Þjóðviljinn - 14.03.1976, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. marz 1976
Lýst eftir
manni
Rannsóknarlögreglan i Kópa-
vogi lýsir eftir manninum á
myndinni hér við hliðina. Hann
heitir Árni Jón Árnason.
Siðast er vitað um Arna i
strætisvagni við Hlemrritorg á
miðvikudagskvöldið. Arni er 175
sm á hæð, brúnhærður, rheð sitt
hár og rauðbirkið hökuskegg.
Hann var klæddur grænni kulda-
úlpu, brúnteinóttum jakkafötum
og uppreimuðum gúmmistigvél-
um, svörtum að lit.
Skiptafundur
i þb. Flugfélagsins Air Viking h.f., sem
tekið var til gjaldþrotameðferðar með úr-
skurði uppkveðnum 2. þ.m., verður hald-
inn i skrifstofu borgarfógetaembættisins
að Skólavörðustig 11, herbergi nr. 10 á III.
hæð, þriðjudaginn 23. þ.m. kl. 10 árdegis.
Ræddur verður hagur búsins og tekin á-
kvörðun varðandi tilboð i flugvélar i eigu
þess.
Skiptaráðandinn i Reykjavík
12. marz 1976.
ALÞÝÐUBANDALAG
Árshátið A.B.R.
Árshátið Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður haldin að Hótel Borg
föstudaginn 26. mars n.k. og hefst meðborðhaldi kl. 19.
Matargestir tilkynni sig i sima 28655.
Skemmtiatriði nánar auglýst slðar. — Stjórn A.B.R.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 16. mars kl. 20.15.
Fundarefni:
1. Stefán Jónsson þingmaður reifar spurninguna um eignarnám á
landi. — Hvert er langtimamarkmið Alþýðubandalagsins varðandi
þetta mál?
2. Arni Waag sýnir litskuggamyndir og tekur fyrir efnið: Náttúru-
vernd og sósialismi.
Ka ffiveitingar. Takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsmálanámskeiðið hefst föstudaginn 19. mars. Vinsamlega til-
kynnið þátttöku i sima:
43357 Asgeir 41962 Baldur
42331 Grétar 40047 Margrét
42462 Ragna Freyja 40671 Þorleifur
Alþýðubandalagið Akranesi
Félagsfundur i Alþýðubandalaginu á Akranesi
verður haldinn sunnudaginn 14. mars kl. 16.30 I
Rein.
Helgi
Alþingismennirnir Helgi Seljan, Jónas Árnason og
Vilborg Harðardóttir mæta á fundinum og ræða
stjórnmáiaástandið og horfurnar framundan. Skor-
að er á félagsmenn að fjölmenna og mæta stundvis-
lega.
Stjórnin
Neskaupstaður
„Orkumál á Austurlandi” er efni erindis, sem Erling Garðar Jónsson
rafveitustjóri flytur fyrir almenning I Egilsbúð sunnudaginn 14. mars
kl. 16. Allir veikomnir. — Alþýðubandalagið í Neskaupstað.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Skólamálahópurinn kemur saman I Þinghóli mánudaginn 15. mars kl.
20.30.
Rætt verður um grunnskólalögin, mismunandi skólakerfi og möguleika
á að koma upp tilraunaskóla samkvæmt heimild i grunnskólalögum.
1 þetta sinn er ætlunin að skipta hópnum i tvo til þrjá smærri hópa, þar
sem hver hópur tekur fyrir afmarkað svið. Sameiginlegar umræður
verða svo i Jokinr— Starfshópurinn.
Alþýðubandalag Árnessýslu
gengst fyrir leshring um málefnið: „Leið
Islands til sósíalisma” undir stjórn Einars 01-
geirssonar. Fundir leshringsins verða haldnir
laugardaginn 13. og sunnudaginn 14. mars, að
Eyrarvegi 15, á Selfossi og hefjast kl. rúmlega
2 eftir hádegi á laugardag og stundvlslega
klukkan 2 á sunnudag. Upplýsingar I sima
1659. — Stjórnin
Einar
V/ 1
Vilborg
Ólafur Jóhann
Framhald af bls. 5.
— Frá hvaða starfi tafði verð-
aunaveitingin þig?
— Frá skáídsögu. Sem hefur
verið lengi i smiðum og kallar
liklega á aðra bók, ef mér tekst
að ljúka þessari. Og eins og
löngum fyrr held ég áfram að
setja saman eitthvað kvæða-
bull. Það er allt annars eðlis. Að
yrkja kvæði er eins og synda i
sundlaug, en i skáldsögunni er
maður að reyna að komast yfir
eitthvað andskotans Ermasund.
Það er miklu meiri þolraun.
Eitt var reyndar ónefnt af erf-
iðleikum starfsins. En það er is-
lenskan. Ég hefi alltaf haft grið-
arlega mikið fyrir þvi að skrifa
islensku. Og I annan stað: það
er alltaf verið að bera islenska
höfunda saman við erlenda,
jafnvel höfunda stórþjóða. Þá
vilja menn gleyma þvi að stór-
þjóðarhöfundur sem skrifar bók
sem veitt er athygli, hann hefur
ekki áhyggjur af lifsafkomu
sinni um langan tima, kannski
tekur hann sér þrettán ár til að
vinna að næstu bók. En hjá is-
lenskum höfundum langflestum
er þetta kvöld- og næturstarf,
aukastarf. Það er óneitanlega
lýjandi og kannski ekki við góðu
að búast um árangur.
