Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. ágúst 1975.
Vagn Lundbye gestur
Norræna hússins
Hefö og
endurnýjun
og hugsun
indjána
Miðvikudaginn 13. ágúst
kl. 20.30 heldur Vagn Lund-
bye fyrirlestur í Norraqna
húsinu — gefst þá kostur á
að hitta einn af dugmestu
og eftirtektarverðustu höf-
undum danskra samtíðar-
bókmennta. Vagn Lundbye
hefur á síðari árum gefið
sérstakan gaum að vanda-
málum minnihlutaþióða —
grænlendinga, sama/ ind
jána. Það er fyrir sakir
þessara áhugamála, og svo
norræns ferðastyrks, að
hann heimsækir nú ísland.
Á miðvikudaginn mun
hann segja frá menningu
og pólitískri frelsisbaráttu
indjána Norður-Ameriku
og sýna stutta kvikmynd
sem hann hefur gert um
rithöfundinn Albert Dam.
Þjóð í háska
Vagn Lundbye hefur kynnst
kjörum indjána af eigin raun og
lýst þvi sem fyrir hann hefur
borið á ferðum hans i bókinni
„Pen indianske tanke” (1974).
Indjánar i Norður-Ameríku eiga
útrýmingu yfir höfði, og niá vel
bera sainan stöðu þcirra og eski-
móa og sama. Indjánar búa á
litlum, ófrjósömum og af-
skekktum héruðum í Banda
rikjunum, sem stjórnvöld þar
liafa úthlutað þeim sem
„verndarsvæðum”. En indjánar
reyna á sjálfum sér vandamál
Bandarikja samtimans: þeir eru
fátækir, heilsufar þeirra er
slæmt, iðnvæðing leiðir yfir
verndarsvæði þeirra mengun og
eyðingu náttúrunnar.
Siðan meirihluta indjána
Norður-Ameriku var útrýmt með
grimmdarlegum hætti, hefur
þessi þjóð verið hin vonda sam-
viska opinberra aðila þar i landi,
og mikil orka hefur verið i það
lögð að leysa „indjánavanda-
málið”. Menn hafa sent á vett-
vang trúboða, boðið hefur verið
upp á möguleika til menntunar,
menn hafa reynt að draga ind-
jána inn i iðnvæðinguna, en allt
hefur þetta borið rýran árangur.
Indjánarnir hafa þekkt óvin sinn,
og beitt tregðuandófi gegn þvi að
innlimast i bandariskt samfélag.
Nú um stundir eru þvi til
tvennskonar indjánar. Annars-
vegar eru þeir sem hafa tileinkað
sér bandariska siði og hafa látið
USA gleypa sig! Á hina hlið
finnum við indjána sem halda
trúnað við fornar hefðir og ætta-
samfélagið. Vegna þess yfirgangs
og þeirrar þróunar,sem ógnar
sjálfri tilveru indjána, hafa þeir
indjánar þróast til róttækni sem
trúnað halda við fornar hefðir.
Þeir hafa bundist samtökum með
AIM (American Indian Move-
rhent) og látið til sin taka meðal
annars með þvi að taka á sitt vald
fangaeyna Alcatraz og hið sögu-
fræga pláss Wounded Knee.
örlæti og harka
Styrkur indjánanna i baráttu
gegn bandariskri kúgun hefur
fyrst og fremst komið fram i
samheldni þeirra.sem menn hafa
af bandariskri hálfu reynt að
brjóta niður með öllum ráðum.
Indjánar sækja einnig styrk i
sjálfan hinn indjánska hugsunar-
hátt, sem er samofinn menn-
ingarerfð þeirra. Það er einkum
þessi hugsunarháttur sem Vagn
Lundbye vill reyna að gera grein
fyrir i fyrirlestri sinum.
1 bókinni „Den indianske
tanke” spyr Vagn Lundbye á
einum stað ungan indjána úr
AIM, hver hún sé þessi indjánska
hugsun. „Hún er liklega of einföld
til að hvitir menn geli skilið hana,
svaraði hann. Ilin indjánska
hugsun þýðir blátt áfram að lifa
með náttúrunni. Að menn taka
ekki meira frá henni en þeir geta
skilað henni aftur '. t lifnaðar-
háttum indjána kemur samræmið
við náttúruna fram i vixl-
verkunum gjafmildi og grimmd-
ar, i diaiektik sém hvitum
mönnum hefur oft reynst erfitt að
skilja, en þeir hafa einatl notfært
sérgrimmd indjána sem átvllu lil
að drepa þá um leið og þeir
hafa látið sér sjást yfir það. að
grimmdinni var ávallt haldið i
jafnvægi við örlæti.
Hinir róttæku telja, að hin
indjánska hugsun hljóti i dag að
felast i senn i baráttu gegn kúgun
og viðhaldi gamalla hefða.
Hvorttveggja er nauðsynlegt ef
takast á að standa á sporði hinum
ameriska risa.
Ferill
Sem fyrr segir er það forsenda
þess að Vagn Lundbye getur lýst
menningu og frelsisbaráttu
indjána að hann hefur ferðast um
lönd þeirra og kynnt sér hefðir
þeirra. En segja má, að það liggi
greinilegur rauður þráður frá
fyrri verkum hans og til bókanna
„Her ligger min yucca frugt”
(smásagnaflokkur um menningu
og sögu indjána sem kom út árið
1972) og svo til „Den indianske
tanke”.
