Þjóðviljinn - 13.01.1976, Blaðsíða 10
10. SÍÐA — ÞJÓDVIL.JINN Þriðjudagur 13. janúar 1976.
Svona lokuðu keflvlkingar götunni með stórum trukkum. Eini blllinn sem fékk að fara I Kókómjólk og franskar kartöflur á boðstólnum I varðskýli bandariskra hermanna I
gegn var bill lögreglunnar, sem er hér fremst á myndinni.
Rockville. Þeir sögðust vera sáttir við aðgerðirnar I Keflavik, en það væri verra I
Grindavlk þar sem kommarnir gætu biandað sér I málið.
„99% standa meö okkur
í þessum aögerðum”
Að baki ákvarðana
sjómanna og útgerðar-
manna i Keflavik og
Grindavik um að ioka
leiðum að útibúum her-
stöðvarinnar á Kefla-
vikurflugvelli er ekki
mikil skipulagning.
Hennar gerist heldur
ekki þörf, þvi að mikill
hiti er i fólki. Þegar
Þjóðviljamenn komu
til Keflavikur á fjórða
timanum á sunnudag
var varðstaða hafin á
veginum að Rockville.
Þar hittum við Gunn-
laug Karlsson, skip-
stjóra á Voninni, en
hann var i hópi sex-
menninganna, sem rit-
uðu yfirmanninum á
Vellinum 14. desember.
„Við vorum á fundi i morgun,
sjómenn og útgerðarmenn, úr
plássunum hér á Suðurnesjum
til þess að ræða stöðuna i land-
helgismálinu. Það var ekkert
ákveðið um aðgerðir hér i
Keflavik á þeim fundi. En ég fór
i það i hádeginu um leið og ég
renndi niður bitanum að hringja
i nokkra menn, og þetta er nú
árangurinn.”
Fréttu um lokunina
Það voru semsagt komnir um
tveir tugir bila á veginn sem
lokuðu honum, og fremst voru
stórar vöru- og fólksflutninga-
bifreiðar. I fyrstu var ráðgert
að biða með lokunina fram á
mánudag, þvi að einn helsti for-
kóifurinn, Magnús Geirsson,
var á sjó. Siðan var drifið i
þessu, og virtust forsvarsmenn
á staðnum hafa mestar áhyggj-
ur af þvi, að lokunin spyrðist út
og fjölmenni drifi á staðinn. Svo
mikil áhersla var lögð á að allt
færi fram á kórréttan hátt og
ekkert færi úr böndunum. Eins
og i Grindavfk var lokað fyrir
alla umferð NATÖ-tækja og
engum hleypti gegn nema borg-
aralega klæddum mönnum og
lögreglumönnum islenskum.
„Ég er viss um að við höfum
99% suðurnesjamanna að baki
okkar i þessum aðgerðum,”
sagði
Gunnlaugur
Karlsson,
skipstjóri
sagði Gunnlaugur. „Þetta er al-
veg óflokksbundið og utan við
öll stéttarfélög. Með þessari
stuttu lokun viljum við árétta
bréf okkar frá 14. desember,
sem fjórir starfandi skipstjórar
og tveir starfandi útgerðar-
menn skrifuðu undir.
Frekari kröfur munum við
svo afhenda yfirmönnum á Vell-
inum á morgun (mánudag).
Svo brátt bar lokunina að, að
þorri keflvikinga hefur sjálfsagt
frétt um hana i kvöldfréttum út-
varpsins.
Ahyggjur af
koinmum
Það vargóðstemmning þarna
á brautinni að Rockville. Yfir-
maður af Vellinum kom i eftir-
litsferð og gerði enga tilraun til
þess að komast i gegnum hindr-
unina. Ekki svaraði hann heldur
tiltali.
t varðskýli Rockville-hliðsins
voru nokkrir óbreyttir og við-
ræðugóðir hermenn. Þeir átu
franskar kartöflur og drukku
kók og tjáðu Þjóðviljamönnum
að þeir hefðu áhyggjur af þvi að
kommar kynnu að hleypa þess-
um friðsamlegu aðgerðum upp.
Meðal annars bentu þeir á að
vegatálmarnir i Grindavik
hefðu verið settir upp svo langt
frá hliði fjarskiptastöðvarinnar
að það væri i lófa lagið fyrir
„the commies” að komast á
svæðið á milli og hefja óspektir.
Það var greinilegt að þessum
bandarisku NATÓ-hermönnum
hafði verið kennt að þekkja óvin
sinn. Liklega hefði þeim vafist
tunga um tönn hefðum við haft
vit á að spyrja þá að þvi, hvort
þeir væru hér til þess að verjast
isl. kommum eða árásum breta
og annarra þjóða á lögsögu is-
lendinga.
