Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 05.03.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 5. mars 1975 Munið að leysa út ávísanir Þaö er vissulega ástæöa til þess fyrir fólk, aö muna eftir þvi aö leysa út ávisanir, sem stiiaö- ar eru á það, eða þvi er greitt með og þá fyrr en seinna, þvi sé það gert mánuöi eftir aö ávisun- in cr gefin út, er það um seinan, og bankarnir geta neitaö aö greiöa út ávísanir. Maður nokkur sagði okkur frá þvi að hann hefði farið i banka á dögunum með ávisun, sem hann hefði átt nokkuð lengi i fórum sinum, en gleymt. Var hún dag- sett 18. nóvember i fyrra. Bankinn vildi ekki leysa út á- visunina, enda ekki til inni fyrir henni. Bentu bankamenn mann- inum á að hann þyrfti að fá sér lögfræðing, ef hann vildi ná út þessum peningum. Sneri hann sér þá til útgefanda ávisunar- innar og neitaði hann að greiða hana út, og sagði að það væri á hans ábyrgð að hafa ekki leyst hana út fyrr. önnur dæmi nefndi hann okkur til svipaðs eðlis. Það er þvi ástæða til að minna fólk á að leysa út ávisanir i tima sem það tekur við og einnig að taka undir það með manninum, að bankar skrái leibeiningar um það hversu lengi megi geyma ávisun án þess hún ónýtist. —úþ SHÍ mótmælir 9. fundur SHÍ haldinn þ. 23 febrúar 1975 lýsir yfir andstöðu sinni við þær breytingar sem orð- iö hafa á frumvarpi til laga um „kynferöisfræðslu og fóstureyð- ingar”. Þaö er skýlaus réttur hverrar konu að eiga kost á fóst- ureyðingu meðan ekki er völ á ó- keypis fullkomnum getnaðar- vörnum, sem eru án aukaverk- ana. Auk þess rikir viö óbreytt á- stand mismunur milli þeirra kvenna sem hafa fjárhagslegt bolmagn til þess að fara til út- landa og fá framkvæmda aðgerö þar og þeirra efnaminni. Stúdentaráð skorar á alþingis- menn að breyta þvi ákvæði frum- varpsins sem tekur til fóstureyð- inga i upprunalegt horf. Allt tal um jafnrétti kynjanna og ár kvenna er marklaust af hálfu þeirra sem ekki vilja að konur ráði sjálfar lifi sinu. (FráSHl). Mjólkin drýgð með vatni Tveir bœndur líklega kœrðir Tveir bændur á mjólkursam- lagssvæði Kaupfélags borgfirð inga, eru taidir hafa drýgt mjólkina sem þeir hafa selt kaupféiaginu meö vatni. Þjóöviljinn skýröi frá þessu fyrir nokkrum vikum, og vildi mjólkurbússtjóri borgfiröinga þá ekki kannast viö aö bændur á hans svæöi vatnsblönduðu mjóikina frá sér. Nú liggur hinsvegar fyrir að tveir bændur á svæði Kaup- félags borgfirðinga eru undir eftirliti, og er búist við að þeir verði kærðir fyrir vatnsbland. Stefán Björnsson hjá Mjólkursamsölunni i Reykjavik sagði Þjóðviljanum að mjög erf, 'itt væri að sanna þetta tiltæki á innleggjendur, en reiknaði með að aðferðum við prófanir á mjólk á sveitabæjum yrði breytt. Hingað til hafa verið teknar prufur af mjólk hvers innleggjanda á ákveðnum viku- dögum, einu sinni i viku. Stefán kvaðst búast við að eftirleiðis yrðu prufur teknar óreglulega, ekki á ákveðnúm dögum og stundum marga daga í röð. „Annars er afar erfitt að fyrirbyggja svonalagað”, sagði Stefán, „ ef einhverjir menn vilja gera svonalagað, þá er erf- itt að komaa i veg fyrir það. Hinsvegar