Þjóðviljinn - 13.01.1976, Qupperneq 3
ÞriOjudagur 13. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
STJÓRN ALÞÝÐUBANDALAGSINS UM LANDHELGISMÁLIÐ:
Brottrekstur setuliðsins
og úrsögn úr NATO
ella ber stjórninni að segja af sér og efna til kosninga
Stjórn Alþýðubandalagsins
Rvik hefur i dag, 12. janúar
samþykkt eftirfarandi ályktun.
íslenska þjóðin hefur undan-
farnar vikur orðið að þola
dæmalausa stjórnmálalega nið-
urlægingu vegna ráð- og dáö-
leysis rikisstjórnarinnar. Þetta
aðgerðarleysi er afleiðing
undirlægjuháttar rikisstjórnar-
innar við Atlantshafsbandalagið
og herraþjóð þess Bandarikin.
Það lýsir sér best i þeirri nötur-
legu staðreynd að rikisstjórnin
hefur enn ekki sagt Island úr
NATÓ, hvað þá hótað slikri úr-
sögn, þrátt fyrir siendurteknar
ásiglingar breskra herskina á
islensk varðskip og gengdar-
lausan yfirgang þeirra og frekju
i islenskri landhelgi. Þetta á-
stand stefnir lifi varðskips-
manna og islenskra sjómanna
daglega i stórfellda hættu auk
þess sem stórfelld eyðilegging
vofir yfir fiskimiðum okkar. í
stað þess að skjóta málinu til
þjóðarinnar ráðfærir rikis-
stjórnin sig við NATO þ.e. breta
sjálfa.
Rikisstjórnin heldur þvert á
móti áfram aö eiga aðild að
hernaðarbandalagi ásamt bret-
um og hýsir hér herlið til að að-
stoða breskar herþotur við
njósnir þeirra um islensk varð-
skip. öllum hugsandi islending-
um er nú orðiö ljóst i hverra
þágu hiö svokallaða varnarlið
er á Islandi.
Vegna alls þessa hefur nú al-
menningur á Suðurnesjum hafið
mótmælaaðgerðir, sem eiga
visan stuðning alls þorra lands-
manna. Stuðningurinn er ekki
takmarkaður við neinn stjórn-
málafiokk heldur er hann krafa
almennings i landinu um skjót-
ar aðgerðir og vantraustsyfir-
lýsing hans á núverandi rikis-
stjórn.
Þessi rikisstjórn hefur brugð-
ist trausti almennings i nær
hvaða máli sem er. Kauprán,
óðaverðbólga og nú yfirvofandi
atvinnuleysi eru hennar stoltu
einkennismerki. Nú hefur rikis-
stjórnin einnig brugðist trausti
almennings i landhelgismálinu
þar sem tekist er á um lifæö
þjóðarinnar, fiskimiðin við
landið. Þessi rikisstjórn virðir
vilja almennings að vettugi og
mótmælaaðgerðir breyta engu
um stefnuleysi hennar i þessu
máli svo vitnað sé til orða ólafs
Jóhannessonar um aðgerðir
Suðurnesjamanna i gær.
Sú rikisstjórn sem lætur sér
vilja þjóðarinnar sem vind um
eyru þjóta litilsvirðir það lýð-
ræði, sem við kjósum að búa við
i þessu landi. Hún hefur ekki
vilja meirihluta þjóöarinnar á
bak viö sig i landhelgismálinu,
þar mælir henni enginn bót.
Skýlaus krafa almennings er
brottrekstur setuliðsins og úr-
sögn úr NATÓ verði bresk her-
skip ekki tafarlaust á brott úr
islenskri landhelgi. Vanvirði
stjórnvöld þessa kröfu ber ríkis-
stjórninni að segja af sér og
efna til kosninga og hlita þar
dómi þjóðarinnar. Sá dómur
gæti orðið stjórnarflokkunum
þungur i skauti.
