Þjóðviljinn - 14.03.1976, Side 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. marz 1976
Aðsókn fer minnkandi
Þegar blaöamaður ÞjóOviljans
fletti febrúarhefti HagtiOinda rak
hann augun i aO á árunum
1972-1974 minnkaOi aösóknin aö
Listasafni tslands ifr 31.995 áriö
1972 i 25.599 áriö 1973 og á árinu
1974 komu aðeins 16.314 gestir i
safnið. Hér er þvi um nær helm-
ingsfækkun aö ræöa. Til saman-
buröar má geta þess að gesta-
fjöldi Þjóöminjasafnsins stóö i
staö öll þessi ár en þaö er i sama
húsi.
Blaðamaður hringdi þvi i Körlu
Kristjánsdóttur starfsmann
Listasafnsins og spuröi hverju
þetta sætti. Hún sagði aö á árinu
1972 hefði veriö óvenju mikib um
að vera vegna listahátiðar t.d.
hefði verið mjög mikil aðsókn að
stórri yfirlitssýningu á verkum
Sigurjóns ólafssonar og þar að
auki hefði safnið verið með stóra
sýningu I Kjarvalshúsi. Þá sagði
hún aö fyrir nokkrum árum hefði
Hjörleifur Sigurösson annast list-
kynningu i skólum og hefði hann
þá skipulagt hópferðir skólanem-
enda i Listasafnið. Þegar hann
hætti störfum lögðust þessar ferð-
ir niður og væru þvi komur skóla-
nemenda mun færri en áður.
Karla sagði að erlendir gestir
væru stór hluti af gestum safnsins
og árið 1974 hefði verið slæmt túr-
istaár. Þá sagði hún að nú væri
aðsókn að glæðast á ný. A siöasta
ári voru gestirnir 20.395 að tölu.
—GFr.
Þeim sem halda sunnudagsblaði Þjóðviljans til haga, skal bent á að á
afgreiðslu blaðsins fást öskjur til þess gerðar að geyma blaðið i. Þær kosta
kr. 500 stykkið.— Þjóðviljinn.
„Gísl” frumsýnd-
ur á Akranesi
Skagaleikflokkurinn frumsýnir i dag i Bióhöllinni á Akranesi leikritið
Gísl eftir Brendan Behan. Leikstjóri er Herdis Þorvaldsdóttir. Aöal
hlutverk eru i höndum Halldórs Karlssonar, Þóreyjar Jónsdóttur og
Þorsteins Kagnarssonar.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar samþykkir:
Áhafnaskipti
fari fram á Seyðisfirði
Ætu íiliV
ii
Kaupí ekki
lir« K^hausa.fyhst
ÞaJ eþódýeiKðen
ok*'~- -•
Okkai;. Fi’hnst
vií «ttun/Á
beÞj'a5*
dft-ðn ?
01*
A fundi bæjarstjórnar Seyðis-
fjarðar, mánudaginn 8. mars 1976
var eftirfarandi tillaga, sam-
þykkt samhljóða.
1. Það er alkunna að vér islend-
ingar eigum nú i varnarbar-
áttu við erlenda stórþjóð,
vegna lifshagsmuna vorra.
Siðan fiskveiðilögsagan var
færð út á siðastiiðnu hausti
hafa islensku varöskipin leitað
hafnar á Seyðisfirði bæði til
sjóprófa og viðgerða eftir á-
rekstra, sem breskir dráttar-
bátar og herskip hafa valdið og
eins vegna slæmra veðurskil-
yrða út af austnrlandi.
3. A Seyðisfirði er fullkomin að-
staða til hverskonar viðgerða
og viðhaldsá umræddum skip-
um og telja má vist að hafnar-
skilyrði séu hér með því besta
á landinu, auk þess er hér stað-
sett oliubirgðastöð fyrir aust-
firðingafjórðung.
3. A Seyðisfirði situr sýslumaður
N-Múlasýslu, hér hafa verið
haldin sjópróf vegna sjóskaða
ýmisskonar og landhelgis-
brota. Vér teljum þvi alls enga
þörf fyrir varðskip að sigla til
Reykjavikur vegna sjóprófa,
það styttir augljóslega út-
haldstima skipanna og gefur
þar af leiðandi veiðiþjófum
aukið svigrúm.
4. Vér viljum vekja sérstaka at-
hygli yfirvalda á þeim mögu-
leikum sem bjóðast hér á
Seyðisfirði til aukinnar þjón-
ustu við Landhelgisgæsluna.
Vér teljum t.d. engum vafa
undirorpið að hagkvæmt
mundi reynast að hér ættu sér
stað áhafnaskipti á varöskip-
um, en flugvél Landhelgis-
gæslunnar kæmi þar augljós-
lega að góðum notum, hægt
væri að fljúga með áhafnir til
og frá Egilsstöðum, en þaðan
er aðeins um 25 km til Seyðis-
fjarðar. Þessi ráðstöfun væri
hvorutveggja i senn, til aukins
sparnaðar I rekstri varöskip-
anna og lengdi hvilartlma
varðskipsmanna á heimilum
sinum.
5. í framhaldi af framansögðu
leggur bæjarráö eftirfarandi
tillögu fyrir bæjarstjóm Seyð-
isfjarðar.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar
samþykki að bjóða Landhelg-
isgæslu alla þá aðstöðu og
fyrirgreiðslu á Seyðisfirði sem
uhnt er að láta i té i þvi augna-
miði að auðvelda störf varð-
skipsmanna við landhelgis-
gæslu á austfjarðarmiðum.