Þjóðviljinn - 17.08.1975, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. ágúst 1975
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaði:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
STJÓRNMÁLAÁHUGINN HEFUR FUNDIÐSÉRNÝJAN FARVEG
Að undanförnu hefur nokkuð verið skrif-
að i dagblöðin um starfsemi stjórnmála-
flokka og dvinandi áhuga almennings á
stjórnmálum. Jafnframt hefur stjórn-
málaritstjóri Timans lagt sig fram við að
reyna að sannfæra fólk um að nær enginn
munur sé að starfsháttum hægri og vinstri
stjórna. Hann hefur birt hverja greinina á
fætur annarri um það efni, og honum virð-
ist nú hafa tekist að sannfæra sjálfan sig
um, að engu máli skipti hvort hann styðji
hægri eða vinstri stjórn, hann fái hvorteð
er ekki ráðherrastól, jafnvel ekki þótt
hann gengi i hinn hægriflokkinn. En
tilraunir ritstjóranna við stjórnarmál-
gögnin til að breiða yfir andstæðurnar i
islenskum stjórnmálum og boðskapur
þeirra þess efnis að raunar séu stjórn-
málaflokkarnir, hverju nafni sem þeir
nefnast, svipaðir, aðeins munur á mann-
kostum og hvort þeir eru i stjórn eða
stjórnarandstöðu — þetta er aumt
yfirklór og i reynd hin sigilda aðferð
borgarapressunnar til að slæva stéttarvit-
und hins vinnandi fólks og breiða yfir sér-
hagsmunastefnu sinna eigin fésýslu-
manna er ráða ferðinni i Sjálfstæðis-
flokknum og hjá SlS-klikunni i Framsókn.
En á þá fullyrðingin um dvinandi stjórn-
málaáhuga rétt á sér?
Ef gerð væri úttekt á starfi stjórnmála-
flokkanna og áhuga almennings á stjórn-
málaumræðum, er ekki óliklegt að niður-
staðan yrði að áhugi almennings og þáft-
taka hefði farið minnkandi. En þá ber að
hafa i huga að stjórnmálabarátta fer ekki
aðeins fram i sölum alþingis, innan stjórn-
málaflokkanna eðai skrifum og umræðum
i fjölmiðlum. Stjórnmálavettvangurinn er
mun viðfemari. í stjórnmálum er tekist á
um hvernig hinum sameiginlegu auðæfum
samfélagsins er skipt milli þegnanna. í
þvi efni skiptir máli hver hefur áhrif og
völd til að móta ákvörðunartekt við slika
ráðstöfun þjóðartekna. í stjórnmálum
skiptir miklu, i hverra þágu er stjórnað.
Frá sjónarmiði vinstri manna skiptir
afstaðan til verkalýðshreyfingarinnar
mestu, þegar metið er í hverra þágu land-
inu er stjórnað. Á viðreisnarárunum varð
15% aukning kaupmáttar, en þjóðar-
tekjurnar jukust um 45%. í tið ^instri
stjórnarinnar hækkar kaupmáttur meðal-
timakaupsins um 30%, en þjóðartekjurnar
um 16%. Frá valdatöku hægri stjórnarinn-
ar hefur kaupmátturinn verið skertur um
20%, en þjóðartekjurnar eru taldar hafa
dregist saman um 5%. Þessar tölur sýna
áþreif anlega i hverju munurinn á hægri og
vinstri stjóm er fólginn. Það er aðeins
þegar Alþýðubandalagið er i stjórn að hin-
um sameiginlegu auðæfum samfélagsins
er skipt með hagsmuni verkalýðsstéttar-
innar fyrir augum og þá er stjórnað i þágu
hinna vinnandi stétta og lagður grundvöll-
ur að atvinnuöryggi. Á vettvangi utan-
rikis- og landhelgismála kemur munurinn
einnig glöggtfram. En stjórnmálaritstjóri
Timans, sem reynir að túlka . sjónarmið
milliflokksins, sem dinglað hefur með i
vinstri og hægri stjórn, á eðlilega erfitt
með að fóta sig, því flokkur hans ér eins og
„rótlaust þang” á ólgusjó stjórnmálanna.
