Þjóðviljinn - 14.03.1976, Blaðsíða 15
Sunnudagur 14. marz 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
ÁVARP
TIL ALLRA KVENNA
Við komum til Berlinar frá öll-
um hcimsálfum til þess að taka
þátt i alþjóðlegu kvcnnaþingi i til-
cfni kvennaárs. Jafnrétti — fram-
þróun — friðurer kjörorðið, sem
hefur' sameinað okkur. t anda
þess sendum við eftirfarandi
ávarp til allra kvenna i veröld-
inni:
Mannkyniö nálgast nú lok 20.
aldar. Sú öld hefur verið timi
meiri breytinga en áður hafa
þekkst á öllum sviðum mannlegs
lifs. Við okkur blasir sú stað-
reynd, að sifellt fleiri þjóðir sækja
i átt til friðar og félagslegs rétt-
lætis.
Okkur er ljóst hið sögulega
tækifæri og sú ábyrgð, sem hvilir
á okkar kynslóð hvað varðar það
að móta með lifi sinu og baráttu
þá veröld, sem biður næstu kyn-
slóöa — Verður það blómstrandi
garður eöa cyðimörk vetnis-
sprengjunnar — verður það ver-
öld þjóða og rikja, sem vinna
sarnan i friði og af gagnkvæmri
virðingu, eða óeirðastaður, fullur
ögrana og óréttiætis?
Það er okkar að svara. Við
ryðjum veginn til komandi aldar-
fars.
Okkur, konum heimsins, sem
kveikjum lif næstu kynslóða, ber
að ryðja brautina til eigin
öryggis, öryggis til handa börn-
um okkar og barnabörnum. Sá er
tilgangur okkar svo lengi sem við
lifum.
Viö höfum tekið okkur stöðu
sem málsvarar allra þeirra, sem
vilja lifa i veröld, sem finnur
lausnir á erfiöustu vandamálum
mannkynsins. Við biðjum um
samstöðu allra þjóða i viðleitn-
inni tii þess að ná þessu marki.
Friöur
1 aldaraðir var hann ekki annað
en draumur fólksins. 1 dag eygj-
um við möguleika á varanlegum
friði. Sú breyting, sem orðið hefur
á andrúmslofti kalda striösins til
samningaumleitana svo og auk-
inn styrkur þeirra afla, sem helga
starf sitt friði og frelsi þjóða ýtir
mjög undir slika bjartsýni.
Samt scm áður er hættan á
styrjöld enn fyrir hendi. Vig-
búnaðarkapphlaupið heldur
áfram. Þriú hundruð þúsund
miljónum dollara er varið árlega
til vopnabúnaðar. Ef fé það, sem
notað er til vopnakaupa og ógnar
svo mjög friönum væri notað til
félagslegra þarfa væri mun fleirri
konum og stúlkum tryggt at-
vinnuöryggi, allir menn gætu átt
kost á aukinni menntun, koma
mætti á opinberri vernd móður og
barns, fólk gæti átt kost á ókeypis
skólavist og stofna mætti lista- og
menningarsjóði.
Við segjum: Afvopnun — ekki
vigbúnaður. Auknar fjárveitingar
til þess að vinna að réttindamál-
um kvenna. Við fordæmum
vopnabúnað —auðhringana, sem
ásælast i aukinn gróða. Við vör-
um við hernaðarsinnum, sem
vinna gegn friði til þess að hagn-
ast á striði.
Framþróun
' I þessu orði felst aukin þátttaka
kvenna i félagsmálum, i stjórn-
málum og fjárhagslegu sjálfstæði
þjóðanna, barátta kvenna fyrir
auknu lýðræði og félagslegum
framförum. önnur hver kona býr
i landi, sem hefur á siðustu árum
brotist undan erlendum drottnur-
um. Efnahagslegt sjáifstæði
verður að fylgja i kjölfar þjóð-
frelsis. Konur eiga að hafa ótvi-
ræðan rétt og tækifæri til þess að
ákveða sina eigin framtið. Ein-
ungis frjáls þjóð megnar að
tryggja konum þann rétt, sem
þeim ber.
Við setjum það á oddinn, að
engin þjóö nokkurs staðar i ver-
öldinni þurfi að þjást af hungri.
Viö krefjumst þess að allt
mannkyn fái að taka virkan þátt i
félagslegum framförum.
Jafnrétti
t þjóðfélaginu, i löggjöfinni og i
reynd. Ekkert af þessu öðlast
konur af sjálfu sér. Við krefjumst
þess, að konur fái þroskað hæfi-
leika sina til fulls og njóti mögu-
leika sinna enda sé það tákn
virðingar þeirra og framþróunar.
Viðerum i andstöðu við úreltar
hugmyndir um eignarétt og vald,
sem viðheldur óréttlætinu, sem
konur eru beittar hvað varðar
menntun, viðurkenningu og
félagslega stöðu.
