Þjóðviljinn - 13.04.1975, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.04.1975, Blaðsíða 7
Sunnudagur 13. aprfl 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 öll baráttusamtök gegn herset- unni hafa þó glimt við sama vandamálið: erfiðleikana á þvi að koma málinu efst á dagskrá, koma þvi hverju sinni i brenni- punkt stjórnmálaumræðunnar. Þau samtök, sem best störfuðu og mest höfðu umleikis, Samtök her- námsandstæðinga 1960—1968, megnuðu aldrei að koma málinu á úrslitastig og sama gilti um önnur samtök: Milli þess sem efnt var til velheppnaðra fjölda- aðgerða, var sinnuleysið og þögn- in löngum versti óvinurinn. Reyndin er sú, að aðeins tvisvar sinnum á seinustu 29 árum, hefur málið komist efst á dagskrá stjórnmálabaráttunnar. b.e árin 1956 og 1974. Stundum heyrist sagt i röðum ungra hernámsandstæðinga að barátta nokkurra pólitfkusa á Alþingi eða i rikisstjórn skipti ekki miklu máli. Það sé hreyfing- in meðal fjöldans sem úrslitum ráði. Þetta er að sjálfsögðu satt, en þó aðeins hálfur sannleikur. Þögnin um herstöðvamálið á þessum vetri i samanburði við háværar umræður i fyrra, ætti að gera mönnum ljóst, að þvi aðeins er einhver veruleg hreyfing meðal fólksins, þvi aðeins er mál- ið á dagskrá hjá þjóðinni, að Alþýðubandalagið sé i sterkri að- stöðu til þess, að alþingi og i rikis- stjórn, að knýja á um stefnu- breytingu. Vonandi gera menn sér einnig ljóst, að þögnin um herstöðvamálið er töluvert hættulegri en hinn tölvuvæddi bægslagangur Varins lands. Nokkrar niöurstööur: Allir andstæðingar hersetunnar þurfa sem sagt að gera sér ljóst, að sigur i herstöðvamálinu verður endanlega að vinnast á Alþingi og i rikisstjórn. Við verðum að horfast i augu við þá staðreynd, að þjóðin er mjög skipt i þessu máli, og i þvi vinnst enginn skyndisigur. Við komumst ekkert áfram án banda- manna, sem sumir kunna að hafa takmarkaðan áhuga á brottför hersins. Sannleikurinn er sá, að staðan i þessu máli hefur lengi verið tvisýn, og þeir pólitisku hópar, sem úrslitum ráða, hafa löngum verið hikandi i afstöðu sinni. í miðju islenskra stjórn- mála er stór hópur kjósenda, sem leggur litla áherslu á þetta mál, til eða frá, og margir virðast ekki hafa neina skoðun á málinu. Við verðum þvi að gera okkur full- komlega grein fyrir þvi, að við náum engum árangri án þess að brjótast áfram áfanga fyrir áfanga. Enginn getur sagt neitt um það nú, hve langt við náum i næsta sinn eða hvaða skilyrði verður talið rétt að setja við myndun rikisstjórnar. Það fer eftir að- stæðum og samsetningu stjórnar- innar með eðlilegri hliðsjón af þvi sem raunhæft er að reyna að knýja fram. Jafnframt er höfuðnauðsyn að um verði að ræða virka hreyfingu fjöldans, þvert á flokkapólitik, en þess háttar hreyfing má ekki miðast við tjáningarþarfir ýmiss konar últra-hópa. Hefjum enn upp merkið nú þegar 35 ár eru liðin siðan hernámið hófst. Fylgismenn hersetunnar hrósa að visu sigri enn um sinn. En nú- verandi rikisstjórn stendur ekki sterkum fótum meðal þjóðarinn- ar. Vinstri sveifla er i aðsigi. Þeir sem ímynda sér, að unnt sé að sætta þjóðina við langvarandi, jafnvel ævarandi