Þjóðviljinn - 02.11.1975, Blaðsíða 24
UOBVIUINN
Sunnudagur 2. nóvember 1975.
NÝ
BREIÐSKÍFA
FRÁ
ÞOKKABÓT
RÆTT VIÐ
FÉLAGA
SVEITARINNAR
UM TÓNLIST
OG PÓLITÍK
Söngsveitin Þokkabót eins og hún var skipuö i upptökunni. Frá vinstri: Haildór, Eggert, Ingólfur, Ragnar, Tony Cook véiamaöur f Hljóörita,
Gylfi og Magnús.
BÆTIFLÁKAR
Það hefur ekki mikið
heyrst til söngsveitarinnar
Þokkabótar hér í höfuð-
borginni að undanförnu.
Hún er núna að bíða eftir
að fá nýja hljómplötu úr
pressun og er hún væntan-
leg á markað innan
skamms (undirritaður
fullyrðir þó ekkert um út-
komudag því það hefur
reynst illa hingað til þegar
islenskar plötur eiga í
hlut).
Þessi breiðskifa er tekin upp i
byrjun september i Hljóðrita hf. i
Hafnarfirði undir stjórn Tony
Cook vélamanns og Ölafs Þórðar-
sonar sem er einn aðstandenda
útgáfufyrirtækisins Steinar hf.
Eins og áður skipa Þokkabót
seyðfirðingarnir Magnús Ragnar
Einarsson, Ingólfur Steinsson og
Gylfi Gunnarsson og Halldór
Gunnarsson úr Hveragerði. Þeim
hefur bæst iiðsauki þar sem eru
þeir Eggert Þorleifsson blásari úr
Reykjavik og hornfirskur
trommu 1 e i kari, Ragnar
Eymundsson, sem undanfarin
sumur hefur leikið með þeim fé-
lögum i danshljómsveitinni Eins-
dæmi fyrir austan.
Eggert leikur einkum á þver-
flautu og klarinett en fjórmenn-
ingarnir á gitara af ýmsum gerð-
um, pianó og bassa. Auk þess var
Reynir Sigurðsson slagverkamað-
ur fenginn að láni hjá Sinfóniu-
hljómsveitinni.
Það sem gerir þessa plötu frá-
brugðna fyrstu plötu þeirra er að
megnið af efni hennar er frum-
samið, bæði lög og textar. A hlið A
eru þessi lög: Flugvélar, lag eftir
Halldór Gunnarsson við ljóð
Hannesar Péturssonar, Dufl og
dans, lag eftir Donovan við ljóð
Valgeirs Sigurðssonar kennara á
Seyðisfirði, Möwekvæði eftir
Þórarin Eldjárn við lag Magnús-
ar Einarssonar, Sveinbjörn
Egilsson einnig eftir Þórarin við
lag Gylfa Gunnarssonar, Mið-
vikudagur, lag Ingólfs Steinsson-
ar við ljóð Steins Steinarr, Man-
söngur, ljóð Halldórs Gunnars-
sonar við lag Donovans, Við
Austurvöll, lag Jóns Asgeirssonar
við Ijóð Jónasar Arnasonar, og
siðasta lagið er Unaðsreitur,
hefðbundið islenskt klámrokk
með mjaðmasveiflu, lag Magnús-
ar við texta Halldórs.
Hlið B er eitt verk sem nefnist
Sólarhringur og skiptist i fimm
kafla. Lögin eru eftir Magnús,
Ingólf og Halldór og sá siðast-
nefndi samdi einnig alla texta.
Skifa þessi heitir svo Bætiflák-
ar.Pressun er gerð i Amsterdam
en umslagiðhjá Grafik, hannað af
Þokkabót og Sigurjóni Jóhanns-
syni sem tók ljósmyndir.
Seyöfirskt sólskin
mótaði plötuna
Þjóðviijinn ræddi við þrjá
þeirra félaga, þá Ingólf, Magnús
og Eggert, fyrir skömmu og bað
þá fyrst að segja frá tilurð plöt-
unnar.
