Þjóðviljinn - 07.08.1975, Side 1
Fimmtudagur 7. ágúst 1975 — 40. árg. —175. tbl.
Svartolíubrennarar
komnir í 11 togara
Tel að allir islensku togararnir fái sér þerinan búnað,
segir Gunnar Bjarnason, fyrrum skólastjóri vélskólans
Sem kunnugt er, var á sinum
tima stofnuð nefnd til að rann-
saka möguleika á þvi að setja
svartoliubrennara i islensku
togarana, þannig að þeir gætu
notað svartoliu i stað gasoliu.en
slikt myndi spara hverju skipi
miljónir árlega.
Þessi nefnd, en formaður henn-
ar var Gunnar Bjarnason fyrrum
skólastjóri Vélskóla Islands, skil-
aði niðurstöðu á þá leið að þetta
væri vel hægt og myndi verða
mjög hagkvæmt fyrir útgerðina.
Fyrst i stað gagnrýndu menn
nefndina, en siðan var farið að
reyna þetta með þeim árangri að
i dag eru 11 togarar komnir með
svartoliubrennara, þ.á m. allir
japönsku togararnir sem eru af
minni gerðinni og með
2000 hestafla vél.
Sagði Gunnar Bjarnason i gær
að hann ætti von á þvi að ekki liði
á löngu þar til allir islensku
togaramir væru komnir með
svartoliubrennara. Sagði hann að
japönsku togararnir, sem hefðu
2000hestafla vél spöruðu 8,5 milj.
kr. á ári hver með þvi að brenna
svartoliu i stað gasoliu miðað við
núverandi oliuverð. Þá taldi
Gunnar að stærri togarar myndu
spara hlutfallslega meira, en
vélar þeirra eru flestar um 3000
hestöfl. Þájnunu allir þeir skut-
togarar sem verið er að kaupa til
landsins vera útbúnir fyrir svart-
oliubrennslu en þeir eru sjö eða
átta sagði Gunnar.
Það er ekki dýrt að breyta
gasoliuvélinni yfir i svartoliuvél.
Taldi Gunnar að kostnaðurinn hjá
minni togurunum væri 1 til 1,5
milj. kr. kr. en hátt i 2 milj. kr.
hjá stóru togurunum. En þessi
kostnaður væri fljótur að borga
sig.
Fyrst i stað kom eins og áður
segir fram nokkur gagnrýni á
þetta, og sagði Gunnar að þeir
væru raunar til enn sem teldu
þetta myndi skemma vélarnar.
En Gunnar sagði að það væri búið
að sanna sig að þessi ótti ætti ekki
við nein rök að styðjast; reynslan
heföi sýnt það. —S.dór
Aðalskipulagið
Gerir ekki ráð
fyrir Grjótaþorpi
,,Við teljum rangt að tillaga
okkar sé kynnt i fjölmiðlum, áður
en við fáum sjálfir tækifæri til
þess að útskýra hana eða fjalla
um hana hjá skipulagsyfirvöld-
um. 1 aðalskipulagi borgarinnar
er ekki gert ráð fyrir að Grjóta-
þorpið standi, heldur að þarna
komi hraðbraut i gegn og stór-
hýsi. t okkar tillögu er engin
hraðbraut, heldur reynt að halda
„karakter” þessa hverfis með
mjóum stigum, óbreyttum götum
og lágum húsum.” sögðu arki-
tektarnir Guðmundur Kr.
Guðmundsson og Ölafur
Sigurðsson, sem unnið hafa að til-
lögu um skipulagningu Grjóta-
þorps sem f jallað hefur verið um i
fjölmiðlum.
Sögðu þeir ennfremur að hús-
friðunarnefnd hafi ekki mælt með
varðveislu neinna hús i þessu
hverfi, enda væru þau almennt i
mjög slæmu ástandi. Þorsteinn
Gunnarsson, arkitekt og Hörður
Ágústsson listmálari unnu að
rannsókn á gömlum byggingum
og varðveislugildi þeirra i gamla
borgarhlutanum árið 1969 og
segir þar m.a. um Grjótaþorp að
viðhald húsanna og listgildi sé
yfirleitt mjög lélegt, en rannsókn-
um á sögulegu gildi ólokið. Um
varðveislugildi segir að byggðin
sé úrelt og endurnýjunar sterk-
lega þörf.
Sögðust þeir Guðmundur og
Olafur hafa reynt að halda i það
sem einhvers er virði i Grjóta-
þorpinu og væri raunar hægur
vandi að taka fleiri af núverandi
byggingum i Grjótaþorpi inn i
skipulag þeirra, ef ástæða þætti
til.
