Þjóðviljinn - 13.04.1975, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 13.04.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 13. apríl 1975. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 17 eitthvaö veröur maður aö gera ... Samkvæmt fréttum frá Róm hafa opinberar ráðstafanir til orkusparnaðar, svosem stytt kvölddagskrá sjónvarpsins og lokun veitingahúsa og nætur- klúbba fyrr, orðið til þess að fæð- ingartalan hefur stigið, að þvi er itölsku fjölskylduáætlunarsam- tökin upplýsa. Segir formaður samtakanna, Luigi de Marchi, að siðustu hag- tölur sýni 7% aukningu fæðinga frá 1973 til 1974 eða úr 860 þús. i 920 þúsund nýja italska borgara. Hann segir samtökin sannfærð um að þessa aukningu megi fyrst og fremst kenna ráðstöfunum itölsku stjórnarinnar til sparnað- ar á rafmagni og annarri orku i desember 1973. Fram að þvi hafi fæðingartalan farið jafnt og þétt lækkandi i landinu. Drottningar hittast Bandariska kvikmyndadrottn- ingin Barbra Streisand lagði erf- iða spurningu fyrir Elisabetu bretadrottningu þegar þær hittust i London i vetur við frumsýningu þar á ...Funny Lady”. — Yðar hátign, hversvegna verða konur að vera með hanska á höndunum þegar þær heilsa yð- ar hátign, en karlmenn hinsvegar ekki? spurði Barbra. Beta varð hálfhvumsa við þetta brot á siðareglunum sem kveða á um, að aðeins drottningin sjálf megi spyrja spurninga. Hún yppti öxlum og virtist hálfrugluð þegar hún svaraði: — Ja, eiginlega veit ég það ekki, en það kemur áreiðanlega til af einhverri hefð. Barbra varð að láta sér þetta nægja, sneri sér að förunaut sin- um og sagðist vera'engu nær. Annars er siðurinn eða hefðin komin frá miðöldum þegar ridd- ararnir klæddust hringabrynjum og járnslegnum hönskum, sem þeir urðu að taka af sér áður en þeir heilsuðu hallarfrúnum. Nýtt spilamet Skólahljómsveitin i Lowell menntaskólanum i San Francisco hefur tryggt sér sess i Guiness metabókinni og sennilega lika far til Bretlandseyja. Hljóðfæraleikararnir 60 og stjórnandinn spiluðu samfleytt i 31 klukkustund án þess að stansa og náðu inn 8000 dollurum upp i ferðakostnað við fyrirhugaða för til Englands. Gamla metið var 27 timar og 10 minútur og var sett af skólahljómsveit á Huntington Beach i Kaliforniu. — Það eina sem mig langar til er að leggja mig, sagði Terry Taylon eftir að hafa leikið á trommurnar i 31 tima og neyðst til að stinga upp i eyrun siðari hlutann. Og túbuleikarinn Roger Collins sagði, að varirnar á sér hefðu orðið tilfinningalausar eftir 8 tima og verið það siðan. STÆRSTI VÖRUBÍLLINN Þetta hlýtur að vera stærsti vörubill i heimi og heitir Terex Titan, 21 metri að lengd, 8 m að breidd og vegur 350 tonn. Það sem virðist vera leikfangabill á pallinum er i rauninni venjulegur sendibill. Vörubillinn er nú i prófun I Suður-Karólinu. Hve mörg eyru hafa kýr Efna- hagsbandalagsins Nýlega hefur upp komist að bændur I Efnahagsbandalags- löndunum geta svindlað á land- búnaðarsjóðnum með þvi að sauma aukaeyru á kýrnar sinar. Þetta kom nýlega fram I svari landbúnaðarnefndar EBE við spurningu belgiska þingmannsins G. Glinne. Glinne hafði ma. bent á, að breskir bændur fengju útborgað- ar sláturgreiðslur tvisvar og þrisvar fyrir sömu skepnur. Eft- irlitsmenn setja venjulega gat á eyru skepnunnar þegar búið er að borga út, en bændur hafa séð við þessuogkrækt sér i aðra greiðslu með þvi að skera eyrað af og sauma annað á i staðinn og með lagni má endurtaka þetta nokkr- um sinnum. Nefndin viðurkenndi að henni væri kunnugt um þetta, en visaði á bug staðhæfingum Glinnes um að svindlað væri á þennan hátt út- úr landbúnaðarsjóðnum upphæð sem nemur milli 3 og 4 1/2 miljarði isl. króna á ári. Framað þessu væri vitað um óréttmætar greiðslur að upphæð kr. 300 miljónir og þar af hefðu um 180 milj. verið endurgreiddar. Rnnir þú til feróalöngunar, þá er það vitneskian um voríð eríendis sem veldur 25% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. maí. FLUGFÉLAC LOFTLEIDIR /SLAJVDS Félög sem sjá um föst tengsl við umheiminn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.