Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 1
ÁGÆT LOÐNUVEIÐI Sólarhringsaflinn mánudag varö 10.200 lestir af loðnu, og um klukkan hálf-sjö i gærdag höfðu 32 bátar tilkynnt loðnunefnd um 9.300 tonna afla frá miðnætti mánudags. Mestan afla tilkynnti Börkur NK 950 tonn. Veiðisvæðin eru nú helst út við Tvisker, við Vestmannaeyjar og i Faxaflóa. Þrær bræðslanna við Faxaflóa eru allar fullar og löndunarbið fram eftir vikunni. Sömu sögu er að segja af Suðurlandi. Af og til losnar þróarrými á Austfjörðum, en það fyllist yfirleitt jafnóðum. Ævintýraskipið Nordglobal mun væntanlegur inn á Hvalfjörð á fimmtudaginn, en til þessa tima hefur hann legið fyrir föstu inni á Reyðarfirði. r Bilbao- höfn lömuð vegna verkfalls MADRID 4/3— Ekkert lát virðist enn á baráttu spænskra verkamanna gegn fasistastjórninni og í dag lá öll starfsemi i höfn- inni í Bilbao niðri vegna verkfalls um þúsund hafn- arverkamanna. Bilbao er meiriháttar iðnaðarborg í Baskahéruðunum og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár að starfsemin í höf ninni þar lamast vegna verk- falla. Af hálfu verkamanna er upp- lýst að verkfallið hafi verið gert til að mótmæla brottrekstri nokk- urra hafnarverkamanna, sem voru reknir úr vinnu er þeir kröfðust betri starfsskilyrða fyrir sina hönd og félaga sinna. I gær- kvöldi réðist lögregla á mótmæla- göngu um þúsund verkamanna, sem útibú bandariska fyrirtækis- ins Firestone i Bilbao hafði sagt upp. 1 Madrid hófust i dag réttar- höld yfir átta fyrrverandi verka- mönnum bilaframleiðslufyrir- tækisins SEAT og tveimur lög- fræðingum. Eru þeir ákærðir fyrir„ólögleg félagssambönd og áróður”. Iláðstefnu Alþýðusambandsins lauk um miðnætti i fyrrinótt með þvi að samþykkt var harðorð álykt- un um stöðuna i kjaramálum í dag og að kosin var fjölmenn baknefnd samninganefndar. Á 3. siðu er birt ályktun ASÍ svo og baknefndin, en hér fara nokkrar setningar úr ályktuninni á eftir: ..Frá þvi að ráðstefnan var haldin um mánaðamótin nóv./des. sl. hefur óðaverðbólgan geisað fram af meiri hraða og til- finnanlegar fyrir alþýðuheimilin en nokkru sinni áður.” „Skerðing kaupmáttar, ef ekki yrði að gert, yrði 1. mai nk. 30- 40% og þyrfti kaupgjald þá að hækka um 50-60% til þess að náð yrði þeim kaupmætti, sem samið var um i febrúar 1974”. „Af þessum sökum stefnir óð- fluga að neyðarástandi meðal alls þorra verkalýðsstéttarinnar.” ,,..lýsir ráðstefnan þvi nú yf- VESTFIRÐIR: ir að langlundargeð verkalýðs- samtakanna er þrotið, og að þau muni nú beita áhrifum sinum af alefli til að sameina alla verka- lýðshreyfinguna til allsherjar- átaks, til þess að rétta hlut lág- launastéttanna, og knýja fram nýja kjarasamninga. Skorar ráð- stefnan þvi á öll félög innan ASl að afla sér nú þegar heimilda til verkfallsboðunar, og vera viðbúin að beita þeim heimildum, ef at- vinnurekendur og rikisstjórn opna ekki á næstu dögum mögu- leika á kjarasamningum, sem miðað við allar aðstæður gætu talist viðunandi til bráðabirgða.” innflutning á saltflski Samkvæmt fréttum i norskum blöðum hefur rikisstjórnin i Portúgal nýlega sett á stofn rikis- einkasölu eða landsverslun sem hér eftir annast öll innkaup á salt- fiski til Portúgal. Um 10. febrúar s.l. kom þriggja manna sendi- nefnd frá þessu nýstofnaða fyrir- tæki til Alasunds i Noregi og samdi þar um kaup á 2800 lestum af fullverkuðum saltfiski, ufsa og keilu, fyrir norskar krónur 24 mil- jónir cif-verð. Þetta mun vera fyrsti samningurinn um saltfisk- kaup, sem þetta nýstofnaða rikis- fyrirtæki i Portúgal gerir. Tryggingafélögin: Vilja 55% hækkun — en tryggingaeftirlitið telur 35% nægjanlegt Tryggingafélögin hafa farið fram á það að fá að hækka bif- reiðatryggingar um 55% frá og með 1. mars sl. en þá var gjald- dagi bifreiðatrygginga. Tryggingaeftirlitið hefur sett fram sitt álit á þessari hækkunarbeiðni og telur hana of háa. Hefur eftirlitið mælt með 35% hækkun á bifreiðatrygging- um, en eins og allir vita er verð- stöðvun i landinu og þvf er það mál rikisstjórnarinnar að skera endanlcga úr um það hve hækkunin verður mikil og nú sem stendur liggur málið hjá henni. En á meðan þetta ástand varir hafa tryggingafélögin farið inná þá braut að láta bifreiðaeigendur skrifa undir skjal þar sem þeir samþykkja að borga væntanlega viðbótarhækkun en greiða nú þegar sömu upphæð og i fyrra. Þetta geta tryggingafélögin gert i krafti þess að menn fá ekki bila sina skoðaða fyrr en þeir hafa greitt iðgjald af skyldu- tryggingunni en bifreiðaskoðun i Reykjavik hófst 1. mars sl. Hitt er svo annað mál, að það verður að teljast forkastanlegt af rikisstjórninni að draga það von úr viti að afgreiða þetta mál á hvaða hátt sem það verður gert, en auðvitað vita allir að hækkun verður leyfð; hvað fær ekki að hækka hjá þessari rikisstjórn ef kaupið er undanskiliðt —S.dór Samkomulag í steinbíts- verðsdeilunni Um siðustu helgi náðist sam- komulag milli linusjómanna á Vestfjöröum og fiskkaupenda um verð á steinbit, en sjómenn höfðu sagt upp skipsrúmi sinu vegna mikillar verðlækkunar á stein- bitnum. Samkomulagið hljóðar uppá það, að fiskkaupendur greiða 18,60 kr. fyrir kg. frá áramótum en það verð áttu þeir sam- kvæmt ákvörðun verðlagsráðs sjávarútvegsins ekki að greiða fyrr en 1. mars. Þetta samkomu- lag gildir fyrir linusjómenn á Isafirði, Bolungarvik, Þingeyri og Suðureyri. Að sögn Bjarna Gestssonar á Isafirði eru sjómenn alls ekki ánægðir með þessa niðurstöðu. Þeir telja að gæðameta eigi stein- bitinn, eftir fitumagni og að greiða ætti minnst 25 kr. fyrir kilóið af 1. flokks steinbit, en til að forðast stöðvun flotans féllust þeir á 18,60 kr. fyrir kg. af steinbit frá áramótum. —S.dór Þessir tveir herramenn voru á göngu niður við Reykjavikurhöfn i gær. Hvert skyldi umræðuefnið vera? Oðfluga stefnir að neyðar- ástandi verkalýðsstéttar eftir efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Því afli verkalýðsfélögin sér verkfallsheimildar PORTUGALIR: Þjóðnýta

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.