Þjóðviljinn - 04.03.1975, Page 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. mars 1975
Að
nefna
snöru
— Hvernig fóiu þau að þvi að ná
i lykilinn?
— Heyrðu þau eitthvað?
— Sáu þau eitthvað?
— Hvaða áhrif hefur þetta á
málið?
Landfógetinn heyrði aðeins sið-
ustu spurninguna.
— Um það verðið þið að spyrja
héraðshöfðingjann, sagði hann
vitandi það að hann hefði eins vel
getað stungið upp á þvi að þau
færu fram á viðtal við karlinn i
tunglinu. — 1 fyrramálið verða
nýju vitnin yfirheyrð fyrir rétti.
Meira get ég ekki upplýst i svip-
inn.
— Heyrðu þau þegar morðið
var framið?
— Var það annars nokkurt
morð?
— Landfógeti, segið okkur...
— Ég get ekki gefið frekari upp-
lýsingar. En sem privatmaður
leyfi ég mér að stinga upp á þvi,
að þið skrifið með tillitssemi um
frú Viktorsson.
Hann flýtti sér úr kallfæri, og
blaðamennirnir litu hver á annan.
— Hún verður bersýnilega
sýknuð, sagð Lena Atvid.
— Furða var þótt hann væri
argur.
— Ég á stefnumót við mann,
sagði östlund. — Við sjáumst á
morgun.
Vinnudagurinn leið að iokum,
myrkrið skall á, skrifarar og
starfsfólk hélt heimleiðis úr þing-
húsinu. Jói bað blaðamennina
kurteislega að rýma anddyrið.
Þeir urðu við beiðni hans og
misstu fljótlega sjónar hver á
öðrum i myrkrinu fyrir utan.
Andartaki siðar var Rune
Varmin sleppt burt og hann gekk
heimleiðis. Nokkru seinna fékk
Desi Viktorsson lika leyfi til að
fara.
Þegar Desi var komin nokkur
fótmál frá húsinu uppgötvaði hún
að hún var ekki ein á ferð.
— Ég heiti Lena Atvid hjá Nýja
kvöldpóstinum. Er þér sama þótt
við verðum samferða smáspöl?
— Þó það nú væri. Ég les stund-
um það sem þú skrifar á tiskusið-
unni. Ert það ekki þú sem gerir
það?
— Jú, einmitt. En stundum
skrifa ég lika um annað, og nú
langar mig til að skrifa um þig.
—■ Hvað þá? Að ég sé tilfinn-
ingarikt rándýr með vanþroskaða
skynsemi? Ég held ég kæri mig
ekki um það.
Lena kannaðist við setninguna
og fór að hlæja.
— Réttarsálfræði er dálitið sér
á parti. Nei, ég hafði ekki hugsað
mér að skrifa þannig. Ég hefði
gjarnan viljað skrifa eitthvað
fallegt um þig — gera þig að Luc-
iu sem gengur milli snjóskafl-
anna og ber með sér birtu.
— Það ætti að vera i lagi. Við
kaupum Nýja kvöldpóstinn
heima. Pabbi kynni kannski að
meta eitthvað þess háttar.
Þær gengu þegjandi stundar-
korn og Desi spurði:
— Finnst þér ég ekki hafa hag-
að mér hræðilega illa?
— Nei, það finnst mér ekki. Þvi
að ég er viss um að ykkur var
fullkomin alvara.
— Ég held mér hafi aldrei verið
eins mikil alvara og þá.
Eftir stundarþögn sagði Desi
aftur: i
— En fólkið i Abroka litur þetta
ekki sömu augum og þú. Hér i
bænum segir fólk — heyrðu, viltu
annars ekki koma með mér
heim? Ég held það verði auðveld-
ara ef við komum tvær saman.
— Þá verðum við svo sannar-
lega tvær saman. Heyrðu, getum
við ekki laumast inn um einhverj-
ar bakdyr? Ég hef hugboð um að
einhverjiraf starfsbræðrum min-
um gætu staðið við aðaldyrnar.
Þær komust klakklaust inn um
eldhúsdyrnar, fóru úr yfirhöfnun-
um i herbergi Desi og héldu á-
fram inn i setustofuna, þar sem
járnvörusalinn var fyrir. Hann
hafði horast þennan vetur, hrukk-
umar við munnvikin voru skarp-
ari, hárið hafði gránað, en ekki
bólaði á neinni mildi eða bliðu i
andlitssvipnum.
t sófanum undir fimmtugs-
afm ælisgjöfinni sat Varmin
kirkjugarðsvörður með skakka
nefið glóandi eins og kvöldsól eft-
ir óveður.
Járnvörusalinn lét varla svo lit-
ið að heilsa.
— Hver eruð þér eiginlega?
spurði hann Lenu.
