Þjóðviljinn - 04.05.1975, Page 5

Þjóðviljinn - 04.05.1975, Page 5
Sunnudagur 4. mai 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 ÞORSTEINN JÓNSSON: kvikmyndakompa Cr „The Kid” lega innlenda kvikmyndagerö á Islandi, þá er þetta ekki leiöin. Þá er kannski betra að láta Hollywood um gamaniö og koma þar hvergi nærri. Drengurinn Ég vil ekki gera mig hlægileg- an á þvf aö fara aö gagnrýna „Drenginn” (The Kid) eöa „Meö fínu fólki” (The Idle Class) eftir Chaplin. Að ræöa kosti og galla á bestu myndum Chaplins er eins og aö rökræöa andlitsgerö guðs, sem menn trda á. Chaplin fær áhorfendur til aö veltast um af hlátri og um leiö sjá umhverfi sitt á nýjan hátt og taka það til endurmats. Hann varpar fram félagslegum og pólitiskum vandamálum á meðan áhorfandinn nær ekki andanum fyrir hlátri. Hann blandar pólitikina tilfinninga- semi og hann nær jafnvel til hinna kaldlyndustu. Þó segir Chaplin frá þvi i sjálfsævisögu sinni, hvernig kvikmyndahúsa- eigendur á austurströnd Banda- rfkjanna brugöust viö „Drengn- um,” þegar hann vildi selja þeim hann til dreifingar. Þaö rumdi i þeim og þeir hlógu ekki og steinþögðu þegar sýningu hennar var lokiö. Þeir fóru aö tala um annað, hvaö væri að gerast i skammtanalifinu, þangaö til Chaplin loks spurði þá álits. Þeir höfðu búist viö ööru. Charles Chaplin og Jackie Coogan Nokkur orö um kvikmyndagerö Stundum skýtur upp hug- myndum um að gera kúreka- myndiraö amerískri fyrirmynd á tslandi. Þær hugmyndir viröast settar fram í fullri al- vöru fremur en að vera gaman- mál. Eölilegt þykir aö erlendir aðilar komi til Islands að kvikmynda hugmyndir sfnar úr fornum norrænum sögum og væntanlega verður þvi ekki mótmælt, þegar erlendir peningafurstar koma hingaö og biöja um leyfi til aö mynda hér amerfskan músikal eftir Njálu eða Eglu. Skilyrði fyrir leyfinu gæti til dæmis orðiö, aö þeir greiddu leigu fyrir ekta islenska hesta, ekta islenska leikara og islenska kvikmyndara, sem myndu bera töskurnar og sendast fyrir herrana. Þetta myndi þykja „góö auglýsing” fyrir landiö o.s.frv. I erlendum uppsláttarritum um kvikmyndaframleiöslu er greinileg skipting milli hinna stóru framleiðslulanda og hinna smærri i þvi hvernig löndin eru kynnt og auglýst. Stóru löndin auglýsa kvikmyndir til dreifingar og sölu. Litlu löndin aftur á móti auglýsa aðstööu til aö gera kvikmyndir, umhverfi, tæki, mannskap auk þægilegs viömóts (undirgefni). A þessu eru undantekningar. Hjá þeim löndum, sem hafa komið kvik- myndamálum hjá sér i sæmi- legt lag meö stofnun kvik- myndasjóðs, þarf ekki að aug- lýsa móttöku á erlendu kvik- myndafólki á útsöluverði. Við islendingar þurfum aö gæta okkar á þessari þróun. Á meöan kvikmyndamálum okkar er ekki komiö i þaö horf, aö kvikmyndagerðarmenn geti starfað aö sjálfstæöri, innlendri kvikmyndagerö og fengiö myndir sinar sýndar i kvik- myndahúsum, erum viö dæmdir til þess aö vera einungis þol- endur á þessu sviði. Eins og málin standa i dag borgar innanlandsmarkaðurinn (Rfkis- útvarp-Sjónvarp og Fræðslu- myndasafn ríkisins) u.þ.b. 1/10 hluta kostnaðarverðs kvik- myndar. Annar innlendur markaður byggist á þvi, aö myndin hafi auglýsingagildi fyrir fyrirtæki eöa stofananir, eöa sé eftiröpun þeirrar fram- leiöslu, sem kvikmyndahúsin sýna dags daglega. Vilji kvik- myndagerðarmaður ekki gefa sig á vald auglýsingamennsku og fái ekki eöa vilji ekki starfa viö Ríkisútvarp-Sjónvarp, er töskuburður og leiösögn við er- lenda kvikmyndara eini mögu- leikinn fyrir hann til aö vinna fyrir sér einhverstaöar i sjón- máli viö kvikmyndatökuvél. Margir styöja þessa þróun óviljandi. Ýmis innlend fyrir- tæki og stofnanir greiöa götu erlendra kvikmyndara viö verkefni, sem islenskir kvik- myndarar ættu aö vera hæfastir til að leysa. Kvikmyndastyrkur Menntamálaráðs hefur undan- farin tvö ár runnið til ein- staklinga meö bakhjall erlendis i formi aöstööu eða fjármagns. Um leið hefur verið gengið. framhjá einstaklingum, sem hafa ekki upp á slikt að hlaupa. