Þjóðviljinn - 24.04.1975, Síða 17

Þjóðviljinn - 24.04.1975, Síða 17
Fimmtudagur 24. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Kínversk grafík Forseti tslands ræöir vift klnverska sendiherrann vift opnun svning- arinnar. 1 gær var opnuð sýning á kin- verskri tréstungulist i mynd- listarhúsi Reykjavikurborgar á Klambratúni. Verður hún opin um 2ja vikna skeið. Á sýningunni eru 127 verk og eru þau sannarlega þess virði að þau séu skoðuð enda er tré- stungulistin upprunnin með kin- verskri þjóð og á sér meira en þúsund ára sögu. Bæði atvinnu- listamenn og áhugalistamenn úr röðum verkamanna, bænda og hermanna hafa skapað lista- verk með nýju innihaldi og nýj- um stil og eru þau reist á arf- leifð og þróun fágaðrar þjóð- legrar listhefðar. í verkum þessum koma þessir listamenn fram sem ötulir boðberar þeirr- ar bókmennta- og liststefnu Maós formanns að „láta hundr- að blómjurtir blómstra, sem eldri blóm hafa látið vaxa, vo að þær megi nýjar af sér gefa” og „láta fortlðina þjóna nútiðinni og Kina notfæri sér það sem er- lenter”eins og segir i sýningar- skrá. Listaverkin á sýningunni eru með fjölbreyttum svip. F orsetinn heiðurs- doktor Forseti Islands hefur verið kjörinn heiðursdoktor við háskól- ann i Björgvin i tilefni af 150 ára afmæli skólans. Forsetinn mun verða viðstadd- ur á háskólahátiðinni i Björgvin hinn 25. april. Forsetahjónin fara utan föstu- dagsmorgun og munu koma heim siðdegis á mánudag. Pandabjörn eftir Wu Tso-jen, unnift I listvinnustofu Jung Pao-chai i Peking. Saltað ofaníát Morgunblaðiö skýrði frá því í fyrradag rheð hrærð- um huga, að svo virtist sem sú ógnarhækkun, sem það blés út á dögunum að orðið hefði á innflutnings- gjöldum spánverja á salt- fiski, hefði ekki verið slík sem þá var sagt. Fyrir rúmri viku skýrði Morgunblaðið frá þvi að 5 peseta gjald, sem spánverjar tækju af þangað innfluttu saltfiskkilói yrði hækkað upp i 20-25 peseta og reiknaði á stundinni út 400 miljón króna óhagstæðari saltfisksölu þangað suður en til þessa hefði verið ætlað. Þjóðviljinn kannaði þá þetta mál, og fékk sta.ðfest i viðskipta- ráðuneytinu, aö slik hækkun væri nær óhugsandi, bryti i bága við GATT-samkomulagið, og engin tilkynning hefði borist þvi um hana. Svo gerðist það i fyrradag að Morgunblaðið át ofan i sig hækk- unarfréttina að verulegu leyti. Þar var þá skýrt frá þvi, að ógn- arhækkunin sýndist ekki ætla aö verða að veruleika, en blaðið tel- ur þó, að gjaldið muni hækka úr 5 pesetum i 10, og hefur þvi lækkað hækkunina úr 500% i 100%. Búast má þó við þvi að innan tlðar skýri Morgunblaðið frá þvi að gjald þetta hafi lækkað þvi fréttblaðsins frá i gær endar á þvi, að þetta sé það sem blaðið hafi eftir áreiðanlegum heimildum, en svo var einnig um hina fyrri hækkunarfrétt. En hvert er svo verðift á salt- fisknum? Uér hefur þvi verið haldið fram, að fyrsta flokks saltfiskur liefði selst á amk. 270 krónur kíló- ið, eða 1800 dollara tonnið, en hið opinbera verð fiskseljenda hefur ekki komist hærra en 230 krónur. Nú hefur saitfiskframleiðandi tjáð biaðinu, eftir áreiðanlegum heimildum, svo notað sé orðaiag Mbl., að verðið sé hvorki meira né minna en 2 þúsund dollarar fyrir tonnið, eða rúmiega 300 krónur fyrir kiióið, en þetta mun vera það verð sem framkvæmda- stjóri StF samdi um suður á Spáni i vetur, en hefur haidið leyndu til þessa og gerir enn. -úþ Fjárlög Framhald af 15. siöu. ir 10.000 einstaklingar, og öryrkj- ar væru nær allir einhleypir. Gagnvart verkafólki hafi eng- um dottið i hug að hafa greiðslu jafnlaunabóta misjafna eftir þvi hvort menn ættu maka eða ekki, — og hvers vegna i ósköpunum ætti þá slikt að gilda um aldr- að fólk og öryrkja? Sagðist Magnús vilja beina þvi til