Þjóðviljinn - 04.01.1976, Page 8

Þjóðviljinn - 04.01.1976, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. janúar 1976. Nálægt áramótum halda menn áfram að tala um bókaútgáfu á íslandi, og eru eins og áður jafnhissa á því, að hún skuli ekki vera minni en i fyrra eða hitteðf yrra. Og eins og áður eru hafðar uppi nokkrar harmatölur um það, hve laklegt hlutfall sé á milli góðra bóka og vondra sem út koma. Það er líka spurt að því, hver beri ábyrgð á þeim fjanda. Útgefendur? ver&ur að gera með miklum fyrirvara. Sumir útgefendur, t.d. Mál og menning, hafa að mestu forðast skrum á kápum bóka. Margir höfundar forðast að leyfa slikt — þótt til séu þeir islenskir höfundar, sem ekki kunna að meta nein önnur skrif um sig en þau, sem aðstandendur útgáfunn- ar hafa sett á kápur bóka þeirra. Annars er það yfirleitt regla að mest er skrumað þegar kynntar eru metsölulegar þýddar bækur. Að þvi er varðar varnir gegn þessu moldviðri, þá verður að segja þá sögu eins og er, að blaða- menn og fréttastjórar gæta sin ekki nærri nógu vel á þvi, að Sigurför skrumsins Eða gagnrýnendur? Eða þá rithöfundar sjálfir? Þetta mál skulum við fjasa svolitið um meö tilvisun til þriggja skrifa nýlegra. Greinar ólafs Hauks Simonarsonar i Þjóðviljanum 21. des. Reykjavik- urbréfs Matthiasar i Morgun- blaði 14. des. Og ritdóms eftir Jónas Guðmundsson um skáld- sögu Snjólaugar Bragadóttur i Timanum 21. des. Grafast i skriðu Bæði Ólafur Haukur og Matthias eru nokkuð sárir út af þvi, að útgefendur drekki öllu „heilbrigðu mati” á bókum, þurrki út mun á ómerkum og merkum bókmenntum sem „grafast i þessa skriðu heimsku- legra slagorða” (Ól. H.) um „endemisrusl” sem „bannsettir hasarbókaútgefendur” senda frá sér. Ólafur Haukur fordæmir mjög auglýsingastarfsemi útgef- enda sem dásami og prisi djöfuls rusl. Matthias er hinsvegar tvö- faldur i roðinu, enda finnur hann á sér að það passar varla að skamma auglýsingastarfsemi sem slika i höfuðmálgagni kaup- sýslunnar. Hann reiðist þvi „skrumi á bókakápum og i frétta- tilkynningum” sem kemur frá út- gefendum og bætir við „þetta á heima i auglýsingum en hvorki i fréttatilkynningum né kynn- ingu”. Skrumið Þarna beit Matthias reyndar i skottið á sér. Ef við sláum þvi föstu að ábyrgðarlaust skrum um bækur sé skaðlegt, þá verða menn fyrst og fremst að hafa hugann einmitt við auglýsingastarfsem- ina sjálfa. Það er gagnvart henni að almenningur er hvað varnar- minnstur. Sá sem hlustar á fólk á bókabúðarölti fyrir jól kannast mætavel við setningu sem þessa: „Hún er svo mikið auglýst þessi”. Og það dugar lygilega oft til að ráða úrslitum um bókarval. Aug- lýsingastarfsemin er miklu fyrir- ferðarmeiri en fréttaflutningur af bókum, að maður tali nú ekki um gagnrýni, sem i praxis fjallar varla um mikið meira en skárri hlutann af frumsömdum bókum. En það er semsagt lika skrum að á bókakápum og i fréttatil- kynningum. Og auðvitað bera út- gefendur ábyrgð á þvi skrumi. Hér skal um leið strax minnt á þá staðreynd, að það er ekki hægt að setja útgefendur undir einn hatt frekar en t.d. rithöfunda eða gagnrýnendur. Allar alhæfingar sjálfshól bókaframleiðendanna smjúgi ekki inn i það sem heila á fréttamennska um bækur. Arfi og ilmgresi Og þá er komið að gagnrýnend- um blessuðum. Matthias hefur áhyggjur af þvi að þeir fuglar ruglist á „arfa og ilmgresi. Þeim veröur oft hált á svellinu, stund- um vegna pólitiskrar þröngsýni, en einnig mannlegrar skamm- sýni”. Meðal annars, segir hann, taka þeir þátt i þeim leik, að „ó- merkileg verk eru hafin til skýj- anna”. Ólafur Haukur er sýnu harðorðari. Hann segir gagnrýn- endur fara „andskoti hratt yfir sögu” og stunda þann