Þjóðviljinn - 08.02.1976, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 08.02.1976, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Sunnudagur 8. febrúar 1976 Aumingja diplómatarnir Gunnar Hagglöf i fullum skrúða ásamt de GauIIe Utanrlkisþjónustu hafa menn víða milii tannanna. og þykir að vonum margt i henni fáránlegt og úrelt. Ýmisleg dæmi i þessa veru má t.d. lesa I endurminningum Gunnars Hagglöf, scm var lengi scndiherra Sviþjóðar i London, og þá aII lengi doyen meðal sendi- herra, en doyen er einskonar fyrirliöi sendiherra i hverri höf- uðborg — enda hefur hann þá veriðlengurþar istarfi en nokkur annar koilegi hans. Hagglöf segir t.d. ,,Að sjálf- sögðu var samkvæmislif diplómata i London ekki bara friður og samlyndi, vinskapur og skrýtlur. Mér varð það oft byrði. Fyrstu árin i London umgeng- umst við hjónin mest breska og sænska kunningja. En þegar ég varð af tilviljun öldungur sendi- herra, þá leit ég á það sem skyldu mina að sækja hvern diplómata- dögurðeðaiparti. sem ég var boð- inn til. Þegar ég fór yfir dagbók mina að ári liðnu sá ég, að ég hafði verið viðstaddur meira en 300 slik tildragelsi i samkvæmis- lifi á árinu. Þegar ég hélt frá London og gat litið yfir niu ára feril sem doyen komst ég að þvi, mér til nokkurs dapurleika, að ég hafði orðið að eyða meira en 3000 hálfum dögum eða kvöldum i þessa diplómatisku partileiki. Þetta sýnir vel fáránleika utan- rikisþjónustu samtimans. I þann tima þegar diplómata- nýlendan náði ekki nema til 20—30 sendiráða, þá var það bæði eðlilegt og nauðsynlegt að yfir- menn þeirra sæktu hver annan heim og hefðu allnáin tengsli sin á milli. En i dag þegar i einni höfuðborg eru kannski staðsett hundrað sendiráð, þá er staðan allt önnur. Sumir af sendiherrum stórveldanna i London hafa kvartað yfir þvi að þeir glati heimskulega miklu af tima sinum i það að taka á móti kurteisis- heimsóknum nýkominna sendi- herra. Og enn verra var, að sam- kvæmt siðvenju þarf að endur- gjalda þessar heimsóknir. Ekki bætti það heldur úr skák, að það er nú mikill siður að skipta um sendiherra á 2—3 ára fresti. Ég fór að tala við kollega mina um það, að það væri mjög æski- legt að komast að samkomulagi um að i stað þess að endurgjalda slikar heimsóknir sendum við nafnspjöld okkar. Sendiherrar stórveldanna voru mjög fegnir þessari tillögu. En það kom fljót- lega i Ijós, að a.m.k. helmingur sendiherranna — og þá einkum sendiherrar landa sem nýlega höfðu fengið sjálfstæði, höfnuðu með öllu varfærnislegum til- lögum minum um endurbætur. Ég átti eftir að reka mig á það, að það voru einmitt fulltrúar nýrra rikja sem sist vildu hreyfa við gömlum diplómatiskum siðum og venjum sem fyrir löngu eru fár- ánlegir orðnir... Saga af Brown Gunnar Hágglöf segir allmarg- ar skemmtilegar sögur i bók sinni. Ein er af hinum brokk- genga utanrikisráðherra breta, George Brown. Árið 1967 sendi hann svofellda frásögn heim til Sokkhólms af atviki einu sem gerðist á ráðstefnu EFTA-rikja i London: „1 hléi sá ég George Brown standa við bar með viskiglas i hendi og var hann einn sins liðs. Svissneski verslunarmálaráð- herrann, dr. Schaffner, stóð skammt frá honum i fjörugum samræðum við finnska sendiherr- ann. Þeir töluðu þýsku, móður- mál Schaffners, mál sem hinn finnski kollega minn talar eins og innfædur væri. Allt i einu greip utanrikisráðherra Bretlands fram i fyrir þeim, hrópandi til þeirra með glas sitt á lofti: „Haldið þið kjafti. Ég þoli ekki að þýska sé töluð i minni návist.” Þessu svaraði Schaffner um- svifalaust: Kæri ráðherra, á meginlandi Evrópu tölum við margar tungur sem þér skiljið ekki.” Það var þennan sama dag að breska stjórnin lagði fram um- sókn sina um fulla aðild að Efna- hagsbandalaginu. 4 konur dæmdar fyrir nauðgun LONPON. nómstóll einn i enska bænum Plymouth hefur dæmt fjórar konur fyrir að gera tilraun til að nauðga ciganda næturklúbbs þar i borg. Næturklúbbshaldari þessi, Christopher Deville, sem er á fimmtugsaldri, bar það fyrir rétti, að meðan tvær kvennanna héldu honum niðri, hafi hinar tvær dregið af honum buxur. Tókst þeim að setjast á hann ofan áður en vegfarandi einn kallaði lögreglu á vettvang. Konurnar fjórar játuðu árás þessa en bættu þvi við, að þær hefðu ekki viljað annað en veita næturklúbbshaldaranum hæfi- lega ráðningu. Hefði hann i klúbbi sinum gerst nokkuð fjölþreifinn við þær og hefði siðan elt þær eftir lokun. Þess vegna hefðu þær á- kveðið að lokka hann inn i skemmtigarð og nauðga honum þar. Þær konur tvær, sem komnar voru yfir tvitugt, fengu hvor um sig rúmlega tveggja ára fang- elsisdóm, en táningar tveir, sem með þeim voru, fara á betrunar- hæli. Málarinn Richter Svjatoslav TBILISI (APN) Hinn heims- frægi pianóleikari Svjatoslaw Richter hefur sýnt nýja hlið hæfi- leika sinna. Þessi sextugi pianó- leikari hefur haldið fyrstu mál- verkasýningu sina i höfuðborg Grúsiu, Tbilisi. Frumsýningin hefur vakið verðskuldaða athygli listfróðra áhorfenda. Nýjar þýöingar á tveim íslendinga- sögum Út er komin i flokknum The New Saga Library þýðing á tveim islendingasögum, Bandamanna- sögu og Hænsna Þóris sögu. Her- mann Pálsson hefur þýtt sögurn- ar á ensku og gerir itarlega grein lyrir þeim i formála. Útgefandi er Southside i Edin- borg, en sögur þessar tvær falla inn i llokk þýðinga á heimsbók- menntum, sem unnið er að á veg- um UNESCO. Báðar þessar sögur hafa áður verið þýddar á ensku, önnur tvisvar en hin fjórum sinn- um. Athyglisverðar tilraunir með höfrunga BATUM (APN) Sovéskir höfrungatemjarar ráðgera at- hyglisverðar tilraunir. Höfrunga- þjálfunarstöðin i Batumi á strönd Svartahafs ætlar að sleppa tömd- um höfrungum i hafið Tamninga- mennirnir munu fylgjast með þeim til þess að sjá, hvort þeir geti áfram haldið sambandi við þá og e.t.v. fengið höfrungana til þess að aðstoða við ýmis konar hafrannsóknastörf. (APN)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.