forsætisráðherra, hvort væri hægt að ná samkomulagi um breytingu á þessu atriði. Að draga saman seglin til að hefja framfarasókn! Matthias Bjarnason, heil- brigðis- og tryggingaráðherra sagði, að ekki væri ætlunin að af- greiða bætur til lifeyrisþega i sambandi við þetta frumvarp, en það mál yrði bráðlega tekið til meðferðar. Hann taldi, að framkvæmd til- lögu Magnúsar Kjartanssonar, sem felld var, hefði orðið rikis- sjóði mjög dýr. Þá minntist ráðherrann á af- komu atvinnuveganna, og dró upp dökka mynd af ástandinu þar, svo sem honum er lagið. Tómas Arnason flutti ianga ræðu og studdi frumvarp rikis- stjórnarinnar. Hann minntist meðal annars á skyldusparn- aðinn, sem hann taldi merkt ný- mæli og ræddi hugmyndir um frjálsan sparnað gegn skattfrið- indum, sem hann upplýsti að kostur væri gefinn á i sumum ná- grannalöndum svo sem Vestur- Þýskalandi, með góðum árangri. Sighvatur Björgvinsson taldi það skattkerfi, sem frumvarpið gerði ráð fyrir, alltof flókið fyrir almenning, og venjulegt fólk hefði enga möguleika á að gera sér grein fyrir hvað það ætti að fá i skatt. Svava Jakobsdóttir þakkaði Ólafi G. Einarssyni fyrir að hafa viðurkennt, að hún hafi farið með réttar tölur kvöldið áður varðandi skattbyrði einstæðra foreldra. Ljóst væri að ágreiningurinn milli þeirra snerist þá fyrst og fremst um það, hvort litið skyldi á trygg- ingabætur eftir látinn maka sem venjulegar atvinnutekjur, en það væri að sinum dómi fráleitt. Svava kvaðst vilja mótmæla þvi harðlega að litið væri svo á, að húsmóðir væri á framfæri eigin- manns sins en ekki vinnukraftur, sem ynni heimilinu gagn. En einmitt vegna þess að hús- móftir ynni heimiiinu gagn, þá þyrfti það á bótum að halda við fráfail hennar, —bótum sem eng- in sanngirni væri að lita á sem auknar atvinnutekjur eigin- mannsins. Karvel Páimason lýsti stuðn- ingi við breytingartillögu Magnúsar Kjartanssonar og Gylfa Þ. Gislasonar. Geir Ilallgrimsson, forsætis- ráðherra sagði að aukin lánsfjár- öflun erlendis um 800 miljónir króna, sem breytingartillaga nefndarinnar gerir ráð fyrir, væri ætluð til auka lánamöguleika framkvæmdasjóðs, sem þessu svarar, og fullnægja þannig svo sem kostur er útlánaþörf stofn- lánasjóða atvinnuveganna og Byggingarsjóðs. Þá sagði forsætisráðherra að milli stjórnarflokkanna væri eng- inn ágreiningur um niðurskurð framkvæmda. Lokaorð forsætis- ráðherra voru þau, að nú um stund yrði þjóðin að draga saman seglin, svo við getum hafið nýja framfarasókn. Frumvarp um kynlíf og barneignir Samþykkt í neðri deild Breytingartillögur felldar A fundi neðri deiidar alþingis I gær var frumvarpið um kynlif og barneignir, fóstureyðingar og fleira samþykkt með 31 atkvæði gegn 4 og sent efri deild til meöferðar. Þeir, sem greiddu at- kvæði gegn frumvarpinu voru Ingólfur Jónsson, Ingiberg Ilannesson (varamaður Guðmundar Garðarssonar), Karvei Páimason og ? Breyt- ingartillögur Gunnlaugs Finns- sonar og fleiri, sem skýrt var frá i Þjóðviljanum i gær voru allar feildar, en þrisvar sinnum fór fram nafnakall. Tillagan um að orðið „ofraun” kæmi Istað „of erfið” féll með 17 atkvæðum gegn 19. Þessir vildu samþykkja breytingartillöguna: Bragi Sigurjónsson, Eyjólfur K. Jónsson, Friðjón Þórðarson, Guð- laugur Gislason, Ingiberg J. Hannesson, Gunnar Thoroddsen, Gunnlaugur Finnsson, Ingólfur Jónsson, Jóhann Hafstein, Jónas Arnason, Karvel Pálmason, Matthias Bjarnason, Matthias A. Mathiesen, Ólafur Jóhannesson, Pálmi Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir og Sverrir Hermannsson. Aðrir þingmenn i deildinni greiddu atkvæði gegn tillögunni, nema fjórir voru fjar- verandi, þeir Eðvarð Sigurðsson, Ingvar Gislason, Lárus Jónsson og Sverrir Bergmann. Breytingartillagan um að niður falli