banditta- hátt að „lepja upp flest það sem á markaðinn kemur hrátt eða soð- ið”. „Ég veit ekki betur en allir aðrir listgagnrýnendur liti á það sem sjálfsagðan hlut að velja og hafna — veri það myndlistarsýn- ingar, tónleikar eða leiksýningar. Hvi skyldu bókmenntagagnrýn- endur ekki lika velja og hafna? Er ekki ástæða til að krefjast á- kveðins hugrekkis af þeim, gildis- mats varðandi þær bækur sem eru tiundaðar. Það virðist að minnsta kosti ástæða til að staldra meira við þær, sem eru einhvers virði i islensku sam- hengi, leggja áherslu á bækur sem eru forvitnilegar sem til- raunir eða niðurstöður, en láta það léttvægara og þýdda ruslið biða, að minnsta kosti þar til eftir jól. Hvi i ósköpunum þarf að skrifa ritdóm um spennusögu eftir Alistair McLean? Það er bú- ið að þýða 17 bækur eftir hann á islensku. Þær eru allar eins, skrifaðar eftir uppskrift...” Velja og hafna Fyrst er að skoða nokkurn mis- skilning hjá Ólafi Hauki. Það er ekki rétt, að bókmenntarýnar geri minna af þvi að „velja og hafna” en aðrir listgagnrýnend- ur. Þeir sem skrifa um leiklist eða tónlist hafa venjulega á sér þann kross að skrifa um allar leiksýningar og tónleika i höfuð- staðnum eða svo gott sem. Bóka- rýnar velja reyndar meira en aðrir. Spurt er hvaðþeir velja til meðferðar. Svörin eru jafnmörg og þeir sjálfir. Halldór á Kirkju- bóli skrifar mikið um ævisögur ýmiskonar og það sem kallaður er þjóðlegur fróðleikur. Ólafur Jónsson hefur fyrst og fremst reynt að afgreiða nýjar islenskar skáldsögur. O.s.frv. Og að þvi er kaila eins og Alistair McLean varðar, þá er það alveg rétt, að þeirskrifa eftir formúlu sem litið breytist. Þess vegna er ekki brýnt að fjalla um einstakar bækur úr þeim flokki. En hitt getur verið meira en nauðsynlegt að skoða einmitt formúlur reyfarahöf- unda, reyna að fræða lesendur á aðferð þeirra og kenna þeim á- róður um menn og málefni og þjóðir, sem þeir i raun lauma að i bland við sinn hasar. Það er ekki til svo ómerkileg bók að ekki sé unnt að skrifa um hana merkilega úttekt, séu hlutirnir skoðaðir i stærra samhengi. Umsagnir Sem fyrr er tuggið eru gagn- rýnendur svo sundurleitur hópur að flestar alhæfingar um þá eru lygimál. En engu að siður ætti þeim að vera öllum skylt að virða það sjónarmið að fyrst af öllu beri að „staldra við þær bækur sem eru einhvers virði i islensku sam- hengi, leggja áherslu á bækur sem eru forvitnilegar sem til- raunir eða niðurstöður”. Þegar á heildina er litið skal það viður- kennt, að jafnvel þeir gagnrýn- endur sem leggja mesta vinnu i verk sitt vinna ekki nógu mark- visst einmitt að þessu. Brýna ekki nógsamlega fyrir mönnum þá einföldu staðreynd, að 2—3 ágæt- ar og 6—8 góðar bækur eru góð ársuppskera á Islandi og beina athyglinni að þeim. Það er lika ljóst, að svo og svo mikið af skrifum um bækur eru fólgin i þvi, ef ekki beinlinis að „hefja ómerkileg verk til skýj- anna” (Matthias) þá að minnsta kosti sýna þeim mikla vægð og miskunn. Um þetta dugir ekki að fjasa nema að nefna dæmi. Við höfum á undanförnum árum get- að skemmt okkur við mörg slik, einmitt á siðum Morgunblaðsins þegar heimilismenn þar og fasta- gestir úr hópi rithöfunda taka sér sleifar i hönd og maka hver annan af mikilli natni i sultu gagn- kvæmrar hrifningar (svonefnd „hringekja ástarinnar”). Og ný- legt dæmi i sömu veru er einmitt ritdómur Jónasar Guðmundsson- ar i Timanum sem áður var nefndur. Jónas, sem rétt i þessu var að komast að þeirri niður- stöðu i leikdómi, að Bertolt Brecht væri mesti ruglukollur, fær vart vatni haldið af hrifningu yfir nýrri bók Snjólaugar Braga- dóttur. Bækur Snjólaugar eru reyndar nær samtiðarveruleika eri margt