Þjóðviljinn - 22.02.1976, Side 5

Þjóðviljinn - 22.02.1976, Side 5
Sunnudagur 22. febrúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA. 5 Bandarísk verkalýðshreyfing: Ráölaus og höfuðlaus her Eitt af því sem ólíkt er með Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum er það, að evrópsk verklýðshreyfing er mjög pólitísk, nátengd pólitískum flokkum sem reka erindi hennar hver með sínum hætti. í Banda- ríkjunum hefur sam- bræðsla borgaralegs áróðurs gegn pólitískum afskiptum verklýðsfélaga og þröngrar kjarahyggju verklýðsforingja leitt til þess, að þarlend verklýðs- hreyf ing er máttlaus i póli- tískum efnum og hug- myndasnauð. Til eru þeir sem hafa hrósaö þessu bandariska ástandi og visað til góðra kjara bandariskra verkamanna. En hér á eftir verður það hinsvegar rakið að nokkru, hvernig hin pólitiska vesæld leiðir til ráðleysis i sjálf- um kjaramálunum hvenær sem að kreppir. Hollusta Um áramót var vinnumála- ráðherra Bandarikjanna, Dunlop, spurður að þvi, hvort að kreppan hefði sorfið svo að bandariskum verkamönnum, að þeir hefðu fyllst beiskju i garð hins banda- riska efnahagskerfis. Dunlop kvað það af og frá, bandariskir verkamenn væru mjög tryggir hinu „frjálsa framtaki”. Mörgum mun finnast þessi tryggð harla undarleg. A sl. ári lækkuðu raun- tekjur enn og atvinnuleysið jókst og fór yfir 8%. Þetta þýðir i reynd að nú eru fleiri menn atvinnu- lausir en i kreppunni miklu á fjórða áratugnum (en þá var hlutfall atvinnuleysingja að sjálf- sögðu hærra). Um leið hefur hagnaður fyrirtækja farið vax- andi — Wall Street Journal segir að hann sé um 16% fyrir árið i heild Launakostnaður á fram- leiðslueiningu hefur minnkað og framleiðni hefur aukist um hvorki meira né minna en 8%. Og um leið hefur aðeins 0,2% af vinnustundum „tapast” vegna verkfalla, og er það tiu sinnum minna en fyrir fimm árum Versnandi staða Sú var tið, að vitnað var til lffs- kjara bandariskra verkamanna til sönnunar á þvi að þeir byggju við kerfi sem væri hagkvæmt bæði verkafólki og kapitalistum. En á siðustu árum hafa laun verkafólks i ýmsum vestur- evrópskum löndum farið fram úr bandariskum. Og sé þróunin skoðuð kemur i ljós að margir hafa nú minni tekjur i Banda- rikjunum en þeir höfðu 1965. 1 US News and World Report er launa- þróuninni lýst með tilvisun til launa „meðalverkamanns”. Laun meðalf jölskyldufram- færanda hafa hækkað um 71% siðan 1965 en á sama tima hefur framfærslukostnaður aukist um 81%. En afleiðingar þessa eru ekki eins slærnar og rnenn gætu haldið vegna þess, að þeirn fjöl- skyldurn hefur fjölgað verulega þar sern fleiri en einn vinna úti og þvi hafa rneðalrauntekjur fjöl- skyldna hækkað nokkuð á siðustu tiu árurn. Flestir þeirra sem i fyrra unnu sér að ráði meira en áður bættu við sig tekjum með lengri vinnu- tima. Siðastliðið ár var og heldur slæmt þeim sem gerðu nýja kjarasamninga. Alls voru gerðir nýir samningar fyrir 2,5 miljónir verkarnanna. 1 höfuðatriðurn var útkoman sú að launahækkanir náðu ekki verðbólguáhrifunum. munu reyna að ná auknu frelsi til að stjórna framleiðslunni og að útrýma gömlum úreltum og dýrum ákvæðum vinnulög- gjafarinnar” segir sáttasemjari rikisstjórnarinnar, W.J. Usery. Þessi ósk getur rekist á kröfur margra verkamanna um aukið öryggi á vinnustað. Þær umsagnir sem menn hafa fengið frá sérfræðingum og full- Ráðherra atvinnumála teiur að þrátt fyrir minnkandi rauntekjur og aukið atvinnuleysi séu bandariskir verkamenn enn mjög trúir sinum kapitalisma. Tíöinda leysi ? Meðlimir verklýðsfélaganna hafa að þvi er virðist tekið þessari útkomu með ró. Tekið er dæmi af póstmönnum, sem árið 1971 áttu i harðri vinnudeilu, en tóku nú þegjandi og hljóðalaust samn- ingum sem voru þeim um margt óhagstæðir. Enda kallar blaðið Business Week sl. ár ,,ár mála- rniðlana verkalýðshreyí- ingarinnar”. En hugsast getur að til fleiri tiðinda dragi nú árið 1976, en semja þarf á næstu mánuðum upp á nýtt fyrir um 4,5 miljónir