Þjóðviljinn - 24.04.1975, Síða 11
Fimmtudagur 24. april 1975. ÞJóÐVILJINN — StÐA 11
Fjall úr hýði hraðar sér
hvamma prýðir skorið.
Ó. það biður eftir þér
yndis bliða vorið.
Þórarinn Þorleifsson frá Skúfi.
Vetur genginn, voröld ný
vermir engi blóma,
hörpu lengi lifsins þvi
ljúfir strengir óma.
Þórarinn Bjarnason.
Hlýnar vangur, grund og gil,
grænir anga hagar.
Okkur fangið fullt af yl
færa langir dagar.
Rósberg G. Snædal.
Brosir himinn blár og hlýr,
burt er allur snærinn.
Eru að leika ævintýr
úti, sól og blærinn.
Ólafur Sigfússon.
Skiptir senn um svip og lit
sviðið fjallaranna.
Stefna enn á vorsins vit
vonir allra manna.
Jónas Tryggvason.
Endurborinn geislaglans,
gadd úr spori nemur.
Lifnar þor og þróttur manns
þegar vorið kemur.
Bjarni Jónsson frá Gröf.