Við segjum: Jafnrétti er jafn
réttur innan fjölskyldunnar og
þjóðfélagsins, jafn réttur til
vinnu, jöfn laun fyrir sömu vinnu
og alhliða viðurkenning á hlut
kvenna á öllum sviðum lifsins.
Jafnrétti næst ekki nema með
virkri þátttöku kvenna sjálfra.
Við skorum á konur að vera virk-
ar.
Frelsun kvenna frá áhyggjum
og skorti er þvi aðeins möguleg,
að um sé að ræða þjóðlega og
félagslega frelsun þvi að örlög
kvenna ráðast beint af örlögum
þjóða þeirra. Friður, lýðræði,
þjóðlegt sjálfstæði og félagslegar
framfarir verða að komast á um
allan heim. ».
Þetta eru markmið, sem fela i
sér kvaðir á okkur og krefjast
fullrar þátttöku okkar. Og — við
höfum mögulcika á að ná þeim.
Konur, þekkið
ykkar eigin styrk
Rödd ykkar er öflugt baráttu-
tæki, talið hátt og skýrt og óhikað.
Framtið jarðarinnar veltur á þvi,
sem hver einstaklingur tekur sér
fyrir hendur — við allar.
Sameinumst í
samræmdum aðgerðum
Möguleikarnir, sem við konur
ráðum yfir eru mjög mismun-
andi. t kvennasamtökum, æsku-
lýðsfélögum, • verkalýðsfélögum,
á þjóðþingum, i sveitastjórnum,
trúfélögum, ýmsum félagasam-
tökum, menningarstofnunum,
verksmiðjum, á skrifstofum, i
þorpum og borgum, heildarsam-
tökum þjóða og alþjóðahreyfing-
um — hvar sem þú ert i starfi:
Geröu citthvað til þess að áhrif
kvenna megi sin einhvers. Efldu
samhug friðelskandi afla.
Konur i öllum hcimshlutum —
bregðist við þessu kalli. Berjist
sjálfar fyrir friði, lýðræöi, þjóð-
legu sjálfstæði, félagslegum
framförum og jafnrétti — verjist
og öðlist það allt.
AFERLENDUM
BÓKAMARKAÐI
Oxford Dictionary
of Current Idio-
matic English
Volume 1: Verbs with Prepo-
sitions & Particles. A.P. Cowie &
R. Mackin. Oxford University
Press 1975.
Rit þetta verður tvö bindi. 1
þessu er f jallað um sagnir og al-
menna notkun þeirra i tengslum
viö málvenjur. Fjöldi dæma er
tekinn til nánari skýringa og út-
listana úr bókmenntum, ævisög-
um, blöðum og timaritum. Höf-
undarnir hafa samiö og staðið aö
fjölda útgáfa varðandi enska
málvisi og er þessi bók þeirra hið
þarfasta rit einkum fyrir útlend-
inga. 1 daglegu tali og riti er svo
að ensk orð af engilsaxneskum
uppruna eru notuð fremur en þau
af rómönskum, en þau eru vand-
meðfarnari i notkun en þau róm-
önsku og þvi er þessi bók mjög
svo þörf. Ætlað er að fjallað veröi
um 20.000 orð og oröasambönd i
báðum bindunum samtals.
Ezra Pound: Selected
Poems 1908—1959
Fabcr and Faber 1975
Útgáfan er byggð á vali T.S.
Eliots sem út kom i fyrstu 1928 og
er nú aukin, svipuð útgáfa hefur
verið á bandariskum, markaði
undanfarin ár. Crvalið ætti að
vera góður inngangur að verkum
Pounds, bæði fyrir almennan les-
anda og þá sem stunda bók-
menntasögu.
Að loknu
kvennaári
siðustu 10 árum hefur fósturlát-
um og fæðingum andlega og
likamlega vanheilla barna fjölg-
að mikið”.
Þetta er aðeins ein af fjölmörg-
um lýsingum kvenna á hörmu-
legu ástandi.
1 þinglok var gefið út ávarp til
allra kvenna. Þar er skorað á
konur i kvennasamtökum, æsku-
lýðsfélögum, á þjóðþingum, og i
sveitarstjórnum, trúfélögum,
menningarstofnunum, verk-
smiðjum og skrifstofum, i þorp-
um og borgum, heildarsamtökum
þjóða og alþjóðahreyfingum —
hver sem er:
Gerðu eitthvað til þess að áhrif
kvenna megi sin einhvers!
