Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 5

Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 5
Sunnudagur 10. ágúst 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Tito: Ég á skammt eftir.en ég geri hvað ég get. Júgóslavía má ekki verða samfélag ríkra og fátækra Þinghiísið i Belgrad. líining rikisins var i hættu og skammt liðið frá hjaðningavfgum. Tilraunaland. Jógóslavia hefur undir stjórn Titos verið eitt af þeim samfélög- um, sem mest hefur lagt stund á þjóðfélagslegar tilraunir. Júgóslavia hefur eftir strið geng- ið i gegn um nokkur þróunarstig. Fram til 1950 var stilað á sósialisma undir sterku rikis- og miðstjórnarvaldi að sovéskri fyrirmynd. Þá hefst þróunarskeið verkamannaráða i fyrirtækjum, en þau fara þó enn með takmörk uð völd. Með breytingunum á- efnahagskerfinu 1965 hefst þriðja þróunarskeiðið, sem einkennist af þvi, að miðstjórnarvald rikisins er brotið niður með róttækum hætti og um leið hefst öflug og rót tæk pólitisk kappræða sem ein- kennist af stórum sveiflum og miklum margbreytileik. En eftir 1970 tekur Tito upp baráttu gegn þessum hliðum þessarar þróunar og hefur sigur, sem staðfestur er á flokksþingi 1974 og með nýrri stjórnarskrá. Viða hefur verið talað um það, að þessi fjórði áfangi og sigur Titos tákni afturhvarf til aukins flokksræðis allt að þvi i stalinska átt: strangari agi, meira mið- stjórnarvald. 1 greinarflokki eftir Gert Petersen, formann Sósialiska alþýðuflokksins danska, sem lengi hefur fylgst náið með Júgoslaviu er reynt að svara þeirri spurningu , hvað hinn fjórði áfangi táknar. Hann neitar þvi reyndar strax, að Júgóslavia sé að verða „lokað” land i menn- ingarlegu eða pólitisku tilliti. Hann tekur þar dæmi af bóka- og blaðavaldi — en gleymir þvi held- ur ekki, að vinstrisinnuðum pró- fessorum (Praxishópurinn) hefur verið vikið úr starfi, og að á hinn kantinn hefur verið þaggað niður i króatiskum aðskilnaðarsinnum. Athugun Gerts Petersens verður rakin i stórum dráttum hér á eftir og i næsta sunnudagsblaði. Nauðsyn valddreifingar. Það sem gerst hefur á siöustu árum i Júgóslaviu verður best skilið ef menn halda sig að þeim rauða þræði, sem einkennir alla þróun Júgóslaviu: sjálfstjórnar- sósialisma (samoupravni socij- alizm á serbnesku). Kenningin að baki þessa hug- taks er sú, að firring manns og starfsmanna i starfi, verði þvi aðeins yfirbuguð að þeir sem framleiða stjórni sjálfir fram- leiðslu, dreifingu og hafi eftirlit með skiptingu verðmæta þeirra sem skapast. Firringin er stöðug hætta (einnig undir sósialisma), þvi að hinir ýmsu stjórendur munu ávalt reyna að koma und ir sig fótum sem „yfirmenn”, „úthlutunarstjórar” osfrv. Þvi verður að dreifa valdi i samfélaginu, færa ákvarðanir sem mest „niður á við”, til þeirra sem verðmætin skapa. Þetta er sú kenning sem júgóslavara hafa glímt við siðan um 1950 og safnað jákvæðri og neikvæðri reynslu, sem hefur ráðið þvi hvernig þró- unin skiptist i áfanga. Á árunum eftir 1950 viður kenndu menn að rikisvaldið hefði mjög takmarkað starf verka- mannaráðanna.Með þvi að sterkt rikisvald var bæði einkenni hinnar sovésku fvrirmyndar, sem hafnað hafði verið, og vegna þess að Marx og Lenin leggja i fræðum sinum mikla áherslu á að „rikið deyi út”, þá var nærtækt fyrir júgóslavneska