Þjóðviljinn - 24.04.1975, Side 9
Fimmtudagur 24. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
1 þjónustu alþýðunnar, stendur á boróanum I glugga tryggingarfyrir-
tækis sem hefur veriö þjóönýtt.
ola i septemberlok og mátti þá
segja að þeir væru orðnir allsráð-
andi innan hennar þótt m jög væru
þeir misjafnlega róttækir. 1
febrúar birti bráðabirgðastjórnin
efnahagsmálaáætlun sem ein-
kenndist af hægfara þróun i átt til
aukinna rikisafskipta og upp-
skiptingar jarða.
Leikurinn æsist
En valdaránstilraunin 11. mars
gerbreytti öllum viðhorfum og
„sveiilaði miðjunni til vinstri”
eins og Politisk revy kemst að
orði. Skyndilega rann upp fyrir
mönnum að engar vonir væru til
þess að borgarastéttin sæti þegj-
andi og hljóðalaust undir þvi að
eignir hennar væru gerðar upp-
tækar. Allar forsendur fyrir þeim
hægagangi sem fyrirhugað var að
hafa á hlutunum brustu. Og nú fór
atburðarásin heldur betur að
herða á sér.
Nokkrum dögum eftir flótta
Spinola tilkynnir stjórnin að vel-
flestir bankar og öll helstu trygg-
ingafyrirtæki hafi verið þjóðnýtt
og að hér eftir verði þeirri þróun
sem efnahagsmálaáætlunin segir
til um flýtt um allan helming.
Þessi þjóðnýting var geysi mikil-
væg. Til þess að forða eignum sin-
um og fjármagni frá þvi að verða
tekið eignarnámi hafði borgara-
stéttin skipulagt umfangsmikinn
fjármagnsflótta úr landi og hafði
hann staðið lengi þegar hér var
komið sögu. Með þjóðnýtingu
þessará fjármagnsstofnana var
mun auðveldara að setja fyrir
þennan leka.
Flokkar bannaðir
Siðan fylgdi fleira i kjölfarið.
Strax eftir að valdaránstilraunin
hafði verið bæld niður komst upp
sá kvittur að til stæði að banna
starfsemi kristilegra demókrata.
Raunar voru menn ekkert hissa á
þvi þar sem forysta flokksins
hafði verið viðriðin valdaránstil-
raunina og formaður flokksins,
Sanchez Osorio, var einn af nán-
ustu vinum Spinola og flúði úr
landi þegar séð var að tilraunin
hafði mistekist. Þann 18. mars
hlaut bessi kvittur staðfestingu,
flokki kristilegra var bannað að
taka þátt i kosningunum og að
starfa opinberlega fram yfir þær.
Samskonar bann var einnig látið
gilda um tvö samtök maóista
MRPP ( Hreyfing til endurreisn-
ar öreigaflokksins) og AOC
(Bandalag verkamanna og
bænda). Þessir hópar hafa látið
mjög að sér kveða á vinstri
vængnum frá þvi byltingin hófst,
m.a. verið iðnir við að hleypa upp
fundum hægri- og miðflokka.
öðrum hópum á vinstri vængnum
hefur verið litið um þá gefið og
jafnt maóistar sem aðrir komm-
únistar hafa sakað MRPP um að
rýra álit sósialismans og þiggj?.
laun frá CIA fyrir að efna til ögr-
unaraðgerða. Þau málgögn rót-
tæklinga sem hér er stuðst við
telja vinstri vænginn ekki hafa
beðið hnekki af þvi að þessir
flokkar voru bannaðir.
Þjóönýtingar
Eftir þetta sneri MFA sér að
þvi að tryggja völd sin til fram-
búðar eins og greint var frá hér
að ofan. Einnig var tekið óspart
til hendinni við þjóðnýtingar.
Fyrir nokkrum dögum voru
helstu orkuver, samgöngufyrir-
tæki og mörg iðnfyrirtæki þjóð-
nýtt og loks var ákveðið að leggja
risann CUF að velli. CUF er lang-
stærsti auðhringur landsins,
teygir arma sina inn á öll svið at-
hafnalifsins, ræður yfir fimmta
hluta allrar iðnaðarframleiðslu
og 10% alls fjármagns i landinu.
Samhliða þessu var boðuð upp-
skipting jarða i stórum stil.
MFA hefur ekki staðið ein að
þessum aðgerðum. Verkamenn i
iðnaði og landbúnaði hafa gerst
herskáir og fyrir skömmu barst
sú frétt eftir leiðum NTB að yfir
250 iðnfyrirtæki hefðu verið sett
undir stjórn verkalýðsins sem i
þeim starfa og 150 þúsund hektar-
ar jarðnæðis væru nú i eigu þeirra
sem yrkja það en ekki fyrri eig-
enda sinna. Framhald á 17. siðu.
Einn hœgri
flokkur,
þrír fyrir
miðju og
átta til
vinstri
PCP
PCP, Kommúnistaflokkur
Portúgals. Flokkurinn var
stofnaður árið 1921 en árið 1929
var hann bannaður og starfaði
neðanjarðar allt fram að 25.
april i fyrra. Leiðtogar flokksins
sátu ýmist i fangelsum eða i
útlegð fyrir austan tjald. Ber
flokkurinn þess merki og er
sagður einn sá Moskvuhallasti i
allri Evrópu og þó viðar væri
leitað. Hann hefur þó á stundum
sýnt af sér aðra hegðun en slikir
flokkar eru vanir, td. var hann
eini Moskvulinuflokkurinn sem
viðurkenndi Þjóðfrelsisfylk-
inguna i S.-Vietnam: A þeim
tima var hún að áliti Moskvu
samsafn ævintýramanna.
