Þjóðviljinn - 07.08.1975, Blaðsíða 12
Bretar að kikna,
undan hitabylgju
Fimmtudagur 7. ágúst 1975
Menn farast
í rigningum
TOKYO 6/8 — Tuttugu menn biðu
bana og 50 særðust i miklum rign-
ingum i Aomori-sýslu i norður-
hluta Japans i dag, að sögn lög-
reglunnar þar. Bæði lögreglan og
sjálfsvarnarsveitir hafa verið að
björgunarstarfi i fjallaþorpinu
Momosawa. Þar eyðilögðu flóð 20
hús og létu 17 menn lifið. Fregnir
hafa borist af miklum rigningum
i öðrum héruðum Japans og eru
samgöngur viða rofnar.
Búist við skœru-
liðum til Líbýu
KUALA LUMPUR 6/8 — Tun Ab-
dul Razak, forsætisráðherra
Malasiu, sagði i kvöld, að
japönsku skæruliðarnir sem biða
nú á flugvellinum með gisla sina,
myndu leggja af stað til Libýu i
fyrramálið og myndi þá gislum
þeirra fimmtán verða sleppt.
Forsætisráðherrann sagði að
skæruliðarnir, sem kalla sig liðs-
menn úr Rauða hernum, myndu
leggja af stað kl. átta i fyrramálið
að staðartima (rétt fyrir miðnætti
i kvöld að isl. tima), en gislunum
myndi siðan verða sleppt i fjórum
áföngum. Hann sagði að tveir
embættismenn frá Malasiu og
tveir japanskir sendiráðsmenn
myndu fara með skæruliðunum i
flugvélinni.
Fyrr i dag höfðu menn leitað
fyrir sér hvaða riki vildi taka við
skæruliðunum og var að lokum
tilkynnt að Libýumenn hefðu
fallist á að veita þeim hæli.
Skæruliðarnir eru nú tiu að tölu,
þvi að til viðbótar við þá fimm
sem tóku gislana i upphafi hafa
fimm verið látnir lausir úr
japönskum fangelsum sð beiðni
þeirra og hefur verið flogið með
þá til Kuala Lumpur.
Herlið sent til
Norður-Portúgals
Bretar vilja
hefja samninga-
viðrœður fljótt
LONDON 6/8 — Bretar
hafa tilkynnt íslending-
um að samningaviðræður
um fiskveiðar breta við
íslandsstrendur þyrf tu að
hefjast tímanlega.
bað var Roy Hattersley,
varautanrikisráðherra, sem
skýrði breska þinginu frá þessu
i dag, þegar hann svaraði
spurningum um ákvörðun
islendinga að færa fiskveiðilög-
söguna út i 200 sjómilur. Hann
lofaði þvi að bretar myndu
ganga að samningaviðræðunum
„eins harðir og ákveðnir og þeir
gætu verið”, og myndu minna
islendinga á að þeir hefðu hag
af þvi að komast aðmálamiðlun.
Hann sagði að það kæmi ekki
til mála að halda að sér höndun-
um, en það kæmi heldur ekki til
mála að bretar færðu land-
helgina einhliða út i 200 milur.
Hattersley taldi að rikisstjórn
tslands „viðurkenndi að bretar
hefðu sérstaka nauðsyn á þvi
að stunda fiskveiðar við
tslandsstrendur”.
N orðurlandaráð:
Forsœtisnefnd-
in á Húsavik
LONDON 6/8—Það liggur við að
bretar séu nú að kikna undan
þeirri miklu hitabylgju sem hefur
gengið yfir Bretland að undan-
förnu og reyndar meginlandi
Evrópu Ifka. Lögreglan I London
hefur jafnvel fengið leyfi til að
taka ofan bindi og hneppa
skyrtunum frá i hálsmálinu, og er
það einsdæmi. Sömuleiðis hafa
bisnismenn höfuðborgarinnar af-
lagt sinn sérstaka klæðnað og
tekið upp léttari sumarföt þótt
þeir haldi bindinu.
En blaðamenn sem ráðleggja
lesendum i persónulegum vanda-
málum hafa tekið eftir þvi að
bréfum þar sem talað er um
þunglyndi og kviða hefur mjög
farið fjölgandi og kenna þeir hit-
unum um það.
