Þjóðviljinn - 04.10.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.10.1975, Blaðsíða 1
Sjá leiðara F ramlenging stöðvunar á útlánaaukningu Viðskipta- bankar og Seðlabanki ákveða: Bankastjórar Seðlabankans og stjórn Sambands viðskiptabank- anna, héldu blaðamannafund i gær, þar sem tilkynnt var, að bankarnir hefðu ákveðið að fram- lengja til áramóta þá ákvörðun, að ekki skuli verða um að ræða útlánaaukningu hjá bönkunum, en slik útlánatregða hefur verið siðan i febrúar sl. Svofelld tilkynning var afhent á fundinum: ,,A fundi Seðlabankans og við- skiptabankanna 2. október var gert samkomulag um það, að engin aukning skuli verða á út- lánum viðskiptabankanna frá ágústlokum sl. til næstkomandi áramóta öðrum en endurkaupan- legum afurða- og birgðalánum, einkum til sjávarútvegs, iðnaðar og landbúnaðar, og reglubundn- um viðbótarlánum til sömu greina. Með þessum undantekn- ingum munu bankarnir þvl á samkomulagstimabilinu aðeins hafa til ráðstöfunar það fé, sem endurgreiðist af eldri lánum, og munu láta nauðsynlegustu rekstrarlán til atvinnuveganna ganga fyrir um ráðstöfun þessa fjár. Seðlabankinn hefur mælst til þess við sparisjóði, að þeir hagi útlánum sinum i samræmi við þessa stefnu. í sambandi við ofangreint sam- komulag vilja bankarnir taka fram eftirfarandi: 1) Vegna áframhaldandi þenslu I efnahagsmálum, halla i við- skiptum út á við, og þröngrar lausafjárstöðu bankanna i heild, er óhjákvæmilegt að halda áfram þeirri stefiiu i út- lánamálum, sem fylgt hefur verið frá lokum febrúarmánað- ar sl. 2) Stöðvun á útlánaaukningu við- skiptabankanna er mikilvægt tæki til að ná jafnvægi f þjóðar- búskapnum. Áhinnbóginn geta aðgerðir bankanna i þessu efni ekki náð árangri, nema stefnt verði að sama marki útgjöldum rikisins og útlánum íjár- festingarlánasjóða og liteyris- Framhald á bls. 10 Rólumar eru alltaf eitt vinsælasta viðfangsefni yngstu kynslóðarinnar, og hér hefur ljósmynd- ari Þjóðviljans náð mynd af tveimur af þeirri kynslóð, sem brugðið hafa sér „á róló” og skemmta sér konunglega eins og myndin sýnir. Ríkisstjórnin yill kaupa Baldur EA Ríkisstjórnin ákvað á fundi á fimmtudag, að sjávarútvegsráðuneytið, og fjármálaráðuneytið, skuli semja um kaup á skuttogaranum Baldri frá Dalvik, en togarinn verður keyptur með það fyrir augum að verða hafrannsóknarskip. — Mér finnst ekki rétt að nefna neinar tölur um verð, eða hversu hátt við megum bjóða, sagði Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráðherra — ekki meðan samningar standa fyrir dyrum. Kau’pverðið verður hins vegar ekkert leyndarmál, þegar búið verður að ganga frá kaupunum. — Hefur eigandi skipsins gert ykkur ákveðið tilboð? — Já. En ég tel rétt að vera ekki að nefna neinar tölur i þessu sam- bandi. Tilboð eru ákaflega bundin, þvi að skuld er mikil á skipinu. (Tvær gengis fellingar hafa komið á kaupverð sKipsins.) Brjóst ráðherra við, að samningaviðræður tækju ekki langan timaannað hvort yrði úr þessum kaupum innan mjög stutts tima eða ekki. -úþ. Verðtrygging bankalána Á blaðamannafundi með nokkr- um bankastjórum i gær, kom fram, að unnið er að þvi, að til framkvæmda komi verðtrygging hluta inn- og útlána bankanna. Sögðu bankastjórarnir, að sér- stakir lánaflokkar yrðu verð- tryggðir. Innlán sem eru til að minnsta kosti eins árs yrðu þann- ig verðtryggð, og útlán sem væru til langs tima, td. fjárfestingalán ýmiskonar. Búið mun vera að taka upp verðtryggingu að verulegu leyti hjá hinum ýmsu