Þjóðviljinn - 08.02.1976, Side 3

Þjóðviljinn - 08.02.1976, Side 3
Sunnudagur 8. febrúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 NÝTT BARNALEIKRIT VERÐUR TIL Á kústskafti um víða veröld Margbreytileikinn í gær, laugardag, var frum- sýnt i Iðnó nýtt barnaleikrit, Kolrassa á kústskaftinu. Þetta leikrithefur til orðið með öðrum hætti en venjulegt er: það er hópvinna nokkurra leikara. Ekki sist af þeim sökum brugð- um við okkur á æfingu á Kol- rössu i vikunni og heyrðum hljóðið i aðstandendum verksins á eftir. Gunnu leiddist Nú er best að segja frá þvi til skýringar, að þar hefur leikinn að Gunna litla situr ein heima og enginn má vera að þvi að tala við hana og henni finnst allt leiðinlegt. t gamalli bók rekst hún á galdrakerlingu sem Kol- rassa heitir og kveður hana ó- vart á vettvang. Kolrassa getur boðið upp á margskonar til- dragelsi: riðið á kústi sinum um allar álfur og alla tima. Þær Gunna leggja upp i leiðangur og koma við i Japan og hjá þvi góða fólk tsambúlum á Nýju- Gineu og hafa með sér vansæla tiskudúkku úr sjónvarpinu. Þær koma einnig við hjá göldróttri formóður Gunnu sem uppi var á átjándu öld. Erindi leiksins er i stuttu máli það, að nota þetta ævintýraform til að miðla skiln- ingi á þvi, að margt er i heimin- um allt öðruvisi en börn nú og hér eru vön — og þarf ekki að vera lakara fyrir það. „Ekkert er asnalegt”, segir Kolrassa. Umburðarlyndið lifi. Og svo eru ýmsir aðrir fiskar undir steini. Hópvinna Þær Asdis Skúladóttir, Soffia Jakobsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir hafa búið til text- ann og annast leikstjórn sjálfar. Þær hafa fengið Hrönn Stein- grimsdóttur i lið með sér og fara þær fjórar með öll hlutverkin i leiknum. A siðasta sprettinum kemur til skjalanna Jón Hjartarson til ráðslags um lag- færingar og samræmingar og ýmislegt leikstjórnartæknilegt. Jón sagöi frá þvi i upphafi samtalsins að sú hugmynd hefði orðið til hjá leikhúsráði að búa til barnasýningu, sem væri með öðrum hætti en þær viðamiklu barnasýningar sem algengastar væru hérlendis, bæði i Iðnó og annarsstaðar. Væri sýningin einföld i sviðsgerð og höfðaði til þess umhverfis sem við lifðum i. Það væri og haft i huga að sýn- ingin væri hreyfanleg, hægt væri að fara með hana i ýmsa skóla og félagsheimili. Siðan var þrem leikurum, As- disi, Soffiu og Þórunni, fengið það verkefni að búa til slika sýningu og hafa þær haft um hana frjálsar hendur og notað þá aðstöðu sem LR hefur. Þetta er aðferð sem okkur finnst nokkuð spennandi. Yngra fólkið hefur unnið svona að meira eða minna leyti (Litla leikfélagið t.d.) og að nokkru leyti er Saumastofan svona til orðin þótt einn sé að henni höfundurinn. En þetta er semsagt hópvinna i einna hreinræktuðustu mynd. Ekki svo að skilja að við ætlum okkur að setja islenskum leik- ritahöfundum stól fyrir dyr — það væri einmitt mjög spenn- andi fyrir höfunda að vinna með svona hópi... Upplýsing og ævintýri Frásögn leikaranna þriggja, sem áður voru nefndir er á þessa leið: Við settum okkur fyrst ákveð- in markmið: við ætluöum að bregða upp nokkru af marg- breytileik veraldar, sýna börn- unum út fyrir þeirra sjóndeild- arhring, ýta undir vilja til að setja sig inn i aðrar aðstæður en þau eru vön. Þessu næst skiptum við með okkur verkefnum. Við lásum okkur til um sitt af hverju, um forna þjóðlifshætti, um lifnaðar- hætti svonefndra frumstæðra þjóða, um fjarlæg trúarbrögð. Um leið tókum við mið af þvi sem verið er að brydda upp á i skólum, af nýjungum i samfé- lagsfræði. En hvað sem þessum fræðsluþætti liður, sem er eins- konar bakgrunnur við allt sam- an, þá er það ljóst, að við verð- um fyrst og siðast að láta ævin- týrið lifa. Höfða til imyndunar- aflsins ekki siður en til vits- muna. Við förum frjálslega með tima og rúm, teflum ævintýri gegn staðreyndum — i þeirri von að fræðsluþátturinn verði ekki of þungvægur i heildar- myndinni. Við höfum allar unnið með barnaefni áður á ýmsum