Þjóðviljinn - 13.07.1975, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 13.07.1975, Qupperneq 9
Sunnudagur 13. júll 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Úr Apokalypsis con figuris: Lazarus (Zbigniew Cynkutis) oft'EfofeliIn- ingurinn (Ryszard Cieslak) um likt, enda hefur hann ævin- lega gefið sér mjög góðan tima og unnið feiknalengi að hverrri sýn- ingu. Hann hefur alls sett upp fimm meiriháttar sýningar, og sú sem nú er i gangi hefur verið sýnd siðan 1968, en tekur að visu stöö- ugum breytingum. Grotowski taldi að leikhúsið stæði frammi fyrrir alvarlegum vanda vegna samkeppni við sjón- varp og kvikmynd. Leikhúsið hefði brugðist við þessum vanda með þvi að reyna að keppa við þessa fjölmiðla með þeirra eigin meðulum, með þvi að auðga leik- húsið tjáningartækjum, nota tón- list, dans, skraut, flóknar leik- myndir og ýmiss konar tækni- brögð. Þetta taldi Grotowski vera misskilning, i stað þessa auðuga leikhúss kom hann sér upp fátæku leikhúsi. Hann valdi þá leið að kanna hvar væri endanlegur grundvöllur leikhússins og byggja siðan á honum. Til þess að leikhús geti verið til er aðeins tvennt ómissandi: leik- ari og áhorfandi. Ollu öðru má kasta burt: búningum, farða, ljósum,sviðsmynd, sviðinu sjálfu, jafnvel textanum. Þetta hefur Grotowski gert. Leikarinn sjálfur verður hinn eini grundvöllur þessa leikhúss. Þess vegna hljóta að verða gerðar allt aðrar kröfur til hans en gert er i hinu hefð- bundna leikhúsi. Hann verður aö margfalda tjáningarmöguleika likama sins, en hann verður einn- ig að læra að gefa af sjálfum sér, leggja sig allan i leik sinn, þannig að lif hans og leikur verði eitt og hið sama. í þessu skyni kom Grotowski sér upp margbrotnu æfingarkerfi sem miðar að þvi að gera likamann að fullkomnara tjáningartæki og auðvelda mönn- um sjálfstjáningu — stytta bilið milli sálar og likama, ef svo mætti segja. Grotowski litur á leikhús sem stað þar sem leikari og áhorfandi hittastog mannleg samskipti fara fram. Ef leikarinn gefur sig allan i leik sinum og áhorfandinn er op- inn geta þessi samskipti orðið frjó og auðgað lif beggja, oröið þeim til hjálpar i leit sinni að svari við þeim spurningum sem við erum öll að spyrja, sum kannski án þess að vita af þvi. 1 leiktilraunastofu Grotoskis er ekki aðeins unnið að sýningum, heldur kannski fyrst og fremst að rannsóknum á sambandi manna i milli. Fyrir Grotowski eru vanda- mál leikhússins og vandamál mannlegra samskipta eitt og hiö sama. Haldið til Wroclaw Föstudaginn 13.júni lauk þing- inu með kokkteilboöi mennta- málaráðherra Póllands i ægilega finni höll rétt fyrir utan Varsjá, sem heitir Wilanow og litur út fyrir að vera frá 17. öld, en er raunar splunkuný eins og allt i þessari borg. Ráðherrann býður upp á gómsætar krásir og gnægð vodka og winiaki. Eftir veisluna eigum við að stiga upp i rútu og fara til Wroclaw til aö sjá sýningu hjá Grotowski. Okkur hefur verið sagt að þetta sé eitthvað um fjög- urra stunda ferð. Klukkan tvö er okkur troðið inn i rútu. Það er ægilega heitt. Stór og myndarleg pólsk stelpa tekur við fararstjórninni. Hún heitir Kristin. Hún segir að við verðum komin til Wroclaw klukkan niu. Eins og venjulega er ekkert að marka það sem okkur hefur verið sagt. Hún segir lika að þeir sem vilji geti komið aftur með rútunni I kvöld, en það verði lika hægt að gista um nóttina og það verði rúta morguninn eftir. Svo ökum við i hitanum út úr borginni og út