Þjóðviljinn - 27.09.1975, Page 10
Di ítÐ V — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. september 1975
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagið Borgarnesi og nágrenni
Almennur félagsfundur verður i dag
laugardag kl. 2 i Snorrabúð.
Jónas Arnason mætir á fundinn.
VlamUorQ
í sláturtíðinni
Rúllupylsupressur
Plast-
stampar
til að salta kjöt í
22 lítra, Kr. 1120 —
35 lítra, Kr. 1495 —
50 lítra. Kr. 1995 —
Sendum í póstkröfu
um allt land.
bosahöld
Simi
12527
Laugav. 22 - Hafnarst. 1 - Bankast. 11 - Reykjarík
GLERVÖRUR
Kr. 1.395.-
Atvinna ■ Atvinna
li| Starf við
heyrnarmælingar:
Heyrnardeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavikur, óskar að ráða stúlku til
starfa hvð heyrnarmælingar.
Æskilegt að umsækjandi sé fóstra,
þroskaþjálfi, eða hjúkrunarkona.
Umsókn með uppl. um aldur menntun og
fyrri störf, sendist heyrnardeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavikur, fyrir 10.
október 1975.
Nánari uppl. um starfið veitir
forstöðumaður heyrnardeildar i sima
22400.
Skrifstofustarf
Hjá lögreglustjóraembættinu i Reykjavik
er starf skrifstofustúlku laust til
umsóknar. Góð vélritunarkunnátta
nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna rikisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og starfsferil sendist embættinu fyrir 10.
október n.k.
Lögreglustjórinn í Reykjavik
23. september 1975.
■
í
ÁLFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
0 SAMVINNUBANKINN
„Hverjum þykir sinn
fugl fagur”
Karl Arnason forstöðumaður
Strætisvagna Kópavogs hefur
sent Þjóðviljanum bréf vegna
greinar i blaðinu 14. september sl.
Karl segir: „Agúst Hafberg
skýrir svo frá að Landleiðir hafi
keypt vagna 1968 sem var ætlað
að endast. Scania eru góðir bilar
út af fyrir sig, en hins vegar eðli-
legt að hann kaupi þá, þar sem
hann er umboðsmaður þeirra hér
oghverjum þykirsinn fugl fagur.
Um sjálfskiptingu talar hann af
sinni reynslu.
Aksturstimi hvers vagns hjá
SVK frá þvi hann fer frá Rvik og á
að vera kominn þangað aftur er
Hersetan
Framhald af 1 . siðu.
Skrásetning
Þeir sem ráðstefnuna vilja
sitja, verða að láta skrá sig til
þátttöku og greiða 1500 króna ráð-
stefnugjald.
Ariðandi er að væntanlegir
þátttakendur láti skrá sig sem
fyrst hjá einhverjum i undir-
búningsnefnd: Einari Braga i
sima 19933, Eliasi Snæland Jóns-
syni i sima 12002 og 42612, Gils
Guðmundssyni i sima 15225 eða
Finni Torfa Hjörleifssyni i sima
40281.
Við ætlum
Framhald af bls. 8.
verið leikið i veðri eins og gerist
best hér heima á sumrin. Sagði
Guðmundur að þeir hefðu átt bágt
með sig kýpurbúarnir, kuldinn
ætlaði alveg að fara með þá!!
— Þeir spila mikið upp á mið-
herjann sinn, hann virðist eiga að
sjá um flesta hluti. Hann er sterk-
ur i skallaboltunum og vinnur vel
fyrirliðið, sendirgóða skallabolta
á samherja sina. Ég á þó frekar
von á því að við ráðum við hann,
það var a.m .k. ekki svo mjög erf-
itt i fyrri leiknum.
— Ég held að það sé töluverður
áhugi fyrir leiknum. Við eigum
möguleika á að komast áfram i
keppninni og slíkt hlýtur að hafa
nokkuð að segja, — sagði Jón að
lokum. —gsp
Þórarinn
Framhald af bls. 1.
Einar Ágústsson lýsti þvi yfir i
þinginu i vetur, ef ég man rétt, að
hann mundi láta gera könnun á
þvi hvernig þessi innilokun tæk-
ist. Mér er ekki kunnugt um þær
niðurstöður ennþá, hvort þeirri
könnun sé lokið eða hvort hún
stendur enn yfir, sagði Þórarinn
Þórarinsson, ritstjóri að lokum.
—úþ.
200 mílur
Framhald af 12 siðu
Frumvarpið gengur i sömu átt
og frumvarp sem sjóverslunar-
nefnd fulltrúadeildar hefur sam-
þykkt og er einnig sams konar og
frumvarp sem öldungaráðið sam-
þykkti á siðasta þingtimabili en
fékk þá ekki lagagildi.
Frumvarpið felur i sér for-
gangsrétt bandariskum fiskiskip-
um til handa innan 200 mílna
marka og heimildir fyrir stjórn-
völd til leyfisveitinga handa er-
lendum skipum að veiða þann fisk
sem bandariskir aðilar geta ekki
nýtt. Um árabil hafa bandariskir
fiskimenn kvartað yfir þvi að
fiskiskip annarra þjóða, einkum
frá Sovétrikjunum og Japan,
stundi rányrkju á grunnsævi við
strendur Bandarikjanna.
Moskvits
Moskvits 1973—1974
óskast. Upplýsingar í
síma 40821.
