Þjóðviljinn - 18.02.1976, Side 3
Miðvikudagur 18. febrúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Verkfallsvöröum VR var yfirleitt vel tekiö, en...
voru viðbrögðin á einum staðnum og var honum
lokað samstundis án frekari orðaskipta við eigendur
„Þetta er nú bara
helv. ruddaskapur99
Þær hvitklæddu sóru og sárt við iögðu að þær væru nýorðnar tiu ára,
en gáfust þó upp aö lokum og viður-kenndu að hafa náð sextán ára
aldri og vera þar með ólöglegar við afgreiðslustörfin. Verkfallsverðir
flettu upp i lögum og samningum, sem þeir höfðu ávallt við höndina.
Myndir: —gsp
gerðar athugasemdir og m.a. var
tveimur verslunum hreinlega
lokað.
Það dró til litilla tiðinda þegar
Austurstrætið var þrætt. — Það er
orðið ansi algengt að eigendur séu
margir að hverri verslun, sögðu
þeir félagar, — og við þvi fólki er
ekki amast. — Óneitanlega dreg-
ur þetta þó úr áhrifum verkfalls-
ins, hér er eins og þú sérö önnur
hver búð opin, þótt viða gangi
afgreiðslan treglega vegna
mannfæðar.
Það var ekki fyrr en komiö var i
verslun Silla og Valda i Aðal-
..þar til dæturnar yfirgáfu sam-
kvæmið.
stræti, að verulega sló i brýnu
rnilli eigenda og verkfallsvarða.
Tvær dætur eigenda voru að
vinna, en slikt er með öllu
óheimilt ef börn þeirra eru orðin
sextán ára gömul. Þótt dæturnar
bæru aldur sinn vel efuðust verk-
fallsverðir um að þær væru enn á
Hringt og klagaö til bæki-
stöðvanna.
táningaskeiðinu og viðurkenndu
þær þá staðr.eynd.
Ekki fékk þó sú krafa varðanna
að dæturnar færu af staðnum
mikinn hljómgrunn. Eigendur
vildu ekkert kannast við ákvæði i
lögum um hámarksaldur barna
sinna og sögðu verkfallsverðina
þina mestu rudda og dóna. Ekki
var þá talin frekari ástæða til
orðaskipta, heldur fór einn félag-
anna í næstu verslun að hringja i
bækistöövarnar, á meðan hinir
tveir meinuöu fólki aðgang að
búðinni. Stóð þannig i stappi um
hriö, uns látið var undan innan
dyra og dæturnar kvöddu með
virktum.
Aftur var kikt inn i búðina hálf-
tima siðar og voru þær þá mættar
á staðinn aftur, en að þessu sinni
,,borgar3klæddar” og ekki við af-
greiðslustörf. — Það þarf að
fylgjast vel með þessari verslun,
sögðu verkfallsverðirnir og tóku
það skýrt fram við eigendur, að ef
þeir yrðu aftur staðnir að verk-
fallsbroti yrði búðinni lokað al-
gjörlega með stanslausri vörslu.
Þannig gekk á ýmsu þennan
fyrsta dag. — Þetta á nú trúlega
eftir að versna dálitið ef verkfall-
ið dregst á langinn, sögðu verð-
irnir. Þegar heimilin verða uppi-
skroppa með matföng og annað
þviumlikt er meiri pressa á kaup-
menn að opna og selja sínar
birgðir og þá er eins gott að vera
vel á verði.
— gsp
Verslunarmannafélag Reykja-
vikur tók strax i gær verkfails-
vörsluna afar föstum tökum. Vel
yfir fimmtiu manns voru á þönum
alian daginn og "lokuðu mis-
kunnarlaust þeim verslunum,
sem gerðu sig sekar um brot. Oft-
ast var þó um smávægilega
árekstra að ræða, og undan-
tekningarlitiö brugðust menn vel
við tiimæium verkfallsvarða, þótt
auðvitað yröu undantekningar frá
þeirri reglu sem öðrum.
Blrn. Þjóðviljans fór hringferð
um miðbæinn með þeim Óskari
Óskarssyni, Jóhanni Hólm og
Kristjáni Baldursyni. Þeir
eru allir vanir verkfallsvörslunni,
þekktu i sundur „slæm” og „góð”
fyrirtæki og voru snöggir að taka
sinn rúnt. Tekið var i hvern
hurðarhún sem á vegi varð og þar
sem hann snerist var skyggnst
inn fyrir og forvitnast um hverjir
gegndu afgreiðslustörfum.
Það var byrjað á einu „vondu”
fyrirtæki. Karnabaér hefur löng-
um verið erfiður og fyrr um
morguninn höfðu verið gerðar at-
hugasemdir þar. 1 þessu seinna
inr.liti var þó allt i sómanum. 1
morgunferðinni höfðu viða verið
„Þetta er nú bara rudda-
skapur” sagöi konan, en þaö
dugði skammt,...
...búðinni var lokað án frekari
orðaskipta......
Klúbburinn enn:
Fölsun tékka uppá
rúmar 2 milj. kr.
Keypti vín í ATVR fyrir 1,6 milj. og greiddi með innistœðulausri ávisun
A sama tima og tveir af for-
ráöamönnum veitingahússins
Klúbbsins, sem svo er nefnt, en
mun nú raunar heita Lækjamót
h.f. og/eða Borgartún 32 h.f. sitja
i gæsluvarðhaldi vegna rann-
sóknar á alvarlegustu sakamál-
um sem komið hafa upp á tslandi,
sennilega fyrr og siðar, gerist það
að þrjár ávisanir gefnar út af
Borgartúni h.f. reynast inni-
stæðulausar, en upphæð þeirra er
samtals rúmar tvær miljónir
króna'.