Þegar Helvi Sipilla flutti þing-
inu kveðjur og árnaðaróskir aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna,
Kurts Waldheims, sagði hún
meðal annars:
„Kvennaárið hefur valdið mikl-
um viðhorfsbreytingum og einnig
breytingum á vinnubrögðum. Við
höfum staðið betur saman en
nokkurn tima áður. Við höfum
staðið saman - ekki gegn körlum
heldur oft með þeim og unnið að
markmiðum til hagsbóta fyrir
allt þjóðfélagið, en ekki eingöngu
konur. Þannig er barátta okkar —
hún er ekki strið — heldur er hún
barátta gegn ýmsum þjóðfélags-
meinum, sem ennþá greina heim-
inn i þróuð og vanþróuð riki, i
stóran meirihluta fátækra rikja
og svo minnihluta sem fleytir
rjómann ofan af öllum veraldar-
auðnum. 1 þeirri baráttu verðum
við að sigra.----Við konur
verðum að skilja hvaða ábyrgð
við berum á framtið mannkyns-
ins og jarðarinnar. Ef við viljum
koma i veg fyrir styrjaldir — ef
við viljum að hver einasfa kona,
karl og barn fái lifað með fullri
sæmd og i frelsi þá er það okkar
að láta svo verða. Aðgerðaleysi af
okkar hálfu er steinn i gotu slikr-
ar þróunar. Með aðgerðum getum
við hins vegar séð til þess að sú
verði þróunin og einungis með þvi
að starfa og vera virkar getum
viö náð markmiöum þessa árs”
JAFNRÉTTI —
F R A M ÞR ÓU N —
FRIÐI.
Hjördís Bergsdóttir
velur gítargrip
viö vinsæl lög
Tökum lagiö
HÆ!
1 dag langar mig til að kynna fyrir ykkur lag af plötunni „AFRAM
STELPUR” i tilefni 8. mars en það er alþjóðlegur baráttudagur
kvenna.
A plötunni, sem kom út siðastliðið haust, eru allflest lögin sænsk og
ljóðin ýmist þýdd eða frumort. Eitt lag af-plötunni er eftir MEGAS og
heitir „1 Viðihlið”.
Konurnar, sem syngja, eru allar þekktar leikkonur. Lagið okkar i
dag er eftir sviann Gunnar Edander og ljóðiö eftir Böðvar Guðmunds-
son, en hann þekkjum við fyrir plötu sina „ÞJÓÐHÁTÍÐARÁRIÐ ’74”
með lögum eins og Varðbergsmenn o.fl.
EINSTÆÐ MÓÐIR
í DAGSINS ÖNN
C a d G7 c
Það var einu sinni móðir sem mædd i dagsins önn
a G7 C
sat marga stund og las i Andrésblaði.
F C
Og innra með sér þuldi hinn sama gamla söng
e F G7
þvi sumir verða að halda i skildinginn með töng
C a d G7 C
og spara við sig matinn og spara það og það
a d G7
eða sperrast annars tvöfalt á sinum vinnustað.
C e G C
Og börnin skilja blankheitin svo illa,
e G7 C
og börnin vilja allt af drasli fylla.
En móöirin var geðprúð og sagði bara: „sjá.
Já, svona er aö vera einstæð móðir.
Það er vist eitthvert lögmál að laun min séu smá,
það leysir engan vanda að slá og slá og slá.
Með öfundlausu hjarta ég hrindi burtu sút
og hamast við min störf meöan aðrir fara út
i félagsskap og finnst þeir vera góðir,
i félagsskap og finnst þeir vera góðir.
Og vist skal þakka launin sem drottinn gaf i dag,
þau duga fyrir nýjum Andrésblööum.
Og fyrir það aö vaka yfir verksmiðjunnar hag
þér veitist fylgd meö Jóakim önd I bófaslag.
Og þaöer bara firra, meö fúlt og snautlegt lif,
þvi fyrir mina dóttur ég er jú stoð og hlif.
Og Andrésblöö ég á fyrir mig sjálfa
sem athygli og draumagetu þjálfa.”
Já siik var þessi móðir sem mædd i dagsins þröng
tók mikinn þátt I velfarnaðarauka.
A daginn eftir vinnu var dóttir hennar svöng
en dragsúgur i gáttum, viö eldhússtörfin söng:
„Nú matbýrö þú og hamast og finnst þú vera frjáls
en fjötrar allra tima, þeir liggja þér um háls.
Nú þrælar þú og þræiar vegna heimsku
en þú munt samt um eilifö falla i gleymsku.
Þá hristi litla mamman sig mitti dagsins önn
og mælti við sig sjálfa: „Hvað skal gera?
þvi freisisþulan gamia er fjarska litið sönn
og félagshyggju og jafnrétti miöar ekki spönn.
Um réttinn til aö kjósa og réttlát vinnulaun
menh raupa stundum ákaft en meina ekki baun.
Þaö leggur ýldulykt af þeirra orðum,
menn Ijúga þessu núna eins og forðum.
Það leggur ýldulykt af þeirra orðum,
menn ljúga þessu núna eins og forðum.”
F-hljómur
T1
©Q)
©
©
d-hijómur
— ■«
Q D
<í l
I
C~hl jómur
C )
;Q )
Q D L