Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 7
Miövikudagur 5. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Leiklist sem kemur mönnum í hátíöaskap Þjóðviljanum hefur borist eintak af Vasa- bladet, helsta blaði sænskumælandi manna i Vasa og Austurbotni, og er þar að finna gagnrýni leikhúsgagn- rýnanda blaðsins, Gun- illu Lindroos, um sýn- inguna á Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason. Fer gagnrýnandinn þar hinum lofsamlegustu orðum um verkið sjálft, sviðsetningu þess og frammistöðu leikaranna. Birtum við hér þýðingu á leik- dómnum svo að þeim mörgu islendingum, sem muna Jörund Jónasar, gefist kostur á að sjá hvernig hann kom finnum fyrir sjón- ir. A laugardaginn frumsýndi Vasa-leikhúsið Þið munið hann Jörund, sem mikið hafði verið talað og skrifaö um þegar fyrir frumsýninguna. Lesendur Vasabladets vita þegar talsvert um hinn raunverulega Jörund, ævintýramann sem lét að sér kveða i upphafi 19. aldar, um rit- höfundinn og alþingismanninn Jónas Arnason, sem skrifaði leikritið fyrir fimm árum, og um irsku, skosku og ensku þjóð- lögin, sem felld eru inn i verkið. Frumsýningargestir gerðu sér þvi allháar hugmyndir um leik- inn fyrirfram og voru jafnframt búnir undir að verða fyrir von- brigðum, ef það skyldi nú eftir allt saman sýna sig að verkið væri ekki annað eins afbragð og af hafði verið látið. En þeir hefðu getað sparað sér þær áhyggjur. — Þið munið hann Jörund reyndist á allan hátt sist siðri en talið hafði verið! Beinakex fyrir lýsi og tólg Leikritið byggist á atburðum, sem raunverulega gerðust á Napóleonstimunum, þegar danskur skipstjóri i þjónustu englendinga sigldi til íslands með skipsfarm af beinakexi til að selja fyrir tólg og þorskalýsi. Sá sem þetta fól honum á hend- ur var Sir Alexander Jones, háttsettur i breska flotanum, en hann var i mjög góðu sambandi við danska landstjórann á Is- landi, Trampe greifa. Bæði danir og englendingar gera sitt besta til arðræna og kúga hina fátæku islensku þjóð, og Jörundur, sem er maður frið- samur og góðmenni, kemst i uppnám við að kynnast þessu slæma ástandi. Með honum i ferðinni er stýrimaður hans Charlie Brown, glaður og ein- eygður, einhentur og einfættur villingur, og það er að hans áeggjan að Jörundur tekur völdin á eynni og lætur lýsa sig þar konung. Samt sem áður má hann ekki heyra minnst á of- beldi og blóðsúthellingar — Charlie til gremju — og gerir sitt besta til að stjórna islensku þjóðinni af mildi og réttsýni. En hann kann ekki mál lands- manna og verður þvi að brúkast við Stúdiósus sem túlk, skólaðan, fyrirlitinn og að þvi er virðist heldur einfaldan islend- ing. í raun bruggar Stúdiósus launráð af fágaðri kænsku. Hann teflir Sir Alexander, Trampe greifa og Jörundi hverjum á móti öðrum og er i leikslok sigurvegari og nýr leið- togi islensku þjóðarinnar! Boöskapur Jörundar Sjálfur hefur Jónas Árnason sagt að hann trúi á möguleika smáþjóðanna á að draga úr spennunni i heiminum, stöðva valdabaráttu og stuðla að varðveislu friðarins. Þann boð- -skap flytur hann lika i leikritinu um Jörund. Stúdiósus er tákn óska is- lensku þjóðarinnar um frelsi og þeirrar skynsamlegu raunsæis- stefnu i stjórnmálum, sem væn- legri er til að ná settu marki en mál valdsins. Jörundur talar lika máli frelsis og réttlætis á sinn hátt. Manni finnst kannski að höfundur hafi gert Jörund full einfaldan og framtakslitinn i allri sinni