En þótt áhugi almennings á starfi
stjórnmálaflokkanna hafi minnkað, þá
hefur stjórnmálaáhugi ekki dvinað.
Stjórnmálaáhuginn hefur fundið sér
annan farveg, þar sem er virk þátttaka i
alls kyns hagsmunasamtökum eða þrýsti-
hópum er reyna að hafa áhrif á
ákvörðunartekt i stjórnmálum en seilast
ekki til valda i þjóðfélaginu eins og stjórn-
málaflokkarnir. Það er einmitt misbeiting
valds og spillingin i valdakerfinu er beinir
hug fólksins frá stjórnmálaflokkunum og
beinir þvi til þátttöku i öðrum samtökum.
Hnignunin i starfi stjórnmálaflokkanna
gefur vissulega tilefni til alvarlegrar
ihugunar og umræðu. En atorkan og áhug-
inn er einkennir þrýstihópana gefur vissu-
lega von um að stjórnmálamennirnir fái
aukið aðhald frá kjósendum. Þess er að
væntaaðmeðþrýstingi/frá almenningi og
hinum stóru fjöldasamtökum, sem álykt-
að hafa gegn undanslætti i landhelgismál-
inu, takist að knýja hinn reikula milliflokk
til að láta ekki undan kröfum kaupsýslu-
mannaklikunnar i Sjálfstæðisflokknum
um undansláttarsamninga. Aðeins
öflugur þrýstingur getur afmáð óvissuna i
þessu lifshagsmunamáli og tryggt að út-
færslan i 200 milur verði annað og meira
en pappirsgagn.
óre.
Lyfseðlar frá
miðöldum
Asaf Rústamof, visindamaöur
viö læknisfræðistofnunina i Aser-
badsjan, hefur lokið margra ára
rannsóknum aö þvi aö ráöa og
fiokka lyfseðla, er notaöir voru i
Aserbadsjan á miðöldum.
Það var hreint ekki auðvelt að
ráða fram úr þessum gömlu lyf-
seðlum. Upplýsingar er varða al-
þýðulyf i Austurlöndum eru
dreifðar i mörgum handritum,
þar á meðal nokkrum sem eru
eftir lærða lækna, i bókmennta-
verkum miðaldaskálda og hugs-
uða. Rannsökuð voru nokkur þús-
und handrit með ýmiss konar
læknisfræðilegum upplýsingum.
Nú hafa allar þessar lyfjaupp-
skriftir, að 30 undanskildum, ver-
ið þýddar úr forn-arabiskum,
persneskum og tyrkneskum mál-
um yfir á latinu. Hefur verið tekin
saman orðabók yfir læknisfræöi-
leg heiti er notuð voru i Aserbad-
sjan á miðöldum.
Orðréttar þýðingar lyfseðlanna
hafa þó litla þýðingu fyrir nútima
visindi. Starf visindamannanna
fólst i þvi að ákveða nákvæmlega
magnið af hverjum efnishluta
lyfjanna, og það reyndist ákaf-
lega erfitt. Miðaldalæknar i Aser-
badsjan notuðu 154 þyngdarein-
ingar, og i hinni frægu lækninga-
VÍSINDI OG
SAMFÉLAG
bók eftir hinn mikla Avicenna,
þar sem dregið er saman yfirlit
yfir hið helsta i læknavisindum
Austurlanda, er aðeins að finna 43
nöfn þessara þyngdareininga.
Asaf Rústamof yfirfærði hinar
undarlegu mælieiningar, sem
taldar eru upp hjá Avicenna, yfir
á skiljanlegt mál núgildandi
mæli- og þyngdareininga. Þá var
eftir að skrá og flokka hina fornu
lyfseðla, en það verk tók meirá en
tiu ár og er nú lokið að mestu.
„Er mögulegt að búa til lyf nú á
dögum eftir þessum gömlu upp-
skriftum?" spurði ég visinda-
manninn.
