Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 5. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Ályktun ráðstefnu Alþýðusambandsins:
Félögin afli sér
verkfalls-
heimildar
Að fengnum upplýsingum 9-
manna samninganefndar ASl um
gang samningaviðræðna við sam-
tök atvinnurekenda og við rikis-
stjórnina, svo og að kannaðri þró-
un verðlagsmála frá þvi er ráð-
stefna verkalýðssamtakanna var
haldin 30. nóv.—1. des. sl., ályktar
kjaramálaráðstefna ASÍ eftir-
farandi:
1. Frá þvi er ráðstefnan var
haldin um mánaðamótin nóv/des.
sl., hefur óðaverðbólgan geisað
fram af meiri hraða og tilfinnan-
legar fyrir alþýðuheimilin en
nokkru sinni áður. Sú kjararýrn-
un sem þá var metin sem 13—23%
lækkun kaupmáttar, hefur vaxið
á þeim 3mánuðum, sem siðan eru
liðnir, yfir 30 stig i framfærslu-
vfsitölu og fullvist er, að á næstu
dögum og vikum mun hún enn
vaxa um a.m.k. 20 stig. Skerðing
kaupmáttar, ef ekki er að gert,
yrði 1. mai n.k. 30^10% og þyrfti
kaupgjald þá að hækka um
50—60% til þess að náð yrði þeim'
kaupmætti, sem samið var um i
febrúar 1974.
'Þessi geigvænlega þróun kjara-
mála hefur orðið án þess að
stjórnvöld hafi gert minnstu til-
raun til að spyrna við fótum, og
að verulegu leyti fyrir þeirra til-
verknað.
Gengið hefur verið fellt um
20%, lagðir hafa verið á ýmsir
sérskattar, söluskattur verið
hækkaður um 1% og heimilaðar
stórfelldar hækkanir á fjölmörg-
um vörum og almennri þjónustu,
sem ekkert heimili getur án ver-
ið, svo sem rafmagni, hitaveitu,
afnotum útvarps og sjónvarps,
svo fá dæmi séu nefnd. Visitala
framfærslukostnaðar stóð hinn 1.
febrúar i 372 stigum á móti 297
stigum 1. ágúst sl., og nú er vitað
um miklar hækkanir viðkvæm-
ustu neysluvara, svo sem búvara,
og stórfelldra almennra hækkana
vegna gengisfellingarinnar, sem
nú mun leggjast með ofurþunga á
framfærslukostnað næstu daga og
vikur. Framfærslukostnaður
heimilanna mun þvi án mótað-
gerða hækka um 10—11% a.m.k. á
næstu 2 mánuðum. Á sama tima
fer atvinna minnkandi og veldur
stórfelldum tekjumissi heimila
láglaunafólksins, en stöðvun út-
lánaaukninga viðskiptabanka,
aukin bindiskylda þeirra i Seðla-
bankanum, og samdráttarstefna
rikisvaldsins i heild, ógnar nú al-
varlega þvi atvinnuöryggi sem
vinnustéttirnar hafa þrátt fyrir
allt búið við siðustu árin. Af þess-
um sökum öllum stefnir óðfluga
að neyðarástandi meðal alls
þorra verkalýðsstéttarinnar.
2. Þessi ógnvekjandi þróun
kjaramála er af stjórnvöldum
skýrð með versnandi viðskipta-
kjörum, sem vissulegá verður
ekki synjað fyrir að eiga hér
nokkra sök, en þó hvergi nærri
nema að hluta. Orskanna er ekki
siöur að leita i algeru andvara-
leysi stjórnvalda gagnvart að-
steðjandi vanda, og viljaleysi
þeirra og samtaka atvinnurek-
enda til að verja i nokkru hag
verkalýðsstéttarinnar. Ráðstefn-
an lýsir þvi sök á hendur þessum
aðilum, og fordæmir ábyrgðar-
leysi þeirra og andstöðu gegn
réttmætum og óhjákvæmilegum
kröfum verkalýðsstéttarinnar um
launahækkanir, sparnað i opin-
berum rekstri og skattalækkanir
til þeirra, sem komnir eru i þrot
með lifskjör sin og afkomu.