kommúnista að tengja þróun verkamannaráð- anna baráttu fyrir niðurskurði á verkefnum rikisins. Þetta mótaði og flokksstefnuskrána frá 1958, sem vakti meðal annars óánægju sovéska kommúnistaflokksins, sem taldi þar mjög vikið frá fræð- um réttum. Júgóslavar voru heldur ekki allir á einu máli. Maður eins og Djilas vildi um 1950 stefna á vestrænt flokkakerfi, en menn eins og Rankovic héldu tiu árum siðar fast við miðstjórnar- kerfið. Báðir biðu ósigur. Nokkru fyrir 1960 var svo hafist handa um róttækan niðurskurð á afskiptum rikisvaldsins, einkum af efnahagsmálum. Fjár- festingarsjóðir rikisins voru lagð- ir niöur, aðeins var eftir skilinn samjúgóslavneskur sjóður til að jafna þróun i einstökum lýðveld- um. Júgóslavia varð samfélag án kapitalista, en þar rik-ti frjáls markaðsbúskapur, seip aðeins var takmarkaður af vissum opin- berum afskiptúm af verðmyndun — en slik afskipti þekkjast einnig á vesturlöndum. Atvinnuleysi og misrétti. Það var á þessum tima sem júgóslavenskir farandvérkamenn héldu i stórum stil 't-il Vestur- -Evrópu. Afnám rikisfjá.rfest- ingar og heildaráætlana og upp- taka markaðskerfis . þýddi, að fyrirtæki, sem stóðu höílum fæti i samkeppni, gáfus't upp' og þau sem vildu lifa af urðu að taka mið af ágóða af rekstri fýrst og fremst. Þetta leiddi til vélvæðing- ar, hagræðingar og meiri fram- leiðsluaukningar en þekktist þá annarsstaðar i Austur-Evrópu. En þetta kostaði einnig verulegt atvinnuleysi (og þá landflótta) og félagslegt misrétti. Vinnubrögðin við þessu á Vesturlöndum voru misjöfn. Þeir sem leggja áherslu á persónulegt frelsi eitt saman töldu þetta mjög jákvæða þróun. Frjálsar umræð- ur þróuðust i þeim mæli sem áður varóþekktur um austanverða álf- FYRRI GREIN una. Verkalýðsfélögin voru rót- tæk i orði og verki. Verkföll urðu viðurkenndur hluti kerfisins. 1 menningarumræðu og pólitik blómstruðu allar jurtir, einnig þær sem sumir teldu eitraðar. Rýrnun rikisafskipta fylgdu og þverrandi umsvif flokksins, Kommúnistasambands Gúgóslaviu. Strlðsyfirlýsing Titos. Það sem siðast var nefnt var tengt þvi, að ólikir straumar tókust á innan flokksins. Allt frá Praxishópnum lengst til vinstri, sem vildi afnema markaðskerfið og koma á róttækri tekjujöfnun, til flokksforystunnar i Króatiu. sem fannst óeðlilegt að peningar króata (sem hafa júgóslava mest grætt t.d. á ferðamannastraumi, þvi strandlengjan er mestöll króatisk) færu til að lyfta undir hin snauðari héruð Suður-Júgó- slaviu (t.d. Makedóniu). Og enn önnur viðhorf hafði serbneska flokksforystan, sem taldi að enn léngra ætti að ganga á braut markaðsbúskapar til að flýta fyrir velmegun landsmanna. Á hinn bóginn gerðist ýmislegt, sem varð til þess að vestrænir sósialistar, sem hafa ekki hvað sist hugann við félagslegt réttlæti og manneskjulegar aðstæður á vinnustað, glötuðu nokkru af áhuganum á hinni júgósiavnesku tilraun. Þessi sömu fyrirbæri gerðu og Tito gramt i geði. 1 frægu viðtali við blaðið Vjesnik 7. okt 1972 sagði hann á þá leið, að hann væri orðinn þreyttur á ástandinu, og hefði ákveðið að einbeita sér að þvi að breyta þvi, enda hefði hann ekki mikinn tima til umráða. Þetta var striðsyfirlýsing, en Tito hafði þá þegar hafist handa. Það sem helst var tekið eftir á Yesturlönd- um var það, að Tito sagði ,.,að við höfum gefið lýðræði of mikið svigrúm áður en vegurinn til lýð- ræðis hafði veriö ruddur”. Kreppan i Króatiu. Hverju reiddist Tito? Fyrst og fremst var ævistarf hans i hættu. „Bræðralag og ein- ing” Júgóslaviu — algjör for- senda þess að Júgóslavia gæti lif- að af i heimi, þar sem ýmsir úlfar ganga enn lausir — þessi eining var i hættu vegna króatiskra þjóðernissinna, sem i ræðu og riti kröfðust séraðildar Króatiu að S.