Þjóðviljinn - 04.01.1976, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 04.01.1976, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. janúar 1976. DIÖÐVIUINN MALGAGN SÖSlALISfrtA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraidsson Umsjón meö sunnudagsblaöi: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skóiavöröust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. HASKALEGT FYRIRHYGGJULEYSI í áramótagrein sinni bendir Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins, á þá staðreynd að islendingar hljóti á kom- andi árum að leggja vaxandi áherslu á iðnað og eflingu iðnaðar. Fiskveiðar og landbúnaður munu enda ekki taka við fleira fólki á komandi árum og þvi verður iðnaðurinn að taka við þvi fólki sem bætist við. Af hálfu núverandi rikisstjórnar hefur hins vegar litið verið aðhafst til þess að efla iðnaðinn og „málefni iðnaðarins ein- kennast af stjórnleysi og forystuleysi, sem bersýnilega mun hafa i för með sér mjög hæga iðnþróun að öllu óbreyttu”, segir Ragnar Arnalds i grein sinni. Hann bendir á að islenskir iðnrekendur hafi ekki bol- magn til þess að efna til stóriðnaðar af neinu tagi, þess vegna verði forusta rikis- valdsins að koma til. í þessu sambandi vitnar Ragnar i skýrslu starfshóps Rann- sóknaráðs rikisins um iðnaðinn, en þar segir: „Allt tal um ný iðnaðarfyrirtæki, er i stofnkostnaði þurfa meira en sirka 100 milj. kr. er i dag óraunhæft án forgöngu rikisvalds og/eða sveitarfélaga.” Um þetta segir svo i grein Ragnars: „Þetta er einmitt vandamál islensks iðnaðar í hnotskurn: Vegna smæðar þjóð- félagsins eru islenskir kapitalistar van- máttugir að hafa forustu, en vegna póli- tiskra fordóma er rikisvaldinu fyrirmun- að að gegna forystuhlutverki nema i und- antekningartilvikum. Niðurstaðan verður sú að hvorki einkaaðilar né opinberir aðil- ar hafa frumkvæði um iðnaðaruppbygg- ingu sem eitthvað munar um.” Siðan bendir Ragnar á, að hægri öflin sjái það helsta lausn á þessu augljósa vandamáli að leita á náðir erlendra auð- hringa um uppbyggingu iðnaðar. Hann nefnir siðan dæmi um fjölmarga þætti is- lensks iðnaðar, sem hér mætti byggja upp undir forustu rikisvaldsins, en nú er rikj- andi af hálfu núverandi rikisstjórnar al- gert stefnuleysi i málefnum iðnaðarins. En það er ekki einasta i almennum iðn- aði sem ekkert bólar á athöfnum af hálfu núverandi rikisstjórnar. Raforkumálin eru annað dæmi um stefnuleysi núverandi rikisstjórnar, frámkvæmdir við Sigöldu og Kröflu voru ákveðnar i tið vinstri- stjórnarinnar. Hið sama er að segja um byggðalinuna, sem hefur tafist um langt skeið vegna sleifarlags yfirvaldanna. Það verkefni sem nú stendur mest á i raforku- málum er uppbygging dreifiveitna og undirbúningur að rafhitun húsa. 1 þeim efnum er litið aðhafst sem marktækt er og stjórnleysið einkennir allar æðstu stofnan- ir sem frumkvæðið eiga að hafa. Skipulagsleysið i okru- og iðnaðarmál- um, sem Ragnar Arnalds fjallar um i grein sinni, er aðeins eitt dæmið af mörg- um þar sem kreddurnar eru látnar ákveða ferðina fram yfir skynsemina. Glórulaust ofstæki ihaldsins og framsóknar i trú hægri flokkanna á einkaframtakið sem lausn allra vandamála verður til þess að ekkert er aðhafst til þess að efla islenskan iðnað og til þess að tryggja að islendingar geti staðið á eigin fótum sem sjálfstæð þjóð. Hið alvarlegasta við þá vanrækslu sem hefur einkennt afstöðu núverandi rikis- stjórnar i iðnaðarmálum er þó það að með henni er verið að grafa undan trúnni á eig- in atvinnuvegi um leið og grundvöllurinn fyrir atvinnulifinu i framtiðinni er veiktur mjög stórlega sem aftur kallar á erlenda stóriðju eins og álverksmíðjuna ef núver- andi rikisstjórn verður viðvöld öllu lengur. Vanrækslan i iðnaðarmálum kemur ekki niður á landsmönnum i dag eða á morgun, hún kemur niður á landsmönnum öllum og lifskjörum þeirra eftir nokkur ár. Það fyrirhyggjuleysi sem hefur ein- kennt meðferð Gunnars Thoroddsens i iðnaðarmálum getur þvi orðið þjóðinni háskalegt er fram liða stundir. — s. VÍSINDI, TRÚGIRNI, GABB Trúgirni fólks er firnafróölegt viöfangsefni, og þá er ekki hvað sist skemmtilegt aö fylgjast með þvi, hvernig trúgirni þessi breyt- ist eftir ýmsum aöstæðum i sam- félaginu. Enn i dag er I góðu gengi trú manna á fyrirboða ýmis-- konar, happatölur eöa óhappa, möguleika á að hafa áhrif á at- burði með einhverskonar hvitum eða svörtum galdri. En þeir sem telja sig yfir slíkt hafna og kaila þetta úr sér gengna hjátrú reynast ekki sterkir á svellinu þegar á reynir. Ekkert er algengara en menn taki fyrir- varalaust trúaniegar