mannúð, það er þrátt fyrir allt sú káta óhemja Charlie, sem kemur hlutunum i verk. En það fyrirgefur maður gjarnan höfundinum, þvi að hann hefur skrifað svo skemmtilegt og hrifandi leikrit, að lengi hefur ekki sést annað eins. IVIartin Kurten i hiutverki Trampe greifa stal senunni i hvert skipti er hann kom inn á sviðið. Eftir Gunillu Lindroos, leikgagn- rýnanda viö Vasabladet Vitaskuld er það ekki textinn einn, sem er góður. Kristin 01- soni leikhússtjóri er innblásinn leikstjóri, sem kann að einbeita kröftunum, og sviðsetningin hjá henni var öll þannig, að fólk skemmti sér þegar frá upphafi. Við hliðina á sviðinu sátu þrir leikarar, Stina Svensson, Leif Sandberg og Martin Kurtén, i enskri krá og sáu um ramma- frásögnina. Þau hnýttu saman þræðina i hinni merkilegu sögu um Jörund, og þau fluttu irsku, skosku og ensku söngvana og hvöttu áhorfendur til að taka undir. Fjörleg og hrifandi sýning Salurinn var einnig hafður sem svið, leikararnir voru þar á ferð og áhorfendur fengu hlut- verk islensks fólks. Allt þetta gerði sitt til að öll sýningin varð fjörleg og hrifandi. Og sýningin einkenndist öll af snjöllum og skemmtilegum brögðum. Þar af má nefna skuggamyndaleikinn, þegar Jörundur flekar eina af dömum rikis sins, hestana óborganlegu, sem Jörundur og fylgdarmenn hans riðu um Island og landa- bréfið, þar sem leið Jörundar var merkt með blikkandi ljós- perum. Snjallræði var það lika að láta Trampe greifa tala hátiðlega dönsku, en islendingana mál- lýsku — þannig fékk áheyrand- inn á tilfinninguna eðlilega tungumálserfiðleika, en sjald- gæft er að fyrirhitta þessháttar I leikhúsi og kvikmyndum. Ein- vfgi þeirra Jörundar og Trampe greifa var stórkostlegt, bæði nógu háskalegt að sjá og ofboðs- lega fyndið. Og leikbúningar Grétu Þórisdóttur eiga það skil- ið að þeirra sé getiö sérstak- lega. Þeir voru stórfenglegir, allt frá fy rirferðarmiklum glæsileik Trampes greifa i rauðu og gullnu til tötralegs og slitins búnaðar Charlies. Þeir féllu einnig hið besta inn i verkið og voru í senn hæfilega dæmi- gerðir fyrir timann, sem leikur- inn gerist á, og skoplegir. Leikararnir voru ómótstæðilegir Það nær engri átt að taka neinn leikarann fram yfir hina: um hvern og einn þeirra er ekki annað hægt að segja en að hann hafi verið ómótstæðilegur i sinu hlutverki. Borgar Garðarsson i hlutverki Jörundar var velvilj- aður og réttlátur og um leið dá- litið töfrandi feiminn og hégóm- legur — Pelle Svanslös i kon- ungsgervi. Maður hefur grun um að sá raunverulegi Jörundur hafi verið framtakssamari og búið yfir meiru af grófum krafti, að minnsta kosti eftir ævintýrum hans að dæma, en það er hægt að leiða hjá sér. Jörundur Vasa-leikhússins vek- ur meiri samúð eins og hann er. Andstæða hans er hinn fall- byssuelskandi vigamaður Charlie, allgeigvænlegur ásýnd- um með tréfót, með svartan lepp fyrir auganu og krók i stað hægri handar. Lasse Hjelt fór með hlutverk hans af sannri leikgleði og gerði hann að sönn- um sjóræningja af sígildu, gömlu tegundinni, kátan og ofsafenginn i senn, en jafnframt gat áhorfandann rennt grun i að hann væri þegar allt kæmi til alls, eins og Stúdiósus segir, „saklaus eins og nýfætt barn”. Stúdiósus sjálfur var fullkominn i hlutverki sinu sem auðm júk og sauðarleg undirtylla, og svo ólfkur öllu öðru, sem Sven Wil- son hefur gert til þessa, að það lá við að maður þekkti hann ekki. Eitt af þvi besta i leiknum var