Ein þessara ávisana og þeirra
lang-stærst kom frá Afengis- og
tóbaksverslun ríkisins, upp á 1,6
milj. kr. Með þessari ávísun
greiddi Borgartún 32 h.f. áfengi
föstudaginn 6. febrúar sl. i
versluninni, og innistæða fyrir
henni var ekki til. Þessi ávisun er
gefin út á tékkareikning hjá úti-
búi Búnaðarbanka Islands i Mos-
fellssveit, en þar á Sigurbjörn
Eiriksson lögheimili og hann
hefur meö einhverjum hætti náð
að opna á ávisanareikning hjá
þessu útibúi, eða réttara sagt
Borgartún 32 h.f. þvi það er búið
að loka á Sigurbjörn ávisana-
reikningum i öllum bönkum fyrir
mörgum árum siðan, en hann
notar starfsfólk i Klúbbnum til aö
undirrita ávisanirnar og hefur
þaö fólk lent i vandræðum vegna
þess.
Útibústjóri Búnaðarbankans i
Mosfellssveit mun hafa afsakað
opnum þessa tékkareiknings með
þvi að Sigurbjörn væri heimilis-
fastur jarðeigandi i hreppnum, en
allt hefur verið gert sem hægt er
til að loka þeim reikningum sem
hann hefur opnað.
Þá eru einnig tvær aðrar
ávisanir sem gefnar hafa verið
út á þennan rnargurnrædda
ávisanareikning sem ekki hefur
reynst til innistæða fyrir; önnur
er gefin út á handhafa en hin á
bæjarfógetann i Gullbringu- og
Kjósarsýslu, þannig að sarntals
eru þessar þrjár ávisanir upp á
rúmar tvær miljónir kr.
Þess má svo að lokum geta, að
fróðir menn telja þetta aðeins
byrjunina. Þvi er haldið fram, að
i gangi sé stór og mikill hringur,
þar sem Sigurbjörn og nokkrir
stórlaxar koma viö sögu, sem
haldi úti sérstöku kerfi til að geta
notað ávisanir sern ekki eru
innistæður fyrir, en það rnál á
eftir að korna upp á yfirborðið.
—S.dór
Óvissa um strætisvagna
t gærmorgun var mikil hálka á
götum Reykjavikur og lentu
strætisvagnarnir i erfiðlcikum af
þeim sökum. Þrír vagnar fóru
þversum á götum og lokuðu þeim
um lengri eða skemmri tima, en
aðeins urðu smávægilegar
skemmdir á einum þeirra. Af
þessum sökum hættu vagnstjórar
akstri i tvær klukkustundir, eða
þar til undanþága hafði veriö
veitt til saltburðar á götur. óku
vagnarnir samkvæmt helgidaga-
áætlun eftir það,
Eirikur Asgeirsson forstjóri
strætisvagnanna sagði i gær, að
ekki væri ljóst hvert yrði fram-
hald strætisvagnaferða næstu
daga. Sótt heföi veriö um undan-
þágu fyrir starfsmenn á verk-
stæði, en ekki væri enn búið að
veita hana. Það væri hins vegar
forsenda þess að vagnarnir gætu
haldið áfram akstri. Oliubirgöir
kvað Eirikur strætisvagnana
hafa til ca. 10 daga, og yrði þvi
ekki stöðvun vegna oliuskorts
fyrr en aö þeim tima liðnum ef
verkfall stæði þá enn yfir .• —erl
5 skip með 14001.
Fimm skip tilkynntu afla, sam-
tals 1400 tonn til loðnunefndar i
gær og er þá heildaraflinn orðinn.
rúrn 150 þúsund tonn, en hann var
á rniðnætti 16. feb. slétt 150 þús-
und tonn, en var á sarna tirna i
fyrra 173 þúsund lestir.
1 Nú eru aðeins 8 bátar aö
loðnuveiðum, að sögn starfs-
manna loðnunefndar, og margar
verksmiðjur eru hættar aö taka á
móti loðnu, þar eð verkfall skellur
á á þeimstöðum næstu daga. Þar
i eru flestar verksmiðjurnar á
Austfjörðum.
—S.dór.
Það er ekki
sama Jón
og séra Jón
Detti þér i hug, lesandi
góður, að fá þér vinflösku i
ATVR.er ekkitilneinsfyrir þig
að reyna aö greiða hana með
ávisun, ekki einu sinni þótt
rikissjóður eigandi ATVR, sé
útgefandinn. Þú verður að
gjöra svo vel og vera tilbúinn
með beinharða peninga,
annars færðu ekki flöskuna.
En ef þú átt veitingahús, þá
er annað uppá teningnum,
jafnvel þótt húsið sé i alvar-
legum fjárhagsörðugleikum,
svo ekki sé meira sagt. Þá má
það greiða meö ávisun og það
upphæð svo miljónum skiptir.
Nýjasta dæmiö er að Lækjar-
mót h.f. sem rekur veitinga-
húsiö Klúbbinn, sem svo er
nefnt i daglegu tali, greiddi
föstudaginn 6. feb. sl. 1,6
milj. kr. með innistæðulausri
ávisun fyrir áfengi hjá ATVR.
Það er enn gamla sagan um
hann Jón og séra Jón; þeir
standa aldrei jafnir á íslandi.
Ætlar að sækja
um störf sem
forseti
Helgi Hóseasson trésmiður
sendi auglýsingu til blaðsins i gær
þar sem hann auglýsir eftir með-
mælendum.þar sem hann hyggst
sækja um störf sem forseti is-
lands fyrir kjörtimabilið sem
hefst 1. ágúst nk. Þarf hann 1500-
3000 meðmælendur til þess aö
geta gefið kost á sér.