Þjóðviljinn - 28.06.1975, Page 1
Laugardagur 28. júni 1975 —40. árg. 142. tbl.
Verða togara-
samningarnir
felldir?
Það var að visu ekki fjöl-
mennur fundur hjá Sjómanna-
fél. Reykjavikur um togara-
samningana i gær, aðeins 40 til
50 menn sóttu fundinn en ekki
var annað að heyra á mönnum
en að þeir væru mjög óánægðir
með samningana, en atkvæða-
greiðsla um þá hófst hjá félag-
inu i gær og henni lýkur i dag.
Það var mál manna sem
Þjóðviljinn ræddi við á og eftir
fundinn i gær að þessir
samningar yrðu felldir. Mönn-
um fannst þeir innihalda alltof
litlar bætur eftir 11 vikna verk-
fall. Fróðlegt verður að heyra
með úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar, en úrslit ættu að verða kunn i
kvöld.
—S.dór
Sjómenn velta vöngum yfir
samningunum, sem eru niður-
staðan af 11 vikna verkfalli.
Orlofsmál
sjómanna
í algerum
ólestri
Fjölmörg útgerðarfyrirtœki hafa
ekki greitt orlof fyrir árið 1973
Arekstur argentínskra stjórnvalda
og verkalýðssamtaka
Buenos Aires
lömuð
af verkfalli
Þaö kom fram i frétt hér i Þjóð-
viijanum fyrir nokkru að æði mis-
jafnlega gengi fyrir póst og sima
að innheimta orlofsfé starfsfólks
sumra fyrirtækja en fólk fær ekki
orlofið sitt greitt út hjá pósti og
sima fyrr en fyrirtækin hafa
greitt til stofnunarinnar.
Þó mun ástandið hvergi vera
eins slæmt og hjá sjómönnum.
Það kom fram hjá mönnum á
fundi Sjómannafélags Reykjavik-
ur i gær að þeir hefðu enn ekki
fengið greitt orlofsfé sem þeir
áttu að fá i fyrra sumar hvað þá
það sem þeir eiga að fá i ár.
Þannig mun ástandið almennt
vera hjá sjómönnum á stóru
togurunum, nema þeim sem
bæjarútgerðir sjá um. Eins er
svona ástatt hjá mörgum báta-
sjómönnum, útgerðarfyrirtæki
þeirra hafa ekki greitt orlofsfé
þeirra til pósts og sima og á
meðan fá sjómennirnir ekki or-
lofið greitt.
Þvi miður virðist vera alltof
mikil linkind við innheimtu or-
lofsf jár hjá pósti og sima sem sést
best á þvi að menn hafa ekki
fengið orlof frá i fyrra sumar
greitt út.
—S.dór
Hvar una börn sér
best að leik?
Sjá opnu
Harðar deilur
á ráðstefnu
Viðlal við Vilborgu
Harðardóttur
— Sjá bls. 5
BUENOS AIRES 27/6 — Hundruð
þúsunda verkanianna um ger-
valla Argentinu lögðu niður vinnu
i dag samkvæmt áskorun CGT,
sem er helsta verkalýðssamband
landsins. Verkfallið á þó aðeins
að standa i sjö klukkustundir.
Rikisstjórnin hafði hvatt verka-
menn til að hafa verkfallsskipun
CGT að engu, en sú hvatning
virðist ekki liafa haft mikil áhrif.
Iiér er um að ræða fyrsta meiri-
háttar árekstur verkalýðssam-
takanna og rikisstjórnarinnar
siöan peronssinnar náðu völdum i
Argentinu á ný.
50.000 manns hafa safnast
saman við stjórnarráðshúsið i
Buenos Aires miðri, i þeim til-
gangi að mótmæla meintum
fyrirætlunum stjórnarinnar um
að svikja verkamenn um veru-
lega launahækkun, sem þeir eiga
að fá samkvæmt kjarasamning-
um. Miklum fjölda hermanna
hefur verið skipað á vörð þar i
grennd. — Verkfallið i höfuðborg-
inni er sagt algert.
Ökyrrðin á vinnumarkaðinum
hófst fyrr i þessum mánuði þegar
Celestino Rodrigo, nýskipað-
ur efnahagsmálaráðherra, til-
kynnti að gjaldmiðill landsins,
pesosinn yrði felldur um 50 af
hundraði og að eldsneyti yrði
Framhald á bls. 10
Handteknir
í Úganda
LUNDÚNUM 27/6 — Yfirvöldin i
Úganda hafa látið handtaka all-
marga breta og sakað þá um
svikræði við stjórnina. Segir i til-
kynningu i útvarpi Uganda um
þetta að sumir hinna handteknu
hafi gert sig seka um enn verra
athæfi en Hills kennari, sem
dæmdur var til dauða fyrir
meintan róg um Amin forseta.
Hinum handteknu verður stefnt
fyrir herdómstól, að sögn út-
varpsins.
„Umræðufundur”
í landhelgisnefnd
Þjóðviljanum tókst i gær að ná
tali af ólafi Jóhannessyni, við-
skiptaráðherra, formanni Fram-
sóknarflokksins, til þess að inna
eftir hvort rikisstjórnin hefði tek-
ið með samþykkt afstöðu til
hugsanlegra samninga við breta
um veiðiheimildir i landhelginni.
Geir Hallgrimsson, Einar
Ágústsson, Gunnar Thoroddsen,
Vilhjálmur Hjálmarsson, Ilalldór
E. Sigurðsson voru ekki i
stjórnarráði i gær, en Matthias
Bjarnason lokaði að sér. ólafur
var þvi einn til að svara.
— Var fjallað um landhelgis-
málið á fundi rikisstjórnarinnar i
gærmorgun.
— Nei.
— Hvað verður lagt fyrir land-
helgisnefndina eftir helgina?
— Ég veit það ekki, er ekki i
nefndinni.
— Er eitthvað tilbúið frá rikis-
stjórninni um landhelgismálið til
þess að leggja fyrir nefndina?
— Nei. Ég held að þetta verði
umræðufundur, en það er ekkert
tilbúið frá rikisstjórninni.
— Hefur ekki verið fjallað um
landhelgismálið á fundum i rikis-
stjórninni eftir að forsætisráð-
herra kom heim frá London?
— Það var eitthvað rætt um það
á miðvikudaginn. Ég var ekki
þar.
— Hefur Framsóknarflokkur-
inn tekið afstöðu til samninga við
breta um áframhaldandi veiði-
heimildir innan 50 milna land-
helginnar?
— Nei. Það hefur hann ekki
gert.
— Hver er þin afstaða til slikra
samninga?
— Um það vil ég ekki gefa
.neinar yfirlýsingar, sagði ráð-
herrann að lokum.
Ólafur
Jóhannesson
vill ekkert
segja um af -
stöðu sína til
hugsanlegra
samninga
við breta