fjárfestingasjóð- um. Verðtrygging, ef úr verður, þýðir i reynd hærri vexti. —úþ Arangurinn eftir ársstjórn Olafs Jóhannessonar: Afkoma verslunar betri en í fyrra „Um verulega kaupmáttar- rýrnun er að ræða”, en verslunin verður með „betri afkomu en i fyrra”. Ekki kem- ur til greina að beita aðhaldi i innflutningsversluninni, en samt versnar gjaldeyrisstað- an um 2,5 miljarða á þessu ári. Þetta eru meðal annars niðurstöðurnar úr ræðu þeirri, sem Ólafur Jóhannesson flutti á fundi I Framsóknarfélagi Reykjavikur á miðvikudags- kvöld. Er þessi ræða ákaflega athyglisverð fyrir þá sök að hann kastar algerlega frá sér hugmyndum sem Framsókn hefur oft flikað um aðhalds- semi i gjaldeyrismálum. Ræða Ólafs Jóhannessonar er öll þannig, að hvaða ihalds- ráðherra sem er hefði getað flutt hana. En það er táknrænt fyrir ráðherrann og þessa rikisstjórn sem hann myndaði fyrir Geir Hallgrimsson, að þegar hann lýsir þvi yfir að allt sé i kaldakoli meö gjald- eyrismál, rikisbúskap og kaupmátt launanna, — þá er verslunin með betri afkomu en i fyrra. En umfram allt er ræða Ólafs Jóhannessonar merki um þau þáttaskil sem orðið hafa i Framsóknarflokknum, þvi aldrei fyrr hefur formaður þess flokks gengið jafnaf- dráttarlaust fram fyrir skjöldu sem talsmaður vérslunarvaldsins I landinu. Ræða Ólafs Jóhannessonar er þannig séð sögulegur atburður og verður nánar fjallað um það i blaðinu næstu dagana. Á morgun, sunnudag, verður haldinn Vietnamfundur i Tjarnarbæ og hefst hann kl. 5. Le Van Ky frá Suöur-Vietnam flytur ræðu. Sýnd verður ný kvikmynd frá Suður-VIetnam. Leikarar lesa upp úr dagbók Iio Chi Minhs og söngsveit Víetnamnefndarinnar syngur baráttusöngva. Á fundin- um lýkur Vietnamsöfnuninni sem hófst i april og verður söfnunar- féð afhent. TF-GNA hibi Landhelgisþyrian Ármannsfellsmálið i borgarstjórn: Byggingarleyfi verður gefið út áður en sakadóms- rannsókn lýkur! Niu borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins felidu á borgar- stjórnarfundi i fyrrakvöld tiliögu um að byggingaleyfi verði ekki gefiö út tii Ármanns- fells hf. vegna hinnar umdeildu lóðar. Þá hafnaði mcirihlutinn tillögum minnihlutamanna um að sú regla skuli sett að lóöir veröi framvegis auglýstar og að sett verði sérstök sjö manna lóðanefnd, kosin hlutafalls- kosningu i borgarstjórn. I umræðunum kom fram að Albert Guðmundsson, borgar- fulltrúi heldur enn fast við það, að Armannsfell hafi haft frum- kvæði að skipulagi lóðarinnar, cn áður hafðiverið sýnt fram á, að verkið var unnið hjá skipu- lagsdeild borgarinnar. Við hittumst kannski i saka- dómi, kæru félagar, sagði Albert. Umræðan i borgarstjórn tók á fjórðu klukkustund. Sjá 8. síðu DJOÐVIIIINN Laugardagur 4. október 1975 — 40. árg. — 225. tbl. Gná hrapar í SkálafeUi Hin stóra þyrla land- helgisgæslunnar, Gná, hrapaði um tvöleytið í gær þegar hún var við flutn- inga i hlíðum Skálafells austan Esju. Tveir menn voru i þyrlunni en sakaði ekki. Þyrlan hafði verið fengin til að flytja staura fyrir iþróttafélagið KR sem á skiðaskála á þessum slóðum. Var hún i 4-5 metra hæð þegar stélskrúfa bilaði að þvi er talið var. Siðan þeyttist þyrlan og valt um 200 metra niður bratta hliðina og mun hún hafa eyðilagst gersamlega. Þetta er tilfinnanlegt tjón fyrir landhelgisgæsluna, en hún á nú eftir 2 litlar þyrlur. Hitt er bót i máli að gæslan er vel e£n* um búin og munar ekki mikið um að kaupa tæki til loftferða, eins og dæmin sanna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.