heimild til fóstureyðingar „vegna annarra ástæðna, séu þær fyllilega sambærilegar við ofan- greindar ástæður”, eins og segir frumvarpinu féll með 11 atkvæðum gegn 26 aö viðhöfðu nafnakalli. Þessir greiddu tillög- unni atkvæði: Eyjólfur Konráð Jónsson, Friðjón Þórðarson, Guð- laugur Gislason, Ingiberg J. Hannesson, Gunnar Thoroddsen, Gunnlaugur Finnsson, Ingólfur Jónsson, Jóhann Hafstein, Karvel Pálmason, Pálmi Jónsson og Sigurlaug Bjarnadóttir. Aðrir viðstaddir þingmenn I deildinni greiddu atkvæði gegn breytingar- tillögunni. Breytingartillagan um að fóstureyðing skuli aldrei fram- kvæmd eftir 12. viku meðgöngu- timans (i stað 16. viku i frum- varpinu), nema ótviræðar læknis- fræðilegar ástæður komi til, féll með 15 atkvæðum gegn 22. i Þessir greiddu atkvæði með breytingartillögunni: Ragnhildur Helgadóttir, Eyjólfur K. Jónsson, Friðjón Þórðarson, Guðlaugur Gislason, Ingiberg J. Hannesson, Gunnar Thoroddsen, Gunnlaugur Finnsson, Ingólfur Jónsson, Jóhann Hafstein, Jónas Arnason, Karvel Pálmason, Matthias A. Mathiesen, Ölafur Jóhannesson, Pálmi Jónsson og Sigurlaug Bjarnadóttir. Aðrir viðstaddir þingmenn i deildinni greiddu atkvæði gegn breytingartil- lögunni. Fjarstaddir voru Eðvarð Sigurðsson, Ingvar Gislason og Lárus Jónsson. Breytingartillagan um að heil- brigðisyfirvöld skuli hafa eftirlit með að ákvæðum II. og III. kafla frumvarpsins, ef aö lögum verður, sé stranglega fylgt, féll án nafnakalls með 10 atkvæðum á móti 20. Portúgal Framhald af bls. 9. Eftir 11. mars var þvi lýst yfir að stefna MFA væri orðin sósial- isk. Fram að þvi höfðu þeir ráðið ferðinni innan hreyfingarinnar sem vildu fara sér hægt i sakirnar og stóðu nærri sósialistum. Þetta kom skýrt i ljós i efnahagsáætlun- inni sem samin er af einum helsta talsmanni þessa arms, Melo Atunes. Valdaránstilraunin ýtti hins vegar undir annan arm hreyfingarinnar. Þessi armur er fylgjandi hraðri og viðtækri um- byltingu þjóðfélagsins sem leyst gæti þær mótsagnir sem rikja i portúgölsku þjóðlifi. Politisk revy vill meina að þessi armur hafi að leiðarljósi það skipulag efnahags- mála sem rikir i Austur-Evrópu og sumir kenna við rikiskapital- isma. MFA vill ekki endur- reisn borgaralegs forræðis En hvað sem þessu liður er sennilegasta ástæðan fyrir þvi að MFA er treg til að minnka við sig völdin sú, að hún sér það i hendi sér að i þjóðfélagi þar sem fas- ismi og afturhald hafa ráðið rikj- um i hálfa öld er hugmyndalegt forræði þessara afla enn mikið. Herforingjarnir hugsa sem svo, að verði framþróun landsins látin vaða á súðum liði ekki á löngu þar til borgarastéttin hefur aftur fest sig i sessi og náð þeim völdum sem hún hafði undir stjórn Salas- ars og Caetanos — eina breyting- in yrði sú að formið væri nútima- legra og kostnaðarminna fyrir auðvaldið. Þetta má lesa úr þeirri ráðstöfun stjórnarinnar að sniða öllum kosningaáróðri þröngan stakk og hamla gegn áhrifum fjármagnsins á skoðanamyndun almennings. Þar sem þeir sjá fram á sigur borgaraflokkanna i kosningunum reyna þeir allt hvað af tekur að draga úr áhrifum þeirra. Þeir hafa skorað á fólk sem á erfitt með að gera upp hug sinn til flokkanna að mæta á kjör- stað og skila auðu. Þessu hafa sósialistar og hægri menn varað við og sagt að MFA hyggðist not- færa sér þessu auðu atkvæði sem sönnun fyrir vinsældum sinum. En eins og áður segir eru harla litlar likur á að kosningarnar á morgun breyti miklu um þróun mála i landinu. Þótt hægri og miðflokkarnir fái meirihluta á þingi verður framkvæmdavaldið eftir sem áður i höndum MFA og þeirra flokka sem standa henni næst, kommúnista og MDP. ÞIi tók sainan — stuðst við poli- tisk revv, Kommentar, Ny Dag ofl.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.