Þjóðviljinn - 02.11.1975, Blaðsíða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. nóvember 1975.
Sjónvarpið reyndist áhrifaríkt
MORÐ í GAMNI
Drengurinn á myndinni
hét Michael Griin og var
átta ára gamall. Tvær
stúlkur, þrettán og f jórtán
ára gamlar myrtu hann
ekki alls fyrir löngu sér til
skemmtunar.
Stúlkurnar höfðu mikið glápt á
sjónvarp og náttúrlega séð i þvi
mikinn fjölda morða. Smám sam-
an efldist sú hugmynd með þeim
að bær ættu endilega að prófa það
sjáífar að drepa einhvern. Þær
sannfærðust endanlega um að
þetta ættu þær að gera, eftir að
hafa séð mynd eftir Chabrol þar
sem traðkað er á konu einni uns
hún biður sinn bana.
Daginn eftir sátu stúlkurnar,
Elisabeth og Iris, heima hjá ann-
arri þeirra, spiluðu plötur og
drukku kók. Þær virtu fyrir sér
börn sem framhjá gengu og veltu
þvi fyrir sér, við hvert ætti að
reyna. Eitt barn slapp af þvi það
var of feitt, annað var of ljótt. En
þeim leist vel á Michael litla,
hann var svo laglegur.
Þær kölluðu á drenginn og báðu
hann að koma inn fyrir — þær ætl-
uðu að gefa honum bolta og hund
úr gúmi. Þegar inn i ibúðina kom
vöfðu þær baðslopp um höfuð
Michaels og settust ofan á hann
og héldu honum niðri þar til hann
hreyfði sig ekki meir.
Þær báru likið upp á þakloft,
fóru siðan til lögreglunnar og
sögðust hafa fundið likið þar. Sú
saga þótti strax skrýtin, og ekki
leið á löngu áður en stúlkurnar
höfðu játað.
Vetraráætlun tekur gildi í dag
1. november gengur vetrar-
áætlun millilandaflugs Flug-
félags tslands og Loftleiða í gildi.
Fluginu verður hagað með
svipuðu sniöi og síðastliðinn
vetur. Þóverður sú breyting á, að
nú fljúga Loftleiðaþotur allan
veturinn til Chicago, en f fyrra
vetur urðu hlé á þvi flugi bæði
fyrir og eftir hátiðir. Hins vegar
verður nú ekki um beint flug til
Stokkhólms að ræöa yfir vetrar-
mánuðina.
Samkvæmt vetraráætlun fer
millilandaflug íslensku flugfélag-
anna fram sem hér segir:
Til New York verður daglegt
flug, brottför frá Keflavikurflug-
velli kl. 17:15. Til Chicago verður
flogið á þriðjudögum og föstu-
dögum, brottför frá Keflavík kl.
17:30. TilLuxemborgarverða niu
ferðir i viku, það er daglegar
ferðir og tvær ferðir á miðviku-
dögum og laugardögum. Til
Kaupmannahafnar vérða dag-
legar ferðir, brottför frá Keflavik
kl. 08:30. Til Glasgow verða
fjórar ferðir I viku, á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstu-
dögum, brottför kl. 08:30 og á
laugardögum, brottför kl. 08:00.
Til London verða ferðir á þriðju-
dögum, brottför kl. 09:00 og á
laugardögum, brottför kl. 08:00.
Auk þess Lundúnaferðir um
Giasgow sem að framan getur.
Til Osló verða tvær ferðir i viku, á
fimmtudögum og sunnudögum.
Ferðir frá Osló verða á þriðju-
dögum og laugardögum. Til
Færeyja verður flogið á sunnu-
dögum.
Félögin munu nota DC-8-63
þotur, Boeing 727 þotur og F-27
Friendshipskrúfuþotur til ofan-
greindra áætlunarflugferða.
Rauða
Stiarnan
Bókabúð
RAUÐA STJARNAN selur bækur og blöð
sem fjalla um málefni verkalýðsins
íslenskar, enskar, danskar, sænskar,
kínverskar (á ensku), albanskar (á ensku),
baácur á viðráðanlegu verði.