manna, m.a. verkafólk i gúm- iðnaði, bilaiðnaði og vöru- bilst jóra. Af hálfu verklýðsfélaganna verður reynt að ná upp þvi sem verkafólk hefur tapað á verðbólg- unni. Mörg þeirra munu hafa á lofti einhverskonar dýrtiðarupp- bætur, sem og kröfur um aukið framlag atvinnurekenda i at- vinnuleysingjasjóði. En atvinnurekendur munu að sinu leyti sækjast eftir þvi að ná sterkari tökum á verkafólki. „Stjórnendur fyrirtækjanna trúum stjórnvalda benda til þess að launahækkanir i nýjum samningum muni nema 10-12%. Með þvi að rauntekjur meðal- verkamanns hafa minnkað um 9% siðan siðast var samið 1973 þýðir þetta, að það tap fæst bætt — en það er einnig liklegt að sá árangur sem næst étist fljótt upp af áframhaldandi verðbólgu. Sundrung Mörg dæmi mætti nefna um ráðleysi og veikleika banda- riskrar verklýðshreyfingar. Hún hefur reyndar ekki verið sterk áratugum saman. Kynþátta- vandamálin hafa haft sundrandi áhrif á hreyfinguna. Eitt helsta tilefni árekstra innan he.nnar undanfarin ár hefur verið busning,— m.ö.o. sú viðleitni að blanda saman börnum af mis- munandi kynþáttum i skólum. Þó nokkur verklýðsfélög hafa stutt mótmælaaðgerðir hvitra kyn- þáttahatara gegn framkvæmd laga um þetta efni. Um leið hefur verklýðshreyfingin sem heild sætt sig við það, að atvinnuleysi Þessi kapitalisti er heldur fýidur evrópskur. meðal þeldökkra er helmingi meira en meðal hvitra manna og einnig að konur og svo fólk af minnihlutaþjóðernum er fyrst rekið úr vinnu hvenær sem skórinn kreppir að. Það dregur og úr styrk verklýðsfélaganna að ekki eru nærri allir vinnandi menn félagsbundnir. Laun bygg- ingarverkamanna hafa farið lækkandi og um leið hafa ófélags- bundnir menn gengið i 50-60% verka. En atvinnuleysið hjá fag- mönnum i byggingariðnaði nemur um 20%. Stéttasamvinna Fyrir utan kynþáttafordöma, mikinn fjölda ófélagsbundinna verkamanna og félagslega deyfð má einnig til nefna stéttasam- vinnu verklýðsforingja og atvinnurekenda sem áhrifaþátt i þá veru að veikja verklýðshreyf- inguna. John Dunlop atvinnu- málaráðherra kemst svo að orði um þetta atriði: „Ég álit að inn- byrðis samskipti á vinnu- markaðnum hafi batnað á siðari árum. Andrúmsloftið i sam- skiptum toppmanna hjá verk- lýðsfélögum og fyrirtækjum er orðið betra en það var.” Dunlop lætur sig i þessu sam- hengi engu varða, að andrúms- loftið „hjá toppmönnum” er orðið „betra” aðeins vegna þess að verklýðsbroddarnir geta ekki lengur hótað heldur verða að betla umbætur i samninga- viðræðum. Jafnvæginu i stétta- samvinnunni hefur verið raskað. Verklýðsforingjarnir geta ekki á svip — enda á hann að heita einu sinni tryggt félagsmönnum sinum þann árangur sem menn höfðu náð á siðasta áratug. Enn einn þáttur sem virkar i sömu átt er kreppan og þar með mikið tal um að það.sé „minna til skiptanna”. Og þá má þvi við bæta að hin nýja uppbygging efnahagslifsins hefur veikt undir- stöður verklýðshreyfingarinnar. Þau fyrirtæki sem mestu ráða eru annaðhvort samsteypur (margra ólikra fyrirtækja, eða þá risa- fyrirtæki sem starfar i mörgum löndum. Verklýðsfélögin hafa ekki fylgst með þessari þróun. Verkamenn i einni framleiðslu- grein, skipulagðir i eitt verklýðs- félag, geta ekki með verkfalli komið höggi á stóra samsteypu sem heldur barasta áfram fram- leiðslu i öðrum greinum. Verka- menn i einu landi geta ekki sigrað fyrirtæki sem nú þegar tekur mestan hluta gróða sins af úti- búum erlendis. Auðhringarnir I upphafi var minnst á pólitiskt áhrifaleysi verklýðshreyf- ingarinnar — og ýmis félög og sambönd hafa sýnt lit á að revna að breyta þeirri stöðu að nokkru. En það er ekki vist að það hefði nú jafnmikla þýðingu og stundum áður að verklýðsfélögin kæmu sér upp nokkrum hópi pólitikusa Vald stóru auðhringanna er nú orðið svo mikið, að pólitiskar stofnanir eiga harla erfitt með að þvinga þá til eins eða neins. Enda hefur bandariskur ráðherra svo Framhald á bls. 22.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.