Þjóðviljinn - 10.08.1975, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 10.08.1975, Qupperneq 9
Sunnudagur 10. ágúst 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Opinber stofnun i Reykjavik óskar að ráða stúlku til skrif- stofustarfa sem fyrst. Góð vélritunar- kunnátta nauðsynleg og kunnátta i ensku og norðurlandamáli. Mjög góð vinnuskilyrði. Umsóknir með upplýsingum um aldur menntun og fyrri störf óskast sendar afgreiðslu blaðsins merktar ,,1000” fyrir föstudaginn 20. ágúst n.k. Þó að það sé litið á síð- unni skuluð þið ekki ör- vænta, þetta eru bara af- leiðingar verslunarmanna- helgarínnar. I næsta blaði munu klásúlur vera 4 síður og efni er tilbúið i heilt blað þar að auki, en það efni er ekki timabært að birta strax, en i næsta blaði verður efni sem á eftir að endast (!?).Svo þið skuluð biða spennt. Frank Zappa tekur málin Frank Zappa og Mothers of Invention: 1966-1975 IILJÓMPLÖTUR MEÐ FRANK ZAPPA OG MOTHERS OF IN- VENTION Freak Out (Verve 2LP) 1966 Absolutcly Free (Verve) 1967 Lumpy Gravy (Verve) 1967 1967 VVe’re Only In It For The Money (Verve) 1967 Cruisin’ VVith Ruben And The Jets (Verve) 1968 Uncle Meat (Bizarre 2LP) 1968 Mothermania (Verve) 1969 Burnt Weenie Sandwich (Bizzare) 1970 Hot Rats (Bizarre) 1970) Weasels Ripped My Flesh Bizarre) 1970 Chunga’s Revenge (Bizarre) 1970 200 Motels (United Artists 2LP) 1971 Fillmore East June 1971 (Reprise) 1971 Just Another Band from LA (Reprise) 1972 Waka/Jawaka (Reprise) 1972 Grand Wazoo (Reprise) 1972 Overnite Sensation (Discreet) 1973 Apostrophe (Discreet) 1974 Roy And Elsewhere (Discreet) 1974 One Size Fits All (Discreet) 1975 auk fjöldans alls af plötum sem út hafa komið i Þýskalandi og Hollandi, sem er bara saman- safn af efni af þessum plötum sem hér um ræðir. Annars verð- ur vonandi grein um Zappa og hljómsveitirnar hans einhvern timan á næstunni. P.S. Það var einn lesandi, sem óskaði bæði eftir Chicago greininni og plötulistanum hans Zappa, segið svo aö það sé ekki allt látið eftir ykkur! (Reyndar er það nú hluti af hlutverki minu). Chicago var stofnuð árið 1968 af fjögurra manna ,,soul'' hljómsveit, sem í voru Robert Lamm, hljóm- borð: Peter Cetera, bassa: Terry Kath, gítar: og Daniel Seraphine, trommur, ásamt Lee Loughnane, trompet: James Pankow: básúnu og Walter Parazieder, önnur blásturshl jóðfæri. Á þessum árum var jazz-rock að ryðja sér braut inn á popp- markaðinn með Blood Sweat & Tears i broddi fylkingar. Þeir höfðu, áður en fyrsta platan kom út, spilað viðs vegar á vestur- strönd Bandarikjanna og hlotið gott umtal og nokkrar vinsældir. Það var nóg til þess að Jim Guercio (hann hafði stjórnað upptöku á „Blood Sweat &Tears”, plötunni sem á voru t.d. „Spinn- ing Wheel”, „You Make Me So Very Happy” o.fl.) fyrrum með- limur i Mothers of Invention og viðfrægur upptökustiórnandi. stjórnaði upptökunni á þessari fyrstu plötu Chicago, og hefur gert allar götur siðan, enda ágætur við slikt. Þessi fyrsta plata þeirra, sem hét „Chicago Transit Authority” kom út svo 69 og seldist strax nokkuð vel. „CTA” er tvimælalaust besta plata Chicago, á henni er t.d. „I ’m a man” reyndar Steve Win- wood lag) i frábærri útsetningu, nú og svo eru þarna „Beginn- ings”, „Does Anybody Know What Time R Is?” og „Listen” allt ágæt lög. Tónlistin er raunar nokkurskonar blús með jazz ivafi og hreinræktuðu rokki (Lamm). En strax á annari plötunni breyttu þeir svo yfir i Chicago- rokkið sem