er ljóst, að sé mjólk- in blönduð vatni, þá kemur það mjög fljótt fram. Það er ósenni- legt að þetta mál þeirra i Borgarfirði hafi gengið lengi”. Sem fyrr segir, þá liggja tveir innleggjendur undir grun, en samlagssvæði Kaupfélags borg- firðinga nær yfir allan Borgar- fjörðinn og Snæfellsnes einnig. Stefán Björnsson kvað afar óliklegt að fleiri bændur en þeir tveir sem hér getur, hafi iðkað að drýgja mjólkina frá sér með vatni. Mjólkursamlag Kaupfélags borgfirðinga hefur nú óskað eftir lögskipun til handa sér- stökum mjólkureftirlitsmanni. —GG Undankeppni skákþings Kópavogs lokið A sunnudaginn lauk undan- keppni skákþings Kópavogs. Teflt var I tveimur 10 manna riðlum og munu tveir efstu menn i hvorum tefla i úrslitakeppninni. 1 A-riðli varð Helgi ölafsson langefstur með 8,5 v. Baráttan um 2. sætið varð mjög hörð og að lokum urðu þeir Jóhannes Jónsson og Magnús Ölafsson jafnir i 2.-3. sæti með 6,5 v. Jóhannes mun vera aðeins hærri á stigum og fer þvi i úrslita- keppnina ásamt Helga. Jónas P. Erlingsson varð i 4. sæti með 6. v. I B-flokki varð keppnin jafnari. Einni skák er ólokiö þegar þetta er ritað. Staða efstu manna er þessi: 1. Bragi Halldórsson 7,5 v. 2. Ásgeir Þ. Árnason 7 v. og 1 biðskák. 3. EirikurKarlsson 6,5 v. 4. Áskell ö. Kárason 5,5 v. 5. Kristján Guðmundsson 5 v. Þeir Bragi og Ásgeir fara i úrslitakeppnina úr B-riðli. Sigur- vegarinn i henni fær rétt til að tefla i landsliösflokki i skákþingi Islands. Þess skal getiö að Helgi Ólafsson hefur þegar unniö sér keppnisrétt i landsliðinu. Eini Kópavogsbúinn i úrslita- keppninni er Jóhannes Jónsson og sýnist mér þvi að hann sé þegar orðinn skákmeistari Kópavogs 1975. A meðan þessi harða keppni fór fram i Kópavogi tefldu 14 menn I helgarmóti Taflfélags Reykja- vikur. Þar voru tefldar 7 umferðir eftir Mönrad kerfi og hafði hver keppandi 1 klst. til umhugsunar i hverri skák. Sigurvegari varð L& UMSJÓN JÓN G. BRIEM Haraldur Haraldsson með 6 v. Næstur varð Torfi Stefánss. með 5.5 v. Þriöji Asgeir överby með 4.5 v, fjóröi Siguröur Ólafsson 4 v. og með 5-7 urðu Margeir Pétursson, Eirfkur Björnsson og Jón L. Arnason með 4 v. Torfi Stefánsson náði 2. sæti með þvi að sigra Margeir Pétursson í siðustu umferð. Þó að umhugsunartlmi hafi aðeins verið 1 klst. þykir mér rétt að birta skákina þvl að af henni má margt læra og auk þess er hún skemmtileg. Teflendur fylgja teóriunni 16 fyrstu leikina en þá bregður Torfi útaf.Margeiri verða á mistök i 18. leik, hann átti að leika Da5 og hefur þá góða stöðu. I 22. leik verða honum á alvar- legri mistök þegar hann leikur Bd2. Rétt var að leika g6. Torfi fórnar þá manni og vinnur skemmtilega. Hvltt: Torfi Stefánsson Svart: Margeir Pétursson Sikileyjarvörn. 