á þessar endalausu slettur. Einhvers sfaðar er stansað til að fólk geti fengið hressingu. Þetta er heldur óhrjáleg sveitakrá. Klukkan er sex. Fyrir utan eru skitugir sveitakallar að drekka sig fulla. Prófessor doktor Schimacher segir mér að hann muni svo vel eftir Þorvarði fyrir hvað hann hafi leikið vel i Brekkukotsannál. Ég verð mjög hreykinn af kollega minum sem er raunar á leið til Vinar i dag. Það er ekið áfram. Það fer að skýggja en hitinn er samur við sig. Þorstinn tekur að ágerast. Loks er ekið inn i Wroclaw. Það er stansað hjá tilraunastofu Grotowskis og fólk spurt hvort það vilji fara á sýninguna strax eða skreppa inn á hótel fyrst. All- ir eru að sálast úr þorsta og vilja skreppa inn á hótel. Það er farið þangað, við fáum herbergi, stopp i tuttugu minútur. Hins vegar kemur i ljós að það er hvorki vott né þurrt að fá I gistihúsi þessu, enda þótt það beri heitið Grand Hotel. Við megum þvi halda með þurrar kverkar á sýninguna. Apokalypsis con figuris Leikhópur Grotowskis hefur verið að sýna þetta verk siðan 1968. Þetta verk er samið af hópn- um, fyrst með impróviseruðum texta, en siðan voru settir inn i staðinn viðeigandi textar úr Bibliunni, og eftir Dostojevski, Eliot og Simone Weil. Leikritið er einskonar nútimapislarasaga eða kristssögn, um þörf mannsins fyr- ir frelsun og hvernig hann ævin- lega svikur sinn frelsara. Per- sónurnar bera bibliunöfn: Jóhannes, Lazarus, Júdas, Simon Pétur, Maria Magdalena, en jesúgervingurinn, frelsari leiks- ins, er kallaður Ciemny, þ.e. Ein- feldningurinn. Sömuleiðis endur- speglast ákveðin atvik úr guð- spjöllunum ileiknum. Hins vegar er hér ekki um endursögn á Bibli- unni að ræða, heldur leik sem geristhér og nú og fjallarum eilíf mannleg vandamál. Það er auðvitað ógerlegt að lýsa Grotowskisýningu svo nokk- urt gagn sé i. Til þess eru þær of ólikar öllum öðrum sýningum. Þessi sýning fer fram i fremur litlum sal uppi undir lofti i gömlu húsi. Þarna er timburgólf og múrsteins- veggir. Annað er ekki i salnum, utan einn ljósgjafi. Ahorfendur sitja eða stnada meðfram veggjunum og eru um 100 i hvert Framhald á 22. siðu. Pinochet (annar frá vinstri) með mönnum slnum að koma úr kirkju og eftilvill að fara aðhorfa á aftöku eða skemmta sér við pyndingar. Dregiö úr efnahags- legri „viö- reisn” her- foringjanna í Chile „Fjandinn þekkir sina” og Bandarikin þekkja vini frá fjend- um. í þau þrjú ár sem hinn þjóð- kjörni vinstri sinnaöi forseti Allende stýrði málefnum Chile var ekki einn einasti dollar veitt- ur af hálfu Bandarikjanna til efnahagshjálpar I þessu langa mjóa landi Suður-Ameriku. En strax og herforingjarnir voru búnir að vinna á Allende og hrifsa völdin byrjuðu dollararnir að streyma suðureftir. A fyrstu 18 mánuðum sins blóð- uga valdaferils hefur herfor- ingjastjórn Pinochets I Santiago tekið á móti sem svarar 27 milj- öröum króna i efnahagsaðstoö frá sinum bandarisku vinum. En almenningur I Chile veröur litið var við þetta peninga- streymi. Fernando Leniz var efnahags- málaráðherra Pinochets og hann fékk alræðisvald til að „hreinsa til eftir óstjórnina hjá Allende” eins og það hét. Kenning Lenizar var sú að það yröi að lita á Chile sem eina rekstrareiningu þar sem mikilvægast væri að auka framleiðslu og hagnað án tillits til launþeganna. Þess vegna voru laun lækkuð „niöur á raunhæft stig” og með fjöldauppsögnum var hið „óeölilega litla” atvinnu- leysi frá timum Allendes aukið. A einu