Hún sagði til sin og nefndi blað-
ið sem hún vann við.
— Allir skrifa eitthvað ljótt um
mig á morgun, sagði Desi niður-
dregin, en ungfrú Atvid ætlar að
skrifa eitthvað fallegt.
Svar járnvörusalans var ekki •
beinlinis uppörvandi. *
—- Rómantiskt kjaftæði býst ég
við? Ég ráðlegg yður að láta það
ógert. Það er öllu lokið milli Desi
og stráksins hans Vármins.
— Ég held nú siður, sagði Desi
og leit á Vá'rmin sem þagði aldrei
sliku vatn.
— Jú, sagði járnvörusalinn, —
það er allt búið. Það var ég sem
gerði boð fyrir VSrmin og bað
hann að koma hingað. Ég stakk
upp á þvi við hann, vegna þess
sem gerst hefur, að trúlofunin
skyldi tilkynnt þegar i stað. Hann
neitaði þvi. Skilurðu það?
— Nei, sagði Desi titrandi
röddu. — Ég skil það ekki.
Nú rauf Vármin þögnina.
— Þú átt kannski ekki eftir að
skilja það heldur, sagði hann. —
En mér fyndist eins og ég væri að
notfæra mér ólán Viktorssons til
að útvega stráknum minum fina
kærustu og koma honum inn i
járnvörubransann. Þannig er
ekki hægt að haga sér, fjandinn
hafi það. Svo framarlega sem....
Hann leit spyrjandi á Desi.
— Nei, svaraði hún samstund-
is.
— Ég hélt það svo sem ekki,
sagði Varmin rólega. — Jæja, þá
er ekkert sem rekur á eftir. Takið
þetta rólega þangað til allt er
komið i eðlilegt horf aftur. Þá sjá-
um við til hvernig útlitið verður.
— Trúlofunartilkynningin er
velsæmisatriði, sagði járnvöru-
salinn stirðlega. — Hún bindur
samt ekki um alla framtið.
Lena Átvid hafði fundist hún ut-
anveltu, en nú reiddist hún.
— Afsakið, sagði hún, en hvað
er það eiginlega sem á að til-
kynna?
— Það var og, sagði Varmin á-
nægður. Svona spurði ég einmitt
sjálfur. Hvað á eiginlega að til-
kynna? Að þau hafi sofið saman?
Það veit allur bærinn eins og nú
er komið og það ætti fjandakornið
að vera nægileg trúlofun! Ég get
sagt ykkur það, bætti hann við i
trúnaði, að við tvö, kerlingin og
ég, létum ekki lýsa með okkur
fyrr en hún var komin sjö mánuði
á leið og ekkert höfum við til-
kynnt enn.
• útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Sigurður Gunnarsson
heldur áfram „Sögunni af
Tóta” eftir Berit Brænne
(2). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atr. Fiskispjall kl.
10.05: Ásgeir Jakobsson
flytur þáttinn. „Hin gömlu
kynni” kl. 10.25: Valborg
Bentsdóttir sér um þátt með
frásögum og tónlist frá
liðnum árum.
Hljómplötusafnið kl. 11.00:
Endurt. þáttur Gunnars
Guðmundssonar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Verkakonur á islandi i
ellefu hundruð ár. Anna
Sigurðardóttir flytur fyrsta
erindi sitt.
15.00 Miðdegistónleikar:
islenzk tónlist. a. Sónata op.
23 fyrir trompet og pianó
eftir Karl O. Runólfsson.
Lárus Sveinsson og Guðrún
Kristinsdóttir leika. b. Lög
eftir Garðar Cortes, Arna
Bjömsson, Elsu Sigfúss og
Bjarna Böðvarsson. Svala
Nielsen syngur, Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pianó. c. Noktúrna fyrir
flautu, klarinettu og
strokhljómsveit eftir Hall-
grim Helgason, Manuela
Wiesler, Sigurður Snorra-
son og Sinfóniuhljómsveit
íslands leika, Páll P. Páls-
son stjórnar. d. „Endurskin
úr norðri” tónverk fyrir
strengjasveit eftir Jón
Leifs. Hljómsveit Rikisút-
varpsins leikur Hans Anto-
litsch stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Anna
Brynjúlfsdóttir stjórnar.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir stjórnar óska-
lagaþætti fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýzku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Um sögufölsun. Sveinn
Asgeirsson hagfræðingur
les þýðingu sina á ritgerð
eftir Vilhelm Moberg.
20.00 Lög unga fólksins.
Sverrir Sverrisson kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Björn Þorsteinsson sér um
þátt fyrir unglinga.
21.20 Myndlistarþáttur I um-
sjá Magnúsar Tómassonar.
21.50 Tónleikakynning. Gunn-
ar Guðmundsson segir frá
tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands i vikunni.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passfusálma (32).
