Þjóðviljinn - 12.03.1976, Blaðsíða 24
Föstudagur 12. marz 1976
1 nágrenni viO þennan landsfræga skúr verúur efnt til mótmæiastöúu á morgun.
Stúdentaróðs-
kosningar:
Vinstri
menn
sigruðu
Vinstri menn i háskólanum
unnu enn einn kosningasigur i
gær þegar kosið var til helm-
ings Stúdentaráðs til tveggja
ára og um annan fulltrúa stúd-
enta i Háskólaráði.
Fengu vinstri menn 854 at-
kvæði eða 54,7%, en hægri
menn fengu 706 atkvæði eða
45,3%. Kosningaþátttaka var
1621 af 2784 skráðum stúd-
entum i H.t. eða 58,2%, sem er
heldur minni kjörsókn en i
fyrra, en þá kusu 1558 af 2549
skráðum stúdentum eða um
61%. Þá sigruðu vinstri menn
með 848 atkvæðum gegn 671,
svo útkoman i ár er svipuð og i
fyrra, sem teljast má þokka-
leg útkoma miðað við þann
hræðsluáróður sem hægri
menn hafa rekið gegn vinstri
stúdentum vegna lánastefnu
þeirra.
Engin ástæða er þó til að
fagna þessum úrslitum um of,
þvi ætla hefði mátt að reynsla
sú sem nú hefur fengist af
óstjórn hægri aflanna við
rekstur þjóðarbúsins, og þau
kreppu- og samdráttarvið-
brögð, sem komið hafa illa við
námsmenn (öðrum fremur
e.t.v.), að það hefði átt að
opna augu þeirra betur en
þessi úrslit sýna fyrir raun-
verulega eðli ihaldsstúdenta
Vöku. En reynslan hefur þvi
miður sýnt, að þegar hægri
stjórn fer með völdin i þjóð-
félaginu og kreppueinkenni
fara að gera vart við sig, er
sem allur vindur sé úr há-
skólastúdentum og hægri öflin
eiga þá greiðan aðgang að
hjörtum margra auðtrúa
sálna.
ráa
Herstöðvaandstæðingar efna til
Mótmælastöðu við
Keflavíkurflugvöll
Á morgun, laugardag
munu herstöðvaandstæð-
ingar efna til mótmæla-
stöðu við hlið Keflavíkur-
flugvallar. Hefst hún ár-
degis og stendur til kl. 16 en
þá hefst fundur í sam-
komuhúsinu Stapa þar sem
flutt verða ávörp, skáld
lesa upp og tónlistarfólk
kemur fram.
Það var hópur herstöðvaand-
stæðinga á Suðurnesjum sem átti
frumkvæðið að aðgerðum þess-
um. Hafa þeir samið dreifibréf og
eru helstu vigorð þess: Island úr
Nató — herinn burt. Gegn rán-
yrkju. Enga samninga. Herskipin
út fyrir 200 milurnar.
Miðstöð aðgerðanna verður i
Ungmennafélagshúsinu i Kefla-
vik og þaðan verður lagt upp i
þær. Eru þeir sem vilja taka þátt i
aðgerðum þessum beðnir að gefa
sig fram þar á morgun. Eins má
hringja þangað i sima 92-2062.
Aðgerðir hefjast
árdegis ó morgun
og þeim lýkur
með baráttufundi
í Stapa kl. 16
Hér i Reykjavik er einnig unnið
að skipulagningu aðgerðanna og
geta þeir sem búa á höfuðborgar-
svæðinu og hafa hug á að taka
þátt i aðgerðunum leitað allra
upplýsinga um þær að Skóla-
vörðustig 45 (Hábæ) efstu hæð
eða i sima 1-79-66. Ariðandi er að
menn láti skipuleggjendur vita af
sér áður en þeir halda af stað suð-
ur eftir. Fyrir billausa skal tekið
fram að rútuferð verður til Kefla-
vikur frá BSÍ kl. 8 i fyrramálið en
auk þess ganga sérleyfisbilar frá
sama stað kl. 9.30, 13.30 og 15.30.