þegar hann túlkaði tilskip- anir konungs fyrir islendingun- um. Trampe greifi varð senuþjófur Leif Sandberg lék bæði ira i ensku kránni og skoskan há- lending á skipi Jörundar, og hann stökk með kurt og pi úr einu hlutverkinu i annað á vixl. Sir Alexander Jones varð i með- ferð Rune Bergman að ósvikn- um enskum yfirstéttarmanni fram i fingurgóma. Lennart Snickers var óborg- anlegur sem Sir Walter Raleigh, og Kristina Agren gaf undir fót- inn i hlutverkum tveggja tæl- andi islenskra stúlkna. En allt um það varð það svo, aö þegar greifi Martin Kurtén- Trampe gekk inn á sviðið hafði maður ekki af honum augun. Valdsmannsleg istran, danskan og stórhrokalegt látbragð gerði það að verkum að hann varð beinlinis ógleymanlegur i þessu hlutverki! Hátiða sti mm nin g á sviði sam i sal Guillermo Michel sá um tón- listarhliöina og gleði hans og fjör sem stjóranda smitaði frá sér, auk þess sem hljómsveitin fékk af þessu tilefni liðstyrk tón- listarmanna frá borgarhljóm- sveit Vasa. Það er enginn hægð- arleikur að fá finnska leikhús- gesti til að sleppa svo fram af sér tilfinningabeislinu að þeir þori að syngja, en i þetta sinn tókst það, sumpart vegna þess hve Leif Sandberg, Stina Svens- son og Martin Kurtén voru örv- andi, og sumpart eflaust vegna þess hve söngvarnir eru hrif- andi óbrotnir og hljómfagrir, eins og shanties og þjóðlög yfir- leitt eru. Þegar Jónas Arnason steig upp á sviðið að sýningu lokinni og lét túlkinn Stúdiósus tilkynna að ,,an sair an ska sjong för ar”, þurfti enginn að hvetja áhorf- endur til að taka undir. Það rikti hátiðastemmning jafnt á sviði sem i sal. örugglega er það besta einkunn, sem leiksýning getur fengið. Árshátíð brottfluttra borgfirðinga Nýlega var hald, 'ialfundur Borgfirðingafélagsins i Reykja- vik. t félaginu hefúr verið aílfjöl- breytt starfsemi undanfarið og nýir félagar bæst við. Samkomur á vegum félagsins eru að jafnaði i hverjum mánuði allan veturinn. Þannig hafa i h ust og vetur verið 5 spilakvöld og það sjötta og sið- asta verður laugardaginn 19. april. Kynningarkvöld var i októ- ber og gestaboö fyrir eldri borg- firðinga i nóvember. Arshátið verður laugardaginn 8. mars i Domus Medica. Góð aðsókn hefur verið að þessum samkomum. Fleira er á döfinni hjá félaginu en skemmtanahald. Félagið hef- ur á leigu landspildu i Sv-igna- skarði, Borgarsel, sem hefur verið girt og nokkuö unnið við á hverju sumri. Á s.l. sumri lagði félagið fram nokkurt fé til kaupa á áburði og fræi til landgræðslu og unnu nokkrir félagar að áburðar- dreifingu og sáningu i uppblásið land i nágrenni Andakilsárvirkj- unar. Er mikill áhugi á að halda sliku starfi áfram. Félagið hefur enda alltaf talið það vera eitt af sinum verkefnum að viðhalda tengslum milli heimamanna og burtfluttra borgfirðinga. Félagið er aðili að byggðasafninu i Borg- arnesi og hefur einn mann i stjórn þess. Núverandi fulltrúi félagsins er Kristin Guðmundsdóttir frá Skiphyl. Kvennadeild starfar af miklum krafti og heldur sam- komur mánaðarlega. Núverandi formaður kvennadeildar er Þuriður Kristjánsdóttir. Stjórn félagsins skipa: For- maður er Björn Kristjánsson, og aðrir i stjórn og varastjórn Guðný Þórðardóttir, Svavar F. Kjærne- sted, Magnús Skarphéðinsson, Garðar Erlendsson, Guðrún Helgadóttir, Ólafur Magnússon, Asta Sigurðardóttir, Sigriður Skarphéðinsdóttir og Þorkell Sig- urðsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.