22.25 Kvöldsagan: „Fær-
eyingar” eftir Jónas Arna-
son. GIsli Halldórsson leik-
ari byrjar lesturinn.
22.45 Harmonikulög. The
Accordeon Masters leika.
23.00 A hljóðbergi. Fagra
stúlkan og ófreskjan.
Ævintýri endursagt af Ma-
dame de Villeneuve.
Douglas Fairbanks yngri
les.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning ,og
auglýsingar.
20.35 Helen — nútimakona.
Bresk framhaldsmynd. 2.
þáttur. Þýðandi Jón O. Ed-
wald. Efni 1. þáttar: Helen
Tulley er húsmóðir um þri-
tugt og tveggja barna móð-
ir. Maður hennar hefur góða
atvinnu, og þau eru vel stæð
f járhagslega. Sambúð
þeirra hefur verið árekstra-
litil, en þegar Helen kemst
óvænt að þvi, að maður
hennar á vingott við aðra
konu, krefst hún skilnaðar,
og ákveður að standa á eigin
fótum.
21.30 Hver er hræddur við
óperur?. Breskur mynda-
flokkur um óperutónlist.
Óperusöngkonan Joan
Sutherland velur efnið og .
kynnir, og er það að þessu
sinni úr óperunni „Le Peri-
chole” eftir Offenbach.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
22.05 Hcimshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Jón Hákon Magnússon.
22.35 Dagskrárlok.
Simi 1Í936 1
Ættarhöföinginn
Creatures the World
forgot
Hrottaspennandi, ný, amerisk
litkvikmynd um harða lifs-
baráttu fyrir örófi alda. Leik-
stjóri: Don Chaffey. Aðalhlut-
verk: Julie Ege, Tony Bonner,
Brian O’Shaughnessy, Robert
John.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 4, 6 og 10.
A Joeeph E. Levine and Brut Productions
Presentation
George Glenda
Segal Jackson
A Melvin Frank Film a
Tbuch
Of Class
Vottur af glæsibrag
Afbragðs fjörug og skemmti-
leg ný bandarisk gamanmynd
i litum og Panavision, um
ástaleiki með vott af glæsi-
brag og hæfilegum millispil-
um.
Glenda Jackson hlaut
Oscarverðlaun sem bezta leik-
kona ársins 1974, fyrir leik
sinn i þessari mynd. Leik-
stjóri: Melvin Frank.
ÍSLENSKUR TEXTI.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11,15.
Slmi 41985
Hnefafylli
af dýnamiti
ISLENSKUR TEXTI.
Bönnuð börnum
Sýnd kl. 6 og 8
Skrif stof uf y lliríið
Sænska mánudagsmyndin.
Aðeins sýnd I nokkur kvöld kl.
10.
Bönnuð innan 16 ára.
LEIKFÍ’IAG Mfflldm
REYKIAVlKUR V«HÍ
FLÓ A SKINNI
I kvöld. Uppselt.
DAUÐADANS
miðvikudag kl. 20,30.
SELURINN HEFUR
MANNSAUGU
fimmtudag kl. 20,30.
Fáar sýningar eftir.
FLÓ A SKINNI
föstudag. Uppselt.
Austurbæjarbíó
ISLENDINGASPJÖLL
miðvikudag kl. 21.
Aðgöngumiðasalan I Austur-
bæjarbiói er opin frá kl. 16.
Simi 1-13-84.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
#ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
HVAÐ VARSTU AÐ GERA í
NÓTT?
i kvöld ki. 20
HVERNIG ER HEILSAN?
miðvikudag kl. 20.
COPPELIA
3. sýning fimmtudag kl. 20
KARDEMOMMUBÆRINN
föstudag kl. 15
laugardag kl. 15
KAUPMAÐUR 1 FENEYJUM
föstudag kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
Leikhúskjallarinn:
LUKAS
frumsýning miðvikudag kl.
20.30
HERBERGI 213
fimmtudag kl. 20.30
Miðasala 13,15-20.
mmi/m
Auglýsingasiminn
er 17500
31182
Flóttinn mikli
From a
barbed-wire
camp-to a
barbed-wire
country!
STEVE McQÍJEÉN JAMES GARNER RICHARD ATTENBOROUGH
.íSr’íS'r.T rcwinr.i—* CHARLES DONAID JAMES
TKE GREAT ESCAPE donald bronson pleasence coburn
COLOH PANAVISION
r» ik. , llnrtnri Antictn
Flóttinn mikli er mjög spenn-
andi og vel gerð kvikmynd,
byggð á sannsögulegum at-
burðum.
Leikstjóri: John Sturges.
ISLENSKUR TEXTI.
Myndin hefur verið sýnd áður
i Tónabiói við mikla aðsókn.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 12 ára.
Auglýsingasíminn er
17500
VOOVIUINN