af þeirri yfirspenntu af- þreyingu sem áður var hér á inn- lendum metsölulista. En að segja um bók eins og „Holdið er torvelt að temja”, sem er ósköp litið á- feng hvitvinsblanda, að hún sé „skrifuð af leiftrandi fjöri og þekkingu á lifi fólksins sem hún fjallar um” og annað i þeim dúr — það er blátt áfram tilræði við skynsemi og smekk. Ekki sist þegar Jónas lætur mjög að þvi liggja að bækur Snjólaugar séu ósköp svipaðar og vandaðasta skáldsaga ársins, Eftirþankar Jóhönnu eftir Véstein Lúðviks- son. Þetta er ekki hvað sist byggt á þeirri merkilegu forsendu sem Jónas gefur sér, að milli bóka sem seljast vel sé óhætt að setja jafnaðarmerki að öðru leyti. Djöfuls sérf ræðingarnir Ég hefi satt að segja ekki mikla trú á þvi að gagnrýni, góð eða ill, hafi mikil áhrif á bókamarkað á Islandi. En skrif sem þessi um- sögn i Timanum, og eru alls ekki einsdæmi, draga þó enn úr mögu- leikum gagnrýni til að hafa ein- hver skynsamleg áhrif. Jónas Guðmundsson er nefnilega einn af þeim rithöfundum, sem vinna i reynd að þvi að grafa undan öllu þvi sem heitir viðleitni til að leggja sæmilega skynsamlegt mat á bókmenntir hér á landi. Hann notfærir sér gamalkunna dylgjuaðferð um þessí mál segj- andi t.d. „Sú kenning að það eitt sé góðar bókmenntir, sem enginn vill heyra né sjá nema örfáir sér- fræðingar, virðist nú vera gengin sér til húðar. Andstæðan, sem tiL skamms tima hefur borið hið niðrandi heiti afþreyingarbók- menntir virðist nú vera að ná sér á strik og jafnágætir höfundar og Vésteinn Lúðviksson og Jökull Jakobsson hafa látið sig hafa það að taka ekki við hreinum for- skriftum úr kölkuðum hvelfing- um sérfræðinganna”. Vá, fjörið mar, segja krakkarn- ir. Grinið er það, að enginn hefur haft i frammi þessa einkennilegu sérfræðingakenningu sem Jónas Guðmundsson ætlar sér að stúta. (Eða' meinar hann kannski þá einföldu staðreynd að vinsældir og gæði eru ekki einn og sami hluturinn?). Það væri a.m.k. gaman að sjá Jónas benda á þann kennimeistara. Það eina sem er rétt i þessu tali er að Vésteinn og Jökull Jakobsson hafa reyndar notfært sér ýmsar uppákomur skemmtisögunnar — en það hefur enginn haft hið minnsta við það að athuga svo ég viti til. Enda veit það hver asninn að morð eða skothvellir lyfta ekki bók af sjálfu sér, né heldur sökkva þeir henni — öllu skiptir hvernig með er farið. Andstæðingarnir skelfilegu i hinum kölkuðu hvelfingum eru semsagt ekki til. En það skiptir Jónas og hans nóta ekki máli — hann hefur rétt enn einu sinni hamrað á þvi, að þessir djöfuls „sérfræðingar”, andskotans „sjálfskipaðir menningarvitar’’ eru illfygli hin mestu sem þægi- legt er að kenna um flestan vanda: „Hinn harði massi, þjóðin og skáldin, hefur verið brotinn i tvennt á hné sérfræðinganna,” segir hann. Skuggabox Þetta er semsagt eitt af mörg- um dæmum um það, að verið er fyrirfram að lýsa frati á öllu sér- hæfðu mati á bókum, „arfi eða ilmgresi” skipta ekki máli — það er salan sem ræður. Auglýsinga- skrumið og kunningjaskrifin eiga að fá að ráða henni i friði fyrir „menningarvitum”. Það kemur sannarlega vel á vondan að ein- mitt Matthias Johannessen skuli sjá sig neyddan til að kvarta yfir þessari sigurför skrumsins og meðalmennskunnar sem m.a. birtist i Timagreininni. Hvergi hafa menn emjað i fleiri tónteg- undum en einmitt á siðum Morg- unblaðsins gegn viðleitni þeirra sem reyna eða fá það verkefni að gera nokkurn greinarmun á „arfa og ilmgresi”. Þegar Matthias þykist svo kvarta yfir skelfilegri ruglandi i mati á bókum þá er hann öðrum þræði i skuggaboxi við eigin uppvakninga. An er ills gengis. o.s.frv. Arni Bergmann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.