Þá eru menn hvattir til að fjöl-
menna á fundinn i Stapa kl. 16.
Ekki hefur verið gengið endan-
lega frá dagskránni en vitað er
um þátttöku nokkurra skálda,
Arnar Bjarnasonar trúbadúrs,
söngsveitarinnar Þokkabótar,
triósins Við þrjú o.fl. Ræðumenn
verða bæði heimamenn af Suður-
nesjum og menn af höfuðborgar-
svæbinu.
Nánar verður greint frá að-
gerðunum og dagskrá fundarins i
Þjóðviljanum á morgun.
—ÞH
wðvhhnn
Samkvœmt tillögunum eigum við að láta 90.000 tonn
meðan útlendingar veiða 100.000 tonn af þorski
Niðurskurður okkar afla 33%
útlendinga aðeins 10-15%
Slíkar tillögur eru fráleitar, segir Lúðvík Jósepsson
Þetta eru fráleitar tiliögur aú
minu viti, sagúi Lúúvik Jóseps-
son, fyrrverandi sjávarútvegs-
ráúherra, þegar Þjóðviljinn
leitaði álits hans á álitsgerú till-
iögunefndar um stjórnun fisk-
veiúa, scm skýrt er frá á forsiðu
Þjóúviljans I dag.
Þar sem tillögurnar hafa ekki
veriú birtar i heild, þá vil ég aú
visu aúeins ræúa þann hiuta
þeirra, sem fréttir eru komnar
fram um. Ljóst er, að tillögurn-
ar gera ráú fyrir þvi, að þorsk-
afli islendinga verði á þessu ári
skorinn niúur um 33% úr tæp-
lega 270.000 tonnum I 180.000
tonn, en hins vegar er gert ráð
fyrir þvi að samanlagúur þorsk-
afii aipiarra þjóúa hér viú land
minnki aðeins um 10—15% úr
náiægt 115.000 tonnum á siúasta
ári I 100.000 tonn.
Ég get ekki annað en lýst
undrun minni á þessum tillög-
um. Lagt er til að stöðva svo til
allar þorskveiðar I 2—4 mánuði
á árinu, en hins vegar er samið
við vestur-þjóðverja, belga,
norðmenn og væntanlega færey-
inga um að halda hér uppi veið-
um og ekki má gleyma tilboði
rikisstjórnarinnar til breta um
65.000 tonna ársafla.
Ég vil taka það fram, að ég tel
ekki mögulegt að gera mjög rót-
tækar ráðstafanir til að draga
úr okkar eigin afla, meðan stór-
ir erlendir togaraflotar stunda
enn veiðar i okkar fiskveiði-
landhelgi. Fyrst verður að
stöðva þær veiðar.
— En hvað um áhrif af þriðj-
ungsniðurskurði þorskveiða á
atvinnuástandið, og hvernig
kemur þetta við einstaka lands-
hluta?
— Ljóst er að þessar tillögur,
ef framkvæmdar verða, munu
bitna með miklum þunga á
Vestfjörðum, Norðurlandi og
Austfjörðum. Niðurskurður er
langsamlega mestur á sumar-
vertiðinni, en þá hefur útgerð
verið í fullum gangi i þessum
þremur landshlutum. Hins veg-
ar er niðurskurðurinn mun
minni i sambandi við aðalvetr-
arvertiðina.
Fyrir austan, norðan og vest-
an er aflinn yfir sumarmánuð-
ina nær eingöngu þorskur.
Bestu ufsasvæðin er búið að af-
henda vestur-þjóðverjum með
samningunum við þá, og karfa-
veiðar hafa ekki verið stundað-
ar frá þessum landshlutum um
langt árabil.
