Þjóðviljinn - 14.03.1976, Page 23

Þjóðviljinn - 14.03.1976, Page 23
Sunnudagur 14. marz 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 2S Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Nýr leikur Stöðugt eru krakkar og unglingar að finna upp á einhverju skemmtilegu. Stundum eru þetta leikir sem gleymast strax, en svo getur farið að smellin hugmynd geri það sem kallað er,„að slá í gegn" og f ari eins og eldur í sinu í hverfinu, skólanum og jafvel víðar. Undanfarið hefur máttsjá krakkana í Austurbæjarskólanum í spennandi leik sem þau kalla MORÐINGJANN. Lausn á krossgátu Sigrún Blöndal, Hal lormsstað, Suður- Múlasýslu, sendi hárrétta ráðningu á síðustu kross- gátu. Lárétt: 1 hendur, 6. akur, 7. nótt, 9. tún, 11. át, 13 rakra Lóðrétt: 1. hatt, 2. ek, 3. nunna, 4, dró 5. rotta, 8. tár, 10. úr, 12. á. Finnst ykkur gaman að krossgátunum? Viljið þið fá krossgátu í hverju blaði? Finnst ykkur að lausn á krossgátunni ætti að birtast i næstu Kompu eða til dæmis í miðviku- dagsblaðinu? Skrifið og segið ykkar álit. 1. Hérna er hópur 12 ára krakka tilbúinn að byrja leikinn. Þau heita, talið f rá vinstri: Sigrún, Marínó, Inga Rún, Guð- björg, Elín, Hulda, Sig- riður Margrét Á, Anna, María, Þórgunnur og Margrét B. Kompan: Hvar lærðuð þið þennan leik? öll: Margrét B. kenndi okkur hann. Kompan: Hvar lærði Margrét leikinn? Margrét B: Bróðir minn bjó hann til. Hann var með hóp af félögum sínum í útilegu í tjaldi og þau voru úti i indíjána- leik, en svo fór að rigna og þau þurf tu að vera inni í tjaldi, og þá þurftu þau að finna upp á einhverju til að stytta sér stundir. Einhver var með spil og þau sátu öll í hring. Einn strákurinn fékk reyk í augað og deplaði því. Þá spurði ein stelpan: ,,Ertu að blikka mig?" ,,Nei, ég er að drepa þig!" sagði hann. Þannig varð leikur- inn til. 2. Þátttakendur sitja í hring. Allir fá eitt spil. Það er ákveðið fyrir fram að t.d. spaðagosinn er morðinginn. Sá sem fær hann lætur það ekki sjást á sér, en situr um færi að „blikka" ein- hvern án þess aðrir sjái. Sá sem blikkar er dauður. 3. Ef eihver annar sér hann blikka getur sá ákært morðingjann, en þá þarf annar (vitni) að staðfesta kæruna, leggur þá ákærði spilið upp og ef það er spaðagosinn og ágiskunin rétt er hann búinn að tapa. Annars getur hann haldið áfram að drepa og kannski unnið leikinn. SAGAN AF KOLLU Ása litla fór með mömmu sinni og pabba upp í sveit til afa og ömmu. Þegar hún kom í sveitina sá hún litinn heimalning. Þegar hún sá hann varð hún strax hrif- in af honum. Ása litla fékk að leika sér við heimalninginn. Afi spurði Ásu hvort hún vildi skira hann. Ása var fljót að segja: „Já." Þessi heimalningur var kollóttur. Ása skírði hann KOLLU. Þegar Ása var að fara heim sagði afi að hún mætti eiga litla heimalninginn. Ása varð himinlifandi og hljóp upp <0/ I ! ' ifeli i fangið á honum og kyssti hann rembings- koss. Helena G. Gunnarsdóttir, Holtsgötu 20. Haf narf irði. Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna Kæra Kompa! Ég þakka þér kærlega fyrir bókina Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna, en ég fékk fyrsta bindi í jólag jöf, kær kveðja, Guðrún Hálfdánardóttir, 9 ára, Freyvangi 17, Hellu, Rang. Það er gaman að fá verðlaunagetraunirnar að svona bréf. Guðrún litla híin fékk bókina senda var svo duglega að ráða f<"á Kompunni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.