Þjóðviljinn - 13.01.1976, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 13. janúar 1976.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i smiði og uppsetningu
veggja, hurða, lofta og hringstiga, ásamt
málun og dúkalögn. Einnig i fullgerða raf-
lögn og uppsetningu lampa, loftræstingu
ásamt pipulögn og frágang hreinlætis-
tækja i heilsugæslustöð, Hraunbæ 102,
Reykjavik.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3, gegn 15.000.- kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað,
fimmtudaginn 5. febrúarl976, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Byrjendaflokkar i ENSKU, ÞYSKU,
SPÆNSKU og ÍTÖLSKU.
Ný námskeið i BARNAFATASAUM,
MYNDVEFNAÐI, SNÍÐUM og SAUM-
UM, viðhaldi BÍLA, LEIRMUNAGERÐ (i
Fellahelli) og POSTULÍNSMALNINGU (i
Fellahelli)
Fullbókað er á námskeiðið og nemendur,
sem hafa skráð sig eru beðnir að staðfesta
skráninguna, við innritun i Fellahelli.
INNRITUN stendur yfir alla næstu viku i
Laugalækjarskóla, en kennsla hefst þar
12. jan.
BREIÐHOLTSSKÓLI: Kennsla hefst 15.
jan.
FELLAHELLIR: Kennsla hefst 14. jan.
ÁRBÆJARSKÓLI: Innritun verður
þriðjud. 13. jan. kl. 19:30-21, kennsla hefst
sama kvöld.
ATHUGIÐ: KENNSLUGJALD GREIÐ-
IST VIÐ INNRITUN.
Námsflokkar Reykjavikur
Námskeið Heimilis-
iðnaðarfélags íslands
1. Vefnaðarnámskeið —
Kvöldnámskeið
Byrjar 19. jan. — 15. mars.
Kennt er mánud., miðvikud., og
föstud. kl. 20.00—23.00
2. Myndvefnaður - Dagnámskeið
Byrjar 20. jan. — 26. febr.
Kennt er þriðjud. og fimmtud. kl.
16.00—19.00
3. Tóvinna og spuni —
Dagnámskeið
Byrjar 28. jan. — 25. febr.
Kennt er mánud. og miðvikud. kl.
15.00—18.00
4. Hnýting — Makramé —
Kvöldnámskeið
Byrjar 20. jan. — 17. febr.
Kennt er þriðjud. og fimmtud. kl.
20.00—23.00.
Upplýsingar og tekið á móti umsókn-
um i verslun félagsins.
íslenskur Heimilisiðnaður
Hafnarstræti 3. Simi: 11785.
Aðalatvinnutœki
Þingeyringa bilað
Guðmundur Friðgeir
Magnússon formaður verkalýðs-
félagsins á bingeyri sagði i viðtali
við blaðið að atvinnuhorfur á
Þingeyri væru nú heldur
bágbornar. Það hefði bilað
sveifarás i skuttogaranum
Framnesi og hann verið dreginn
til viðgerðar i Reykjavlk. Þetta
kæmi sér mjög illa þar sem
togarinn hefði farið i 2 1/2
mánaðar klössun i haust og
mættu þvi þorpsbúar sist við að
missa hann núna. Auk Framness
væri aðeins einn linubátur gerður
út frá Þingeyri og sá afli sem
bærist með honum væri langt i frá
nógur til að veita öllum atvinnu i
húsinu, en þar störfuðu um 60
manns. Nú væri búið að láta fólk-
ið vita að það gæti búist við að
missa atvinnuna. Sennilega væri
samt nóg atvinna út næstu viku.
1 gær kom Heklan með 4
ástralskar stúlkur, sem ætluðu að
taka til starfa I frystihúsinu, en
þeim var visað áfram til Flateyr-
ar og nú er verið að reyna að
koma þeim 7 áströlsku stúlkum,
sem fyrir eru, i burtu.
Guðmundur Friðgeir bjóst við
að togarinn kæmi ekki úr viðgerð
fyrr en i fyrsta lagi um næstu
mánaðamót.
Atvinnuleysi fyrir dyrum á Þingeyri.
Áhugamenn um virkjun
Blöndu boða til fundar
Ahugamenn um virkjun Blöndu
boða húnvetninga til almenns
fundar i Félagsheimilinu á
Blönduósi laugardaginn 17. jan.
n.k. kl. 14.00.
Fulltrúifrá iðnaðarráðuneytinu
mun mæta á fundinum og kynna
virkjunarmál Blöndu og nýjustu
viöhorf i þvi efni.
Alþingismenn kjördæmisins
eru boðnir á fundinn og allir
sveitastjórnarmenn i Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslum eru
sérstaklega hvattir til aö mæta á
fundinum.
Fundarboðendur skora á hún-
vetninga að sýna stuðning sinn
við Blönduvirkjun i verki og fjöl-
menna á fundinn.
Stefán A. Jónsson, Kagaðar-
hóli, Þormóður Pétursson
Blönduósi, Jón Isberg Blönduósi,
Hilmar Kristjánsson Blönduósi,
Arni S. Jóhannsson Blönduósi,
Lárus Ægir Guðmundsson Skaga-
str. Brynjólfur Sveinbergsson
Hvammstanga, Kristófer
Kristjánsson Köldukinn 11, Jón B.
