Þjóðviljinn - 01.06.1975, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.06.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 1. júni 1975 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3 NÍELS HAFSTEIN SKRIFAR UM MYNDLIST Undarleg eru Ijósin ífjöllunum Gallery grjótaþorp, Aðalstræti 12: Róbert Guillemette Hvers skal drengsins dreki gjalda? Við göngum niður brattar tröppur inni ilangan sal með ósléttu gólfi. Það er lágt til lofts þar sem myndirnar hanga i ó- reglulegum röðum, — en það skiptir engu, hér gistir einlægn- in hús, hin fölskvalausa til- hneiging andar mót öllu sem sýnir olíumálverk, teikningar og vatnslitamyndir birtist. Lif draumsins er fram- undan. Súrrealiskar innsýnir kynjaheimsins, og það sem augu barnsins sjá i smágervum dráttum, bylgjast hér, i litum sem eyðast og kvarnast og másit út i nálægð. Það sem lærist um skipulag og útreiknaða upp- byggingu myndar, hið eðlilega og rökvisa, stendur fyrir utan þetta finlega nostur^ Við yfir- gefum örugga vissu og algild lögmál, endimörk meðvitundar- innar loka öllum dyrum og leyndardómar ókominna tima benda okkur til sin inná sviðið, — og atburðarásin hefst: Þarna eru stúlkan og dreng- urinn að leika sér með flugdrek- ann sinn, hann sveiflast i glær- hvitu loftinu, hærra og hærra, umhverfist og breytist og sam- lagast grisjulegum skýjunum, eins og væri hann eitt af þeim á himninum. Börnin hlæja og hoppa, en hláturinn bergmálar i sjálfum sér og leysir upp mynd- ina. Bandið raknar sundur i litlu höndunum og verður að rauðu siðu konuhári sem bylgjast og strekkist á vixl frá höfðinu, en likamann vantar og andlitið er af öðrum heimi, þeim heimi, sem ekki sést, en er athvarf þjáðra og tregafullra; draumn- um innan draumsins, eða dýpra og lengra burtu inni algeiminn guðs. En höfuðlaus búkurinn vafrar um i vofveiflegum skuggum þjóðtrúarinnar á jörð- unni, i manninum sjálfum. En einnig þetta undur á leið okkar Morgundraumur hverfur, við höldum áfram göngunni um landið og eyði- mörkina heitu þar sem sandur- inn þyrlast upp og verður að fin- gerðu ryki sem leggst yfir spor- in. Ný mynd: með gulgrænum sveppum er stinga kollinum upp úr sverðinum, og framandlegur hlutur liður hljóðlaust yfir svið- ið og hefur engan skugga. Kann- ski er þetta geimskip á skemmtiferð um óbyggðirnar, kannski lögreglan að leita glæpamannsins sem hún ekki finnur, þvi hér er ekkert. Þessi dularfulla auðn með kyrrð i þögninni og ljósbrot i fjarlægum fjöllum, þaðan sem geislinn i gljúfrinu kastast úti himinhvolf- ið. Grannvaxnar greinar runn- ans bærast við gust þann sem koma okkar veldur, og runninn lyftist allur upp af staðnum, likt og blærinn frá öldinni sem leið hefði vaknað til lifsins augna- blik, — en sigur svo niður aftur. Við leiðumst eftir myndjaðrin- um og skimum eftir mönnum eða dýrum og töfrum fram hill- ingar út við sjónhring. Hvað er þar á ferð? Hver þeysir um á þessum slóðum? Ekkert svar. En skyndileg myndbreyting, og við göngum fram á grænan dreka sem kúrir sig niður, og litinn dreng sem hefur arminn um háls honum góður bliður, en drekinn titrar. Veröldin er við- áttan mikla, misferlulaus slétt- an sem ekkert hylur fránum sjónum, þvi riddarinn nálgast úr hillingunum og lensuna ber við himin, Hann er að kom frá kastalanum i fjöllunum með bit- hvesst vopnið mundað til lags, frægastur allra frægra úr myrk- viði svallsins og lostans, sendi- boði valdsins sem kúgar, kann- ski böðull rauðhærðu konunnar sem henti höfði hennar á loft úti buskann, en búkurinn sveimar um i saggafullum kjallaranum þar sem vilpan er i fótum og stóreygð skordýr bitast um holdið sem fellur til jarðar, og ægileg hljóðlaus öskur kastast milli veggjanna þegar glóandi járninu er þrýst á holdið. En þetta vitum við ekki, við er um gestir og skoðum það sem fyrir ber. Okkar er ekki að dæma? Heldur göngum við i annarri mynd með blómum og litilli tjörn þar sem stúlkan leik-. ur sér og speglast i vatninu. Kannski biður hún drengsins og drekans er ætluðu að sýna henni heiminn. En landið er þögnin og kyrrðin og blærinn sem hvarf. I fjöllunum lifa ljósin orðin blá og bleik af rökkrinu sem færist yfir, en engill af öðrum heimi svifur gylltur stólpi ofar jörð- inni og fjarlægist. Kannski er þetta álfkonan i draumnum eða dis goðsagnanna sem stigur niður og vakir yfir landinu, eða sú sem byggir björg og seiðir, kemur um nóttog hvislar i eyra barnsins undarlegum orðum, — og hjalið verður ævintýr og und- ur. BETRI FERÐ, FYRIR L/EGRA VERÐ KynniS ykkur hina fjölbreyttu sumaráætlun Sunnu. Til KANARÍEYJA dagflug á laugardögum, út aprilmánuS. Mallorka dagflug á sunnudögum. KAUPMANNAHÖFN dagflug á fimmtudögum. NORÐURLANDAFERÐIR dagflug á fimmtudögum. RÍNAR- LANDAFERÐIR dagflug á fimmtudögum. KAUPMANNAHÖFN AMSTERDAM PARÍS RÍNARLÖND dagflug á fimmtudögum. LIGNANO, gullna ströndin, dagflug á föstudögum. GARDA vatniS og JÚGÓSLAVÍA, dagflug á föstudögum. RÓM, SORRENTO, dagflug á föstudögum. COSTA DEL SOL, dagflug á laugardögum. PORTÚGAL, dagflug á laugardögum. Hvergi fjölbreyttara ferðaval. Hvergi ódýrari ferSir. i nær öllum SunnuferSum er flogiS meS stærstu og glæsilegustu Boeing þotum islendinga, fjögurra hreyfla úthafsþotum Air Viking sem á siSastliSnu ári fluttu um 20 þús. farþega yfir AtlantshafiS, án tafa eSa seinkana. Stundvisi, öryggi þjónusta og þægindi sem fólk kann aS meta. SpyrjiS þá sem reynt hafa þessar frábæru farþegaþotur. FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA Lækjargötn 2 súnar 16400 120?0 /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.