3. Ráðstefnan telur að atvinnu-
rekendum og rikisstjórn hafi af
verkalýðssamtökunum, nú um
eins árs skeið, verið sýnt mikið
langlundargerð, og gefin fyllstu
tækifæri til að koma I
framkvæmd ráðstöfunum i þá átt
að mæta áföllum þjóðarheildar-
innar með þvi m.a. að vinna að
réttlátari skiptareglum þjóðar-
tekna, og verja þannig rétt þeirra
og kjör, sem verst eru settir, en
sú stefna er hin eina sem á rétt á
sér þegar minna er til skipta en
áöur. En nú hefur sannast að
hvorki atvinnurekendur né
stjórnvöld, hafa notað timann til
slikrar stefnumótunar, heldur til
þess að ráðast i sífellu á garðinn
þar sem hann er lægstur, og vega
æ ofan i æ i hinn sama knérunn,
og að nota áföll þjóðarbúsins sem
tylliástæðu til að skerða almenn
Hfskjör stórum freklegar en efni
og ástæður hafa gefið tilefni til.
Þessari reynslu rikari, lýsir
ráöstefnan þvi nú yfir, að lang-
lundargeð verkalýðssamtakanna
er þrotið, og að þau muni nú beita
áhrifum sinum af alefli til að
sameina alla verkalýðshreyfing-
una til allsherjarátaks, til þess að
rétta hlut láglaunastéttanna, og
knýja fram nýja kjarasamninga.
Skorarráðstefnan þvi á öll verka-
lýðsfélög innan ASÍ að afla nú
þegar heimilda til verkfallsboð-
unar, og vera viðbúin að beita
þeim heimildum, ef atvinnurek-
endur og rikisstjdrn opna ekki á
næstu dögum möguleika á kjara-
samningum, sem miðað við allar
aðstæður gætu talist viðunandi til
bráðabirgða. 1 þvi ótrygga og
óvissa efnahagsástandi, sem nú
rikir telur ráðstefnan ekki koma
til greina að festa samninga um
kaup og kjör nema til mjög
skamms tima, heldur verði nú að
stefna að settu marki um að ná
fram i áföngum kaupmættinum,
eins og hann var eftir siðustu
samninga, og verði hvert tækifæri
notað til þess.
Ráðstefnunni er ljóst að árang-
ur fyrsta áfangans kann að
marka mjög þá sem síðar verður
að ná, og heitir þvi á alla verka-
lýöshreyfinguna að mynda nú þá
dbjúfandi fylkingu sem til þarf, að
hann verði sem stærstur og
árangursríkastur.
Baknefnd samninganefndar ASÍ
Baknefnd samninganefndar ASt
var kjörin á ráðstefnunni á mánu-
dagskvöid. Hér fer á eftir listi yfir
þá sem eiga sæti i baknefndinni:
Arni Þormóðsson, Alþýðusam-
band Austurlands, BjÖrgvin Sig-
urðsson, Alþýðusamband Suður-
lands, Böðvar Pétursson, Versl-
unarmannafélag Reykjavfkur,
Einar Karlsson, Verkalýðsfélag
Stykkishólms, Grétar Jónsson,
Félag byggingaiðnaðarmanna
Árn., Guðjón Jónsson, Félag
járniðnaðarmanna, Guðmann
Hannesson, Þróttur, Guðmunda
Nýtt
Ijóðskáld
Ný ljóðabók er komin út, heitir
hún Myrkur i hvitri örk og er eftir
ungt skáld, Jón Laxdal að nafni.
Er þetta fyrsta bók höfundar.
Bókin er myndskreytt og hönnuð
af Helga Vilbergssyni og gefa
þeir Jón og hann bókina út i sam-
einingu og önnuðust þeir félagar
fjölritun og frágang.
Helgadóttir, Sókn, Guðm. H.