Róttækari aðgerðir
En höldum áfram að ræða við
Gunnlaug: Við spyrjum hann
hvað taki næst við hjá keflvik-
ingum.
„Ef ekkert breytist fyrir aust-
an land munum við gripa til rót-
tækari aðgerða. Ég tek það sér-
staklega fram að hér er aðeins
um byrjunaraðgerðir að ræða
og við höfum uppi ákveðin á-
form um áframhaldið, ef til-
mælum okkar og kröfum um að-
gerðir af hálfu NATó verður i
engu sinnt.”
Ekki höfðum við tima til þess
aö dvelja lengi hjá keflvfking-
unum fyrir framan Rockville,
en að endingu spurðum við
Gunnlaug álits á samningum
við breta.
— „Ég er sjálfstæðismaður og
var fylgjandi samningum við
þá. En nú vil ég ekki semja við
þá lengur. Ég tel að það hafi
verið mikil mistök, að semja við
v-þjóðverja til svo langs tima
sem tveggja ára. Það hefði ein-
ungis átt að semja við þá fram
að næsta fundi Hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna og
taka þá málin til endurskoðunar
I ljósi niðurstöðunnar þar. A hitt
er svo að llta, að ensku togara-
sjómennirnir eru sjómenn eins
'og við.og það veit ég hvað þýðir
eftir fjörutíu ár á sjónum. Þess-
vegna verða þeir að hafa ein-
hvern rétt lika.”
—ekh.
Hliðum herstöðvar-
innar verður lokað
stöðvi NATO ekki árásir breta
Um miðjan desember var það
bréf, sem raunverulega er upphaf
ráðstafana sjómanna og útvegs-
manna I Keflavik og Grindavik,
sent til yfirmanns herstöðvarinn-
ar á Keflavikurflugvelli. Þar er
fyrst látið að þvi liggja að til
greina komi að loka hliðum her-
stöðvarinnar, ef áframhald verði
á afskiptaleysi NATO af land-
helgisstriðinu. Bréfið fer hér á
eftir:
„Til yfirmanns Atlantshafs-
bandglagsins á Keflavikurflug-
velli.
Við, starfandi menn við sjávar-
útveg, mótmælum árás herskipa
NATOinn i Isl. fiskveiðilandhelgi.
Við krefjumst þess að skip þessi
verði kölluð út fyrir fiskveiði-
mörkin þegar i stað.
Við höfum álitið að skip þessi
væru okkur til verndar, en ekki til
árásar á okkur. Við teljum að
grundvöllur fyrir veru þessarar
herstöðvar til verndar okkur sé
brostinn, þegarherskip fráNATO
koma hér til að ógna lifshags-
munum okkar.
Við viljum taka það fram að
þetta er I þriðja sinn sem þessi
NATO-herskip koma hingað i
þeim tilgangi að ógna varðskip-
um okkar við skyldustörf sin.
Stöðvi NATO ekki þessar árásir
á gæsluskip okkar neyðumst við
til þess að undirbúa lokun á hlið-
um herstöðvarinnar.
Eðvarð Júliusson, Grindavik,
Guðmundur Agústsson, Vogum,
Garðar Magnússon, Ytri-Njarð-
vik, Gunnlaugur Karlsson, Kefla-
vik, Þorsteinn Jóhannesson,
Garði og Jón Kr. Jónsson, Sand-
gerði.”
Grindvíkingar
Hér fer á eftir yfirlýsingin, sem
grindvíkingar, afhentu I fjar-
skiptastöðinni i Grindavik á laug-
ardaginn, þegar þeir lokuðu veg-
inum til stöðvarinnar:
Til yfirmanns NATÓ-her-
stöðvarinnar á Keflavikurflug-
velli.
„Með tilvisun til bréfs, dagsetts
14. desember 1975, til yðar frá
mönnum sem starfa við sjávarút-
veg, höfum við ákveðið að loka
hliði fjarskiptastöðvar NATÓ i
Grindavik fyrir allri umferð
tækja, sem eru undir beinni stjórn
NATÓ og yðar hér I Grindavik.
Þeir fengu ekki aö fara inn i RockviIIe þessir tveir og húktu i bil slnum
uns varðstöðu keflvikinganna lauk kl. fimm. Þeir neituðu að tala við
blaðamenn.
ávarpa NATO
Aðgerðum þessum er beint
gegn NATÓ-herstöðinni I Grinda-
vik, en ckki gegn bandariskum
þegnum, sem hér starfa, og mun-
um við ekki hafa nein afskipti af
þeim, enda ætlumst við til að þeir
séu borgaralega klæddir utan
herstöðvarinnar.
Neyðartilfellum munum við
ekki hafa afskipti af, og er öllum
heimii umferð vegna þeirra.
Við væntum skjótra aðgerða,
svo við þurfum ekki að gripa til
annarra róttækari ráðstafana."