Þjóðviljinn - 13.07.1975, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 13.07.1975, Blaðsíða 13
12 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 13. júli 1975. Sunnudagur 13. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Sex simaborð anna simtölum landsmanna tii útianda eða simtölum hingað til landsins. Þótt myndin sé tekin á mesta annatima dagsins gafst samt timi til að lita upp og sýna tennurnar. Engum sem til þekkir dylst að þjónustan sem veitt er af stúlkunum á //Talsambandi við útlönd" á trúlega engan sinn líka hjá opinberum fyrir- tækjum hér á landi og þótt víðar væri leitað. A.m.k. var undirritaður beðinn fyrir kærar kveðjur frá blaðamönnum Þjóðviljans til stúlknanna með þakk- læti fyrir þá lipru þjónustu sem fengist hefur á 09 undanfarin ár. Trúlega mundi mörg- um manninum, sem oft þarf aö hringja til útlanda og orðið þessarar þjónustu aðnjótandi bregða i brún ef hann sæi hve þröngt vin- konur hans þurfa að sitja/ — hvað þá ef hann vissi um kaup þeirra og kjön en þar mun vera að finna dapur- legar tölur. Þegar Þjóðviljinn sótti 09 heim var mikið að gera, klukkan var rúmlega þrjú og annatimi dags- ins i hámarki. Að sögn Hrannar Rasmussen, varðstjóra, vinna upp undir 30 stúlkur á vöktum sem skiptast allan sólarhringinn. Húsnæðið er orðið ansi þröngt, fjöldi símtala viö útlönd eykst að meðaltali um 20% á ári en sem betur fer hjálpar tæknin til við að halda húsnæðisþörfinni í skefjum. „Með þessari auknu sjálfvirkni Þetta eru nokkrar þeirra kvenna sem taka við óskum utan úr bæ um simtöl til útlanda. BHHBHHI „Stefnt er að notkun gervihnatta til tal- sambands við útlönd” ,/Aukning símtala við út- lönd er um 20% á ári", sagði Gústav Arnar deild- arverkfræðingur Pósts og síma í samtali við blaðið. „Það er þvi Ijóst að sæstrengirnir okkar tveir geta ekki lengur annað þessum fjölda simtala og við athugun á hagkvæmum leiðum til að bæta við sím- rásum út í heim hefur komið í Ijós að hentugast er að láta fjarskiptin fara fram í gegnum gervi- hnetti. Um leið og leyfi hins opinbera fæst reikna ég með að við hefjum framkvæmdir við uppsetn- ingu móttökutækja og þá á að vera hægt að taka við simtölum og sjónvarpsefni innan tveggja ára frá ley f isveitingu. — Vegna hinnar miklu aukn- ingar á strengi Icecan (Iceland- Canada) og Scotice (Skotland- Iceland) hafa verið athugaöir þrir möguleikar til að auka sima- sambandið, sagði Gústav. og þegar stöð er sett upp til þess er hægur vandi að taka við beinum sjónvarpssendingum gervihnatta án aukakostnaðar — í fyrsta lagi kom til greina að leggja nýjan sæstreng. Annar möguleiki var sá að koma á svo- kölluðu dreifisambandi, en það er radiósamband sem dregur ekki nema takmarkaða vegalengd án endurvarpsstöðva þannig að að- eins hefði verið unnt að koma sendinum fyrir á Hornafirði og reyna þannig með herkjum að ná yfir til Færeyja og senda þaðan áfram. Þriðji möguleikinn var siðan gervihnattasambandið sem við komumst að raun um að væri það hentugasta. Nú þegar eru tölu- vert margir gervihnettir komnir á loft og eru þeir sem varpa sjón- varpssendingum og simasam- bandi settir á loft á vegum fyrir- tækisins Intelsat. Hluthafar þess fyrirtækis eru Póst- og sima- málastjórnir um 90 þjóða. Nú eru á lofti 3 Intelsat hnettir yfir At- lantshafi, 2 yfir Kyrrahafi og tveir yfir Indlandshafi. — Hvenær var Intelsat stofn- að? — Það var að mig minnir árið 1964 en við hér á tslandi gerðumst siðan aðilar árið 1973. t fyrra sótt- um við um leyfi hins opinbera til að festa kaup á jarðstöð til að taka á móti sendingum en mér vitanlega hefur ekki borist já- iwíw ' . . .. Þannig litur jarðstöðin út sem Póstur og simi leggur til að keypt verði til islands. Skerminum er hægt að snúa til allra átta og er hann 32 metr ar i þvermál. kvætt svar. Það er hins vegar mikilvægt