Bjarnason Asi, Þórir Magnússon
S.-Brekku GIsli Pálsson Hofi,
Bjarni Jónsson Haga, Reynir
Steingrimsson Hvammi, Auðunn
Guðjónss. Maröarnúpi, Magnús
Sigurðsson Hnjúki, Ellert Pálma-
son Bjarnastöðum, Vigfús
Magnússon Skinnastöðum, Guð-
mundur Jónasson Asi, Grimur
Gislason Blönduósi, Heiðar
Kristjánsson Hæli, Jóhannes
Torfason Torfalæk 11, Lárus Sig-
urðsson Tindum, Björn Pálsson
Ytri-Löngumýri, Haukur Pálsson
Röðli, Páll Þórðarson Sauðanesi,
Guðni Vigfússon Blönduósi,
Sveinn Ellertsson Blönduósi,
Guðbjartur Guðmundsson
Blönduósi Hallbjörn Kristjánsson
Blönduósi, Haraldur Jónss. póst-
húsinu Blönduósi, Bjarni Pálsson
Lárusarhúsi Blönduósi, Eggert
Guðmundsson Blönduósi,
Zophonias Zophoniass yngri,
Blönduósi, Pétur Pétursson
Blönduósi, Ragnar Ingi Tómas-
son Blönduósi, Grétar Guð-
mundsson Blönduósi, Sigvaldi
Torfason Blönduósi, Guðmundur
Kr. Theódórsson Blönduósi,
Kristinn Pálsson Blönduósi, Sig-
riður Þ. Sigurðard. Blönduósi,
Sigursteinn Guðmundss. Blöndu-
ósi Valgarður Hilmarsson
Fremstagili, Sigurður Þorbjarn-
ars. Geitaskaröi, Runólfur Aðal-
björnsson Hvammi, Sverrir Har-
aldsson Æsustöðum, Pétur Guð-
laugsson Brandsstöðum, Hannes
Guðmundsson Auðóifsstöðum,
Þórður Skúlason Hvammstanga,
Guömundur Eyþórsson Brúarhlíð
Karl Sigurgeirsson Hvamms-
tanga, Vilhjálmur Guðmundsson
Gauksmýri, Guðmundur Karls-
sonMýrum III, Þorvarður Júlíus-
son Söndum, Ragnar Benedikts-
son, Barkarstöðum, Sig. Lin-
dal Lækjamóti, Aðalbjörn Bene-
diktss. Grundarási, Einar Jóns-
son Tannastaðabakka, Adolf
Berndsen Skagaströnd, Jón Jóns-
son Skagaströnd, Sævar Bjarna-
son Skagaströnd, Jón S. Pálsson
Skagaströnd, Gylfi Sigurðsson
Skagaströnd, Bernódus Ölafsson
Skagaströnd, Sveinn Ingólfsson
Skagaströnd, Jón Ingi Ingvarsson
Skagaströnd, Björgvin
Brynjólfss. Skagaströnd Sveinn
Sveinsson Tjörn, Rafn Sigur-
björnsson Hlið, Jónas Hafsteins-
son Njálsstöðum, Björn Jónsson
Ytra-Hóli.
vqf
Fyrirspurn
um launamál
I Þjóðviljanum f dag, 6. 1., er
sagt, að óyggjandi heimildir séu
fyrir þvi, aö laun bankastjóra hafi
hækkað um mánaðamót nóv.-des.
s.l. um 20.000 kr. á mánuði og séu
nú röskar 200.000 kr. (Hafa sem
sé veriö 180.000 kr. á mán. áður).
t útvarpsþætti á sunnudaginn
neitaði Geir forsætisráðherra þvi
hins vegar, að sér væri kunnugt
um þessa hækkun, og yfirbanka-
stjóri íslands, Jóhannes Nordal,
hefur hvað eftir annað sagt i fjöl-
miðlum, að afkoma þjóðarbúsins
gefi ekkert svigrúm til launa-
hækkana núna.
Hér stendur sem sé staðhæfing
gegn staðhæfingu, annað hvort
eru heimildir Þjóðviljans ekki ó-
yggjandi, eða forsætisráðherra
og seölabankastjóri segja ósatt,
þviað á öðrum eins erfiðleikatim-
um er óhugsandi, aðein bestlaun-
aða stétt þjóðfélagsins geti hækk-
að mánaðarlaun sin um 20.000 kr.
án þess að forsætisráðherra fái
vitneskju um það, og í annan stað
er seðlabankastjóri varla svo
falskur, að hann samþykki þvi-
lika launahækkun sjálfum sér til
handa á sama tima og hann telur
útilokað að kaup launafólks al-
mennt geti hækkað.
En hvað er hið rétta I málinu?
Einmittnúna, þegar verið er að
semja um kaup og kjör almennra
launþega, undir þvi fargi, sem
nefndur bankastjóri hefur manna
mest útmálað, eigum við laun-
þegar heimtingu á að vita hið
sanna i þessu máli.
Þvi spyr ég og krefst óyggjandi
svara:
1) Hækkuðu mánaðarlaun
bankastjóra um 20.000 kr. um
mánaðamótin nóv.-des. sl.?
2) Eru mánaðarlaun bankastjóia
núna röskar 200.000 kr?
3) Ef það var svigrúm til þess að
hækka 180.000 kr. mánaðarlaun
upp I 200.000 kr., hvernig getur þá
nokkur maður vogað sér að halda
þvi fram, að ekkert svigrúmsé til
að hækka 50-60.000 kr. mánaðar-
laun?
4) Væri ekki athugandi að auka
margnefnt svigrúm, t.d. þannig,
að allir, sem hafa yfir 150.000 i
mánaðarlaun færist niður á við i
launastiganum um ákveðna
krónutölu, en þeir, sem hafa
50.-70.000 færist upp á við um
sömu krónutölu?
Vöflulaus svör óskast frá á-
byrgum aðilum.
Launþcgi.