1. e4 2. Rf3 3. d4 4. Rxd 5. Be3 6. Rc3 7. Be2 8.0-0 9. Ra4 C5 E6 cxd Rc6 a6 Dc7 Rf6 Bb4 0-0 10. Rxc6 11. Rb6 12. Rxc8 13. Bxa6 14. Bd3 15. Khl 16. c3 17. f4 18. Hcl 19. Bd4 20. e5 21. f5 22. Bxf5 23. Bxh7 24. Dh5 25. Hxf7 26. Hcfl 27. e6 28. Bxg7 29. Bxf6 30. Dxf7 31. Kxg2 bxc Hb8 Hfxc8 Hd8 Bd6 Be5 Hxb2 Bxc3 Bb4 Hxa2 Rd5 exf Bd2 Kxh7 Bh6 c5 Dc6 Hxg2 Dxg6 Dxf7 Bg7 Re3 og svartur gefst upp um leið. Jón G. Briem. FRÉTTABREF UM HEILBRIGÐISMÁL Úter komið Fréttabréf um heil- brigöismál 1. tölublað 1975 en með þvi hefst 23. árgangur. Frétta- bréfið er gefið út af Krabba- meinsfélagi Islands og ritstjóri er Bjami Bjarnason læknir. Meðal efnis i 1. tbl. má nefna: Meltingin hefst i munninum eftir Edward Hughes, Liðagigt, Maga- sár eftir ritstjórann, Þungbær- asta ákvörðunin, úr Time, Lið- þófaröskun læknuð með nýrri að- ferð, Einkenni farsótta, Greining magakrabba á byrjunarstigi eftir ritstjórann, Skútabólgur, Ný sigaretta o.fl. Blaðið kemur út ársfjórðungs- lega og kostar árgangurinn 300 krónur. MÍR 25 ára Um miðjan mars eru liöin 25 ár frá stofnun félagsins MIR, Menningartengsia tslands og Ráöstjórnarrikjanna, og verö- ura afmælisins minnst meö ýmsum hætti i mánuðinum. Félagiö stendur sjálft fyrir af- mælistónleikum og fleiri sam- komum af þessu tilefni, en einnig munu aörir aöilar gangast fyrir sýningum, fyrir- lestrahaldi, tónleikum o.fl. Helstu dagskráratriöi þessa kynningar- og vináttumánaðar MÍR verða sem hér segir: Mánudaginn 10. mars verður kvikmynd Andrei Tarkovskis, „Solaris”, sýnd i Háskólabiói;. mjög umtöluð og viðfræg mynd eftir einn kunnasta núlifandi kvikmyndaleikstjóra I Sovét- rikjunum. Hefur af því tilefni verið boöiö hingað til lands tveimur af aðalleikendum i myndinni, þeim Natölju Bondartsjúk og Donatas Banionis. Þennan sama dag, 10. mars, verður opnuð sovésk bóka- sýning á baðstofuloftinu i Bóka- verslun ísafoldar. Þar verða sýndar 200-300 bækur útgefnar i Sovétrikjunum á siðustu árum. Bækur þessar eru af ýmsu tagi: skáldverk, fræðirit, ritgerða- söfn, mynda- og listaverkabæk- ur, barnabækur o.s.frv. Sýning- in verður opin i viku. Hinn 13. mars er svo væntan- leg hingað til lands 8 manna sendinefnd frá Sambandi sovéskra vináttufélaga og félaginu Sovétrikin-ísland til þátttöku I afmælishátiðahöldum MIR. Laugardaginn 15. mars verð- ur formlega undirritaður sam- starfssamningur milli félagsins MIR annarsvegar og Sambands sovéskra vináttufélaga og félagsins Sovétrikin-lsland hinsvegar. Sama dag, 15. mars, verður opnuö sovésk grafiksýning i sýningarsal Listasafns ASl að Laugavegi 31. Á sýningunni verða um eða yfir 40 myndir eft- ir listamenn viða að úr Sovét- rikjunum. Sunnudaginn 16. mars verður svo efnt til afmælisfundar MÍR, tónleika og danssýningar I sam- komusal menntaskólans við Hamrahlið. Þarna koma sovésku listamennirnir fram, ásamt islenskutu. listamönnum, en ávörp flytja Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra, Stúdentskl aðstoðar- sjávarútvegsráðherra Sovét- rikjanna og Margrét Guðna- dóttir prófessor. Mánudaginn 17. mars heldur hinn góðkunni norrænufræðing- ur og Islandsvinur prófessor Boris Feoktistov Stéblin-Kamenski fyrirlestur i Arnagarði i boði heimspeki- deildar Háskóla Islands og ræðir um samskipti Islendinga og rússa fyrr og siðar. Vltali Gromadskl Kvöldfagnað mun svo MIR væntanlega halda með þátttöku hinna spvésku gesta fimmtu- daginn 20. mars. (Fréttatilkynning frá MIR)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.