þeir eru þekktir fyrir. Á „Chicago II” eru góð lög, t.d. „Make Me Smile” og nokkur önnur. Þessi plata varð geysivin- sæl og „Make Me Smile” var spilað af öllum danshljóm- sveitum hér á landi. Næsta plata „Chicago III” seldist ekki siður, en „II”, en var lélegri (en það er vist enginn mælikvarði fyrir vinsældir.) Þeir hafa gert tilraunir siðan með að rifa sig út úr hnignuninni (músiklegu) en án árangurs. Góð tónlist, vinátta innan hljómsveitar og peningar eru það, sem heldur hljómsveit gang- andi. Ef eitthvað tvennt af þessu vantar hættir hljómsveitin eftir skamman tima, en ef eitthvað tvennt af þessu er til staðar heldur hljómsveitin oftast áfram og ef allt þrennt er til staðar getur hljómsveitin orðið langlif t.d. Rolling Stones og Who. t Chicago hafa þeir peningana og annað hvort hinna að þeirra áliti. Chicago, árið 1969 „Chicago V ” fjórða stúdió plata þeirra, hitlagið „Saturday in the Park” var á þeirri plötu. Lögin orði-all lik, ekkert nýtt, allt gert samkvæmt sömu formúlunni, og gekk að sjálfsögðu vel. En um getu þeirra sem hijóðværaleik- arar má samt ekki efast, blás- ararnir eru mjög góðir sérstak- lega Parazieder og Cetera er skemmtilegur basaleikari og Seraphine hefur alltaf verið einn af uppáhalds trommuleikurunum minum. ,73 kom svo út platan Chicago VI og skömmu siðar bættu þeir við áttunda manninum i hljóm- sveitina i kyrrþey, Laudir Soares De Oliverina sem leikur á slag- verk, en slikir hljómlistarmenn urðu mjög vinsælir eftir að San- tana varð vinsæl. Með honum hafa þeir gefið út tvær plötur „Chicago VII” og „Chicago VIII”, en á þeirri siðarnefndu er eitt mjög gott lag „Harry Truman” og annað vinsælt „Old Days”. Ef Chicago gera ekki einhverja stóra breytingu á næstu plötu hljóta þeir að fara að hætta. En fyrir alla muni verðið ykkur úti um „Chicago Transit Authority” hún á eftir að standast timans tönn betur en nokkur hinna. LP PLÖTUR CIIICAGO: Chicago Transit Authority (CBS LP) 1969 CHICAGO II (CBS 2LP) 1970 Chicago III (CBS 2LP) 1971 Chicago Livc At Carnegie Hall (CBS 4LP) 1972 Chicago V (CBS ÍLP) 1972 Chicago VI (CBS ÍLP) 1973 Chicago VII (CBS 2LP) 1974 Chicago VIII (CBS ÍLP) 1975 Alhliöa bifreiöaþjónusta Smurstöö — Hjólbarðaviðgerðir Allar stærðir af hjólbörðum Opið frá kl. 8 til 22 virka daga og 9 til 19 laugardaga og 13-19 sunnudaga smurstöð Höfn Hornafirði Sími 8392 plöturýni Trio AUKAATRIÐI frá BILDUDAL: /,Senjórinn" / Ráðskonan mín rjóð og feit" (Tal og Tónar TT 1100) Fyrir rúmum mánuði var gef- in út plata þessi með Trio Auka- atriði frá Bildudal. A bakhlið plötunnar stendur undir lögun- um H. Magnússon og J. Garð- arsson. Þar undir Ingvar Guð- jónsson bassa og Skúli Magnús- son trommur, frá hljómsveit- inni Fjarkar, lesi svo hver það sem hann vill út úr þessu, ég les ekkert! En ég mundi ekki láta birta mitt nafn á svona plötu, þvi allir aðstandendur mega skammast sin fyrir. Platan er verr upp tekin en nokkuð annað sem ég hef heyrt af islenskum markaði siðustu ár. Þar sem bæði upptaka og flutningur er svo mikil hrákasmið er ekki gott að dæma um það hvort hér séu á ferðinni góð lög en textarnir teljast nú vart meistaraverk. Vonandi sjá aðstandendur þetta og kippa plötunni af markaðn- um! Olesnar bækur á góöu veröi Eigum ætíð talsvert úrval af ólesnum og nýlega útgefnum bók- um á hagstæðu verði. Litið inn og gerið góð kaup. BÓKIN H.F. Skólavörðustíg 6 Sími 10680.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.