að hefjast handa hið fyrsta vegna þess að sæstrengirn- ir okkar tveir munu ekki anna eft- irspurn öllu lengur. Tækniþróunin hefur gert kleift að koma á beinu sambandi út i heim og þegar við tökum það kerfi upp er vist að strengirnir nýtast ekki eins vel og munu þá ekki komast nálægt þvi að vera fullnægjandi. — Þið biðið þá eingöngu eftir svari ráðuneytis? — Já, vissulega er beðið eftir þvi en hins vegar munum við gera nýja könnun þegar við hefjumst lianda þar eð breytingar kunna að hafa orðið frá þvi við ákváðum að stefna að gervihnattarsambandi. En hvað um örbylgjusam- band? Það er eingöngu hægt að nota hér innanlands. Þegar hringt er t.d. frá Reykjavik til Akureyr- ar getur simtalið komið eftir þremur leiðum. Fyrsta lagi eftir örbylgjukerfi, i öðru lagi eftir gömlu loftlinunum, sem nú eru óðum að glata mikilvægi sinu eða i þriðjalagi eftir jarðstrengjum. örbylgjukerfið er framtiðar- lausnin og verður æ mikilvægara hér hjá okkur en það er sem kunnugt er þráðlaust samband. — Ef af gervihnattarfram- kvæmdum yrði, — munduð þið sækja um fjárveitingu frá þvi opinbera? — Nei, við þurfum að fjár- magna alla okkar starfsemi sjálf- ir. Það muni óhjákvæmilega leiða til hækkaðs gjalds á simareikn- ingana en þó hefur nú ekki gengið vel til þessa að fá leyfi til að hækka afnotagjöldin. Þessi kostn- aður simnotenda kemur inn i visi- töluna og það vekur enga sér- staka hrifningu stjórnvalda þegar beðið er um heimild til hækkunar. Við rekum þó okkar starfsemi svo sjálfstætt að við þurfum jafnvel að borga söluskatt af okkar þjón- ustu! — Hvað kostar að setja upp jarðstöð hér á landi? — Þegar við reiknuðum það út árið 1973 var kostnaðurinn um 3,5 miljónir dollara. Vafalaust hefur sú tala hækkað siðan. Litill auka kostnaður fylgir hins vegar mót- töku útvarps- og sjónvarpsefnis þannig að stöðin gæti nýst vel. Þarna þurfa ekki að starfa nema mjög fáir menn, við reiknuðum jafnvel með að hafa engan fastan starfsmann við stöðina þegar fram liðu timar. —gsp „Óneitanlega er oröið all þröngt” hefur okkur tekist að svara simtalaaukningunni án þess að þurfa að brjóta niður veggi og bæta við”, segir Hrönn. „Það er ekki nauðsynlegt að bæta við borðum heldur eingöngu sima- tækjum og linum.” — Talið þið svo allar tungur? — Nei, ekki get ég nú sagt það. Þegar sjálfvirknin var minni komumst við af með ensku- og dönskukunnáttu þar eð öll samtöl segja stúlkurnar á talsambandi viö útlönd en engu aö síður veita þær betri þjónustu en hægt er aö finna annarsstaðar N D fóru þar i gegn. Núna hringjum við hins vegar beint út i heim og þótt þessi tvö tungumál séu al- gengust kemur fyrir að við þurf- um að gripa til frönsku- og þýsku- fólks. Við höfum sótt námskeið i þýsku auk þess sem hér er fólk sem er vel talandi á þessar tung- ur. — Hvað afgreiöið þið svo mörg simtöl daglega? — Það er ákafiega misjafnt, þó Hrönn Rasmussen varðstjóri á Talsambandi við útlönd heldur hér á linuriti yfir simtöl út i heim. Eins og sjá má hefur dregið verulega úr sim tölum um áramótin ’68—’69 (krepputimar) en hins vegar „spring ur” linuritið þegar skákeinvigi Fischers og Spasskýs fór fram.Þetta rit nær til september 1973 en nú er simtalaf jöldinn orðinn það mikill að taka þurfti I notkun nýtt og stærra linurit en hér er. verður þetta aldrei minna en 350—400 simtöl og ef eitthvað sér- stakt er, t.d. skákeinvigið, Nixon- heimsókn og annað þess háttar eykst fjöldinn náttúrlega upp úr öllu valdi (sjá meðfylgjandi mynd af Hrönn með linurit yfir simtala fjölda). — En það er farið að verða þröngt? — Já, þvi er ekki að neita að það er erfitt aö koma hér að fullri vakt. Það er setið svo þröngt að ég er hrædd um að aðstaðan nálg- ist það að vera heilsuspillandi. - gsp O IAISAMBA.no y 10 |J T t ■ÚTPAfíNAR MIWÚTUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.