Þjóðviljinn - 29.06.1975, Side 9

Þjóðviljinn - 29.06.1975, Side 9
Sunnudagur 29. júni 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 REPRISE-PLÖTUR KINKS: (Bara LP-plötur): You Really Got Me Kink-Size Kink Kinkdom Kink Kontroversy Kinks Greatest Hits Kinda Kinks Live Kinks Face To Face Something Eise By The Kinks Village Green Perservation Society Arthur Lola Versus Powerman And the Moneygoround Percy Kinks Kronikles The Great Lost Kinks Album Og RCA plötur: Musweli Hillbillies Everybody’s In Showbiz — Everybody’s A Star Preservation Act One Preservation Act Two t' Og nú siöast Soup Opera. P.S. Ein athugasemd: Kinks gáfu út á siðasta ári litla plötu, „Mirror of Love”, „He’s Evil”. Lagið Mirror Of Love” er á litlu plötunni sungið af einni af söngkonunum sem gera 3 siðustu LP-plöturnar‘ svo skemmtilegar. Þetta lag er ekki hægt að fá í þessari út- gáfu annars staðar. Fyrir skömmu gáfu Kinks út breiðskífu, sem heitir „Soup Opera". Þessi plata flytur ef til vill ekki neitt nýtt hvorki í tónum né textum, enda mikið til ó- gerningur að koma með eitthvað, sem ekki hefur verið gert áður. EN / // Soup Opera" er mjög góð og eru það engar ýkjur. Nafnið Kinks festist við hljóm- sveitina árið 1963, eftir að þeir fé- lagar höfðu leikið saman undir ýmsum nöfnum, m.a. Pete Quaife Quartet, Ray Davies Group, Rav- ens, Ramrods og svo fram eftir götunum. Svo voru þeir færðir i rauða veiðijakka (enskulinunalog fengu nafnið Kinks (þið munið eftir háhæluðu, támjóu karl- mannaskónum, sem komu á markaðinn um þetta leyti, jæja, en þeir voru kallaðir „kinky boots”) Nokkuð erfitt hefur reynst að komast yfir allar plötur þeirra og á ég sjálfur eftir að ná i nokkrar, sem ég veit um, en gallinn er bara sá að það voru gefnar út svo ólik- ar útgáfur i t.d. USA og Bretlandi fram undir 1968, auk ýmiss útgáfa i t.d. Frakklandi Þýskalandi, Hol- landi, Japan, Hong Kong o.s.frv. 1 lok 1963 komust Kinks á samn- ing hjá Pye hljómplötuútgáfufyr- irtækinu i Bretlandi, og voru plöt- ur þeirra gefnar út hjá þvi fyrir- tæki þar, til ársins 1970, er þeir hættu og gengu i lið listamanna RCA. Ein helsta ástæðan fyrir þvi, að Kinks hættu hjá Pye var sú stefna fyrirtækisins að gefa út sömu lögin á 5-6 plötum, sem á var raðað á mismunandi hátt. Arið 1964 gáfu Kinks út nokkrar smáplötur (eins og þeir hafa allt- af gert). Fyrst kom „Long Tall Sally”, „Took My Baby Home”, svo hin sjaldgæfa „You Still Want Me”, „You Done Something To Me”, en þessar tvær náðu engum vinsældum. 3. ágúst 1964 kom svo út platan sem gerði þá fræga: „You Really Got Me”, „It’s All Right”. Svo var farið i það ævintýri að taka upp stóra plötu „The Kinks”, en hún var tekin upp á tæpri viku. önnur smáplata var gefin út, „All of the Day and All of the Night”, „I Gotta Move”, auk 4-laga plötu sem hét „Kinksize Session”. 