OAKLANP, Kaliforniu 6/8 — Sex-
tán ára gömul stúlka að nafni
Linda Salcedo hefur höfðað mál
gegn stjórnendum fegurðarsam-
keppni og krafist 500.000 dollara i
skaðabætur vegna þess að þeir
hafa bannað henni að sýna hæfni
sina i karate i samkeppninni.
Sögðu þeir að það væri ekki kven-
lcg íþrótt.
Linda Salcedo hefur lagt stund
á karate i átta ár. Hún átti að taka
þátt i fegurðarsamkeppni Kali-
Lundúnastúlkur hafa einnig
fækkað klæðum og hafa ýnsir
látið i ljós áhyggjur yfir þvi að
það kunni að hafa i för með sér að
„englendingar verði villtir og
bóðheitir eins og ibúar
Miðjarðarhafslandanna.”
Einu mennirnir sem ekkert
hafa látið hitann hafa áhrif á sig
eru lifverðir drottningarinnar,
sem ganga stöðugt i ullarfötum
með þungum bjarnarskinnshúf-
um.
En margir hafa áhyggjur af þvi
að þessi veðrátta kunni að fara
illa með breskan landbúnað, og
telja ýmsir heimildarmenn að
landbúnaðarframleiðslan i vetur
kunni að minnka um tiu af
hundraði. Jafnvel er búist við
skorti ámjólk og smjöri i janúar.
forniurikis, sem fram fer i næsta
mánuði, eftir að hún vann sigur i
fegurðarsamkeppni i San-
Francisco i júni. Þar kom hún
dómurum og áhorfendum mjög á
óvart með þvi að brjóta viðar-
drumba með berum höndum og
reka upp geigvænlegt öskur um
leið. En stjórnendur keppninnar i
Kaliforniuriki sögðu henni, að
hún fengi ekki að leika sama leik-
inn i þeirri fegurðarsamkeppni,
þar sem það væri „ókvenlegt”.
LISSABON 6/8 — Lið
vinstri sinnaðra hermanna
úr sjóhernum hefur verið
sent til norðurhluta
Portúgals til að reyna að
skakka leikinn þar, en
undanfarna daga hafa
geisað þar miklar óeirðir
og hafa andstæðingar
kommúnista ráðist inn í
skrifstofur kommúnista-
flokksins og íbúðir flokks-
manna í ýmsum borgum
og brotið þar allt og braml-
að.
Talsmenn hersins i borginni
Oporto i Norður Portúgal sögðu
að hermennirnir hefðu verið
sendir til þessara héraða til að
binda endi á stjórnleysið sem þar
rikti. Telja sumir fréttaskýrend-
ur að þeir hermenn sem venju-
lega eru staðsettir á þessum slóð-
um hafi látið undan þeirri andúð á
kommúnistum sem þar rikir og
þvi ekkert gert til að stöðva óeirð-
irnar. Nýtt herlið kom til
Famalicao og Santo Tirso i dag,
en i báðum þessum borgum var
ráðist á bækistöðvar kommúnista
i gær.
Kommúnistar hafa gefið út
harðorða tilkynningu þar sem
þeir ásaka herinn fyrir að draga
úr virðingu manna fyrir hernum
með þvi að láta stöðugt undan
óeirðaseggjunum.
Andúðin á kommúnistum hefur
nú breiðst út til Asor-eyja, og
herma fregnir þaðan að „óþekkt-
ir” menn hafi kveikt i aðalstöðv-
um flokks sem styður
kommúnista að málum. Eyja-
skeggjar sem voru óánægðir með
skrif vinstri sinnaðra blaða um
málefni þeirra, þar sem þeir voru
kallaðir „afturhaldsmenn”, og
hindruðu þeir alla dreifingu blaða
frá meginlandinu i dag.
Forsætisnefnd Norðurlanda-
ráðs kemur saman til fundar á
Húsavik dagana 8.-9. ágúst n.k.
Er þetta i fyrsta sinn, sem for-
sætisnefndin kemur saman hér á
landi utan Reykjavikur.