— Við vorum á Seyðisfirði i
sumar þar sem við lékum tveim-
ur skjöldum, æfðum fyrir upptök-
una og lékum fyrir dansi á böllum
sem hljómsveitin Einsdæmi. Það
var mikil sól á Seyðisfirði i sum-
ar, eitt sólrikasta sumar sem
menn muna, og platan ber merki
þess. Fyrri hliðin er i léttum dúr
og moll, efni sem við höfum verið
að dútla við og fannst ágætt að
losna við inn á plötu. Sólarhring-
urinn á seinni hliðinni er mest-
megnis náttúruflipp sem varð til i
sumar á Seyðisfirði og hefði lik-
lega ekki orðiö til hér i Reykjavik.
Upphaflega átti hann að vera
mun styttri en þegar við komum i
hljóðrásaverið og fórum að nýta
þá möguleika sem þar gáfust óx
hann i höndunum á okkur, við
hreinlega týndumst i músikinni
og verkið varð um 20 minútur að
lengd. Við það sópaðist heilmikið
efni út af plötunni sem við höfðum
æft og ætluðum að hafa með.
— Þessi plata er með nokkuð
öðru sniði en Upphafið.
— Já, þær eru gjörólikar. Upp-
hafið var nokkuð tilviljunarkennt.
Við vorum með ákveðið lagasafn
sem við sungum á skemmtunum
og svo var það bara allt i einu
komið inn á plötu. Bætiflákar
sýna meira hvað við erum að
gera og eru nær þvi sem verður
hjá okkur, a.m.k. músikin. Það er
ekki á stefnuskránni að gefa út
irsk þjóðlög. Heldur ætlum við að
vera með frumsamið efni og fara
meira út i pólitikina.
Kröfuspjaldafrasar fara
itaugarnará okkur
— Það sakna eflaust margir
pólitikurinnar á þessari plötu.
— Já, en við teljum okkur ekki
þurfa að afsaka þessa plötu á
neinn hátt, hún stendur fyrir sinu.
Það felst i henni litil ádeila, tón-
listin er aðalatriðið. Við erum
eiginlega að spila okkur saman,
finna okkur ákveðinn stil.
Það hefur hins vegar farið i
taugarnar á okkur hve leiðinleg
lög eru iðulega sett við pólitiska
texta, einhvers konar marsar
o.þ.h. Og textarnir eru heldur
ekki nógu góðir. Mest eru þetta
kröfuspjaldafrasar. Ris upp fé-
lagi! o.s.frv. Það þýðir ekki að
kasta framan i fólk harðsoðnum
frösum sem það notar ekki dag-
lega og þekkir ekki nema sem
einhvern kommúnistaáróður.
Með þvi móti næst ekkert sam-
band, fólk visar þvi á bug. Það
verður að nota daglegt mál og
fara eilitið i kringum hlutina,
gefa fólki kost á að hugsa málin i
stað þess að matreiða réttan
skilning ofan i það.
Það er i þessum anda sem okk-
ur langar til að starfa. Það er
hægt að syngja ýmiss konar texta
viö lögin okkar en ekki kröfu-
spjaldafrasa. Við viljum semja
öðruvisi texta og getum það von-
andi. Við höfum ágætan hagyrð-
ing þar sem Halldór er og Eggert
hefur lika gert ágæta texta. Von-
andi má sjá árangur þessarar
stefnu þegar við förum að spila i
vetur: kreppurokk með vægri
hagsveiflu. Við ætlum að spila
saman fimm, þ.e. Ingólfur,
Eggert, Halldór, Magnús og Leif-
ur Hauksson sem hefur dundað
við gitarleik, söng og lagasmið
frá blautu barnsbeini.
— Og ef við gefum út aðra plötu
verður umslagið rautt, bætti Egg-
ert við.
Síðasti dagur sýningar
Tryggva Ólafssonar
Siðasti dagur á sýningu Tryggva ólafssonar i Galleri StJM er i dag,
sunnudag. Aðsókn að sýningunni hefur veriö mjög góð og hafa margar
myndanna selst.