vett- vangi og höfum þvi allgóða hug- mynd um það hvað það er sem við vildum. Við höfum lika reynt að prófa textann eftir þvi sem hann hefur oröið til með þvi að lesa hann fyrir börn, m.a. á barnaheimilum. Sú sambands- leit hefur gengið vel. Nú kom það á daginn að við vorum of örlátar við að skrifa fyrir okkur hlutverk, þau urðu fleiri en við þrjár gætum ráðið við og þar kemur Hrönn Stein- grimsdóttir til liðs við okkur og leikur i tveim atriðum. Karlar sjástminna i þessari sýningu en endranær, en þeir eru undir og yfir og allt um kring. Það er mikill þáttur i þessu verki að sýna margbreytileik heimsins, ólikar forsendur siða og skoðana. En þessu getur fylgt sú hætta að við komum of viða við, ætlum okkur ekki af. Það þurfti að velja og hafna. Hlutverk kynjanna koma all- mikið við sögu, miklu meira reyndar en við ætluðum okkur i upphafi. En i vinnunni sjálfri kom það á daginn, að þau mál eins og heimtuðu aö vera með svo um munaði. Það er svo á- kaflega margt sem hægt er að velta upp i sambandi við hegð- unarfurður heims á grundvelli hlutverka kynjanna. 1 einu at- riðinu heimsækja þær Kolrassa og Gunna tsambúla á Nýju Gineu. En hjá þeirri ágætu þjóð er rétt eins og öllu hafi verið við snúið. Þar veiða konur fisk og flétta mottur i hús, en karlar hugsa um börn, matseld og tensa sig til óspart. Þessi efni- viður sem gefur tilefni til margskonar skemmtilegs sam- anburðar og þverstæðna, er sóttur til mannfræðingsins Margaret Mead. Meira að segja setningar eins og „pabbi hefur látið mikið á sjá eftir að hann eignaðist öll þessi börn” eða þá „karlar geta aldrei þagað yfir neinu” eru skjalfestar hjá Margaret Mead. Það sem er öðrum heilagt Annað sem við fórum inn á eru fjarlæg trúarbrögð og lifs- viðhorf sem þeim fylgja. Við tökum dæmi af búddatrú og jap- önsku heimili eins og þau gerð- ust til tiltölulega skamms tima. Studdumst bæði við kvikmyndir og rit um trúarbrögð. Við gerum okkur grein fyrir þvi að þarna er komið inn á viðkvæma hluti, en okkur þótti rétt að nota þetta efni til að slá á tilhneigingar til drembilætis yf ir eigin trú og sið- um, á skilningsleysi á þvi, að ýmislegt sem kemur annarlega fyrir sjónir er öðrum heilagt. Við látum þær Kolrössu og Gunnu einnig skreppa aftur i okkar eigin sögu, til átjándu aldar með hennar hjátrúarof- riki og vesæld. Það atriði kem- ur til vegna þess að Gunna (eins og margir aðrir) verður svo yfirþyrmd af samtimanum, að hún fer að trúa þvi að best hafi verið að vera til i gamla daga. — Nú er, (segir blaðamaður) umburðarlyndi mjög haldið fram i leiknum, en á hinn bóginn er i ýmsum tilvikum gefið til kynna, að ekki séu bara til mis- munandi „siðir” heldur einnig „ósiðir”, m.ö.o. rétt hegðun og röng. Verða ekki árekstrar þarna á milli? — Reyndar höfum við velt þessu mikið fyrir okkur, þótt við viljum ekki að mikið fari fyrir slikum vangaveltum i textan- um. Við verðum að vona, að hver og einn geri það upp við sig eftir aðstæðum, hvar hans eigið umburðarlyndi tekur enda. Það er allt I lagi að okkar dómi að ganga ekki of langt i þvi að svara spurningum um um- burðarlyndi og „skárri” siðu, láta áhorfendur taka eitthvaö af þeim spurningum með sér heim... Ýmsir liðsmenn ágætir eru til þessarar sýningar kvaddir. Jakob Magnússon hefur gert tónlist og effekta. Steinþór Sigurðsson hefur unniö fimm sviðsmyndir i samvinnu við hugdettur krakka hér og þar um bæinn. Leikritið verður fyrst um sinn sýnt á eftirmiðdögum um helg- ar og vonir standa til þess að farið verði með það á stjá um næsta nágrenni að minnsta kosti. Kústinn höfum við.... A.B. skráöi. Kolrassa (Þórunn Sigurðardóttir) kemur eins og kölluð til Gunnu (Asdis Skúladóttir), sem hefur engan til að tala við: Já, éger úr þessari gömlu bók. Kolrassa (Þórunn Sigurðardottir) galdrar auglýsingastúlkuna (Soffia Jakobsdóltir) út úr sjónvarpinu. Höfundar, leikstjórar og leíkarar í sömu persónum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.