Þjóðviljinn - 17.08.1975, Page 24

Þjóðviljinn - 17.08.1975, Page 24
WÚÐVIUINN Sunnudagur 17. ágúst 1975 Rætt viö Auðun Hermannsson formann Samtaka aldraöra, sem nú ætla aö reisa húsnæöi fyrir aldraöa Svona lítur sambýlishúsið út, sem reist verður á Eiðsgranda en I miðhlutanum verða ibúðir fyrir aldraða. í mars 1973 voru stofnuð hér á landi Samtök aldraðra. Um 300 manns voru á stofnfundinum, en nú eru félagar orðnir um 1000 manns. Formaður félagsins frá upphafi hef- ur verið Auðunn Her- mannsson og í dag heim- sækjum við hann inn á Silfurteig og ræðum við hann um samtökin og mál- efni aldraðra. ,,Við höfðum heyrt svo lengi talað um það sem átti að gera fyrir aldraða, en sáralitið gerðist. Við vildum ekki biða lengur og ákváðum að reyna að gera eitt- hvað sjálf. Við biðjum ekki um neina hjálp og erum ekki með áróður fyrir einn eða neinn. Okk- ar fyrsta verkefni er að byggja húsnæði fyrir aldraða. Við höfum fengið úthlutað tveimur lóðum á Eiiðsgranda og i fyrsta áfanga verða byggðar 30—50 ibúðir i mið- hluta sambýlishúss.” ,,Hafa margir sótt um ibúðir þar?” ,,Fólk hefur sótt um ibúðir i þessu húsi og einnig i öðru húsi, sem reist verður siðar, en þar verða um 250 ibúðir. Alls hefur verið sótt um nálægt 350 ibúðir.” ,,Hvaða aðstaða verður i þess- um húsum?” ..Ibúðirnar verða einstaklings- ibúöir og hjónaibúðir 2ja og 3ja herbergja. Við lögðum mikla áherslu á að komast að nálægt miðbænum. Hér höfum við búið þetta eldra fólk og hér liggur öll okkar orka. Únga fólkið verður að sjá um að byggja upp úthverfin. Við munum hafa sundlaug, nudd, böð og fleira, ásamt samkomusal, aðstööu til föndurs, — jafnvel málarasal. Þá verður reynt að hafa eina máltið aðkeypta á dag, svo að tryggt sé að allir fái amk. eina holla máltið daglega, sem er nauðsynlegt fyrir aldrað fólk.” ..Verða þetta leiguibúðir eða kaupir fólkið þær sjálft?” ..Þessar ibúðir verða til sölu. Fólk sem ekki á neina ibúð fær oftast hjálp frá borginni, en þeir sem eiga ibúð, verða i flestum til- fellum að búa i þeim hvort sem þeim likar betur eða verr. íbúðirnar eru kannski of stórar og alls ekki þægilegar og þetta fólk einangrast og verður oft mjög einmana. Það vill jafnvel fara á elliheimili, bara til þess aö geta umgengist fólk. Við viljum hjálpa þessu fólki til þess að skipta yfir i litla ibúð. Og eigi fólk ekki ibúð, hefur þaö samt mikla möguleika þvi þá fær það fullt húsnæðis- málastjórnarlán, og væntanlega lánar borgin eitthvaö lika. Einnig er möguleiki á að fá leigða ibúð, sem eigendur hafa ekki þörf fyrir strax.” ,,Verður aðstaða fyrir fólk að fá hjúkrun. ef þess þarf?” ,,Já, við munum væntanlega hafa hjúkrunarkonur. Kólk getur búið út af fyrir sig fram eftir öll- um aldri, ef hægt er að komast fyrir veikindin. Ég er hræddur um að það sé oft gefist upp við að reyna aö lækna fólk, þegar það er „Bjartsýnin fyrir mestu” „Höfum rætt um aö hafa barnaheimili i tengslum viö húsnæöi okkar á Eiösgranda” — scgir Auöunn Hermannsson. Or lögum Samtaka aldraðra: Tilgangur félagsins er: Að vinna að velferðarmálum aldraðs fólks á félagssvæðinu. 1 þvi augnamiði vill félagið meðal annars beita sér fyrir eftirfar- andi: a) Stuðla að byggingu hentugra ibúða fyrir aldraða. Stjórn félagsins skipar bygginganefnd. b) vinna að aukningu á sjúkrarými fyrir aldraða, er þurfa hjúkrunar við, c) stuðla að bættri félagslegri þjónustu hins opinbera við aldraða i heimahúsum, d) stuðla að samvinnu við hliðstæð félög, innlend og erlend, e) vinna gegn þvi.að öldruðum sé íþyngt með óeðlilegum skatta- álögum. komið inn á elliheimili, þar sem það á þaðan sjaldnast aftur- kvæmt. En aldrað fólk getur orðið veikt