Forsætisnefndin mun á fundum
sinum á Húsavik taka endanlega
afstö'ðu til þess hvort boðað skuli
til aukafundar Norðurlandaráðs i
nóvember vegna væntanlegrar
stofnunar f járfestingarbanka
lýorðurlanda.-'Þá mun forsætis-
nefndin ræða samstarf aðila
vinnumarkaðarins við Norður-
landaráð og norrænu ráð-
herranefndina. Þá er á dagskrá
fundarins tillaga forseta ráðsins
um frumkvæði þess til að auka
samskipti kjósenda og stjórn-
malamanna i lýðræðisþjóðfélagi.
Á laugardag munu fundarmenn
ferðast um Norðurland.
Forseti Norðurlandaráðs er
Ragnhildur Helgadóttir, en aðrir i
forsætisnefndinni eru Knud
Enggaard, Danmörku, V.J.
Sukselainen, Finnlandi, Odvar
Nordli, Noregi, og Johannes
Antonsson, Sviþjóð.
450 miljónir kostar
nýja Landhelgisvélin
Yfirlýsing
vegna orðróms
Lögreglustjórinná Kefla-
vikurflugvelli hefur óskað birt-
ingar á svohljóðandi yfirlýs-
ingu:
„Að gefnu tilefni vegna
itrekaðra fyrirspurna um þann
orðróm, að löggæsla eða toll-
gæsla á Keflavikurflugvelli hafi
haft afskipti af islenskum ferða-
manni við komu til landsins um
Keflavikurflugvöll vegna ólög-
legs flutnings á erlendum gjald-
eyri til landsins, þykir rétt að
taka fram, að atvik það, er fyrr-
greindur orðrómur fjallar um,
hefur ekki átt sér stað á Kefla-
vikurflugvelli.”
Er karate
„ókvenlegt99 ?
Tillaga stjórnskipaðrar nefndar var um aðra flugvélagerð
Gera má ráð fyrir að í
þessari viku verði fest
kaup á nýrri flugvél til
landhelgisgæslustarfa.
Eru allar líkur á að þar
verði um Fokker-f lugvél
að ræða og þá trúlega glæ-
nýja vél sem kostar um 450
miljónir króna. Þessi
ákvörðun ráðuneytisins
kemur nokkuð á óvart ef
miðertekiðaf nefndaráliti
sem lagt var fyrir ráð-
herra einum eða tveim
dögum EFTIR að ákvörð-
unin var tekin. Að því er
Þjóðviljinn hefur fregnað
var þar lagt til að keypt
yrði Beechcraft vél fyrir
ca. 115 miljónir. Nefnd
þessi hefur starfað í rúmt
ár en ekki er að sjá að álit
hennar sé í hávegum haft í
þessu tilfelli.
Þegar haft var samband við
Jón. E. Böðvarsson, formann
nefndarinnar, vildi hann sem
minnst um málið segja. Þó fékkst
staðfest, að nefndin hefði verið
skipuð á siðasta sumri af þáver-
andi vinstri stjórn og verksvið
hennar væri m.a. að leggja fram
tillögur um flugvélakaup fyrir
Landhelgisgæslúna. Um innihald
þeirrar áfangaskýrslu sem lögð
var fyrir ráðherra rétt eftir að á-
kvörðunin um Fokker-kaupin var
tekin, vildi Jón ekki tjá sig að svo
stöddu, málið væri trúnaðarmál
þar til ráðherra tæki ákvörðun
um annað. Þjóðviljinn hefur þó
frétt, að Fokker-kaupin stangist
verulega á við nefndarálitið, og er
raunar furðulegt að ákvörðun
skuli tekin i svona stóru máli áður
en sérstaklega skipuð nefnd skil-
ar áliti sinu.
Einn af nefndarmönnum er
Pétur Sigurðsson forstjóri Land-
helgisgæslunnar og mun hann
ekki hafa gert athugasemdir við
Fokker-kaupin þótt allt annað
væri lagt til i nefndarálitinu. —
gsp
Blaðberar
Þjóðviljinn óskar
eftir blaðberum i eft-
irtalin hverfi:
Akurgerði
Þjóðviljinn
Simi 17500