Einnig seljun við hljómplötur og plaköt.
Komið skoðið og kaupið.
Sendum í póstkröfu um allt land.
Skrifið til RS pósthölf 1357 R.
Opið virka daga frá 15. 00-18. 30
Rauða Stjarnan
Bókabúö
Lindagötu 15 Reykjarvík
Flugbjörgunarsveitin afl-
ar fjár
Flugbjörgunarsveitin i Reykja-
vik heldur upp á 25 ára afmæli sitt
um þessar mundir, en sveitin var
stofnuð 28. nóvember 1950. Mun
afmælisins verða minnst á næst-
unni, en i dag, laugardag, verður
hin árlega merkjasala Flug-
björgunarsveitarinnar.
Meðlimir Flugbjörgunar-
sveitarinnar I Reykjavik eru nú
talsvert á annað hundrað. Sveitin
hefur aðstöðu I Nauthólsvik og af
tækjakosti hennar má nefna 5
fjallabila, þar af eru tveir sér-
staklega ætlaðir til sjúkra-
flutninga, og snjóbil. Æfinga-
dagar á þessu ári eru þegar
orönir 190 og meðlimir sveitar-
innar hafa verið kallaðir út sex
sinnum til leitar eða vegna að-
stoðar. Þó svo að Flugbjörgunar-
sveitin sérhæfi sig i leitum að
flugvélum og aðstoð i
sambandi við flugslys, þá vinna
meðlimir sveitarinnar einnig
margvisleg önnur hjálparstörf.
Félagar f Flugbjörgunarsveit-
inni munu sjálfir selja merki á
götum borgarinnar og m.a. úr
snjóbil á Lækjartorgi. Einnig
verða merki afhent sölubörnum i
skólum borgarinnar og söluhæstu
börnin verða verðlaunuð með
klukkutfma útsýnisflugi með
Vængjum. Merkjasalan er
aðaltekjustofn Flugbjörgunar-
sveitarinnar i Reykjavik og
treysta meðlimir sveitarinnar þvi
að sölufólki verði vel tekið, nú
sem endranær.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar efnir til kaffisölu á
Hótel Loftleiðum á sunnudaginn
klukkan 15 og rennur allur ágóð:
til starfsemi sveitarinnar.
Áfram
MA-veggskjöldurinn
Nýlega hefur Nemendasamband Menntaskólans á Akureyri gefið út
veggskjöld (platta) úrpostulíni með mynd af gamla skólahúsinu, sem
svo margar minningar eldri og yngri nemenda skólans eru bundnar
við. Teikningu af húsinu gerði einn af fyrrverandi nemendum skólans,
séra Bolli Gústafsson i Laufási, en skjöldurinn er framleiddur i Gleri og
Postulini h.f. i Kópavogi. Má búast við, að margir af nemendum
skólans vilji eignast þennan fagra veggskjöld og verður hann til sýnis
og sölu i versluninni Gleri og Postulini, Hafnarstræti 16. — Verð
skjaldarins er kr. 2500,00 og verður öllum hagnaði af sölunni varið til
þess að bæta aðstöðu til félagsstarfs í Menntaskólanum á Akureyri.
Norðmenn rausnarlegir
við Skógrækt ríkisins
Norðmenn halda áfram
rausnarskap slnum við Skógrækt
rikisins. Að sögn Hákonar
Bjarnasonar, skógræktarstjóra,
gáfu þeir skógræktinni vél til að
telja og rannsaka árhringi i
lifandi trjám. Vinnur vélin
þannig, að hún borar örmjótt gat
á boi trjánna, en úr borkjarn-
anum eru upplýsingar siðan
lesnar.
Skógræktinni hefur og hlotnast
ísaldir Í
Framhald af bls. 4.