„Skráning og flokkun hinna
fornu lyfjauppskrifta þýðir að
sjálfsögðu ekki, að hægt sé að
taka þær i notkun i þjónustu nú-
tima læknavisinda”, sagði Asaf
Rústamof, „þótt sum þeirra séu
enn i fullu gildi. Margar lyfjaupp-
skriftirnar er þá fyrst hægt að
nota, er gerðar hafa verið á þeim
rækilegar lyfjafræðilegar og
efnafræðilegar rannsóknir og til-
raunir með notkun þeirra, og
sumar þeirra munu varðveitast i
sögu læknisfræðinnar sem vitnis-
burður um færni fyrirrennara
okkar”.
„Við hvaða vandamál þurftir
þú að glima önnur en þau sem fól-
ust i áætlunarverki þinu?”
„Til þessa hefur verið álitið, að
lyfjafræði hafi orðið til sem vis-
indagrein á 12. öld, en þær rann-
sóknir, sem við höfum gert á sviði
læknavisinda i Austurlöndum,
gefa okkur ástæðu til að efast um
þetta. Á tiundu öld, ritaði landi
okkar Abu-Mansur Muvafag, bók
um lyfjafræði, þar sem hann
skipti öllum lyfjum, sem hann
þekkti i þrjá hópa. I þeim fyrsta
voru 75 málmar: gull, zink, ýmsir
steinar, silfurnitröt magnesium,
jasper, malakit o.s.frv. t öðrum
flokknum og þeim stærsta voru
466 grös og jurtir, og i þeim þriðja
44 lyf úr dýrarikinu. I stuttu máli,
rannsóknir á fornum lyfjum
Austurlanda eru ekki aðeins á-
hugaverðar fyrir okkur lækna,
heldur og fyrir sagnfræðinga”.
„Hvers vegna gerðir þú aðeins
rannsóknir á lyfjum hins forna
Aserbadsjan? Það eru mörg fleiri
lönd sem teljast til Austurlanda”.
„Forn leið kaupmannalesta lá
um Aserbadsjan, sem visinda-
menn kalla „Hliðið að sögu
Evrópu og Asiu”. Þetta „hlið”
var ástæðan fyrir þvi, hvers
vegna menning margra þjóða
mættist i Aserbadsjan. A
„Múslinska endurreisnartiman-
um” i Aserbadsjan þróaðist þar
stjörnufræði, stærðfræði, landa-
fræði, saga og læknisfræði. Full-
trúar margra visindagreina
leggja nú stund á rannsókn þeirra
fjölmörgu menningarminja, sem
Eiginmaöur minn Sigurjón Pálsson Ferjubakka 10 andaðist 15 þ.m. F.h. barna hins látna Helga Finnsdóttir.
þar hafa varðveist”.
-APN
Jakutski hesturinn
hefur ekkert breyst um
þúsundir ára
Jakutsk (APN) Hreinræktaöir
jakútiskir hestir eru mjög ólikir
frændum sinum bæði i Evrópu og
suðaustur Asiu: Þeir eru má-
vaxnir, háriö fremur langt og þétt
og þeir una sér ágætlega i
siberiskum vetrarkuldum. Þeir
skrapa snjóinn ofan af höfrunum
með hófunum. Fram til þessa
hafa visindamenn talið aö þessi
hestur hafi komið til jakútiu á 14.
öld. En nú hafa þeir skipt um
skoðun.
Nýlega var verið að grafa
námu á gullsvæði nálægt
Indigirka fljótinu og rákust
námumenn þá á djúpfrystan hest.
Það kom I ljós við rannsókn lif-
fræðinga aö hesturinn hafði verið
villihestur sem uppi var samtimis
mammútum. Sérfræðingar telja
þennn fund algert einsdæmi I
veraldarsögunni — hesturinn hef-
ur legiö i eilifðarfrosti i 36 þúsund
ár. Og hann er ekki að nokkru
leyti frábrugðinn núlifandi
afkomendum sinum — hinum
jákútsku hestum.