Þjóðviljinn - 04.01.1976, Side 2

Þjóðviljinn - 04.01.1976, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. janúar 1976. Umsjón: Viiborg Harðardóttir. Bókmenntatillegg kvennaársins: „Flest bókmennta- verk eru skrifuð af karlmönn- um fyrir karlmenn” Kvenlýsingar og raunsæi Helga Kress herjar formúlu sem hægt sé að láta bækurnar ganga upp i, enda tekur Helga það sjálf mjög skýrt fram, að sjá verði verkin i ljósi tegunda sinna og tima og hvert þeirra kalli á sina aðferð. Hún út- skýrir að með kvenlýsingum eigi hún ekki aðeins við lýsingar á út- liti og athöfnum kvenna og hlut þeirra i framvindu verksins, heldur einnig það viðhorf til kvenna sem það i heild tjáir, meðvitaða eða ómeðvitaða höfundarafstöðu þess. Og raunsæi segist hún nota i marxiskri merk- ingu um þann eiginleika listar að skyggnast undir yfirborð hlut- anna og draga fram og sýna sam- félagsleg tengslþeirra og orsakir. Þar styðsthún við kenningar þess sama Georgs Lucacs, sem Vésteinn skrifaði um og heldur sér við þær tvær grundvallarkröf- ur hans, að til þess að verk teljist raunsætt verði það bæði að sýna hið dæmigerða við mannlegtlif og jafnframt heild þess. Er hið dæmigerða þá samruni þess al- menna og einstaka i persónu- lýsingum og atburðarás, en heildarhugtakið lýtur að þeirri samfélagsmyndsem verkið dreg- ur upp. Til þess að hægt sé að tala um raunsæi i kvenlýsingum samtimabókmennta, verður að gera sér grein fyrir, hver sé hin Er konum lýst i samræmi við veruleikann? Beinir verkið erindi sinu til beggja kynja jafnt? Þetta cru þær tvær grund- vallarspurningar sem alltaf má spyrja og ganga útfrá við könnun á stöðu og hlutverki kvenna i bók- menntum, þótt hvert verk kalli siðan á slna aðferð eftir aðstæð- um, segir Helga Kress bók- menntafræðingur i grein sinni „Kvenlýsingar og raunsæi” i nýj- asta Skirni, tímariti Hins is- lenska bókmenntafélags, 1975. Einsog fyrirsögnin ber með sér fjallar grein hennar um samband kvenlýsinga og raunsæis og hún bendir á, að þótt könnun á stöðu kvenna i bókmenntum miði fyrst og fremst að vitneskju um konur fyrr og siðar og jafnframt að skilningi á raunveruiegri stöðu þeirra — og sé þannig liður i þeirrí vitundarvakningu sem er forsenda jafnréttis — opnist einnig með henni ein leið að veru- leikaskynjun höfundar, og þarmeð raunsæi verksins í heiid. Helga skrifar grein sina með hliðsjón af bók Vésteins Lúðviks- sonar, Gunnari og Kjartani, sem fær vægast sagt lélega einkunn i þessu ljósi, en sjálfsagt hefðu is- lenskir samtimahöfundar upp tii hópa, með örfáum undantekning- um þó, fengið sömu útreið eða verri, hefðu einhverjir aðrir verið valdirtil slikrar gegnumlýsingar. Helga Kress hefur orðið fyrst til þess hér á landi að gera úttekt á stöðu og hlutverki kvenna i bók- menntum, en sú grein innan bókmenntafræðinnar hefur risið með kvenfrelsishreyfingu siðustu ára, einsog hún getur i upphafi þessarar skirnisritgerðar sinnar, sem enginn sem áhuga hefur á jafnréttismálum ætti að láta framhjá sér fara. Ég ætla að ganga svo langt að fullyrða að þetta sé langathyglisverðasta bókmenntalega tilleggið til is- lenskrar jafnréttisbaráttu sem fram kom á þvi margrómaða kvennaári 1975 og raunar hið eina sinnar tegundar á þrykki, þótt fleiri einstaklingar og starfshóp- ar hafi verið með tilraunir i þessa átt. Sérstaklega ánægjulegt er hve vel unnin og vönduð grein Helgu er, þannig að mas. þeir sem eru á öndverðum meiði i jafnréttismálunum verða að beygja sig fyrir bókmenntalegu rökunum. Ekki er ástæða til að rekja hér nákvæmlega umsögnina um Gunnar og Kjartan, en eftir að Helga hefur dregið fram það kvenviðhorf sem liggur til grund- vallar kvenlýsingum bókarinnar og sýnt framá afleiðingar þess fyrir raunsæi sögunnar verður niðurstaðan svohljóðandi: „Hvað varðar hlutverkaskipt- ingu kynja i þjóðfélaginu viður- kennir Vésteinn Lúðviksson þá borgaralegu hugmyndafræði sem hann annars ræðst gegn. t bók hans er konum hvorki lýst i þjóð- félagslegu samhengi né sem hlut- um i þjóðfélagsheild. Hana vant- ar heildarsýn, og