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna I ráöinu, sem úthlutar fénu, vilja eflaust með þessu tryggja að verkinu verði lokið fljótt og vel, fyrst styrkveitingin sjálf er ekki trygging fyrir þvf. En mestu máli skiptir, að þessi dæmi sýna ákveöna vanmáttar- kennd og þar meö vantraust á innlendum kvikmyndurum. Með sifkum hugsunarhætti veröur seint komiö á sjálf- stæöri, islenskri kvikmynda- gerö. Þegar islenskur kvikmynda- gerþarmaöur vill fá myndir sín- ar sýndar í kvikmyndahúsun- um, verða myndir hans að vera gróöavænlegar. Þær verða aö vera „það sem fólkið vill sjá,” eins og kvikmyndahúsaeigend- ur munu sennilega orða það. Þ.e.a.s. þær veröa að vera á sömu nótum og myndirnar, sem sýndar eru f kvikmyndahúsun- um dags daglega og hafa mótað smekk áhorfenda. tslenska eld- gosmyndin þarf að vera sann- kölluö stórslysamynd meö arg- andi fólki, hetjum meö stóra hnefa og konum með stór brjóst eins og I Póseidon. I fslensku sveitalifsmyndinni þarf bóndinn aö loka traktorinn inni í skúr, setja síðan upp Clint Eastwood- svip og þeysa út á tún á hesti. Hann yröi aö hleypa hestinum yfir áveituskurði og sýna skjót- leika sinn með kindabyssuna. Þannig mætti halda áfram. I kvikmyndahúsunum þarf islenskur raunveruleiki að vera samkeppnisfær við vinsælar amerískar kvikmyndir með ákveðnu magni æsingaatriða, slagsmála, eyðileggingar, bruna, slysa og nauðgana. Auk þess þyrftu þær náttúrlega vera á þvi máli, sem jafnvel hinn tæpasti maður i heimi mundi skilja fullkomlega og höfða til lægstu hvata. Gerð islenskra kúrekamynda og James Bondmynda o.s.frv. eru þvf eðlileg viðbrögð við ástandinu i kvikmyndasýninga- málum á Islandi. Slik viðbrögð þjóðlega Cr myndinni Bör Börson jr. eru eölileg allstaöar i fyrrnefnd- um löndum sem ekki hafa kom- iö kvikmyndamálum hjá sér i viöunandi horf og taka upp hráar erlendar klisjur og vilja ekki hugsa sjálfstætt. Þaö voru mér mikil vonbrigöi aö sjá frá frændum okkar Norö- mönnum kvikmynd af þessu taginu. Þeir stofnuöu kvik- myndasjóð fyrir nokkrum árum ogeftir þaö kom mikill fjörkipp- ur i kvikmyndaframleiöslu þeirra, þótt þær kvikmyndir hafi fariö fram hjá okkur hér á íslandi. En sjóðurinn og kvik- myndalöggjöfin virðast ekki hafa læknab alla minnimáttar- kennd hjá þeim eftir kvik- myndinni „Bör Börson junior” að dæma. Þar hefur verið gerð- ur úr ágætu efni ótrúlega tildurslegur og væminn ameriskur músíkal með norsk- um beljum, kvikmyndurum og leikurum, sem gretta sig og fetta sem afkáralegast eins og þeir hafa eflaust lært i Jule Andrews show eða þess háttar. Þessi mynd hefur áreiðanlega staðist samanburð við amerisku kvikmyndirnar, sem yfirgnæfa annarra þjóða kvikmyndir i Noregi eins og viðar. Þessi kvikmynd ætti að vera okkur islendingum aðvörun. Ef okkur langar til að skipuleggja þjóö- Drengurinn var „ööruvisi.” Þeir þurftu aö ráðfæra sig við einhverja menn. Þegar þeir að lokum komust aö þeirri nibur- stööu, að það væri i lagi að sýna þessa kvikmynd, varö hún geysivinsæl meöal áhorfenda. Um kvikmyndatökuna hjá sér segir hann á öörum staö eitt- hvaö á þessa leiö: „Ég hef per- sónulega óbeit á kvikmynda- brögöum, ab mynda I gegnum arinn frá sjónarhólikolamolans eöa feröast með leikara gegnum anddyri á hóteli eins og hann sé eltur á reiöhóli. Fyrir mig eru kvikmyndabrögö auðveld og augljós. A meöan áhorfandinn þekkir umhverfið, vill hann ekki láta ergja sig meb þvi aö feröast þvert f gegnum sviöið til þess að sjá leikarann fara frá einum staö til annars. Slfk viðhafnar- brögö hægja á atburðarásinni, auk þess eru þau leiðinleg og óþægileg og hafa verið tekin i misgripum fyrir hiö erfiöa hug- tak „list”. Chaplin leggur áherslu á ab það sé leikarinn og atburða - rásin, sem skipti höfuömáli. Kvikmyndatökuvélin er ekki leikari. Vegna þessarar afstööu hafa sumir gagnrýnendur gagn- rýnt hann fyrir að vera gamal- dags f kvikmyndatökunni, að hann fylgist ekki með timanum. En hann segir: „Tækni min er niðurstaða eigin ihugunar. Hún er ekki tekin að láni frá neinum. Ef menn eiga að fylgjast með timanum i listum, þá ætti Rem- brandt að vera annars flokks I samanburði við Van Gogh.” Þaö sem ég vildi mega bæta við þetta er áskorun til fólks, hvort sem það hefur áhuga á kvikmyndum eða ekki, að fara aö sjá „Drenginn” og „Meö finu fólki”. Þar verður enginn svik- inn. P.S. Sérstakt þakklæti til bíóstjóra Hafnarbiós að sýna þessar myndir i réttum ramma.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.