,,En við teljum þessar bygging-
ar almennt illa fallnar til friðunar
og viljum þess i stað reyna að
by^ggja þarna upp lifandi hverfi,
sem hefur aðdráttarafl fyrir alla
aldursflokka”,. sögðu þeir að lok-
um. ' —Þs
Togararnir hafa mokfiskað að undanförnu. Þessi mynd var tekin við
Reykjavikurhöfn i gær, þegar verið var að landa 150 tonnum
togaranum ögra.
DAUÐASLYS
Nokkur slysaalda hefur gengið
yfir hér á landi að undanförnu. 1
Sveinn og Jónas eiga nú hlutinn í
Blaðaprenti, sem Vísir réð áður
fyrradag lést 65 ára gamall
maður, Þorbjörn Jónsson til
heimilis að Skipasundi 42 i
Reykjavik.af völdum vinnuslyss
er skurðbakki hrundi yfir hann
þar sem hann var að vinna við
skurö við Kleppsveg i Revkjavik.
Fyrir nokkrum dögum beið
ungur maður bana i umferðar-
slysi á Dalvik,og um siðustu helgi
beið bóndi i Axarfirði bana er
dráttarvél sem han ók valt: og um
siðustu helgi fannst ungur maður
látinn i sundlaug Kópavogs.
íslenskir aðalverktakar:
Viðurkenna
lekann
en segjast hafa komist fyrir hann
Eins og skýrt var frá i Þjóð-
viljanum i gær, haida starfs-
menn i Ilvalstöðinni i Hvalfirði
þvi fram að einn NATO-oliu-
tankurinn i Ilvalfirði leki og að
oiiusmit sjáist i læk sem tekur
við jarðvatni frá tönkunum og
eins að oliusmit sé i fjörunni.
Við höfðum i gær samband við
Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra íslenskra aðal-
verktaka, en það fyrirtæki
byggði tankana og ber ábyrgð á
þeim gagnvart NATO. Gunnar
sagði það rétt vera að vart hefði
orðið við oliuleka þarna fyrir
um það bil mánuði siðan, en
taldi hann hafa stafað af bilun á
leiðslu, en ekki að takurinn leki.
Sagði Gunnar að búið væri að
gera við leiðsluna.
Hann taldi að einungis fáir
litrar af oliu hefðu farið niður og
hefði olian farið i sandþró, sem
er til þess að taka við oliu af
óhöpp ber að.
Þessi fullyrðing Gunnars
stangast á við það sem starfs-
menn i Hvalfirði segja, en þeir
halda þvi fram að lekinn sé úr
einum tanknum og ekki bara
það, heldur einnig að olia leki
enn i lækinn og fjöruna.
Það vekur nokkra athygli i
þessu sambandi að Islenskir
aðalverktakar virðast ekki hafa
tilkynnt þennan oliuleka til yfir-
valda. I það minnsta kannaðist
siglingamálastofnunin ekki við
að hafa um hann heyrt og ekki
heldur varnarmáladeild. Hins-
vegar sagði Hjálmar Bárðarson
siglingamálastjóri að hann
myndi láta kanna málið og
verður fróðlegt að heyra um
árangur þeirrar athugunar.
—S.dór
DJúaviuiNN
Nýtt síðdegisblað kemur út 1. september
Jónas rekinn— Sveinn segir upp
Nýtt síðdegisblað kemur
væntanlega út 1. septem-
ber i beinni samkeppni við
Vísi. Jónasi Kristjánssyni
hefur verið sagt upp störf-
um á Vísi þrátt fyrir að
hann hafi tilkynnt
ákvörðun sína um að verða
við áskorun aðalfundar
Reykjaprents h.f. um að
haldaáfram störfum. Jón-
asogSveinnR. Eyjólfsson,
sem hefur sagt upp sem
f ramkvæmdastjóri Vísis,
ráða Járnsíðu h.f., og hafa
keypt af félaginu fyrir
eigin reikning hlutabréf
þess i Blaðaprenti. Járn-
síða hefur yfir að ráða
húsnæði Vísis á ef ri hæð að
Síðumúla 14, og telur sig
einnig hafa umráð yfir rit-
stjórnarfólki og
dreifingarkerf i Vísis. Eins
og málin standa virðist
gamli Visir, og þeir sem að
honum standa, eiga í vök
að verjast, en ekki er að
vita hvað gerist næst í
þessari baráttu þrýstihópa
Sjálf stæðisf lokksins um
blaðaútgáf una.
Sjá 3. siðu.
Alþýðu-
banda-
lagið,
miðstjórn
Alþýðubandalagið
heldur miðstjórnarfund
að Grettisgötu 3
mánudagskvöldið 11.
ágúst, kl. 8:30.