eins og aðrir og þá þarf aö reyna að lækna það. Þegar ég vann á Hrafnistu varð ég lika oft var við að fólk vildi komast þangað bara til að losna við ein- manakenndina. Það vildi jafnvel gefa eignir sinar til þess að fá tryggan samastað. Svo eru dæmi þess að fólk vill ekki selja ibúðir, sem eru óhentugar fyrir það, vegna bess að erfingjarnir eiga að taka við þeim. Þetta er auðvit- að fráleitt. Við eigum þaö skilið að fá að ráðstafa okkar eigum sjálf og búa þannig að okkur i ell- inni, að það sé okkur til sem mestrar ánægju.” „Heldurðu að einmanakenndin komi ekki oft þegar fólkið missir atvinnuna?’' ,,Jú, en fólk verður að trúa á sig sjálft og sina getu. Fólk á ekki að þurfa að slita sér út á erfiðisvinnu i ellinni. Það á að finna sér ný verkefni, þegar það hættir að vinna. Við getum svo margt gert. Aðalatriðið er að verða ekki svartsýnn. Trúleysið á eigin getu er verst. Þótt maður hafi unnið i banka alla æfi, er ekki þar með sagt að hann geti ekki annað. Ég hef til dæmis rætt um það á fund- um, að fólkið eigi að fá að mála og hafa sérstaka aðstöðu til þess i húsakynnum okkar. Það er fjöldamargt annað sem fólk getur gert ef þvi er leiðbeint og það hef- ur vilja til.” „Eru fleiri verkefni sem þið vinnið að en húsbyggingin?” „Viö höfum lagt höfuðáherslu á húsbyggingarnar til þessa, en við höfum fleiri mál á okkar stefnu- skrá. Við teljum t.d. að þjóð- félagið geti hlift öldruðu fólki meira en gert er i sambandi við skatta og fleira. Sumir þurfa kannski ekki á þvi að halda, en fjöldamargir búa við verulega fjárhagserfiðleika siðustu árin sem þeir lifa. Mér finnst að maður sem hefur unnið alla æfi við að byggja þetta þjóðfélag upp eigi rétt á að fá að eyða siðasta hluta æfinnar án þess að vera i stöðugum fjárhagserfiðleikum.” „Hefurðu haft tækifæri til þess að kynnast hliðstæðum bygging- um erlendis og þið stefniö að?” ,,Já, ég hef ferðast til útlanda til þess að kynna mér ýmislegt sem snertir aðbúnað aldraðra. Best leist mér á heimili sem ég sá i Sviþjóð, en það var i senn barna- heimili, heimili fyrir áfengis- sjúka og heimili fyrir aldraða. Þetta var mjög merkileg stofnun og mikill samgangur á milli þess- ara hópa. Gamla fólkið var innan um börnin og drykkjusjúk- lingarnir voru þarna ábyrgir fyr- ir sinum eigin húsakynnum. Þetta var allt mjög snyrtilegt og mér var sagt að þessi samgangur hefði gefist mjög vel. Við höfum rætt um að hafa barnaheimili i tengslum við húsnæði okkar á Eiðsgranda. Ég er algerlega á móti þvi að fólk sé girt af i aldurs- flokka. Lifið er svo stutt að við eigum að reyna að umgangast sem flesta.” ,,Svo við vikjum að lokum að Samtökunum. Eru einhver inn- tökuskilyrði?” „Við höfum ekki tekið yngra fólk en 40 ára til þessa, en það getur verið að það eigi eftir að breytast. Flestir eru 60—75 ára, en við gerum ráð fyrir að aldurs- lágmarkið til þess að fá ibúð verði um 65 ára. öll vinna i samtökun- um er sjálfboðavinna. Og það er mjög ódýrt að gerast félagi, kost- ar kr. 500 á ári fyrir einhleypa og 750 fyrir hjón. Mér finnst að fólk úti á landi og i kaupstöðum ætti að fara að athuga sinn gang lika, þvi þótt þar sé mun færra fólk en hér, ætti það i mörgum tilfellum að geta byggt sér hliðstætt húsnæði en félagar i samt. aldraðra þurfa að vera búsettir á Reykjavikur- svæðinu” sagði Auðunn að lokum. Núveran.di stjórn Samtaka aldraðra skipa Auðunn Her- mannsson, formaður, Hans Jörgenson, Hersteinn Pálsson, Ólöf Konráðsdóttir, Katrin Smári Ölafur Einarsson og Stella Jóns- dóttir. Stjórninni til aðstoðar eru dr. Friðrik Einarsson, Böðvar Jónsson og Geir Tómasson. þs KBFHÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.