erlenda hersetu fara villir vegar. Það skortir ekki nema herslumuninn, að unnt sé að snúa við núverandi öfgaþróun i utanrikis- og sjálfstæðismálum þjóðarinnar. Finnum baráttunni ný form og vekjum umræður um málið i ljósi nýrra viðhorfa. Náum betra sam- bandi við NATO-andstæðinga i öðrum löndum og gerum m.a. herferð til að kynna hugmyndina um friðlýsingu Norður-Atlants- hafs, sem Jónas Árnason hefur átt manna mestan þátt i að koma á framfæri. En lokum þó aldrei augunum fyrir þeirri staðreynd, að eina leiðin til að knýja endanlega fram stefnubreytingu stjórnvalda i af- stöðunni til hersetunnar og NATO er, að herstöðvaandstæðingar styrki verulega stöðu sina á Alþingi og Alþýðubandalagið komist i sterka aðstöðu við mynd- un nýrrar rikisstjórnar. Kröfuna um sjálfstætt friðlýst land, laust undan átroðningi erlendra hermanna, verður stöð- ugt að bera fram af fyllsta þrótti, hvort sem við herstöðvaandstæð- ingar eigum aðild að stjórn eða ekki og hvort sem við höfum með- byr eða á móti blæs. Fóstrur 25 ára afmælisfagnaður félagsins verður haldinn laugardaginn 19. april, i Félags- heimili Seltjarnarness. Miðasala á skrifstofunni, Hverfisgötu 14 a, mánudag — fimmtudag, 6-7 siðdegis. NEFNDIN. Fimm tonna bátur Nýr fimm tonna bátur til sölu. Smiði lýkur um miðjan mai. Upplýsingar i sima 93-2251. KNÖRR S/F, Laugarbraut 5, Akranesi. NJORÐUR P. NJARÐVIK SKRIFAR: UM AUGLÝSINGAR Loks kom að þvi' að mönnum ofbauð. Stjórn Frjálsiþrótta- sambands Islands lét það boð út ganga að félagar þess og vel- unnarar skyldu dreifast út um borg og bý og leita vandlega i sorptunnum, ruslafötum, skúmaskotum og öskuhaugum að tómum sigarettupökkum. Ekki þó öllum, heldur einungis að einni tiltekinni tegund. Þessa útvöldu pakka átti svo að afhenda umboðsmanni fram- leiðanda gegn greiðslu út i hönd. Fjórar krónur takk áttu að renna i sjóði FRÍ fyrir hvern sigarettupakka. Hugðist stjórnin afla sambandinu hálfrar annarrar miljónar króna með þessu tiltæki. Ein- hverjum varð vist á orði ,,að mörg fyrirtæki væru i vand- ræðum með að eyða auglýsinga- fé sinu og þess vegna sjálfsagt að notfæra sér það fþróttunum til framdráttar”. En öðrum ofbauð þetta og fannst val vörunnar sem átti að auglýsa með þessum eftir- minnilega hætti dálitið ein- kennilegt. Sumum fannst jafn- vel að frjálsiþróttamönnum bæri fremur að leita að einhverju öðru en sigarettu- pökkum. Kannski var átt við að þeir ættu heldur að svipast um eftir stolti og reisn, Ég veit það ekki. En þessi frumlega hug- mynd Frjá lsiþróttasam - bandsins um sigarettupakka- smölun leiðir hugann að auglýs- ingum i þjóðfélagi okkar, hlut- verki þeirra og notkun. íþróttahreyfingin kvartar undan skilningsleysi yfirvalda á fjárþörf iþróttasambanda og segist gripa fegins hendi það tækifæri sem gefst til að afla fjár með auglýsingum vöru- merkja. Verður þetta til þess að þeir sem ekki eru hnútum þeim mun kunnugri halda að Kóka- kóla sé að keppa við Trópikana. Forystumenn iþróttahreyf- ingarinnar hafa i min eyru kallað þetta eins konar stuðning auglýsenda við iþróttamenn og sýna þeim væntanlega viðeig- andi þakklæti. Þetta kvað leysa þann vanda sem stjórnvöld komast i ef þau eiga að styrkja þessa starfsemi af almannafé. 