Flokkurinn telur að friðsamleg
þróun til sósialisma sé finnanleg
en varar við þvi að menn gleymi
þvi að aðstæður kunna að
krefjast valdbeitingar. Leiðinni
til sósialismans skiptir flokk-
urinn i þrennt: 1. að kollvarpa
fasismanum sem þegar hefur
verið gert, 2. lýðræðisbyltingin
sem felur i sér að hlutverk
flokksins er að styrkja lýðræðið
og afstýra gagnbyltingu —
ákafur stuðningur flokksins við
MFA er tákn fyrir þetta viðhorf
— og i þriðja lagi er svo upp-
bygging sósialismans. Ýmislegt
i fari flokksins eftir 11. mars
bendir til þess að hann telji
þetta skeið þegar vera hafið.
Flokkurinn hefur frá gömlum
tima mikinn stuðning meðal
verkamanna á iðnbeltunum og
landbúnaðarverkamanna i
suðurhluta landsins en meira en
helmingur flokksfélaga er úr
verkalýðsstett. Hins vegar
mæta stefnumál hans litlum
skilningi meðal smábændanna i
norðurhlutanum.
FSP
FSP er flokkur vinstri-
sósialista sem klufu sig út úr
PS. Hann stefnir að „sósialisma
sem felur i sér valdatöku verka-
lýðsins og endalyktir allrar
stéttakúgunar”. Flokkurinn
ásakar PS fyrir kratisma og
kommúnista fyrir að vera
„endurbótasinnaðir” og stefna
að skrifræði sem fæðir af sér
nýja valdastétt. Flokkurinn
starfar með MES og hefur lýst
yfir „gagnrýnum stuðningi” við
PCP.
MES
MES eru Önnur samtök
vinstrisósialista sem stofnuð
voru árið Í969 að nokkru leyti
vegna andstöðu við PCP.
Flokkur þessi vill treysta
bandalag MFA og verkalýðsins
og koma á sósf alisma lausum við
allar kreddur. Flokkurinn hefur
tekið mikinn þátt i stofnun
verkamannaráða i verk-
smiðjum og skipulagningu hópa
i skólum og innan hersins. Er
flokknum kosin forysta til
skamms tima hverju sinni og
kemur hún úr þessum hópum
námsmanna, verkalýðs og her-
manna. Talið er vist að MES,
FSP og þriðju samtökin, LUAR,
sem ekki bjóða fram renni
saman i einn flokk áður en langt
um liður, flokk sem orðið gæti
valkostur við PCP. MES á visan
drjúgan stuðning meðal iðn-
verkamanna, námsmanna,
landbúnaðarverkamanna i
suðri og smábænda i norðri.
LCI
LCl eru trotskiistasamtök og
aðilar að 4. alþjóðasambandinu.
Þau leggja höfuðáherslu á
myndun verkamannaráða sem
siðan myndi „þjóðfylkingu
portúgalskra verkamanna”.
Þar sem LCI býður ekki fram
hvetur það stuðningsmenn sina
að kjósa PCP, FSP eða MES.
Maóistar
Loks eru ekki færri en þrjú
samtök maóista i framboði, þar
af tvö kosningabandalög enn
fleiri máóistahópa. Þessi
samtök hafa skammstafirnar
UDP, FECm-l og PUP. Að hætti
maóista telja samtökin portú-
galska alþýðu eiga við að etja
tvo höfuðandstæðinga, heims-
valdastefnu Bandarikjanna og
„sósialheimsvaldastefnu”
Sovétrikjanna. 1 þeirra munni
eru PS og PPD fulltrúar þeirrar
fyrrnefndu en PCD og MDP
þeirrar siðarnefndu. Sumir telja
að FECml séu einungis yfir-
breiðsla fyrir MRPP sem var
bannaður.
ÞH — byggt á politisk revy
að skada nvja Das - húsið &ð Furulundi 9, Garðahreppi,
Húsið verður tílsýnis dagfega tít S. mai, fráki
18-22, laugardaga og heigtdaga frá kl, 14-22.
Húsið er sýnt með ölium húshúnaði
4V
Bólstrarinn
Erum fluttir frá Hverfisgötu 74
á Hverfisgötu 76.
Framleiðum alls konar
bólstruð húsgögn.
Klæðum eldri húsgögn.
Aklæði i miklu úrvali.
BÓLSTRARINN
Hverfisgötu 76.
Styrkur til náms við
Stokkhólmsháskóla
Háskólaárið 1975—76 veitir Stokkhólmsháskóli islenskum
námsmanni styrk aö upphæö 15 þúsund sænskar krónur.
Styrkurinn veröur veittur til námsdvalar viö háskólann I
Stokkhólmi, en er ekki bundinn við sérstaka grein eöa
áfanga i námi. Viö Stokkhólmsháskóla eru þessar deildir:
Lagadeild, heimspekideild, félagsvisindadeild og stærö-
fræði- og náttúruvísindadeild.
Umsóknir, ásamt námsvottorðum skai senda Háskóla
tslands fyrir 20. mai 1975.
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir mars mán-
uð 1975, hafi hann ekki verið greiddur i
siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 10% en siðan
eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16 degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið 21. april 1975.