ári eftir valdaránið hafði kaupmáttur launa hjá chiliskum verkamanni rýrnað um 60% og fjöldi atvinnuleysingja hafði 6- faldast. Leniz hélt þvi fram aö framleiðslukostnaður minnkaði með þessu móti og það ásamt hækkuðu verði mundi gera at- vinnurekendur fúsari til aö fram- leiða, þetta mundi einnig laða að erlent fjármagn og mjög auk- innútflutningur mundi bætagjald- eyrisstöðu landsins. Þreföldun ágóöans hjá auðfélögum — 400%verðbólga — sexföldun at- vinnuleysisins — gjaldeyris- hallinn yfir einn miljarður dollara — feimni hjá erlendu fjármagni Það má segja að ekkert af þessu hafi gerst. Hin skipulágða fátækt almennings hafði i för með sér minnkandi eftirspurn eftir neysluvörum. Smákaupmenn horfðu upp á það að hagnaður þeirra af verðhækkununum var étinn upp af minnkandi sölu (verðbólgan á árinu 1974 nam 400%), og margir smærri at- vinnurekendur neyddust til þess að leggja upp laupana. Gjaldeyrishallinn á siðasta ári var meira en einn miljarður doll- ara og hefur aldrei verið jafn geipilegur. Óánægjan með efnahagsstefnu herforingjanna magnaðist svo aö meira að segja helstu stuðnings- menn hennar úr miðstéttum landsins fóru að hafa uppi mót- mæli. Nú er svo komið að aðeins litill hópur manna sem stýrir stærstu auðfélögum landsins lýsir yfir ánægju með efnahagsmálin. Slik félög, t.d. stál- og sements- framleiðendur þrefölduöu ágóða sinn á fyrsta stjórnarári herfor- ingjanna, og enginn efi er á þvi að nú eru auðugustu fjölskyldur Chile rikari en nokkru sinni áður. En Fernando Leniz efnahags- málaráðherra hafði vanmetið tvennt. Annað var verðsveiflur á kopar, en koparinn hefur gengið mikið niður og er nú seldur á um það bil helmingi þess verðs sem giltifyrir9 mánuðum. Hitt atriöið og það sem skiptir meira máli upp á framtiðina er tregða er- lendra fjármagnseigenda. Þeir hafa ekki komið hlaupandi með fjármagnið eins og reiknaö hafði verið með, og drýgstan þáttinn i þvi að menn hika við að fjárfesta i Chile herforingjanna er pólitiskt aðhald frá almenningsálitinu I þeim löndum þar sem fólki leyfist aö segja skoðanir sinar. Fjöldinn allur af erlendum lán- veitendum Chile neitar að sætta sig við frestun á afborgunum og lánsloforö frá Alþjóðabankanum og alþjóða gjaldeyrissjóðnum frjósa inni. Fyrst og fremst er um að ræða þrýsting frá Bretlandi, Italiu og Sviþjóð sem með þessu eru að mótmæla ómennskri grimmdherforingjanna. En þetta gerir Chile hinsvegar að ótrygg- um lántakanda i augum banka- stjóranna við Alþjóðabankann. Alvarlegasta vandamálið fyrir Chilestjórn út frá hennar eigin sjónarmiði er skortur á fjár- magni. Og til að ráða bót á þvi endurskipuleggur Pinochet stjórn sina, vikur Fernando Leniz til hliðar og setur i staðinn þá Jorge Cauas og Raul Saez, en þeir til- heyrðu áður hægri armi kristi- lega lýöræöisflokksins. (Þar sem „pólitik” er opinberlega bönnuð, hafa þeir orðið að segja skilið við flokk sinn). Liklegt er að þessir borgara- legu hálffasistar muni beita sér fyrir efnahagsstefnu I samræmi við resept frá alþjóða gjaldeyris- sjóðnum. Gengislækkanir til að fjörga útflutningsiðnaðinn, verð- lagseftirlit að vissu marki, hækk- un lægstu launa og atvinnubóta- vinna á vegum hins opinbera til að lina ofboðlitið kjör vergangs- mannanna. Og svo á þetta auðvit- að að lita betur út fyrir eftirlits- menn mannúðarinnar úr Evrópu: hvorugur efnahagsráðherranner i einkennisbúningi hersins!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.