eða einhverra ann- arra fullorðinna. Lögð er áhersla á það, að verkefnunum sé haldið saman þessi 4 ár og séu tekin fram öðru hverju til þess að rifja efni þeirra upp. Kostnaður við skólann er greiddur sameiginlega af þeim 45 sveitarfélögum, sem aðild eiga aö skólanum, og Umferðarráði. Samtals eru 17.122 börn á skrá skólans þetta starfsár og eru út- send verkefni um 90 þúsund. NORRÆNA FÉLAGIÐ Stofnuð verða æskulýðssamtök innan No.r- ræna Félagsins i Norræna-húsinu fimmtu- daginn 6. mars kl. 21. Félagar i öllum deildum Norræna félagsins velkomnir. Undirbúningsnefndin Ó.L. — Útsalan Dömusíðbuxur á kr. 1.788.00 Herrabuxur (terelyn) á kr. 1.788.00 Loðfóðraðir drengjajakkar Flauelsbuxur Herraskyrtur Varan er góð, verðið frábært Opið til hádegis á laugardögum Ó. L. Laugavegi 71. Sími 20141

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.