Þ., eigin hers og minnkandi framlags til smeiginlegra mála. Um leið myrtu fasiskir útlagar úr Ústasjasamtökunum júgó- slavenska sendimenn erlendis og ráku áróður meðal farandverka- manna fyrir „frjálsri Króatiu”. Menn mega ekki gleyma þvi, að i heimsstyrjöldinni siðari stofn- setti þýska hernámsliðið króatiskt leppriki og hófust þar fjöldamorð á serbum og svo hjaðningavig. Það var mikið átak að sameina þessar þjóðir (sem reyndar tala sama mál, serbó:króatisku) og striðsöxin er ekki djúpt grafin. Að visu kom ekki til boðaðs allsherjarverkfalls i höfuðborg Króatiu, Zagreb, og mátti það verða Titó huggun. En flokksfor- ystan i Króatiu var mjög á báðum áttum i þessu gjörningaveðri þjóðernissinna. Titó hlaut að hugsa sem svo: Ég á skammt eft- ir — hvað gerist þá? Menningarbylting. Onnur helsta ástæðan fyrir reiði Titos var vaxandi misrétti i skiptingu lifsgæða. 1 viðtalinu við Vjesnik, sagði hann, að sig tæki sárt til þess, við hve bág kjör lág- launafjölskyldur byggju, meðan aðrir rökuðu saman fé. t ræðu i Prijedosama ár sagði hann m.a.: „Hvernig getur það átt sér stað, að sumir menn geta orðið svo rik- ir, að þeir byggja sér villur við ströndina og leigja út og geta komist yfir tvo eða þrjá bila? Hafa þessir júgóslavensku miljónamæringar komist yfir fé sitt með heiðarlegum hætti? Með starfi sinu? Við leyfum ekki að samfélag okkar breytist i sam- félag rikra og fátækra”. Með þessum beisku ummælum fór Tito árið 1972 um borgir og þorp og safnaði liði hjá verkafólki til flokksdeilu sem ekki var vitað hvernig færi, en hefði vel getað minnt á menningarbyltingu á allt öðrum slóðum. Baráttunni lauk með sigri Titos og miklum breyt- ingum á júgóslavneskri þjóð félagsgerð. Forsendum þessara breytinga er lýst i itarlegri greinargerð, sem iögö var fyrir flokksþingið 1974. Hlutverk flokksins. Þar er lögð áhersla á að menn skuli halda áfram við niðurskurð á rikisverkefnum, en að það sé ekki nóg. Þvi að auðsöfnun á sér stað undir öllum kringumstæð- um, og ef rikið safnar ekki fjár- magni, þá gera það sérstakar stofnanir: bankar, trygginga- félög, utanrikisverslurtarsam- steypur osfrv. Og þá taka þessar stofnanir sér það vald, sem kapitalistar höfðu áður og siðar hið sósialiska riki, vald yfir framleiðslu samfélags- ins. Þá verða forstjórar þeirra „stjórnendur" i staðinn fyrir skriffinna rikis og flokks, sem fóru með vald þetta á fyrsta skeiði byltingarinnar. Ekki nóg með það. Leiðtogar fjármögnunarstofnana munu af félagslegum ástæðum og hefð telja sig hafa sömu hagsmuna að gæta og forystumenn stórra fyrir- tækja (enda þótt siðarnefndir hafi verið skipaðir af verkamanna- ráðunum).Með öðrum orðum: til verður forstjórahópur, sem tekur sér vald yfir starfi manna og reynir að taka sem mest til sin af virðisaukanum. Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.