54 minútur. Umferðin er mikil á
þessari leið, umferðarljós og aðr-
ar tafir, og þá er eins gott að vera
á sjálfskiptum vögnum. SVK er
með einn vagn, sem orðinn er 12
ára gamall og er hann beinskipt-
ur og ógerningur að halda áætlun
á honum á annatimum. Þess má
geta að sjálfskipting og vökva-
kópling fara mikið betur með vél
og vagn. Hjá SVK voru eingöngu
beinskiptir vagnarfyrir 1968 enda
kom i ljós að vélin slitnaði óeðli-
lega mikið, vegna kúplingarinn-
ar. Þá var ákveðið að reyna sjálf-
skiptingu, sem nú er i notkun og
hefur reynst mjög vel. Bygging-
arlagið sem er á strætisvögnum,
þ.e. aðhafa mótorinn annað hvort
undir eða aftan i, er mikið heppi-
legra og fæst betra pláss og
stærra farþegarými.
Vagnar Landleiða aka beinustu
leið frá Reykjavik um aðalgötur
gegnum Hafnarfjörð og aftur
sömu leið til baka og hafa til þess
1 klukkustund og fá kr. 80,— fyrir
hvern fullorðinn farþega.
Vagnar SVK aka frá Rvik suður
i Kópavog og siðan þvers og kruss
um allan Kópavog og til Rvikur
aftur og hafa lika 1 klst. til þess,
en fá kr. 36,— fyrir hvern fullorð-
inn farþega, auk þess sem far-
þegar SVK fá skiptimiða sem
gildir i vagna SVR og komast þeir
á þessum sömu 36 krónum svo
gott sem um allt Rvikursvæðið.
Skiptimiðakerfið er gagnkvæmt
milli SVK og SVR. Ef notuð eru
afsláttarkort er fargjaldið fyrir
fullorðna ekki nema kr. 23.30.
Á þessu sést að ekki er þjónust-
an hjá Landleiðum og SVK sam-
bærileg og kannski ekki von á
öðru en það sé dýrara að veita þá
þjónustu sem SVK býður upp á,
og sýnir að þó mikið sé af einka-
bilum er reynt að halda uppi all-
sæmilegri og ódýrri þjónustu
fyrir þá sem þurfa og verða að
nota strætisvagna.
í umræddri grein kemur fram
að SVK hafi fjölgað ferðum og er
það rétt, en það var fækkað ferð-
um 1. júni, þvi farþegum fækkar
jafnan þegar skólum lýkur og
sumarleyfin hefjast, i 15 min.
ferðir en er fjölgað aftur 15. sept. i
12 min. ferðir þegar skólar hefj-
ast. Og svo hitt að farþegum hef-
Sjónvarp
án Sartre
PARIS reuter — Franski
heimspekingurinn Sartre,
stoð og stytta frjálshuga
vinstri stefnu i Frakklandi,
hefur neyðst til aö hætta við 10
þátta sjónvarpsflokk þar sem
ætlunin var að hann gerði
grein fyrir hugmyndum sinum
um samtiðina. Segir hann að
yfirmaður dagskrárinnar hafi
ætlað að ritskoða efnið fyrir
útsendingu en það þoli hann
ekki. Sartre er nú hálfáttræð-
ur.
ur fjölgað mikið eftir að leiða-
breytingin var gerð.
Það eru talsverð þrengsli i
vögnunum milli kl. 17 og 19 en
með 12 min. ferðunum er hægt að
flytja um 400 farþega á klst. SVK
hefur 7 strætisvagna og eru 5 i
notkun frá morgni til kl. 20.00 og 6
til kl. 9.30 á virkum dögum. Það
sést á þessu að miðað við hvað
vagnakostur er litill þá hljóta þeir
að vera allgóðir, þó bæði viðhald
og eftirlit sé i takt við kröfur og
þarfir nútimans.
Mér finnst koma fram i grein-
inni að ekki væru miklir flutning-
ar milli kl. 17 og 19 en auðvitað er
það þveröfugt, þessi timi og
morgnarnir eru mestu annatimar
vagnanna.
Karl Árnason
forstöðumaður SKV
Kristján
Hreins-
mögur selur
I sumar sendi ungt skáld,
Kristján Hreinsmögur úr
Kópavogi, frá sér tvær ljóða-
bækur. Voru þær gefnar út á
kostnað höfundar og fjölritað-
ar i Letri. Bækurnar, sem eru
önnur og þriðja bókin sem
Kristján sendir frá sér, heita
Og og Friðrik. Inniheldur sú
fyrri 16 ljóð en hin siðari tutt-
ugu.
Kristján hefur i sumar selt
bækur sinar sjálfur og hafa
vegfarendur um Austurstræti
vafalaust oft tekið eftir honum
með bækur sinar á boðstólum.
Aðspurður sagði Kristján söl-
una hafa gengið framar von-
um og var hann hinn ánægð-
asti með undirtektir reykvik-
inga og aðkomumanna i höf-
uðborginni.
Myndin er tekin af Kristjáni
fyrir skömmu.
—gsp
Kappræðufundur
ó ísafirði
Félög alþýöubandalagsmanna og
framsóknarmanna á isafirði efna til
kappræöufundar um stjórnmál í Góð-
templarahúsinu á isafirði, fimmtu-
daginn 2. október nk.
Frummælendur verða Kjartan
Ólafsson, ritstjóri og Steingrímur
Hermannsson, alþingismaður.
Fyrirspurnir leyfðar úr sal.
Fundurinn er öllum opinn og hefst
kl. 20.30.