011 dagblöð lifa að einhverju leyti af verslunarauglýsingum, þó auðvitað mest og best þau sem beita áhrifum sinum til að innprenta fólki nauðsyn þess að efla einkaframtakið á kostnað launafólks. Það er kallað ,,að tryggja atvinnuvegunum nauðsynlegan rekstrargrund- völl svo að ekki verði atvinnu- leysi i landinu”. Ekki er vist heldur hægt að reka Rikisút- varp i þessu landi án auglýs- inga. Um eða yfir helmingur af heildartekjum hljóðvarps eru auglýsingatekjur og einhvers staðar i námunda við 30% af tekjum sjónvarps. Að visu er talsverður hluti útvarpsaug- lýsinga i formi tilkynninga sem hafa nokkuð upplýsingagildi, en verslunarauglýsingar eru engu að siður mikil uppistaða þessarar fjáröflunar. Sagt er að þetta hafi engn áhrif á dag- skrárgerð, en ef menn fylgjast með þvi hvenær mest er af sjón- varpsauglýsingum, þá kemur i ljós að það er á undan léttmetis- þáttum af ýmsu tagi. Stjórnvöld (og er vinstri stjórnin þar ekki undanskilin) hafa verið fúsari til að hækka auglýsingataxta en afnotagjöld. Afnotagjöldin höfðu áhrif á vfsitölu meðan hún var enn i notkun. Og svo vilja menn ekki taka of mikið af almannafé Eða svo er sagt. Gaman væri að vita hversu miklu fé er eytt i auglýsingar á Islandi árlega. Mér vitanlega hefur það ekki verið athugað. En svo mikið er víst að það er ósmá fjárhæð. Hvaðan skyldi þetta fé vera fengið? Á yfir- borðinu litur svo út sem það komi frá verslunar- og fram- leiðslufyrirtækjum. Það er sagt að það sé miklu betra að kosta mikinn hluta útvarpsrekstrar með auglýsingafé en að auka álögur almennings með hækkun afnotagjalda. Þetta er auðvitað þvaður ef betur er að gáð. Það fé sem varið er til auglýsinga er að sjálfsögðu fengið beint frá almenningi. Það er hluti almenns vöruverðs. Fyrirtækin taka þannig til sin ærna fjár- muni frá fólkinu i landinu rétt eins og um skattheimtu væri að ræða. Sá er þó munur á að fólkið fær ekkert i staðinn. Og fólkið (eða fulltrúar þess) hefur engin áhrif á hvernig þessu fé er varið. Almenningur borgar jafnt fyrir verslunaraug- lýsingar i útvarpi og afnota- gjöldin. Það verður bara ekki eins vart við það. Máttur auglýsinga er ekki aðeins fólginn i þvi að þær auðveldi sölu á ákveðinni vöru- tegund. Máttur auglýsinga er einnig fólginn i þvi að búa til gerviþarfir sem ýta undir óhóf- lega neyslu. Heimur aug- lýsinganna er mynd af veröld sem er fjarri flestu alþýðufólki. Heimur auglýsinga er eingungis fallegt fólk i fallegum fötum og fallegum bilum á fallegum heimilum. Vandamál eru þar engin til nema kannski feitt hár. Eða þurrt hár. Stundum kemur óhuggulegur svitablettur i handarkrikann. En það er óðar leyst með áttasinnumfjórum- þurrúðun. Og amma fær rjóma- tertu á brúðkaupsafmælinu og kók og allir eru svo voða góðir við hana. Og stúlkan þarf ekki að biða: hann kemur i tæka tið af þvi hann er á briddstón. Aldrei dettur neinum i hug að það séu ekki til nógir peningar til að kaupa allt þetta drasl. Það væri þá helst þegar fyrirtæki kennt viðHáskóla íslands bregður upp sinni andstyggilegu