allskonar tröllasögur ef þær eru aðeins færðar i réttan búning. Og sá „rétti” búningur nú um stundir er visindin. Ekkert hefur reynst blöðum sem ætla að sprella eitthvað fyrsta ciiril notadrýgra en einmitt tilbúnar fréttir úr heimi visinda og tækni. Skulu nú rakin nokkur dæmi um þessháttar samsetning mönnum til tilbreytingar á nýju ári. Tunglið og aðdráttaraflið Þann fyrsta april árið 1835 til- kynnti blaðið New York Sun að tveir þekktir visindamenn — stjarnfræðingurinn Gershel og ljósfræðingurinn Brewster hefðu eftir mikið starf fundið upp sjón- auka sem væru svo öflugur að sjá mætti með honum fólk á tunglinu og ef til vill lifandi verur á öðrum hnöttum. Hins vegar heföu vis- indamenn þessir ekki handbært fé til að smiða svo voldugan sjón- auka. Frétt þessi vakti mikla hrifningu og allmargir gerðu sig liklega til að leggja fé i púkkið — aðrir visuðu hinsvegar af miklum móði á rlkissjóð. Þann fyrsta april 1877 skýrði þýska timaritið Daheim frá manni sem fundið hefði upp að- ferð til að draga úr aðdráttarafli jarðar. Uppfinningamaður þessi gekk sig inn i fyrirtækið Borsig, lýsti uppgötvun sinni og bað um einhvern þungan hlut. Honum var fengið málfnstykki sem var um 50 kg að þyngd. Dró hann þá upp úr vasa sinum tvö virkefli, vatt hann ofan af öðru þeirra og vafði virn- um utan um málmstykkið. Endann á virum festi hann við hitt keflið. Eftir þetta, sagði blað- ið, dró hann stykkið upp án minnstu fyrirhafnar. Tilraun þessa endurtók maðurinn i viður- vist fulltrúa hers og flota. Hann krafðist siðan þriggja miljón marka fyrir visdóm sinn, en þegarhonum var neitað hélt hann til Englands á skipi. En sem betur fer fyrirstöðu Þýskalands i heim- inum grandaði vitisvél skipi þessu áður en breska ljónið fengi þetta merka leikfang i hendur. Járnmaðkur Þann fyrsta april 1866 tilkynnti þýska blaðið Westdeutsche Volkszeitung mikil tiðindi og ill. Á vissum járnbrautarspotta i grennd við útgáfuborg blaðsins fundu menn i brautarteinunum skuggaleg göng svipuð þeim og trjámaðkur skilur eftir sig i viði. „Jámormur” þessi, sem blaðið kallaði svo, stefiiir i voða stál- mannvirkjum allskonar! Nokkru siðar komst visindamaður einn tiltekinn i Berlin að þvi, að skað- valdur þessi var maðkur einn, sem leysti upp stál með úrgangs- efnum þeim sem aftur úr honum gengu. Haft er fyrir satt að fleiri en einn eða tveir efnafræðingar hafi velt fyrir sér ráðum til að drepa maðk þennan áður en blað- ið sprakk á þessu april-limmi. Timarnir breytast og april- gabbið með. Árið 1960 hélt austur- þýska blaðið Neue Berliner Illu- strierte upp á fyrsta april með þvi að skýra frá niðurstöðum röntgenlýsingar á hinum fræga helgidómi múhameðsmanna, „svarta steininum” sem geymd- ur er i musterinu Kaaba i Mekka. A röntgenmyndinni (sem að sjálf- sögðu fylgdi með i timaritinu) VÍSINDI OG SAMFÉLAG kom greinilega fram, að inni i steininum lá beinagrind ein- hverskonar mannveru og við hlið hennar óskiljanleg áhöld úr málmi. Eins og kunnugt er þá er „svarti steinninn” loftsteinn sem einhverntima fyrir löngu féll á jörðu niður. Rannsóknin leiddi i ljós, sagði blaðið, að inni í loft- steininum væru geymdar leifar fulltrúa annarlegrar menningar útan úr geimnum. Að sjálfsögðu hafa margir aprilgabbarar einmitt þennan steinin klappað: geimfarar, gest- ir frá öðrum hnöttum. Arið 1974 birti mjög alvarlegt timarit, „Naturwissenschaftliche Rund- schau” i Vestur-Þýskalandi grein i aprilhefti sinu, þar sem sýnt var fram á, að á forsögulegri vegg- mynd i Nerchahelli á Spáni (sem venjulega er kölluð Höfrungurinn fráNercha) sé alls ekki höfrungur Heldur örsmár partur af vissri tegund einfrumunga sem á sum- um málum er kölluð „inniskór- inn”. Einfrumungur þessi er svo smár að hann sést aðeins i full- kominni smásjá. Til samanburð- ar var mynd af veggmyndinni fomu og svo mynd af einfrum- ungnum, tekin i smásjá. Höfund- ar samantektar þessarar sögðu, að ekki gæti leikið vafi á þvi, að þetta svæði jarðar hefði verið heimsótt af skyni gæddum verum utan úr geimnum og væri teikn- ingin minjar um veru þeirra hér á jörðu. Greinin var að öllum frágangi á borð við „ekta” vis- indaritsmiðar og jafnvel nokkrir liffræðingar létu blekkjast. Sama ár birti timaritið Jugend und Technik frétt um árangurs- rikar tilraunir með smátt tæki, sem tekur við rafsegulbylgjum frá heilanum. Getur tæki þetta sýnt eiganda þess svart á hvitu hvort milli hans og manns þess sem hann er að tala við hefur tek- ist gagnkvæm samúð og skilning- ur eða ekki. (áb endursagði eftir Naúka i Zhizn).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.