Vagn Lundbye er fæddur árið
1933 og hefur hlotið kennara-
menntun. Hann hóf ritferil sinn
árið 1964 og hefur lifað af rit-
störfum siðan 1967 Hann hefur
unnið á mörgum sviðum —
skrifað skáldsögur og textasöfn,
einnig gert kvikmyndir og út-
varpsleikrit. Höfundskapur hans
tilheyrir hinni ungu kynslóð frá
siðasta áratug, sem sótti inn-
blástur bæði til beat-tónlistar,
nýrra vimugjafa, og til tilveru-
heimspeki, marxisma, nútima
málvisinda.
Vagn Lundbye: vandamál minnihlutaþjóða
Kachinugrfmur — en kachinar eru sendiboðar guða til manna meðal
hopiindjána. Myndin er úr bók Vagns um „Hina indjánsku hugsun
Sfða úr bókinni um þjóðaratkyæðagreiðsluna um EBE: aÞhverju trufla
myndirnar textann? ,
I fyrstu þrem bókum sinum,
skáldsögunum „Signalement”
(1966), „Mörkespil” (1967) og
„Roman” (1968) vann hann fyrst
og fremst að sjálfu skáldsögu-
forminu. Bækurnar eru ekki með
sama hætti i innra samhengi sem
hefðbundnar skáldsögur eru i
tima og rúmi Þeirra samhengi er
fyrst og fremst tengt formi
málsins, sem visar á mynd sögu-
manns. En frásögnin er einatt
tviræð, felur i sér marga mis-
jafna athafnamöguleika. Það er
þvi viðfangsefni lesandans að
skapa samhengi, röð og reglu,
þar sem textinn sýnist ekki hafa
upp á slikt að bjóða. Best hefur
þessi tækni heppnast i „Roman”
— atburðarlausri lýsingu á tveim
mönnum, sem flytja nautgripi, og
konu i issjoppu úti i skógi. Bók
sem smám saman þróast til
dauðasýnar með heims-litamynd-
um og ofbeldishrolli.
Dauðinn og
samkenndin
Dauðinn er lika það sam-
einandi þema i næstu bók Vagns
Lundbyes, „Nico” (1969), sem er
um leið sú bók hans sem er sist
bundin hefð, að minnsta kosti að
þvi er varðar uppbyggingu:
tvisvar i bókinni er sama ljós-
myndin af beatsöngkonunni Nico
sem hringsól umhverfis dauðann,
og fegurð hennar og fegurð tón-
listarinnar verður honum fegurð
tortimingarinnar. Textar bókar-
innar lýsa einnig skyndireynslu
af fegurð, sem er oftast tengd við
ofbeldi eða dauða. Og þó ris af
bókinni draumur Nico um mann-
legt samfélag og nýtt mennskt
tungutak.
Draumurinn um samfélag,
bræðralag, sem við rikjandi að-
stæður verður byltingarhug-
mynd, er sú hugsjón sem mestu
ræður innan hóps pólitiskra
hermdarverkamanna, sem koma
fram i skájdsögunni „Smukke
tabere” (1970). Sagan er lögð i
munn eins af meðlimum hópsins,
sem i fimmtiu dagbókafærslum
skýrir frá baráttu hópsins við
féndur utan hans sem innan.
Næstum þvi allur hópurinn fellur
i baráttunni (við rfkisstjórn og
her), en það tekst samt að fram-
kvæma áætiun lians: sprengju-
árás á atómorkuver. í rás við-
burða lifir hópurinn það, að hug-
sjón hans um samræmisfulian
samlcik manna rætist.
Albert Dam
Vagn Lundbye er með
hugsunarhætti sinum og tækni
dæmigerður fuiltrúi þeirrar kyn-
slóðar rithöfunda, sem skrifa
samtimis uppreisn æskunnar og
Vietnamstriðinu. En hann er
engu siður verndari hefða og
viðhaldsmaður. Þetta kemur
greinilega fram i bókum hans,
þar sem hann notar með ýmsurn
hætti málfar og áhrifabrögð frá
eldri höfundum. Þetta kemur
einnig greinilega fram i kvik-
mynd hans um Albert Dam, sem
sýnd verður að loknum fyrirlestr-
inum á miðvikudaginn kemur.
Albert Dam, sem fæddist árið
1880 og lést árið 1972, er einstakur
rithöfundur, meðal annars vegna
þess að hann vann sér ekki viður-
kenningu fyrr en hann var kom-
inn yfir fimmtugt. t reynd var það
kynslóð ungra rithöfunda á sjö-
unda áratugnum sem varð fyrst
til að uppgötva hann. Vettvangur
bóka hans er sveitin, eða um-
hverfi utan við timann, og það er
einkum tekið mið af þeirri
reynslu andartaksins sem tengist
við goðsögn og tilvistargrundvöll.
Merkilegast er samt málfar hans,
þar sem forneskjulegir og alþýð-
legir þættir blandast saman við
mjög persónulegan ljóðrænan
stil. Skyldleikinn við list Vagn
Lundbyes er augljós, og kvik-
myndin um Albert Dam sem hann
gerði 1969 má skoða sem yfir-
lýsingu um sambandið milli
hefðar og endurnýjunar, sem er
hliðstæða við það sem hann hefur
skrifað um hina nýju hreyfingu
indjána.
Á kosninganótt
Bókarkorn sem Vagn Lundbye
hefur sett saman um inngöngu
Framhald á 22. siðu.