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifrœðingur:
Ekkert að óttast
þótt engin loðna hafi fundist ennþá
Smyglmálið
ennþá óljóst
Búið er að yfirheyra tugi her-
manna og islendinga i mesta
lyfjasmyglmáli, sem hér hefur
komist upp um. Þessa stundina
sitja tveir amerikanar I tugthúsi,
en stundum hafa allt að fimm
manns gist tugthúsin i senn vegna
máls þessa.
Rannsókn þessa máls fer fram i
Keflavik og á Keflavikurflugvelli.
Kristján Pétursson sagði blaðinu,
að énn væri hvorki hægt að tala
um magn þess, sem smyglað hef-
ur verið né heldur fjölda þeirra,
sem við málið væru riðnir. Mikið
væri enn óvitað um mál þetta, og
langt i lok þess. Rannsókn máls-
ins mun einnig fara fram erlendis
að hluta.
Talið er að um tugi kilóa sé af
eiturlyfjum að ræða.
—úþ
Félag járniðnaðarmanna:
Styðjum mótmæla-
aðgerðir grindvíkinga
Sú samþykkt/ sem hér
fer á eftir var gerð á fundi
stjórnar félags járniðnað-
armanna i gær:
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna lýsir fyllsta stuðningi við
sjómenn og verkafólk i Grindavik
i mótmælaaögerðum þess við
Nato-herstöðina á Miðnesheiði.
Jafnframt telur stjórn Félags
járniðnaðarmanna að vegna
árása breskra nato-herskipa á is-
lensk varðskip, beri isl. stjórn-
völdum að ákveða eftirfarandi
aðgerðir: v
Að loka Nto-herstöðinni á Mið-
nesheiði.
Að segja Island úr Nato.
Að fá nú þegar a.m.k. þrjú
gangmikil og sterkbyggð skip til
liðs við Isl. varðskipin.
Aö slita stjórnmálasambandi
við Bretland.
Einnig telur stjórn Félags járn-
iðnaðarmanna að isl. alþýðu og
samtökum hennar beri að sýna
einhuga málefnalega samstöðu i
þvi lifshagsmunamáli sem út-
færsla og vernd Isl. fiskveiðilög-
sögunnar er.
Styðja grindvíkinga
Alþýðubandalag Suðurnesja lýsir yfir fullum stuðningi við þær
aðgerðir grindviskra sjómanna aö loka fjarskiptastöð banda-
riska hersins 1 Grindavik.
Þetta þorskastrið, svo og hin fyrri, hefur sýnt svo að ekki verö-
ur úm villst, aö engin vörn er fyrir islendinga að dvöl bandariska
hersins hér og veru okkar i NATÓ.
Aiþýðubandalagið á Suðurnesjum hvctur almenning til þess að
styðja aðgeröir grindvikinganna með öllum tiltækum ráðum.
— Séu einhverjir farnir
að óttast að engin loðna
hefur enn fundist/ þá er
slikt alger óþarfi og loðnu-
gangan getur vel verið á
sama tíma útaf Austf jörð-
um og vanalega, þótt við
höfum ekkert fundið hér
útaf Langanesinu/ sagði
Hjálmar Vi Ih já Imsson,
f iskif ræðingur er við
ræddum við hann í gær um
borð í Árna Friðrikssyni
þar sem þeir lágu i vari
uppundir landi vegna veð-
urs.
— Mér sýnist nú að veðrið sé að
ganga niður, það hefur raunar
verið spáð lygnandi veðri i allan
dag en það virðist ætla að láta
standa á sér eitthvað, og um leið
og veður gengur niður munum við
fara út til leitar og þá á svæðinu
svona 40 til 70 milur útaf Sléttu.
— Það er rétt, að loðnan hefur
fundist fyrir þennan árstima sið-
an við fórum að fylgjast með
henni 1969. Þessu getur margt
Hjálmar Vilhjálmsson
valdið, svo sem minna æti eða
kaldari sjór, ég veit það ekki með
vissu.