háðmynd af tveimur mönnum sem virðast hvergi eiga höfði sinu að halla innan um allt þetta fallega, góða og rika auglýsingafólk. Annar les i blaði að hægt sé að vinna margar miljónir með einum trompmiða. Og hinn segir: Ha ba sona. Og allir hlæja. Máttur auglýsinga er ekki heldur aðeins fólginn i þvi að ljúga mynd af fölsku mannlifi að vinnandi fólki þessa lands. Máttur auglýsinga er lika fólginn i þvi að veita fjármagni til ákveðinna aðila sem eru boð- berar „heilbrigðra” skoðana. Þessar heilbrigðu skoðanir eru vitanlega fyrst og fremst þær að þóknanlegir menn hagnist á kostnað annarra. Að mennirnir séu nú einu sinni misjafnlega af guði gerðir og þess vegna sé ekki hægt að ætlast til að allir beri jafnt úr býtum. Það sé ljótt að vera alltaf með þessa skammarlegu öfund i garð þeirra sem með dugnaði sinum og atorku hafi unnið sig upp. Það sé nær að una glaður við sitt og kaupa heldur almennilegt sjampó og ljósaperur af læons- mönnum. Og hætta þessu kommakjaftæði um óréttlæti. Liður okkur ekki öllum vel kannski? 1 stuttu máli: mogginn. Ég er ekki alveg sáttur við þetta fyrirbæri. Mér finnst það dálitið hart að fjármagnsaðilar skammti sjálfum sér skatt af almennu vöruverði og geti svo notaðþetta fé eftirlitslaust til að hafa áhrif á skoðanir almennings. Þeir vondu svfar hafa tekið upp auglýsingaskatt á blaðaauglýsingum. Þann skatt nota þeir til að styrkja þau blöð sem ekki þykja nógu þóknanleg til að auglýsa i þeim að ráði. Þeir segja að þetta sé til þess að styrkja lýðræðið. Til að tryggja öðrum skoðunum sinn tilverurétt og lífsmöguleika. Þeir halda að það sé gott fyrir lýðræðið að sem flestar skoðanir fái að njóta sin. Og þeim finnst lika hæpið að auglýsendur eigi að ráða þvi hvaða skoðanir hljóti útbreiðslu i blöðum. En sviar eru nú lika alltaf að skipta sér af öllu eins og við vitum. Og svo vita þeir ekki hvað mogginn er indælt blað þar sem allar heilbrigðar skoðanir fá að koma fram. Það væri nú þokkalegt ef Þjóðviljinn og Alþýðublaðið fengju styrk af auglýsingum i mogganum. Dettur nokkrum heilvita manni i hug að það myndi styrkja lýð- ræðið? Hvernig væri að setja löggjöf um auglýsingar? Þar sem mælt væri svo fyrir að auglýsingar skyldu vera upplýsingar fyrir almenning en ekki lævist blaður. Þar sem skipað væri að veita réttar upplýsingar um eðli vörunnar og gæði, tilgreina verð og aðra slíka praktiska hluti. Afstaða til slikrar löggjafar byggist sennilega á hug- myndum manna um það til hvers verslun sé. Hvort reka eigi verslun til að sjá almenn- ingi fyrir þörfum hans á réttlátu ■ verði eða til þess að ákveðnir einstaklingar eigi að hagnast á þvi að ginna fólk til að vera sifellt að kaupa hluti sem engin þörf er fyrir af þvi það trúir þeirri blekkingu auglýsinganna að manneskjan eigi fyrst og fremst að miklast af dauðum hlutum sem hún raðar i kringum sig. Svo er lika til annar kostur, Hefur ekki sjálf rikisstjórnin haft á orði að draga úr einka nevslu? Hvernig væri þá að skella á auglýsingastöðvun i svo sem eitt eða tvö ár? Hvaða áhrif myndi það hafa? Njörður P. Njarðvik i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.