Margt er í óvissu á sviði rann-
sókna.á veðurfari og isöldum. En
eitt virðist ijóst: ef að svo heldur
fram sem hingað til með bein
áhrif mannfólksins á veðurfar og
loftslag, þá kemur til isaldar
löngu áður en jörðin rambar með
sólu inn f spíralarma Vetrar-
brautar næst.
iRyggt á Information)
annað hnoss. Er það drattarvél,
sem hægt er að aka um veg-
leysur. Það var þróunarsjóður
Sameinuðu þjóðanna, sem veitti
fé til kaupa á henni.
Hákon sagði að nú vantaði
aðeins plóg við vélina til þess að
hún kæmist i gagnið. —"óþ
llmur
Framhald af bls. 8.
orðið afdrifarik. Við heyrum sagt
frá þessum fyrstu skrefum rithöf-
undar i glettnum tón, hátiðleikinn
er rekinn burt harðri hendi, en
stoltið leynir sér ekki heldur.
Bókinni lýkur á ljóðrænum kapi-
tuna um túnið heima: „Ég var
eitt af grösunum sem uxu i þessu
túni”. Hér e^ tónninn sem oftar
auðmýkt gagnvart vettvangi
fyrstu ára ævinnar — og um leið
vitum við af sjálfsögðu stolti
manns sem hefur látið dag-
drauma bernskunnar rætast. A.B.
Framhald af 2 . siðu.
illa fjarvista. Þótt ekki tækist
með hótunum um uppsagnir og
jafnvel málsókn að hræða konur
frá þátttöku i fjöldaaðgerðunum
24. október, á nú greinilega að
hræða þær frá frekari sókn. Það á
að reyna að láta þær sjá eftir þátt
töku sinni.
Lög og siðferði
Auðvitað er það hægt — laga-
iega — að draga af kaupi þeirra
sem ekki mættu til vinnu 24. októ-
ber. Það er lika hægt að draga af
kaupi þeirra karla, sem ekki
mættu vegna þess að þeir gættu
barna meðan mæðurnar lögðu
niður vinnu og það er hægt að
draga af kaupi þeirra karla, sem i
raun voru óvinnufærir á vinnu-
stöðum sfnum vegna þess að þeir
tóku börnin með sér og gættu
þeirra þar.
Allt er þetta hægt — lagalega.
En siðferðiiega hlýtur það að
verða fordæmt. Og það mega þeir
vinnukaupendur vita, að eftir þvi
verður tekið, hvernig hver og einn
gerir þessa hluti upp við sam-
visku sina. Og það mega þeir lika
vita.að svona vopn snúast gjarna
i höndum þeirra sem beita þeim. 1
stað undirgefni hljóta þeir andúð,
i stað hælingar uppreisn.
Samdráttur — og konur
sendar heim
Sjálfsagt taka konur það ekki
mjög nærri sér að borga með
launum eins dags fyrir þá upplif-
un sem samtakamátturinn veitti
þeim föstudaginn 24. október. Hitt
er alvarlegra mál, að enn stönd-
um við frammi fyrir þvi, að sam-
dráttur i atvinnulifinu bitnar
fyrst og fremst á konum. Starfs-
fólki frystihúsanna á Suðurnesj-
um hefur öllu verið sagt upp
vinnu. Allir vita, að yfirgnæfandi
meirihluti þessa verkafólks er
konur. Enn einu sinni eru þær
sendar heim. Enn einu sinni verð-
ur stór hópur kvenna atvinnulaus.
En atvinnuleysinu nú mega
konur ekki taka sem óhjákvæmi-
legum hlut, eðlilegum og óbreyt-
anlegum. Atvinnuleysi er ekki
náttúruhamfarir. Það skapast af
ákveðinni hagstjórnarstefnu,
stefnu sem við verðum að berjast
gegn. Nú þurfa konur, bæði á Suð-
urnesjum ,og annarsstaðar að
koma og ræða saman um þetta
ástand og hvernig við berjumst
gegn þvi. Það verður næsta fram-
hald kvennaverkfallsins. —
Afram!
—vh