Þjóðviljinn - 27.09.1975, Side 2

Þjóðviljinn - 27.09.1975, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. september 1975 AF FJAÐRAFOKI „ Ekkert má nú," sagði karlinn, þegar sýslu- maður ávítaði hann fyrir að hafa drepið kell- inguna sína á eitri og limlest tvö af börnunum sínum. Þessi vísuorð karlsins koma manni óneitan- lega upp í hugann útaf öllu því f jaðrafoki, sem þyrlað hefur verið upp vpgna tiltölulega ó- merkilegs máls, eða nánar tiltekið hins svo- kallaða Ármannsfellsmáls. Það sem einkum einkennir öll skrif um mál þetta, er sú staðreynd að þeir sem um það fjalla virðast ekki hafa hugboð um það hvers vegna maður sé yfirleitt framsóknarmaður, sjálfstæðismaður, kommi eða krati. Þeir sem harðast hafa deilt á umsvifin í sambandi við lóðaúthlutanir sjálfstæðis- f lokksmeirihlutans í borgarstjórn, og nú síð- ast úthlutunina í sambandi við Ármannsfell, virðast ekki hafa hugmynd um það, að ef maður gengur á hönd einhverjum stjórnmála- flokki, þá er það sko meiningin að maður fái eitthvað fyrir sinn snúð. Sumir virðast halda að stjórnmál séu eitthvert barnagaman, sem fólk leiki sér að yfir kaffibolla, en það er nú öðru nær, og er ef til vill rétt að nef na átakan- legt dæmi. Lætur nokkur maður sér detta í hug að það sé til dæmis sársaukalaust að vera Al- þýðuf lokksmaður? Þessari spurningu þarf að sjálfsögðu ekki að svara. En hversu margir haf a ekki orðið að bíta í það súra epli að ganga Alþýðuflokknum á hönd til að fá vinnu í Tryggingunum eða stöður í ráðuneytum? Eða hugsið ykkur þá ægilegu smán, sem margur þéttbýlingur hefur orðið að búa við, að vera orðaður við Framsóknarf lokkinn, já, því er meira að segja haldið fram að menn hafi látið sig hafa það að ganga í þann flokk (hvílík niðurlæging) til að fá einhvers konar fyrir- greiðslu, annað hvort í föstu eða fríðu. Eða lætur nokkur sér detta í hug, að ég nyti þeirra forréttinda að fá að skrifa í aðalmál- gagn Alþýðubandalagsins, sjálfan Þjóðvilj- ann, ef ég ekki væri á einhvern hátt bendlaður við Alþýðubandaiagið? Hvað halda þessir dæmalausu sakleysingjar, sem hafa verið að skrifa um Ármannsfellsmálið og lóðaúthlut- anir Sjálfstæðisflokksins yfirleitt að lífið og tilveran sé?' Bara dans á rósum kannske? Svo mikið hefur að undanförnu verið skrif- að um lóðaúthlutanir sjálfstæðismanna á veg- um borgarinnar að það er að bera í bakkaf ull- ^ an lækinn að bæta þar miklu við. Þó get ég ekki stillt mig um að kíkja ögn á þetta mál frá þeim sjónarhóli, sem af einhverjum feimnis- ástæðum ekki virðist hafa verið horft af í öllu því þrasi og pexi, sem málið hefur einkennst af að undanförnu. Mjög hefur verið deilt á borgarstjórnar- meirihlutann fyrir að láta félagsmenn í félög- um sjálfstæðismanna ganga fyrir þegar lóð- um er úthlutað. Hvílíkur barnaskapur! Til hvers halda þessir fávísu menn að sjálfstæðis- menn séu sjálfstæðismenn? Kannske bara til að læra að dansa í Heimdalli? Að sjálfsögðu eru ungir sjálfstæðismenn sjálfstæðismenn til að fá frekar þak yf ir höf uðið. Eða á ef til vill bara að setja unga sjálfstæðismenn útá gadd- inn og það eins og veðráttan er hérlendis? Til að fyrirbyggja slíkt glapræði verða ungir sjálfstæðismenn að fá lóðir á góðum stöðum, til að öðlast húsaskjól í borg sjálfstæðis- manna, Reykjavík. Eða fjaðrafokið útaf Ármannsfelli. Ef til vill er það upphaf þess máls að ,,f lokkurinn" verður að hafa þak yfir höfuðið, eða hvernig ætti starfsemin annars aðgeta farið fram? Og hvað er þá athugavert við það þótt þeir, sem flokkurinn gefur forgangsaðstöðu til að eign- ast þak yfir höfuðið, láti nokkuð af hendi rakna til að ,,f lokkurinn" eignist þak yf ir höf- uðið? Einhverjum kann að vísu að finnast eitt og annað í sambandi við Ármannsfell dálítið kindugt, en í raun og veru er málið ofur ein- falt. Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur meirihluta í borgarstjórn, borgar sig að vera sjálfstæðismaður. En eftir næstu borgar- stjórnarkosningar verður vissara fyrir reyk- víkinga að koma sér upp annarri sannfæringu. Umfram allt ber okkur, sem þessa borg byggjum að haga seglum eftir vindi og njóta skoðana okkar í mynd þeirrar umbunar og fríðinda, sem f lokkurinn okkar kann að veita. Því hvað sagði ekki byggingarmeistarinn við kollega sinn um árið: Ef þig vantar litla lóð, láttu af hendi rakna fúlgu nokkra flokks í sjóð, þess fjár muntu ekki sakna. Flosi. Bragi Valgeirsson Af hverju var bankastjóra- staðan ekki auglýst? Nú þegar óvenju mikiö er skrif- að um spillingu i þjóðfélaginu væri gott að fá svar við þeirri spurningu, hvers vegna nýleg staða aðstoðarbankastjóra við Seðlabankann var ekki auglýst til umsóknar eins og kjarasamning- ar kveða á um, sem Ragnar Ólafsson form. bankaráðs Seðla- bankans hefur skrifað undir m.a. Var ráðning Sveins Jónssonar bara framhald á friðindum eins og þeir segja i Seðlabankanum? Bankamaður Einn hinna ungu og efnilegu skákmanna uppi i T.R. er Bragi Valgeirsson. Bragi hefur teflt i nokkur ár og hefur þegar yfirgef- ið unglingaflokk, annan og fyrsta- flokk, hann er núna í meistara- flokki og á eflaust eftir að láta mikið á sér bera i framtíðinni. Nú verður tekin upp sú nýjung hér i þættinum að birta óskýrðar skákir ef skákmaðurinn óskar þess, en þá venjulega einni skák fleiri. Hér koma svo skákirnar: Hvitt: Bragi Valgeirsson. Svart: Margeir Pétursson. Skákkeppni gagnfræðaskólanna 1973. Pirc-vörn. 1. e4—d6. 2. d4—Rf6. 3. Rc3—g6. 4; f4—Bg7 5. Rf3—0-0 6. Bd3—Bg4. 7. o-o—Rc6 8. e5!?—dxe5 9. fxe5—Bxf3. 10. Dxf3—Dd4+ 11. Be3—Dxe5. 12. Hel—Dxd. 13. Rb5—Dd7. 14. Bf4—Rd5! 15. Hadl!—Rxf4. 16. Dxf4—e5! 17. Dh4!!—Rd4?! 18. c3!—e4?. 19. Bfl!—Rf5! 20. Dxe4!— Dc8. 21. Hd2? !—a6. 22. Rd4—Rxd4. 23. cxd4—Hfe8 24. Dxe8-I—Dxe8. 25. Hxe8H—Hxe8. 26. b3—Hd8. 27. d5—c6. 28. d6—c5! 29. Hd5!—Bd4+ 30. Khl—Kf8. 31. Kynning á ungum skák- mönnum Bc4—f5. 32. a4—Kg7. 33. g3—Kf6. 34. Kg2—Be5? 35. Kf3—Bd4. 36. h3—Kg7. 37. d7—Kf8. 38. b4!—Ke7. 39. bxc5—Hxd7. 40. Hxd7-|—Kxd7. 41. Bg8-h6. 42. Bh7—g5. 43. Bf5+—Kc6. 44. Be4+— Kc7. 45. h4—Bxc5? 46. Bd3—Be7. 47. h5! — Kd6. 48. g4—Kc5. 49. Kc4—b5. 50. axb5—axb5. 51. Ke5—b4. 52. Ke6—Bf8. 53. Kf7—Bd6. 54. Kg6? ?—Bf8? 55. Kf7—Bd6. jafntefli. Hvitt: Bragi Valgeirsson. Svart: Arni Sigurbjarnarson. Haustroót T.R. 1974. 1. e4—c5 . 2. Rf3 —d6. 3. d4—cxd4. 4.' Rxd4—Rf6. 5. Rc3—a6. 6. Be2—e5. 7. Rb3—Be7. 8. o-o—o-o. 9. Be3—Rc6. 10. a4—Be6. 11. f4—Ra5. 12. Rxa5—Dxa5. 13. Dd2—Dc7. 14. f5—Bd7.15. g4—d5. 16. exd5—Bc5. 17. Khl—Bxe3. 18. Dxe3—h6. 19. g5—hxg5. 20. Dxg5—Rh7. 21.Dg2—f6. 22. Bd3—Had8. 23. Be4—Be8. 24. Hgl— Rg5. 25. Bd3—Bh5. 26. Be2—Bxe2. 27. Dxe2—Df7. 28. Hg3—Hd7. 39. Hagl—De8. 30. h4—Rh7. 31. Hg6—Kh8. 32. Dg2—Df7. 33. Kh2—Hg8. 34. Kh3—Hc8. 35. De4—Df8. 36. Hg-g3—Dg8. 37. Dg2—Df8. 38. Dgl—Hc-c7. 39. Db6—Dg8. 40. De6.—Hf7. 41. Re4—Dd8. 42. d6—Hcd7. 43. Dd5—Hf8. 44. Hd3—He8. 45. Rc 5—Rf8. 46. Hg4—Dc8. 47. Rxd7—Dxd7. 48. Hc3—Rh7. 49. Hc7—Dxf5. 50. Hcxg7—Rg5+ 51. hxg5—Kxh7. 52. Dxb7+— Kg6. 53. gxf6+—Kxf6. 54. Dg7 + — Ke6. 55. Dg6H---Dxg6. 56. Hxg6+ og Bragi Valgeirsson svartur gaf nokkrum leikjum siðar. J.S.H. , 1 Blikkiðjan SLpp, Önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu — ennfremur * 1 hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð. i SÍMI 53468 Utboð Tilboð óskast i að gera sökkla og botn- plötu fyrir færeyskt sjómannaheimili i Reykjavik. tJtboðsgagna má vitja hjá undirrituðum gegn 10 þúsund króna skilatryggingu. ARKITEKTASTOFAN SF. Ormar t»ór Guðmundsson og Örnólfur Hall Síðumúla 22, Reykjavík Tilboð óskast i Land-Rover og nokkrar fólksbifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju- daginn 30. september kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sala varnarliðseigna.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.