Hér suðvestanlands lita málin
nokkuð öðru visi út. Hér hefur
togaraflotinn veitt allmikið af
karfa og ufsa, og mikið af báta-
flotanum hér snýr sér að hum-
arveiðum að lokinni vetrarver-
tið. Um slikt er hins vegar ekki
að ræða i öðrum landshlutum.
— En er ekki rétt, að tillög-
urnar geri ráð fyrir 100.000
tonnum af þorski i hlut útlend-
inga, eða nokkru meira en nem-
ur öllum niðurskurðinum hjá
okkur sjálfum?
— Jú, það eru forsendurnar,
sem nefndin gefur sér, en þess-
ar forsendur tel ég fráleitar. A
sl. ári veiddu bretar hér um
90.000 tonn af þorski, og þó búið
sé að semja við nokkrar aðrar
þjóðir um veiðar á slatta af
þorski, þá tel ég að áætlun um
100.000 tonna aflamagn útlend-
Þrjátíu daga
gæsluvarðhald
til viðbótar
1 gærmorgun voru þrir
þeirra, sem sitja i gæsluvarð-
haldi, vegna hvarfs Geirfinns
Einarssonar, úrskurðaðir i
þrjátiu daga gæsluvarðhald til
viðbótar að kröfu Hallvarðs
Einvarðssonar, varasaksókn-
ara rikisins.
Gæsluvarðhaldsúrskurður
fjórða aðilans, sem situr inni
vegna rannsóknarinnar, renn-
ur ekki út strax en af öllum
sólarmerkjum má ráða, að
töluvert sé enn eftir af rann-
sókn málsins.
—gsp
Sigur á
Stokkseyri
Sjómenn á Stokkseyri hafa
undirritað samninga, sem eru
i meginatriðum eins og heild-
arsamningarnir en þó með
hærri skiptaprósentu á neta-
veiðum. Samningarnir á
Stokkseyri voru samþykktir á
félagsfundi með 42 samhljóða
atkvæðum. Það voru útgerð-
armenn heima sem áttu frum-
kvæði að þvi að taka málin úr
höndum Llú og ganga til móts
við sjómenn á Stokkseyri.
Ægir
klippti
Um kl. hálfniu I gærkvöldi
klippti varðskipið Ægir á báða
togvira breska togarans Ross
Khasmer GY 122 frá Grimsby.
Atburður þessi átti sér stað 31
milu austur af Hvalbakssvæð-
inu, en á þeim slóðum var
haugasjór og austsuðaustan
7—8 vindstig I gærkvöldi.
Freigátan Galathea F-18 var
þarna nærstödd, og fékk ekk-
ert að gert, en hún hefur fylgt
Ægi eins og skuggi nú um
nokkurn tima. Hafa bresku
togaraskipstjórarnir jafnan
þar til nú hrósað skipherra
freigátunnar fyrir að vera
verndarstarfi sinu vaxinn.
Skipherra á Ægi er Þröstur
Sigtryggsson.
Lúðvik Jósepsson
inga i ár tákni ekki annað en
uppgjöf við að verja landhelg-
ina. Ég tel engar likur á, að
bretar geti stundað hér veiðar
nema fram i ágúst, þegar siðari
fundi Hafréttarráðstefnunnar
lýkur, svo að þar er ekki um að
ræða nema 8 mánuði af árinu,
og sá timi á ekki að þýða nema
30—50.000 tonn af þorski alls
þeim til handa.
Tillögurnar tel ég þvi fráleitar
og litt hugsaðar, og ég trúi þvi
tæplega að sjávarútvegsráð-
herra fallist á slikar ráðstafan-
ir.
Hitt er svo allt annað mál, að
við gerum sérstakar ráðstafanir
til að koma i veg fyrir smáfiska-
dráp með skyndilokun veiði-
svæða, með stækkun möskva og
þó fyrst og fremst með stór-
efldri landhelgisgæslu.