i henni er engin dæmigerð kvenpersóna. Höfund- ur gerir sér ekki grein fyrir að um stéttaskiptingu þjóðfélagsins verður ekki fjallað án kynskipt- ingar þess, og sú þjóðfélagsmynd sem hann gefur getur þvi ekki orðið annað en röng. Raunsæi i kvenlýsingum er þvi forsenda fyrir raunsæi bók- menntaverks i heild, alveg eins og vitund um raunverulega stöðu kvenna i þjóðfélaginu er forsenda réttrar þjóðfélagsgreiningar.” Hversvegna Gunnar og Kjartan? Nú má spyrja hversvegna greinarhöfundur hafi einmitt val- ið bók Vésteins Lúðvikssonar til þessarar úttektar, en ekki ein- hverja aðra, og hún svarar þvi reyndarr „Gunnar og Kjartan er að mörgu leyti vel fallin til könnun- ar. Hún fjallar um samtimann og er samin á árum þegar miklar umræður um stöðu kynjanna eiga sér stað á íslandi, einnig á bókmenntalegu sviöi. Hún er löng og efnismikil, með fjölda persóna og breiða umhverfislýsingu. Og ekki sist er hún forvitnileg fyrir þær sakir að hún er samin af ung- um sósialiskum höfundi sem bæði i ræðu og riti deilir hart á borgaralegt þjóðfélag, og að- spurður myndi efalaust telja sig hlynntan jafnrétti kynjanna. A hinn bóginn má svo af þessari bók einnig fá vissa mynd af þvi, hvað islenskir bókmenntagagnrýnend- ur leggja upp úr kvenlýsingum við mat á bókmenntum. En Gunnari og Kjartani var yfirleitt ákaflega vel tekið i blaðadómum, og árið 1974 var hún lögð fram sem önnur af tveimur bestu is- lensku bókum til bókmenntasam- keppni Norðurlandaráös.” Einnig bendir Helga á, að á sama tima og Vésteinn er að skrifa Gunnar og Kjartan birtir hann grein i Timariti Máls og menningar um „Georg Lukacs og hnignun raunsæisins”, þar sem fram kemur, að hann aðhyllist raunsæi i skáldskap og hefur með Gunnari og Kjartani ætlað sér að skapa raunsætt verk, einsog Helga leiðir rök að. Höfuðminni sögunnar skilgreinir hún sem einslakling og samfélag og segist þvi leggja megináherslu á að at- huga hvernig sambandi kvenna við þetta höfuðminni sé varið, og hver sé hlutur þeirra i samfélags- mynd sögunnar. Aðferðirnar Aður er getið þeirra tveggja grundvallarspurninga sem ganga má útfrá við slika könnun, en fróðlegt er að kynnast vinnu- brögðum Helgu við úttektina nán- ar, þótt ekki beri að taka það sem hér er rakið sem einhverja alls- raunverulega staða kvenna i þjóðfélaginu sem miðað skal við, segir Helga, og tekur til fyrir- myndar skilgreiningu Juliet Mitchell á stöðu kvenna i borgaralegu þjóðfélagi i bókinni „Woman’s Estate”. En samkvæmt henni ákvarðast lægri staða kvenna af fjórum höfuð- þáttum: framleiðslunni, æxlun- inni, kynferði og barnauppeldi. 1 þessu sambandi bendir hún á það m., að flest bókmenntaverk eru „skrifuð af karlmönnum fyrir karlmenn. Karlmenn eru gerendur bæði i atburðalýsingum og atburðarás. A konur er litið meö augum karlmanna, þeim er lýst I afstöðu við þá, þær eru þol- endur og þiggjendur. Þannig hafa bókmenntir stuðlað að hefð- bundnum viðhorfum til hlutverks kynja og til kvenna sem ,;hins” kynsins.” Um myndina, sem þau stöðn- uðu viðhorf þjóöfélagsins sem Juliet Mitchell lýsir, taka á sig i bókmenntum visar Helga til kenninga Pil Dahlerup i bókinni Litterære kpnsrolier um karl- veldismunstur („patriarkale fiktionsmunstre) f frásögn: „1. Aðalpersónan er karl- maður. 2. Karlmenn eru i meirihluta persóna. 3. Kvenpersónur eru tengdar kyn- lifi. 4. Viðfangsefni frásagnarinn- ar er annaðhvort bundið við karl- menn eina eða þvi er lýst þannig. 5. Höfuðsjónarmið eru lögð i munn karlmanna. 6. t persónu- Framhald á bls. 18 NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ... i tilefni nýs árs birtum við hér teikningar Kari Rolfsen úr blaði norsku kvennahreyfingarinnar Sirene, en fyrir Jensen sinn hefur - Jæja, þá er kvennaárið búið.... Kari fengið norsku teikniseríuverðlaunin. Og hér birtist Jensen með kveðju til Páls Líndals og allra hinna, sem voru búnir að hlakka svo til áramótanna. Það er einsog cftir veikindi: Gott þegar lifið getur aftur byrjað sinn eöliiega gang.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.