Garðarsson, Verslunarmannafé-
lag Reykjavikur, Guðriður Elias-
dóttir, Framtiðin, Guðrún Ólafs-
dóttir, Vkf. Keflavikur og Njarð-
vikur, Gunnar Bachmann, Fél.
isl. rafvirkja, Halldór Björnsson,
Dagsbrún, Halldór Hafsteinsson,
Fél. járniðnaðarmanna Arn.,
Hallveig Einarsdóttir, ASB, Her-
mann Guðmundsson, Hlif, Jón
Asgeirsson, Alþýðusamband
Norðurlands, Jón Helgason, Ein-
ing, Jón Ingimarsson, Iðja, Akur-
eyri, Jón Karlsson, Fram, Sauð-
árkróki, Jón Snorri Þorleifsson,
Trésmiðafélag Reykjavikur, Karl
Steinar Guðnason, Vlf. Keflavik-
ur, Kolbeinn Friðbjarnarson,
Vaka, Magnús Árnason, Félög
matvælaiðnaðar, Magnús
Stephensen, Málarafélag Reykja-
vikur, Magnús L. Sveinsson,
Verslunarmannafél. Reykja-
vikur, Óskar Hallgrimsson, Fél.
isl. rafvirkja, Pétur Sigurðsson,
Alþýðusamband Vestfjarða, Run-
ólfur Pétursson, Iðja, Reykjavik,
Sigurgestur Guðjónsson, Félag
bifvélavirkja, Skúli Þórðarson,
Vlf. Akraness, Sævar Guðbjörns-
son, Iðnnemasamband Islands,
Vilberg Sigurjónsson, Iðnnema-
samband Islands, Vilborg Sig-
urðardóttir, Snót, Þórir Daniels-
son, Verkamannasamband ís-
lands og Þórunn Valdimarsdóttir,
Framsókn.
Þrjár sveitir jafnar í
skákkeppni stofnana
Þrjár sveitir urðu efstar og
jafnar i skákkeppni stofnana, a-
riðli, sem lauk á mánudag. Verða
þessar sveitir að keppa innbyrðis
um efsta sætið.
ALLIANCE
FRANCAISE
Fyrirlestur með myndun (slides) I Franska bókasafninu,
Laufásvegi 12, I kvöld (miðvikudag) kl. 20.30.
Jacqueline LIGNOT ROUX talar um listmálarann.
Fernand LÉGER
öllum er heimill aðgangur.
Þær sveitir, sem efstar og jafn-
ar urðu, voru sveit útvegsbank-
ans, sveit Orkustofnunar og Ráf
magnsveitna rikisins og sveit
kennara við Menntaskólann við
Hamrahlið. Fengu þessar þrjár
sveitir 18 vinninga hver.
Fjórða sveitin var sveit Búnað-
arbankans með 18 vinninga og i
fimmta sæti varð sveit Kennara
háskólans með 17 vinninga.
Helgarmóti Taflfélags Reykja
vikur lauk um helgina og varð
Haraldur Haraldsson sigurvegari
og hlaut hann 6 vinninga af 7
mögulegum. 1 öðru sæti varð
Torfi Stefánsson og hlaut hann
5 1/2 vinning. — úþ
Góder
b&kur
Gdrnalt
veró
Bökamarkaðurinn
I HUSI IÐNAÐARINS VIÐ
INGÓLFSSTR/ETI
Tæki til sölu
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum i eftirtalin tæki:
Sorpbill Commer '67
Sorpkassi 9 rúmmetra, frá vélsmiðjunni Bjargi.
Valtari Huber, c.a. 3 tönn
Loftþjappa Hydor, 250 c.f.m.
Grjótgrabbi, 0,6 rúmmetra
2 vagnborar, Ingersoll-Rand
Skófla á JCB gröfu (snjóskúffa)
Tækin eru til sýnis i áhaldabúsi bæjarins við Flatahraun.
Tilböðum skal skila eigi siðar en fimmtudaginn 6. mars kl.
14 á skrifstofu bæjarverkfræðings og verða þá opnuð að
viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur Hafnarfjarðar
Kaupf élagsstj óri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Súg-
firðinga, Suðureyri er laust til umsóknar
frá 1. mai n.k.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um starfsreynslu og menntun sendist for-
manni félagsins, Ólafi Þorðarsyni Súg-
andafirði, simi 6119, fyrir 20. mars.
Kaupfélag Súgfirðinga.