1965 voru Kinks orðnir vinsælir um allan heim og hér lika, þá gáfu þeir út „Tired of Waiting For You”, „Come On Now”, „Every- body’s Gonna Be Happy, „Who’ll Be The Next In Line”, „Set Me Free”, „I Need You”, „See My Friends”, „Never Met A Girl Like You Before” og „Till The End Of The Day”, „Where Have All The Good Times Gone” auk EP platnanna „Kinksize Hits” „Kwyet Kinks” (en lögin á þeirri plötu virðist vanta á stórar plöt- ur). Ein stór plata „Kinda Kinks”. Kinks voru orðnir frægir fyrir ruddalega framkomu og stundum slagsmál á svði. Þeir voru alls ekki orðnir góðir hljóð- færaleikarar og æfðu sig ekki vel. 1 byrjun reyndu þeir að hafa allt diplómatistkt, en það varð bara til mikilla erfiðleika og jafnvel slagsmála (enda var t.d. Dave Davies ekki nema 16 ára er þeir byrjuðu 1964). Ray & Dave Davies urðu fljótt forsprakkar Kinks og var baráttan helst á milli þeirra bræðra, og var Kinks oftar en einu sinni komin að þvi að hætta störfum. Kinks gerðu plötusamning við Reprise I USA, og urðu strax vinsælir þar og t.d. Grateful Dead meðal helstu aðdá- enda þeirra þar, og breiddu þeir út vinsældir Kinks á Vesturströnd Bandarikjanna, með þvi að spila lög þeirra og kynna þau. 1966 minnir mig að Kinks hafi komið hingað, en á þvi ári komu út lög með Kinks, sem urðu reglu- lega mikið vinsæl hér ogKinksvar i raun og veru vinsælasta hljóm- sveitin á íslandi. Þið munið alla- vega eftir „I’m on an island” og „I’m on a party line” og „Mr. Pleasant” og, og...Já listinn yf- ir hin frábæru lög Ray Davies er mjög langur. ’66 komu út bara 3 litlar plötur i Bretlandi „Dedi- cated Follower of Fashion”, „Sunny Afternoon” og „Dead End Street”, og 3 stórar: „The Kink Kontroversy” „Well Respected Man” (samansull frá Pye, ómerkilegt) og „Face To Face” (ein sú allrabesta). Er hér var komið sögu höfðu Kinks breytt allverulega um stil. Fyrst og fremst var ástæðan sú að Ray Davies virtist hafa fengið völdin að mestu leyti i sinar hendur. Af- leiðingarnar urðu þær að R&B stillinn hvarf að miklu leyti og i staðinn komu melódiskari lög og textar, sem fjölluðu um alls kyns þjóðfélagsleg vandamál og fyrir- brigði, en þó mest um hinn al- menna mann, sem sumir kalla smáborgarann. „Waterloo Sunset”, „Autumn Almanac” voru lög þeirra 67, en Dave Davies gaf út 2 plötur lika: „Death of a Clown” og „Sushannah’s Still Alive”. Auk þessa gáfu þeir út sina fyrstu hljómleikaplötu „Live At Kelvin Hall”, auk „Something Else By The Kinks”, og „Sunny After- noon” (einskisvert samansull aft- ur). í byrjun 68 fóru vinsældir Kinks að dala, Pete Quaife, bassaleikari hætti loks fyrir fullt og allt eftir að hafa lent i slysi, og John Dalton núverandi bassaleikari þeirra tók við. Dave Davies hafði næstum hætt árið áður og var meira að segja búinn að taka upp heila stóra plötu, sem var mikið til til- búin til útgáfu. „Wonderboy” náði ekki eins miklum vinsældum og næstu plötur á undan, og það þyddi á þessum árum að hljóm- sveitin væri búin að vera, svo gáfu þeirút „Days”, frábært lag, sem gekk örlitið betur. Dave Davies gaf lika út sitt besta lag: „Lincoln County”. Eitt merki’- legt er við þetta ár, — Kinks gáfu út plötu, sem Pete Townshend, i Who, hrósaði nú fyrir skömmu og viðurkenndi að hafa fengið hug- myndina um Tommy þaðan, en þaö er platan „The Kinks Are The Framhald á bls. 18 Kinks ásamt Tempó. Munið þið kannski efttr peimv Michael Murphey: „Blue Sky-Night