Þjóðviljinn - 17.08.1975, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 17.08.1975, Qupperneq 7
Sunnudagur 17. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 SIGURÐUR BLÖNDAL SKRIFAR: DROTTINN GAF DROTTINN TÓK Sextiu hendur á lofti á sjálfu Lögbergi. Hin mikla afmælis- gjöf á ellefu hundruð ára afmælinu. Fyrsta stóra afborgun af skuld þjóðarinnar við landið. Hrifning þúsunda, sem horfa á sextiu hendur hefjast á loft samtimis. Þessi fögru orð. Þessi mikla sam- staða. Einstakt. Aðeins um 50 milurnar hafði þetta gerst fyrr i sjónmáliá timum þessarar kyn- slóðar. Þrátt fyrir allt: A stund um mikilla atburða gátu islend ingar staðið saman. Jafnvel Alþingi. Leið nú þjóðhátið ellefu alda byggðar. Og mánuðir i viðbót. Erfiðir timar. Verðbólga. Verðfall. Allt þetta, sem dynur á islendingum með öruggu millibili. Liður haustið og kemur vetur. Alþingi semur fjárlög. Auðvitað þau hæstu i sögunni — eins og ný fjárlög eru alltaf. Hver fjárhæð til sérhverrar framkvæmdar gegnumlýst og grandskoðuð. Hin mikla þjóðargjöf er þarna lika. Einsog hún var samþykkt sextiu uppréttum höndum á Lögbergi. Samþykkt núi annað sinn — að þessu sinni við Austurvöll. Erfiðari timar. Meiri verð- bólga. Meira verðfall. Og kemur vor. Enn samþykkt við Austurvöll i fyrstu viku sumars. Taka skal það, sem gefið var. Enginn timi i sumarbyrjun að grandskoða eða gegnumlýsa sérhverja fjár- hæð til sérhverrar framkvæmd- ar. Þrfr og hálfur miljarður skorinn án sundurgrein ingar. Hvað varðar Alþingi um smá- muni? Aðrir sitji yfir smámun- um. Til dæmis embættismenn. Látum þá um þetta. Og fjár- veitingarnefnd. Að visu ekki sextiu hendur uppréttar núna. En rúmar fjörutiu þó. Loks á miðju sumri lokið sundurgreiningu þriggja og hálfs miljarðs. Alþingi .löngu farið i fri. Alþingismenn ný- búnir að skýra háttvirtum kjós- endum frá þvi á ieiðarþingum, að þeirrahöfn verði ekki skorin ekki þeirra vegur, brú eða skóli. Næsta góða veðurdag lesa háttvirtir kjósendur i blöðum: Min höfn skorin, minn vegur, brú og skóli! Þingmannsskratt- inn laug þá að okkur, jafnvel ráðherrann minn laug að mér. Hann sagði einmitt, að min höfn yrði ekki skorin. En nú stendur i biöðunum, að hún verði samt skorin. Þeir skuiu fá það borgað i kosningunum! En biðið við, stendur ekki þarna: Þjóðargjöf skorin tfu miljónir. Er þetta satt? Jú, það stendur þarna. Þjóðargjöf skorin tiu miljónir. Reyndar. Þeir meintu þá ekkert með þvi. Sextiu hend- ur. Eða fjörutiu, réttara sagt. Jæja, karlarnir. Létu sig hafa það, skera afmælisgjöfina. En þvi svona litið, úr þvi þeir skáru á annað borð? Veistu það ekki, lagsi? Nei, ég hélt menn tækju ekki aftur afmælisgjafir, allrasist parta af þeim. Og þvi svona lit- ið? Auðvitað af þvi þeir eru litlir sjálfir. En vel á minnst: Var einhver að spyrja um virðingu Alþingis? Eftirmáli um Grjótaþorpið. Að visu eiga menn ekki að skipta sér að þvi, sem þeim kemur ekki við. Og kannski kemur sveitamanni ekkert við Grjótaþorp, Arnarhóll, Bernhöftstorfa á Seltjarnarnesi. En hvað koma þá seltirningum við t.d. grenihrislur á Austfjörð- um? Það er alltaf spurning, hverjum kemur hvað við. En það var þessi mynd- skreytta blaðafrétt um Grjóta- þorp á Seltjarnarnesi. Verslunarhallir stað timbur- kofa. Selskapur fyrir Morgun- blaðshöllina. Upp rifjaðist grein i ágætu ensku timariti, ,,The Ecologist” („Vistfræðingurinn”), janúar hefti 1974. Hún hét „Eyðilegging borga”. Skýrt var frá þvi, hvernig hver borgin af annarri i Englandi er „jarðýtt” til þess að reisa sviplausa versiunar og skrifstofukassa eða tilbreyt ingarlausar ibúðarblokkir eða til þess að koma hraðbrautum fyrir bila i gegn. Og kannski til þess að verktakar hafi atvinnu. Greinin i „The Ecologist” er kynnt á forsiðu með þessari setningu: „Sprengjur Hitlers eða borgarstjórnir. Hver eyðileggur borgir okkar núna?” f tsland slapp sem betur fer við sprengjur Hitlers. Hinum enska arkitekt, sem skrifaði greinina, fyndist hann varla þurfa að spyrja, ef Seltjarnarnes væri til umræðu. Sig. Blöndal. Reffilegur sígauna- höföingi Þessi maður heitir Petulengro Lee og er einn af höföingjum sigauna á Brctlandi. Hann er myndaður á blaðamannafundi þar sem hann mótmælir þvi, með öðrum sigaunum, að fólk hans sé hrakiö af stæðum fyrir húsvagna, en á okkar tæknitimum gera sigaunar mikið af þvi að dveljast og fara á milli i slikum farartækj- um. Patulengro Lee hefur þá at- vinnu að spá fyrir fólki. lönskólinn í Reykjavík Verknámsskóli fyrir hárskurð og hár- greiðslu verður starfræktur við Iðnskól- ann i Reykjavik skólaárið 1975 — 1976. Væntanlegir nemendur komi til innritunar iskrifstofu skólans dagana 18. til 20. ágúst n.k. Nokkrir nemendur geta komist að i verk- námi fyrir bifvélavirkja. Inntökuskilyrði eru að hafa lokið prófi frá málmiðnaðar- deild eða 2. bekk iðnskóla fyrir samnings- bundna iðnnema. Skólastjóri ÍBÚÐ Ungt par sem er við nám og með barn, óskar að taka á leigu 2ja herbergja ibúð sem fyrst. Upplýsingar i sima 37954 eftir kl. 18.00. Blikkiðjan Garðahreppi Önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö. SÍMI 53468 MELTAWAY ■■■» AKATHERN — snjóbræðslukerfi frárennsliskerfi úr PEX plaströrum úr PEH plaströrum. Nýlagnir Viðgerðir Hitaveitutengingar Stilling hitakerfa Pípulagnir sf. Auðbrekku 59 — Kópavogi S. 43840 & 40506. Atvinna ■ Atvinna Verkamenn Óskum að ráða nokkra menn til starfa i kersmiðju okkar við áliðjuverið i Straumsvik. Ráðning fer fram i september. Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri, simi 52365. Umsóknareyðublöð fást i bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavik, og bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði. Umsóknir óskast sendar fyrir 25. ágúst 1975 i pósthólf 244, Hafnarfirði. ÍSLENSKA ÁLFÉLAGIÐ H.F. STRAUMSVÍK

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.