— Ég hef i sjálfu sér ekkert
leyfi til að ætla annað en að við
finnum loðnu á næstunni, en hitt
er svo annað mál að fiskar geta
fundið uppá hinu og þessu og
spyrja okkur mennina ekki ráða i
þeim efnum. Ég byggi þá skoðun
mina, að við munum eflaust finna
loðnu, á þvi, að það fara ekki sög-
ur af þvi að loðna hafi ekki gengið
suður fyrir landið, en hvenær
henni þóknast að láta sjá sig, það
er erfiðara að segja til um. t fyrra
fannst fyrsta loðnan að mig minn-
ir 8. janúar og þótt við séum nú
vikunni seinni að finna hana þá er
engin hætta á ferðum, um það er
ég sannfærður, sagði Hjálmar.
—S.dór
Skipstjóra- og
stýrimannafélagið
Aldan:
Tafarlaus
stjórn-
málaslit
Á stjórnarfundi Skipstjóra- og
stýrimannafélags öldunnar, sem
haldinn var 11.1. 1976, var eftir-
farandi ályktun samþykkt ein-
róma.
„Stjórn Skipstjóra- og stýri-
mannafélags „öldunnar” sendir
áhöfnum varðskipanna viröingar-
og þakklætiskveðjur fyrir stór-
kostlega frammistöðu þeirra i
baráttunni viö bresku sjóræningj-
ana. Hins vegar átelur stjórn
„öldunnar” islensk stjórnvöld
fyrir seinagang i viðbrögðum
gagnvart ágengni og árásum
breta á islensk varðskip og önnur
skip innan islenskrar fiskveiöi-
lögsögu og telur að stórauka ætti
.liöstyrk Lgndhelgisgæslunnar.
Stjórn „öidunnar” telur aö
þegar i stað skuli slitið stjórn-
málasambandi við breta og Is-
lendingar segi sig þegar úr NATO
og loki herstöðinni á Suöurnesj-
um.
Stjórn „öldunnar” lýsir fullum
stuðningi við aðgeröir sjómanna
og stuöningsmanna þeirra á Suð
urnesjum og sendir þeim baráttu
kveðjur.”
I Háskólabiói:
^Listaskáldin vondu”
Laugardaginn 17. janúar kl.
tvö e.h. flytur hópur skálda,
sem nefnir sig Listaskáldin
vondu, verk sin i Háskólabiói.
1 hópnum eru:
Birgir Svan, Guðbergur
Bergsson, Hrafn Gunnlaugsson,
Megas, Pétur Gunnarsson, Sig-
urbur Pálsson, Steinunn Sigurð-
ardóttir, Þórarinn Eldjárn.
Kynnir verður Sigurður
Karlsson. Barnagæsla er i for-
dyri biósins. Aögangseyrir er
kr. 250. Ókeypis fyrir börn og
fólk á ellilaunum.
Dagskránni verður að vera
lokið um fjögur þar sem kvik-
myndasýning hefst i húsinu kl.
17 og er þvi hverjum upplesara
markaður þröngur timi. Dag-
skráin mun þvi hefjast stund-
vislega kl. 14 og eru menn beðn-
ir að mæta timanlega.
Landhelgisfundur á
vegum Stúdentaráðs
Stúdentaráð Háskóla íslands
hefur ákveöið að boða til almenns
borgarafundar um viðhorfin i
landhelgismálinu. Tilefni fundar-
ins er óþarfi að kynna hér, en
Stúdentaráð hefur boðið tals-
mönnum stjórnar og stjórnarand-
stöðu að vera frummælendur á
fundinum.
Fundurinn verður að Súlnasal
Hótel Sögu miðvikudaginn 14.
janúar, og hefst hann kl. 20.00.
öllum er heimill aðgangur og
þátttaka i umræðum að loknum
framsöguræðum.