Thunder” (Epic) fengin aö láni í Faco Michael Murphey er fyrst aö ná sér á strik nú, eftir 2stórar plötur. Ég man eftir einu lagi meö Michael Murphey áöur, en þaö hét „Geronimo’s Cadillac” og er alveg stórgott. Þessi plata ,,Blue Sku- Night Tunder” er góö. Hún er mjúk, minnir stundum á John Denver, stundum Don McLean og fleiri i þeim stil, e;i þaö þýöir samt ekki aö hann sé beiní. líkur þeim. Murphey hefur eigin stíl, se.n á eft- ir aö þroskast enn. Murphey e. banda- rikjamaöur, sem stuöur málstaö indiána. Textarnir eru i anda þeirra, og jafnvel um þá ((Boodbye Old Desert Rat). Þessi breiöskifa er tileinkuö tveimur harögerö- um indiánum, Calvin Black og Guy Dull Knife. Platan ,,Blue Sky — Night Thunder^ er nú á uppleiö á bandariskum vinsældalist- um og „Wildfire” er lika hátt á listum yfir litlar plötur. „Wildfire”, sem er fyrsta lag plötunn- ar, fjallar um samband hests og mannveru og sambandi þeirra viö náttúr- una. Þetta er mjög fallegt lag, sem væri tilvaliö i kvikmynd um slikt efni. Þegar maöur les textana (sem fylgja meö á innra hulstrinu) nær maöur snertingu viö fjöllin, himininn, trén og fuglana og annaö þaö, sem Murphey syngur um. Banjóiö, kassagitarinn og mandóliniö færa mann lika nær. „Carolina In The Pines” fjallar um ást- ina, eöa öllu heldur um þaö, sem var I kringum ástina, hvernig veöriö var o.s.frv. „Goodbye Old Desert Rat” fjallar um þá, sem platan er tileinkuö. Þetta er besta lag plötunnar. Textinn lýsir manni, sem lifir hinu hreina sveitalifi, manni, sem veit hvaö er mikils viröi i lifinu. Aö vera sjálfum sér og sinum nógur, eöa öllu held- ur aö vera, eins og þaö er kallaö, — gam- aldags. Viölagiö og siöasta visan er mjög góö. „Wild Bird” er ekta Don McLean-lag meö ekta Don McLean-rödd (McLean er mjög góöur). ÞaÖ er lofsöngur um örninn og hinn mikla kraft hans, og Murphey spyr i textanum hvort lög hans hafi sama kraft og vængir arnarins. Um þaö má deila, en þau.eru allavega jafn ómenguö og fjallaloftiö, sem báöir dá svo mjög. „Blue Sky Riding Song” er kraftmikiö kántri-lag, lokalagiö á hliö I. „Medicine Man” náöi nokkrum vin- sældum i Tiu á toppnum. ÞaÖ var rétt hjá Erni Petersen aÖ velja „Medicine Man”, þaö er mest gripandi. Lagiö er afar létt meö skemmtilegu viölagi. „Medicine Man” er hér indiána læknir, sem dansar, syngur og kemur fólki i „trans”! „Secret Mountain Hideout” er nokkurs konar popplag meö Tom Scott á saxofón. Fremur smekklaust. „Without My Lady There” er hörö ádeila á storborgir og hiö hættulega og ómerkilega peninga- og metoröa-hlaup þar. Lýsingin á borgunum er stórkostleg og afar sönn. Einn af betri textum, sem ég hef heyrt lengi. „Night Thunder” hefur bara fjögurra lina texta og 7 orö! Samt góöur: „Love me like / night thunder / sunlight / water”. Lagiö sjálft er lika sæmilegt. Siöasta lagiö er „Rings of Life”. Mjög rólegt og gott. Þessi plata er góö til þess aö hlusta á á björtum miösumarnóttum eöa uppi i sveit aö vetrarlagi. Platan er góö i alla staöi, vel spiluö, vel sungin, góö lög og góöir textar, meö heilbrigöum skoöunum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.