Árni Bergmann skráði
Elsa
Framhald af bls. 2.
hika ekki við að eyðileggja nú
fyrir miljónir fremur en að semja
um svona einfalt atriði. Þessi
föstudagsuppsögn hrópar ekki á
fleiri miljón króna útgjalda-
aukningu fyrir atvinnurekendur,
en þýðir samt töluvert atvinnu-
öryggi fyrir konur. Sjáist t.d.
fram á hráefnisskort á mánudegi
verða þeir að biða fram til föstu-
dags með blessaða uppsögnina.
En eins og þeir vilja hafa þetta
geta þeir endalaust dag hvern
hengt upp uppsögn, jafnt sUnnu-
dag sem þriðjudag og þar af leið-
andi sloppið við að borga 4
atvinnuleysisdaga sem þeim ber
skylda til.
Það er ekki einu sinni svo, að
þeir borgi allt úr eigin vasa, nei
ónei. Atvinnuleysistrygginga-
sjóður borgar 60%, en vinnuveit-
endur 40% til ársins 1979, en eftir
það lækkar framlag sjóðsins um
10% næstu 5 árin, þannig að
greiðsla sjóðsins fellur niður frá
og með 1. mars 1984.
Árið 1975 borgaði Heimaskagi
13 atvinnuleysisdaga, samtals kr.
257.210.00. Takið eftir: þúsundir,
ekki miljónir. Svo þetta er ekki
peningaspursmál fyrir fyrir-
tækin. Hvað er það þá? Já, ég
spyr. Er verið að sýna konum
fram á, að þær séu öldungis
óþarfar I frystihús? Það sé bara
'greiðasemi við þær, að þær megi
jú vinna ef þær endilega vilja? Ef
svo er, þá þakka ég fyrir mig. Ég
vinn ekki upp á að ég sé öldungis
óþörf. Er hér kannski á ferð þessi
úrelti hugsunarháttur: Þegiðu
kona, þakkaðu fyrir að þú skulir
fá vinnu og vertu nú góð og gerðu
eins og ég (karlmaðurinn) segi
þér?
Gréta
Framhald af bls. 2.
heldur þjóðfélaginu öllu, þótt allir
viti, að þessi atvinnufyrirtæki
eru rekin með lánum og styrkjum
af almannafé.
Það er ekkert nýtt, að konur séu
settar skör lægra en karlar á
vinnumarkaðnum. 1 öllum stétt-
um þjóðfélagsins verður þess
vart. Enginn atvinnurekandi
mundi þora aðkoma þannig fram
við verkamenn sina, að senda þá
heim er ekki væri fiskur. Þeir
mundu þá ekki mæta meir. Mér
finnst það lika hart, að það skuli
ekki vera litið á okkur sem sjálf-
stæða einstaklinga úti á vinnu-
markaðnum, t.d. hvað við kemur
atvinnuleysisbótum, sköttum og
ýmsu fleiru. ,
Við búum si karlmannaþjóð-
félagi og verðum þess sannarlega
varar. Það er þvi timi til kominn,
kæru félagar, að við látum ekki
lengur bjóða okkur hvað sem er,
en stöndum saman um að ná rétti
okkar, bæði i þessu kauptrygg-
ingarmáli og öllum þeim málum,
sem geta orðið til þess að stuöla
að fullkomnu jafnrétti íslenskra
kvenna.
Pípuþanar —
undirstööukefli o.fl.
Tilboð óskast v/kaupa á eftirtöldu efni f.
Gufuveitu Kröfluvirkjunar.
1. Pipuþanar (belgþennslustyki) þvermál
250-800m/m
2. Undirstöðukefli undir pipur, pipuþver-
mál 350-700 m/m
3. Undirstöðuplötur undir pipur, pipu-
þvermál 350-700 m/m
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
gegn 3.000 kr. skilatryggingu. Tilboð
verða opnuð á skrifstofu vorri fimmtudag-
inn 8. april 1976,.kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Hraðnámskeið í ítölsku
fyrir byrjendur hefst miðvikud. 17. mars kl. 21.25, kennt
verður tvisvar I viku miðvd. og föstud.
Verð fyir 20 stundir kr. 1.800 Innritun fer fram mánud.
þriðjud. og miðvd. kl. 19.30-21 i Laugalækjarskóla.
Tilboð óskast i að steypa upp og gera fok-
helt 1. stig þjónustuálmu Borgarspitalans.
Tilboðin verða afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn 15.000.-
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstu-
daginn 2. april 1976, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
/111 \
Útboö
Tilboð óskast i að rifa trébryggju i
Hafnarf jarðarhöfn. Bryggjan er um 150
metra löng og 12 metra breið.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjarverkfræðings Strandgötu 6 Hafnar-
firði. Tilboð verða opnuð á sama stað
mánudaginn 22.3 1976 kl. 11 fyrir hádegi.
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar.
Sveitarstjóri
Staða sveitarstjóra i Vatnsleysustrandar-
hreppi er hér með auglýst laus til
umsóknar.
Nánari upplýsingar veita undirritaður, i
sima 92-6541, og Magnús Agústsson, odd-
viti, i sima 92-6540.
Umsóknir ber að senda skrifstofu Vatns-
leysustrandarhrepps, Vogagerði 2, Vog-
um. Umsóknarfrestur er til 31. mars n.k.
Sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps.